Morgunblaðið - 14.07.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 59
FÓLK í FRÉTTUM
Járnkokkurinn vekur athygli í bandarísku sjónvarpi
Kokkurinn, áskor-
andinn, gula paprik-
an og bardagi þeirra
Dómncfndin að störfum.
Járnkokkurinn er yfir-
skrift æsispennandi jap-
anskrar matreiðslu-
keppni sem lítil kapal-
rás í New York,
„Matarrásin“, hefur
haft til sýninga frá því í
fyrra haust. Hulda
Stefánsdóttir segir frá
þætti sem notið hefur
mikilla vinsælda í Japan
um árabil og virðist sem
þar sé fundið krydd sem
lengi hefur vantað í
bandaríska sjón-
varpsmenningu.
*
IJÁRNKOKKINUM, á ensku
„The Iron Chef', hefur matar-
gerðarlist verið færð í form
íþóttakappleiks þar sem tvö lið
kljást undir tímapressu við að
framreiða sem bragðbesta, óvenju-
legasta og ekki síst glæsilega út-
lítandi rétti. Tilburðirnir eru miklir
og eins og í íþróttunum kemur það
fyrir að keppendur meiðist í hita
leiksins. Aldrei hefur nokkur dottið
úr keppni þó fyrsti kvenkokkur
keppninnar hafi verið hætt komin
þegar hún skar sig illa við salat-
gerð. Eins og sannur samúræi vafði
hún um skurðinn og hélt áfram að
beita hnífnum undir hvatningaróp-
um áhorfenda. í stað þess að fara
út á lífið á föstudagskvöldum hittist
ungt fólk nú gjarnan í heimahúsum
til að fylgjast saman með vikulegri
atlögu Járnkokksins við gest sinn í
eldhúsinu. Þátturinn virðist reynd-
ar sífellt vera að ná til breiðari
hóps, svo sem greina má á menn-
ingarlegum úttektum Japanssér-
fræðinga á fyrirbrigði þessu.
Nýverið var fjallað um þættina á
síðum The New York Times þar
sem gengið var svo langt að halda
því fram að Járnkokkurinn kunni
að vera fyrirboði um breyttar
áherslur í dægurmenningu 21. ald-
ar.
Hrærigrautur
ólíkra stílbrota
Járnkokkarnir eru sjö talsins og
er stfll þeirra með ólíkum áherslum
sem ýmist byggja á japönsku, kín-
versku eða frönsku eldhúsi. Allir
eru þeir listakokkar sem taka starf
sitt alvarlega þótt leikræn umgjörð
þáttarins kunni í fyrstu að benda til
annars. í útliti og framsetningu
þáttanna blandast saman óhk
menningaráhrif. Greina má inn-
blástur frá Elvis Presley á gullald-
arárunum í Las Vegas, lágmenn-
ingar sjónvarpsefni á borð við
sápuóperur og glímukeppnir en
einnig bardagalist Kung-Fu og fág-
aðrar japanskrar matarhefðar. Úr
þessu verður til hrærigrautur and-
stæðna þess nauma og stranga, of-
gnóttar og íburðar.
Sannkallað nútímarokokkó þar
sem margar stfltegundir verða að
einni öfgakenndri. Gestgjafinn,
Takeshi Kaga, er dramatíkin holdi
klædd. í glitrandi silkibúningi, gull-
bróderaðri skikkju og svörtum leð-
urhönskum stígur hann fram á
sviðið og sveiflar um sig skikkjunni.
„Segðu mér hvað þú borðar og
ég skal segja þér hver þú ert“
hljóðar tilvitnun í franskan 18. ald-
ar heimspeking og nautnasegg,
Brillat-Savarin, sem flutt er i upp-
hafi hvers þáttar. Með miklum til-
burðum bítur Kaga í gula papriku
og glottir. Fram úr reykjarmökki
og inn á flóðlýst sviðið ganga járn-
kokkarnir hver af öðrum og áskor-
andi þáttarins er kynntur til sög-
unnar. Leikar geta hafist.
Frumleika hráefnis
engin mörk sett
Japönsku kokkarnir eru nokkurs
konar samúræjar eldhússins. Vopn-
aðir stórum hnífum og gulum og
rauðum silkiklæðum ráðast þeir til
atlögu gegn eindæma frumlegu úr-
vali hráefnis, en hver þáttur hefur
sitt þemufæði sem keppendur skulu
vinna úr í hverjum hinna 5-7 rétta.
Getur þetta verið frá jafn fá-
brotnu hráefni og salatblöð eða
kartöflur, til hvers kyns fiskmetis,
sjaldséðra ávaxta eða með eindæm-
um frumlegri fæðu fuglshreiðurs og
róta hafra. Engar uppskriftir fylgja
matreiðslunni en á borð hafa verið
bornir réttir eins og styrjuis og
frosk-fiska créme brulée. Þættirnir
eru klukkutímalangir og ber kepp-
endum að hafa lokið verki sínu á
sextugustu mínútu ella hljóta bágt
fyrir.
Tveir fyrrverandi íþróttafrétta-
menn lýsa keppninni með ákafa og
æsingi sem íþróttafréttamönnum
einum er lagið. Áhorfendur í sal
taka svo vel undir með hvatningar-
orðum og klappi. Bíða þeir þess
spenntir að sjá hvort það sem lítur
helst út fyrir að vera súkkulaðisósa
í pottinum kunni að fara yfir krydd-
leginn og djúpsteiktan hörpudisk-
inn á borðinu.
Framkvæmdir kokkanna eru
dæmdar með sama hætti og mis-
glæsilegar sóknir í knattspyrnu.
Ahrif þessarar nálgunar við mat-
reiðslu verða enn magnaðri í enskri
talsetningu þáttanna þar sem engu
er sleppt að þýða. Þannig kemst
hver flissroka poppstjörnunnar og
hvert undrunarandvarp glímukapp-
ans í dómnefndinni til skila, en
dómnefndin er jafnan skipuð þekkt-
um persónum í Japan. I lok hvers
þáttar eru réttirnir bornir á borð
fyrir dómnefndina sem bragðar á
og gefur stig sem síðan verða til
þess að skera úr um sigurvegara
„matarbardagans“. Ólíkt því sem
bandarískir áhorfendur eiga að
venjast úr hvers kyns keppnisleikj-
um í sjónvarpi þá er það eingöngu
heiðurinn sem sigurvegarinn hlýtur
að launum.
Áhorf eykst hratt
Þátturinn hóf göngu sína í Japan
árið 1993 og hefur hann verið með
vinsælla sjónvarpsefni þar í landi.
Fyrir þremui’ árum hófu japanskar
kapalstöðvar á vesturströnd Banda-
ríkjanna sýningar á Járnkokkinum
á japönsku og varð þátturinn
samstundis að tískufyrirbrigði með-
al ungs fólks þar um slóðir. Matar-
rásin keypti síðan til sín þættina
290, talsetti á ensku, og hóf sýning-
ar á þeim sl. vetur. Vinsældirnar
komu aðstandendum stöðvarinnar í
opna skjöldu. Fyrir sjö mánuðum
fylgdust 131.000 áhorfendur með
þáttunum en í maimánuði voru þeir
orðnir 222.000. Þátturinn hefur lítið
sem ekkert verið auglýstur og vel-
gengni hans því einungis skýrð með
orðrómi manna á milli. Ákveðin
þáttaskil urðu þó fyrir tveimur vik-
um þegar járnkokkarnir mættu til
leiks í New York og skoruðu á hólm
þekktan matreiðslumann í borginni,
Bobby Flay. Áhangendur þáttarins
komu til borgarinnar hvarvetna að í
Bandaríkjunum í von um að fá að
sitja í upptöku þáttarins og berja
matreiðslugoð sín augum. Lauk líf-
legri keppninni með fullnaðarsigri
járnkokksins Morimoto yfir banda-
rískum keppinaut sínum.
'Nœturgatinn
simi 587 6080
I kvöld og laugardagskvöld verður
dúnurstuð með
Galabandinu ásamt Önnu Vihjálms.
V^|^^^th^FrfttJnn^íkvöld2il^kL^23^30^
HARMONIKUBALL
Félagar úr Harmonikufélagi Færeyja
og Harmonikufélagi Reykjavíkur
leika fyrir dansi frá kl. 22.00 í kvöld í
ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima
Ragnheiður Hauksdóttir syngur.
Færeyski dansinn verður stiginn um miðnættið.
Allir velkomnir.
Oleðitökuhátíð
Kenéurunnar oíDublmer
O , 1 ,jO
um hel^ma
Við höldum upp á frábærann áran^ur
Astralska landsliðsins á EM 2000
Ættarmót
Kenýirunar alla
heléína. kenýirnr.
vinir þeirra o£
samlandar velkomnir,
Komdu o£hoppaðu
með okkur alla
helyna!!!!!
Kátasta kráin
í hænum
Haf narstræti 4