Morgunblaðið - 14.07.2000, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrir þöndum seglum
SKUTUSIGLINGAR hafa færst í vöxt hér á landi þöndum seglum skammt undan Ægisgarði í Reykja-
undanfarin misseri. Þessar þrjár skútur sigldu fyrir vík í fyrradag.
Afföll húsbréfa hafa ekki lækkað
AFFÖLL húsbréfa, sem mest við-
skipti eru með, hafa hækkað og
eru nú 15,26%. Meðalafföll eni
hins vegar um 14%. Ávöxtunar-
krafa húsbréfa er 6,05%, en þegar
ávöxtunarkrafa er hærri en vextir
bréfanna verða sjálfkrafa afföll, að
sögn Halls Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra gæða- og markaðs-
sviðs íbúðalánasjóðs. Hallur segir
þetta eðlilega þróun, en Seðla-
bankinn byrjaði að hækka vexti í
mars á þessu ári og nú síðast þann
16. júní sl. „Vaxtahækkun Seðla-
bankans hefur orðið til þess að
ávöxunarkrafan hækkar, en það
var gert til þess að slá á þenslu.
Þetta gerir það að verkum að það
dregur úr útstreymi og fólk hugsar
sig um tvisvar áður en það ræðst í
fjárfestingar. Þetta sýnir bara það
að kerfið er að virka eins og það á
að gera,“ sagði Hallur. Samkvæmt
upplýsingum frá íbúðalánasjóði
dró nokkuð úr umsóknum um hús-
bréfalán í júní, eða að því sem
nemur um 9,1% frá því á sama
tíma og í fyrra. I júní í fyrra bár-
ust sjóðnum 964 umsóknir en í ár
hefur þeim fækkað í 876.
spæiœfiiiii
Við erum svo sannfærð um gæði millilandaþjónustu okkar að þú færð fyrstu
fimmtán mínúturnar ókeypis. Skráðu þig á islandssimi.is eða í síma 594 4000.
millilandasímtöl
Sameining hestafélaga
Þarf aukinn
styrk í mark-
aðsstarf
Kristinn Guðnason
KOMIÐ hefur til um-
ræðu að sameina í
eitt félag megin-
þorra þeirra félaga sem
koma að hestamennsku og
hrossarækt í landinu.
Kristinn Guðnason bóndi
að Skarði á Landi hefur
tekið mikinn þátt í þessum
uim*æðum sem formaður
Félags hrossabænda.
Hann var spurður nánar út
í þessar umræður.
„Það er alltaf að verða
ljósari og ljósari nauðsyn
þessa, að sameina öll þessi
félög undii* einn hatt. Þessi
skilningur er líka fyrir
hendi meðal stjómvalda
með landbúnaðamáðherra
í broddi fylkingar. Það er
öllum ljóst að það fjár-
magn sem við höfum til
umráða í þessari grein nýtist ekki
sem skyldi við núverandi aðstæð-
ur. Oft er um að ræða að menn eru
að leggja fé í ýmis sömu eða svip-
uð mál frá fleiru en einu félagi í
greininni sem leiðir til þess að
verkefnin verða öll hálfmáttlaus í
framkvæmd.“
- Er erfitt að koma þessari
sameiningu í kring?
„Það er mikið verk óunnið á
þeim vettvangi en þeim áfanga er
náð að menn eru orðnir sammála
um nauðsyn þessa.“
- Hvaða verkefni eru helst
óunnin?
„Það er eftir að finna þessu far-
veg og verið er að reyna að byrja á
að sameina skrifstofur Félags
hrossabænda og Landssambands
hestamanna. Einnig er verið að
reyna að sameina markaðsstarfið
en lengra erum við ekki komnir
enn þá, m.a. vegna þess að lands-
mót hestamanna stóð fyrir dyrum
og er nýlokið.
- Hvaða verkefni brenna mest á
ykkur hrossbændum núna?
„Það sem mest brennur á okkur
er að fá aukinn styrk í markaðs-
starf, kynningu og svo umfram
allt fræðslu og kennslu. Við þurf-
um að kenna fólki að meta ís-
lenska hestinn.“
- Nú er íslenski hesturinn æ
vinsælli erlendis - er hann ekki
vinsæll hér að sama skapi?
„Islenski hesturinn er vinsæll
bæði hér og erlendis vissulega en
ég á við að sá sem þekkir hann
ekki erlendis t.d., en þekkir önnur
hestakyn, skilur ekki þá sérstöðu
sem íslenski hesturinn hefur.
Hann er svo fjölhæfur og geðgóð-
ur. Ekkert hrossakyn í heiminum
annað hefur fimm gangtegundir.
Einnig er mikil snerpa og mýkt í
þessu hestakyni. Það er það sem
unnendur íslenska hestakynsins
meta kannski ekki síst.“
- Hverjar eru söluhorfur á ís-
lenska hestinum núna?
„Það hefur verið samdráttur í
sölu íslenska hestsins
núna og sjálfsagt eru
ýmsar ástæður sem
þar liggja að baki. Það
land sem var okkar að-
almarkaðsland, Þýska-
land, er með óhagstætt
gengi um þessar mund-
ir gagnvart íslensku krónunni, þá
má nefna sjúkdóm sem hefur
hrjáð íslenska hesta sem fluttir
hafa verið til Þýskalands og nefn-
ist sumarexem. Hann leggst
þyngra á hesta sem fluttir hafa
verið til Þýskalands en hesta sem
þar eru fæddir. Tollamál hafa ver-
ið að ergja okkur undanfarið eins
og kunnugt er af fréttum. Fleira
► Kristinn Guðnason fæddist að
Skarði á Landi 6. desember 1950.
Hann lauk almennu námi og hef-
ur síðan stundað búskap á Skarði
og starfað töiuvert að félagsmál-
um hrossabænda. Hann á sex
börn; fimm dætur og einn son.
má nefna - við erum með minna
úti af sölumönnum sem markaðs-
setja íslenska hestinn en var á
tímabili. Á móti kemur það fjár-
magn sem kom inn í hrossarækt-
ina síðastliðinn vetur með samn-
ingum við ríkið um átaksverkefni
til fimm ára. Það verkefni er farið
af stað og það sem var byrjað á
þar er að ljúka við svokallaðan
„veraldarfeng" sem á að vera
gagnagrunnur fyrir öll íslensk
hross í heiminum. Þetta teljum við
mikilvægt og mikla viðurkenningu
að íslenskir hrossaræktendur og
bændasamtök íslands fái tæki-
færi til að halda utan um þetta
verkefni. Þetta er viðurkenning á
því að Island sé upprunaland ís-
lenska hestsins.“
- Hvað er hægt að gera til að
stækka markaðinn?
„Við höldum að kennslan sé þar
lykilatriði, ekki hvað síst í Banda-
ríkjunum. Það þarf að setja auk-
inn kraft í reiðkennslu. Það er ver-
ið að leggja umtalsvert fjármagn í
rannsóknir á sumarexemi og verið
er að vinna að því að koma tolla-
málunum í viðunandi ástand. Við
höfum nýlokið glæsilegu lands-
móti þar sem vel kom fram hve
glæsilega hesta við íslendingar
eigum og hvað við stöndum vel
hvað hrossarækt snertir og reið-
mennsku sem við þurfum þó eins
og fyrr sagði að koma enn betur til
skila.“
-Fer hrossaræktendum fjölg-
andi!
„Já og það er hið besta mál. En
það sem við teljum að við þurfum
að gera er að bæta stofninn. Þótt
við eigum mikið af góðum hestum
eigum við samt sem áður of mikið
af hestum sem ekki
henta, hvorki til innan-
landsnotkunar né til
sölu erlendis. Þessu
þarf að breyta.“
- Hefur kostnaður
hrossabænda við fram-
leiðsluna aukist?
„Já, hann hefur aukist. Allt hef-
ur verið heldur á uppleið, fóður-
kostnaður, kostnaður við tamn-
ingar og ýmislegt sem viðkemur
ræktuninni."
- Hver er framtíðarsýnin í
hrossaræktinni?
„Framtíðarsýnin í hrossarækt-
inni er núna að auka gæðin á öll-
um sviðum.
íslendingar
standa vel
hvað hrossa-
rækt snertir og
reiðmennsku