Morgunblaðið - 14.07.2000, Page 68

Morgunblaðið - 14.07.2000, Page 68
Reiknaðu með framtíðinni MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: IUTSTJmBLIS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. Hejjæta! Prófaðu þaá^nýjasta! Fimm tlottir augnslkiggar og fimm varalitir saman í skemmtilegum umbúðum. Útsölustaðir: Lyf og heiisa - Apótek og helstu snyrtivöruverslanir Dreifingaraðili: Cosmic ehf., simi 588 6525 krónur fyrir 2,9 milljarða og geng- ið lækkaði aftur. Við lok dagsins var það 1,4% lægra en í upphafi dags. Gjaldeyrisviðskipti voru mikil í gær, 14,7 milljarðar kr. sem eru næst mestu viðskipti frá upphafi. Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir ekki óeðlilegt að sveiflur séu á genginu og það geti verið heil- brigt. „Ég mæli með því að menn haldi ró sinni,“ segir ráðherrann. Spá vaxtahækkun Því er spáð að áfram verði til- hneiging til lækkunar íslensku krónunnar. Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamála- sviðs Seðlabankans, segir að bank- inn búist við áframhaldandi þrýst- ingi á gengið næstu daga. Segir hann að það stafi meðal annars af því að trú manna á stöðugleikann fari minnkandi. Einnig megi búast við að hreyfing á genginu út af fyr- ir sig valdi gárum. FBA telur einn- ig að fátt geti komið í veg fyrir frekari veikingu krónunnar. í Hálf fimm fréttum Búnaðar- bankans verðbréfa segir í gær að gera megi ráð fyrir allt að 100 punkta vaxtahækkun á næstunni. ■ Búist við/35 STJÓRNENDUR á fjármálamark- aðnum og framkvæmdastjóri pen- ingamálasviðs Seðlabankans spá áframhaldandi þrýstingi á gengi ís- lensku krónunnar. Fjármálaráð- herra segir ekki óeðlilegt að sveifl- ur verði á genginu og hvetur menn til að halda ró sinni. Órói var á gjaldeyrismarkaðnum í gærmorgun í framhaldi af gengis- lækkun í fyrradag. Gengið lækkaði á fyrsta klukkutímanum um tæp 2% og varð það til þess að við- skiptavakarnir ákváðu að stöðva viðskipti á millibankamarkaði. Eft- ir að opnað var fyrir viðskipti á nýjan leik keypti Seðlabankinn Kvartað undan smala- hundum á Búi 2000 Kindurnar . orðnar ringlaðar og ráðvilltar SAMBAND dýraverndunarfélaga gerði Dýraverndarráði aðvart um að ekki höfðu verið fengið tilskilin leyfí fyrir sýningu á smalahundum og kindum á sýningunni Búi 2000 um síðustu helgi. Sambandið hefur gert athugasemdir við illa meðferð á kindum á sýningunni. Lögreglustjóri þarf að gefa leyfi þegar haldnar eru dýrasýningar og Dýraverndarráð þarf að gefa um- sögn um slíkar leyfísveitingar. Sig- ^ríður Ásgeirsdóttir, formaður Sam- bands dýraverndunarfélaga, segir að þetta hafi ekki verið gert. Hún segir að gerðar hafi verið sérstakar athugasemdir við það að alltaf hafi sami kindahópurinn verið notaður við sýningarnar. Kindunum hafi verið þvælt fram og til baka á klukkustundarfresti þá þrjá daga sem sýningin var. Sigríður segir að kindurnar hafi verið orðnar veru- lega ringlaðar og ráðvilltar. Það hafi verið meðferðin á kindunum >em Sambandi dýravemdunarfé- laga hafí ofboðið. Hún segir að sér hafi ekki sýnst að hundarnir væru að vinna nein sérstök afrek með því að halda sex kindum í hóp. Hér hafi fyrst og fremst verið um að ræða illa meðferð á kindum. ---------------- Lífeyrissjóðirnir Eiga 116 millj- arða erlendis EIGNIR lífeyrissjóðanna í erlend- um verðbréfum námu í lok apríl sl. 116 milljörðum króna og höfðu auk- ist um tæpa 19 milljarða frá árslok- ®*um. Nær öll erlend eign sjóðanna liggur í hlutabréfum samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum lífeyrissjóða. Heildareignir lífeyrissjóðanna námu í lok apríl 551,2 milljörðum króna borið saman við 517,9 millj- arða í upphafi ársins. Féll niður 4-5 metra KARLMAÐUR liggur þungt hald- inn á sjúkrahúsi eftir að hann féll niður um fjóra til fimm metra innan- húss í gær. Maðurinn var við vinnu í ^stiga í Lindarskóla í Kópavogi þegar hann féll og lenti á flísalögðu gólfi. Slysið varð laust eftir klukkan sex í gær. Maðurinn, sem er á sjö- tugsaldri, var fluttur á sjúkrahús og er talinn vera í lífshættu. Morgunblaðið/Arni Sæberg Fastaflotinn heldur á brott FASTAFLOTI Nato, sem legið hefur í Reykjavíkurhöfn siðan á fimmtudag, hélt á brott í gær. Á skipunum, sem eru sjö taisins, voru 2.000 sjóliðar, sem settu svip sinn á mannlífið í borginni þessa viku sem flotinn lá bundinn við bryggju. Á myndinni sést hvar þýska freigátan FGS Meclenburg-Vorpommern er dregin út úr höfninni. Kaup- máttur rýrnaði um 2,3% LAUN hækkuðu að meðaltali um 3,4% frá 1. ársfjórðungi 1999 til 1. ársfjórðungs 2000. A sama tíma hækkaði vísitala neyslu- verðs um 5,8%. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnu- launa um 2,3%. Þetta kemur fram í niðurstöðum launakönn- unar kjararannsóknamefndar fyrir 1. ársfjórðung 2000. Þar kemur einnig fram að laun kvenna hækkuðu meira en karla á tímabilinu, um 3,8% en karla um 3,2%. Launahækkun starfsstétta var á bilinu 2,2% til 5,2% að meðaltali. Laun á höf- uðborgarsvæðinu hækkuðu um 4,6% en laun utan höfuðborgar- svæðisins hækkuðu um 1,9%. Mesta launahækkun að með- altali einstakra starfsstétta milli 1. ársfjórðungs 1999 og 2000 fengu tæknar og sérmenntað starfsfólk, 5,2%, sérfræðingar 4,7%, þjónustu-, sölu- og af- greiðslufólk 4,5%, skrifstofufólk og véla- og vélgæslufólk 3,6%, sérhæft verkafólk 3,4% og iðn- aðarmenn 2,2%. Forstjori Hafrannsoknastofnunar um fullyrðingar um brottkast á þorski Hæpið að brottkast nemi tugum þúsunda tonna JÓHANN Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að sér finnist mjög ólíklegt að verið sé að henda tugum þúsunda tonna af þorski árlega. Sé hins vegar brott- kast af öllum fiskitegundum tekið inn í dæmið, gæti brottkastið ef til vill verið svo mikið Passar ekki þótt öllum smáþorski sé hent „Þó gert sé ráð fyrir því að öllum þorski, 70 sentimetra og styttri, sé hent, er hæpið að magnið geti verið svo mikið miðað við eðlilega sókn og samkvæmt stofnmati okkar. Og auðvitað er það sem betur fer svo, að langt er í frá að verið sé að henda öllum fiski undir 70 senti- metrum. Eldri kannanir á brott- kasti, þó ófullkomnar séu, benda einnig til miklu minna magns en þarna er rætt um,“ segir Jóhann Sigurjónsson. Að undanförnu hefur það verið nefnt í umræðunni um brottkast á fiski að 60.000 til 100.000 tonnum af þorski sé hent í sjóinn árlega og þar sé að mestu leyti um þorsk 70 senti- metra eða styttri að ræða. Jóhann telur þessar tölur afar ólíklegar. „Mér finnst réttast að einhverjar niðurstöður liggi fyrir frá þeirri nefnd, sem ætlað er að rannsaka brottkast, áður en of mikið er lagt út af þeim upplýsingum, sem fram hafa komið um hugsanlegt umfang brottkasts," segir hann. Hvað er þá miklu hent á ári? „Ég vona að nefndin muni kom- ast að einhverri marktækri niður- stöðu í því máli. Við eigum fulltrúa þar og leggjum þar fram öll okkar gögn og munum leggja okkar af mörkum til þess að sem áreiðanleg- ust niðurstaða fáist. Það er mikil- vægt í þessu máli að menn átti sig á því að þau tilfelli, sem Fiskistofa kynnti fyrir skömmu, eiga við um skip, sem liggja undir grun um að kasta fiski. Þetta er á staðbundnu svæði og í dragnót, en í hana koma aðeins 5 til 10% af heildarþorskafla. Það er því alls ekki hægt að álykta að það sama eigi við um allan fiski- skipaflotann. Þarna er aðeins um afmörkuð dæmi að ræða. Þetta allt mun nefndin auðvitað skoða ofan í kjölinn, en vitaskuld er æskilegt að koma í veg fyrir allt brottkast því það skerðir aðeins möguleika okkar í framtíðinni til að ná hámarksaf- rakstri í fiskveiðunum," segir Jó- hann Sigurjónsson. ■ Olíklegt/22 Áframhaldandi þrýstingur á gengið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.