Morgunblaðið - 14.07.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAUIÐ
VIÐSKIPTI
1.595
450
Paine-
Webber
éiírair
í milljörðum dollara, eftir sameiningu
UBS og PainéWcbber
UBS og Allianz Fidelity Kampo Credit Axa Deutsche
Paine- Commerzb. Suisse Bank
Webber DresdnerB.
Sviss Þýskal. Bandar. Japan Sviss Frakkl. Þýskal.
Hinir stóru verða
stærri á fjárfest-
ingarmarkaði
MIKIL samþjöppun hefur verið á
fjármála- og bankamarkaði að und-
anförnu. Nú í vikunni tilkynnti
svissneski fjármálarisinn UBS að
hann hefði keypt bandaríska fjár-
festinga- og verðbréfafyrirtækið
Paine Webber fyrir um 10,8 millj-
arða dali. Með kaupunum á Paine
Webber er UBS orðið stærsta fjár-
málafyrirtæki heimsins að því er
kemur fram í grein þýska blaðsins
Handelsblatt. Heildareignir hins
sameinaða félags verða um 1.600
milljarðar dala og ber það höfuð og
herðar yfir aðra fjárfestingarsjóði.
Sameinaður þýskur risi
Mjög erfitt er að meta hversu stór
markaðurinn með fjárfestingarsjóði
er á heimsvísu en Handelsblatt telur
að upphæðin nemi um 8.000 millj-
örðum dala og þar af sé um einn
þriðji hluti í Evrópu. Sé það mat
rétt er markaðshlutdeild UBS eftir
kaupin á Paine Webber hátt í 20%.
Viðræður um sameiningu þýsku
bankanna Dresdner Bank og
Commerzbank eru að sögn langt
komnar. Gangi sameiningarviðræð-
urnar upp er gert ráð fyrir að stofn-
að verði eitt sameinað fjárfestingar-
félag með trygginga- og fjárfest-
ingarfélaginu Allianz en Dresdner
Bank er stærsti hluthafi í Allianz
með um 22% eignarhlut. Hið sam-
einaða þýska fjárfestingarfélag yrði
þá næststærsti fjárfestingarsjóður
heimsins með eignir sem næmu um
1.025 milljörðum dala sem samsvar-
ar 12% markaðshlutdeild. Lang-
stærsti hluti þess fjár kæmi frá All-
ianz eða um 647 milljarðir dala
heima og erlendis en mun minna frá
Dresdner Bank og Commerzbank.
Allianz, sem er með aðalstöðvar í
Múnchen, keypti í fyrra bandaríska
fjármálafyrirtækið Pimco og komst
þar með í sjötta sæti yfir stærstu
fjárfestingarfyrirtæki heimsins.
Sameining fjárfestingarsjóða
Commerzbank, Dresdner Bank og
Allianz þykir mjög álitlegur kostur
og myndi styrkja mjög stöðu fyrir-
tækjanna á Bandaríkjamarkaði.
Þriðja stærsta fjárfestingarfélagið
er Fidelity Investments í Bandaríkj-
unum með 785 milljarða í sjóðum
eða 9,8% af heild.
Háskólinn i Reykjavík í samstarf við erlenda háskóla
Boðið upp á al-
þjóðlegt MBA-nám
Morgunblaðið/Jim Smart
HÁSKÓLINN í Reykjavík hefur
komist að samkomulagi við alþjóð-
legan samstarfshóp háskóla, GEM,
um að bjóða upp á alþjóðlegt MBA-
nám á Islandi með áherslu á rafræn
viðskipti. Kennsla mun hefjast í
janúar árið 2001 en námið tekur 15
mánuði.
Að sögn Agnars Hanssonar, for-
seta viðskiptadeildar Háskólans í
Reykjavík, verður lögð áhersla á að
mynda nemendahóp með breiðan
og fjölbreyttan bakgrunn en miðað
er við að umsækjendur hafi að
minnsta kosti þriggja ára starfs-
reynslu að baki og hafi hlotið há-
skólamenntun á B.A.- eða B.S.-stigi.
Umsækjendur munu gangast undir
svokallað GMAT-próf og verða
einnig teknir til viðtals. Að sögn
Agnars er búist við því að 20 til 30
nemendur muni hefja nám í janúar.
Nemendur sækja hluta náms
í erlendum háskólum
Námið verður alþjóðlegt í ýmsum
skilningi. Kennt verður á ensku en
skólinn mun í einhverjum mæli fá
kennara frá samstarfsskólunum til
liðs við sig. Auk þess munu nem-
endur sækja námsstefnur hjá ein-
um af samstarfsskólunum þrisvar
sinnum á námsferli sínum. Nem-
endum mun einnig gefast kostur á
að stunda starfsnám erlendis og
vinna verkefni fyrii- erlend fyrir-
tæki. „Við teljum að þetta auki al-
þjóðavægið í náminu. Þarna ná
nemendur okkar tengingu við er-
lenda fræðimenn og kennara en
einnig samstarfsmenn eða samnem-
endur og getur það hjálpað til við
að byggja traustan grunn fyrir við-
skiptasambönd í framtíðinni," segir
Agnar.
Stofnaðilar að GEM-samstarfs-
hópnum eru Erasmus-háskólinn í
Rotterdam, Viðskiptaháskólinn í
Kaupmannahöfn, Kölnarháskóli í
Þýskalandi, Viðskiptaháskólinn í
Aþenu, Fylkisháskólinn í Georgíu í
Bandaríkjunum og Viðskiptaháskól-
inn í Björgvin. Háskólinn í Reykja-
vík er fyrsti háskólinn sem tekinn
er til samstarfs en að sögn Agnars
munu fleiri háskólar bætast í hóp-
inn strax á næsta ári.
Agnar segir það stórt skref fyrir
Háskólann í Reykjavík að komast
inn í þetta samstarf. „Enginn sam-
starfshópur á þessu sviði er jafn
víðfeðmur og GEM en samtökin
samanstanda af sex viðurkenndum
og virtum háskólum. Þetta er því
stórt skref fyrir okkar skóla og
mun hafa áhrif á kennara- og nem-
endaskipti í framtíðinni og mun að
auki bæta möguleika dagskólanem-
enda okkar á að fara í framhalds-
nám erlendis," segir Agnar.
í samvinnu
við atvinnulífið
Háskólinn í Reykjavík fékk full-
trúa frá nokkrum fyrirtækjum til
þess að taka þátt í stefnumótun fyr-
ir MBA-námið en þeir komu frá
Baugi, Flugleiðum, íslandsbanka-
FBA, Oz og SH. Að höfðu samráði
við þessa aðila var komist að þeirri
niðurstöðu að nám með áherslu á
rafræn viðskipti myndi henta ís-
lensku atvinnulífi best.
Kristján Hjaltason, fram-
kvæmdarstjóri SH-þjónustu, segir
að mikil þörf sé á menntuðu fólki á
þessu sviði og því geysilega mikil-
vægt að boðið sé upp á nám sem
þetta.
Miðað er við að nemendur geti
unnið meðfram náminu en að jafn-
aði verður kennt frá fimmtudegi
fram til laugardags. „Hugmyndin
er að námið sé samtvinnað inn í
verkefni einstaklinga á vinnustað
og hægt sé að nýta sér verkefni
þaðan sem viðfangsefni í náminu,
en auk þess lýkur náminu með um-
Morgunblaöiö/Jim Smart
' 'f' '
Agnar Hansson kynnir MBA-nám í
Háskólanum í Reykjavík.
fangsmiklu verkefni sem verður
unnið í samvinnu'við það fyrirtæki
sem einstaklingurinn kemur frá,“
segir Agnar.
Hann segir að Háskólinn í
Reykjavík líti á það sem eitt hlut-
verk sitt að efla samkeppnishæfni
íslensk atvinnulífs. „Við höfum haft
þrennt að leiðarljósi í því starfi;
Nýsköpun, alþjóðavæðingu og
tæknivæðingu. Með því að bjóða
upp á alþjóðlegt MBA-nám, með
áherslu á rafræn viðskipti, teljum
við okkur vera að uppfylla hlutverk
okkar og vinna í samræmi við þau
markmið sem við höfum sett okk-
ur,“ segir Agnar.
Búið er að setja upp aðstöðu inn
á vefsíðu Háskólans í Reykjavík,
www.vhr.is, þar sem fólk getur ósk-
að eftir frekari upplýsingum en um-
sóknarfrestur rennur út í nóvem-
ber.
2,3 milljarða kr. skuldabréfaviðskipti á Verðbréfaþingi Islands í gær
Stafa fyrst og fremst
af verðbólguótta
Morgunblaðiö/Kristinn
1 SSL Hí 1 1 k M
1 m JbL. m
Viðskipti með skuldabréf á Verðbréfaþingi íslands tóku kipp í gær og námu alls 2,3 milljörðum króna. Til saman-
burðar má nefna að viðskipti með skuldabréf allan júnímánuð voru um sex milljarðar króna.
VIÐSKIPTI með skuldabréf á Verð-
bréfaþingi íslands tóku kipp í gær og
námu alls 2,3 milljörðum króna. Til
samanburðar má nefna að viðskipti
með skuldabréf allan júnímánuð voru
um sex milljarðar króna.
Eggert Þór Kristófersson, sér-
fræðingur hjá FBA, segist telja að
hin miklu viðskipti með skuldabréf í
gær stafi fyrst og fremst af verð-
bólguótta í kjölfar veikrar stöðu
krónunnar. „Fjárfestar vilja greini-
lega tryggja sér verðtryggðar eignir
ef verðbólgudraugurinn fer af stað.
Viðskiptin í dag [í gær] hafa einkum
verið með verðtryggð ríkisskulda-
bréf.“
Að sögn Eggerts er erfitt að sjá
fyrir hvert framhaldið verður, en á
meðan þróunin sé með svipuðum
hætti og síðustu daga séu verð-
tryggðar eignir vænlegur fjárfest-
ingarkostur.
Framhaldið ræðst af
gengisþróun krónunnar
Sigurbjöm Einarsson, sérfræð-
ingur hjá Viðskiptastofu Landsbank-
ans, segir ánægjulegt að sjá hversu
viðskipti með skuldabréf hafi glæðst.
„Þetta voru ekki einvörðungu kaup
heldur einnig mikið um sölu. Það er
erfitt að segja til um ástæðurnar.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa fór upp
fyrir 6% og það glæddi greinilega
áhuga einhverra fjárfesta. Sá áhugi
virtist síðan smita út frá sér. En á
sama tíma voru aðrir aðilar að selja á
markaðinum og því er kannski erfitt
að lesa út einhverja eina skýringu á
þessum miklu viðskiptum,“ segir
Sigurbjöm.
Hann bendir á að krafan á óverð-
tryggðum skuldabréfum sé að
hækka, t.d. hafi óverðtryggð ríkis-
bréf til lengri tíma verið mikið seld.
„Gengisvísitala krónunnar er að
hækka og krónan þar með að veikj-
ast. Slíkt er auðvitað vísbending um
aukna verðbólgu sem veldur síðan
því að kaup á verðtryggðum bréfum
aukast."
Sigurbjörn segir erfitt að spá fyrir
um hvernig viðskipti með skuldabréf
eigi eftir að þróast næstu daga. Það
sé háð því hvernig gengisvísitala
krónunnar verði. „Ef krónan veikist
meira getur það leitt til þess að mikið
framboð verði á markaðinum. Ef
hins vegar gengið verður stöðugra
ætti það að stuðla að lægri ávöxtun-
arkröfu húsbréfa. Þessar fréttir und-
anfama daga frá íbúðalánasjóði að
lánsumsóknum sé að fækka, spenna
á fasteignamarkaðinum sé að minnka
og verð að lækka ættu auðvitað að
draga úr útgáfu húsbréfa og þar með
einnig framboði á markaðinum."
WorldCom og Sprint
ekki sameinuð
Kaupin
draga
úr sam-
keppni
Washington. AFP.
STJÓRNENDUR símafyrirtækjaris-
anna WorldCom og Sprint tilkynntu í
gær að þeir væm hættir við samrana
fyrirtækjanna og er ástæðan að sögn
þeirra andstaða bandarískra stjóm-
valda. I sameiginlegri yfirlýsingu fyr-
irtækjanna beggja segir að ef gengið
hefði verið að þeim kröfum sem
bandaríska dómsmálai'áðuneytið
gerði hefði öllum fjárhagslegum og
markaðslegum ávinningi af samein-
ingu fyrirtækjanna verið stefnt í voða.
WorldCom, sem er næststærsta lang-
línusímaíýrirtæki Bandaríkjanna,
bauð 115 milljarða dala í Sprint, sem
er þriðja stærsta fyrirtækið, en
bandaríska dómsmálaráðuneytið hóí
þá málsókn á hendur fyrirtækjunum á
þeim forsendum að samruni fyrir-
tækjanna myndi draga úr samkeppni
á markaðinum og leiða til hærra verðs
og minni þjónustu til viðskiptavina.
Evrópsk stjómvöld vora einnig á móti
samrananum og töldu hann leiða til of
mikillar fákeppni í Netþjónustu.
Fregnir herma að Deutsche Telekom,
sem hefur áhuga á að hasla sér völl í
Bandaríkjunum, hyggist nú bjóða 110
milljarða dala í Sprint.