Morgunblaðið - 18.08.2000, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000 11
FRÉTTIR
Bandarískur flugmaður sem hafði viðkomu á íslandi hyggst setja heimsmet
Morgunblaðið/Þorkell
Ragozzino hyggst verða fyrstur til að fljúga umhverfis hnöttinn einn í flugvél með opnum stjórnklefa.
Vonast til
að verða
heims-
methafi í
ágústlok
ROBERT Ragozzino átti viðdvöl
hér á landi í júní en hann hyggst
verða fyrstur manna til að fljúga
umhverfis hnöttinn einn í flug-
vél með opnum stjórnklefa.
Hann er nú staddur í Tókýó og
bíður þess að fá leyfi til að
fljúga yfir Rússland. Ef allt
gengur að óskum verður hann
kominn aftur á upphafspunktinn
í Oklahoma í Bandaríkjunum
fyrir ágústlok.
Tvíþekjan opnar heim
alþjóðlegs tungumáls
Hann segir ferðina hafa verið
mjög áhugaverða og það sé ein-
stakt að fá að sjá jörðina úr
Iofti. Hann segir engin teljandi
vandkvæði hafa komið upp og
allir þeir sem hann hafi hitt hafi
verið einkar alúðlegir og hjálp-
legir. Hann segir tvíþekjuna
opna heim inn í alþjóðlegt
tungumál en vélin sem Ragozz-
ino flýgur er af gerðinni Boeing
Stearman og smíðuð árið 1942
en sl. 7 ár hafa verið gerðar á
henni endurbætur svo hún þoli
flugið betur.
Undirbúningur fyrir heims-
metatilraunina stóð í sjö ár og
segir Ragozzino hann hafa skil-
að sér. Helstu vandamálin hafi
verið í Kalkútta á Indlandi þeg-
ar hann beið þess f átta daga að
fá leyfi til að fljúga yfir Búrma.
Bíður flugleyfis frá
rússneskum yfirvöldum
Ragozzino segir ómögulegt að
segja til um hversu lengi hann
þurfi að bíða flugleyfis frá
Rússlandi. Hann hafi ásamt að-
stoðarmönnum beðið þess í tvo
mánuði að leyfið verði veitt.
Hann segir þó mikilvægt að geta
lokið ferðinni fyrir september
þar sem von sé á talsverðum
veðrabreytingum um miðjan
september.
Hann segir Stearman-vélina
vera harða af sér en ekki sé
hægt að segja það sama um
hann sjálfan.
Ragozzino segist hafa verið
svo önnum kafinn við undirbún-
inginn áður en hann lagði af
stað í ferðina að hann hafi ekki
gert sér sérstakar hugmyndir
um hvernig ferðin yrði. Hvert
og eitt land sé sérstakt, það búi
yfir sérstakri náttúrufegurð.
Hann segir það þó koma sér
einna helst á óvart hversu al-
úðlegft fólkið hafi verið sem
hann hafi hitt.
Einstakt að sjá jörðina
úr lofti með berum augum
Hann segist alveg vera reiðu-
búinn til að endurtaka ferðina,
t.d. með myndatökufólki. Þá
komi jafnvel til greina að leigja
öðrum vélina, það sé hálf eigin-
gjarnt að sér að sitja einn að svo
stórkostlegu tækifæri sem það
er að sjá jörðina úr lofti með
berum augum.
Ragozzino var hér á landi 17.
júní þegar jarðskjálftinn reið yf-
ir. Hann var staddur í húsnæði
Veðurstofunnar og segist hafa
verið hvergi banginn heldur hafi
þetta þvert á móti verið
skemmtileg upplifun. Hann seg-
ist hafa heillast af Islandi og
notið dvalarinnar hér.
Hann hyggst ekki slá slöku við
þegar hann kemur aftur heim til
Bandaríkjanna. Hann hefur ráð-
gert ferð um 14 borgir í Banda-
rikjunum og þvf næst mun hann
ásamt fleirum hefjast handa við
hönnum á farartæki ætluðu til
að keyra inn f hvirfilbyl. Hann
segist vongóður um að geta
ásamt félögum sínum unnið til
Pulitzer-verðlauna fyrir heimild-
armynd um hvirfilbyli með hjálp
farartækisins.
Skorað á
ökumenn að
axla ábyrgð
í umferðinni
EFTIRFARANDI ályktun var sam-
þykkt á fundi stjómar Bindindisfé-
lags ökumanna fimmtudaginn 16.
ágúst:
„Stjórn Bindindisfélags ökumanna
skorar á alla ökumenn til að bregðast
strax við fjölgun slysa með því að axla
eigin ábyrgð í umferðinni og hafa
hugann við aksturinn. Ökumenn eru
hvattir til að sýna meiri tilitssemi í
umferðinni, draga úr ökuhraða og
varast að ofmeta styrkleika eigin öku-
tækja og öryggisbúnað þeirra. Jafn-
íramt skorar stjórn Bindindisfélags
ökumanna á stjómvöld að gera allt
það sem í þeirra valdi stendur, sem
leitt gæti til fækkunar slysa í umferð-
inni, með því t.d. að hækka sektir fyr-
ir of hraðan akstur, auka löggæslu á
vegum og notkun eftirlitsmyndavéla,
ekki síður á þjóðvegum en í þéttbýli.
Þá telur stjómin nauðsynlegt að end-
urskoða réttindi þeirra sem era nýlið-
ar í umferðinni. Þar má nefna tak-
mörkun á vélarstærð ökutækja,
akstri óreyndra ökumanna að kvöld-
og næturlagi og fjölda farþega í bíl.“
-------------------
Óljóst hvort Tal
hf. muni lækka
gjaldskrána
TAL hf. hefur ekki tekið ákvörðun
um það hvort fyrirtækið muni lækka
taxtaverð í GSM-kerfinu í kjölfar
lækkunai- Símans GSM, en lækkun
Símans tekur gildi á mánudaginn.
Þórólfur Árnason, forstjóri Tals,
sagði að verið væri að skoða hvaða
áhrif þessar lækkanir hjá Símanum
myndu hafa á heildargjaldskrá fyrir-
tækisins og að þegar því yrði lokið
yrði tekin ákvörðun um það hvort
gjaldskráin yrði lækkuð.
I Morgunblaðinu í gær kom fram
að verð algengustu símtalsflokka
Símans myndu lækka um ríflega 6%
að meðaltali. Þess má geta að GSM-
notendur á Islandi eru rúmlega 180
þúsund talsins og eru rúmlega 120
þúsund viðskiptavinir Símans GSM,
en um 50 þúsund era viðskiptavinir
Tals.
Atlanta
flýgur fyrir
ELAL
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hf. hefur
tekið að sér verkefni fyrir ísraelska
ríkisflugfélagið EL AL og flýgur
alla virka daga, fimm sinnum í
viku, í beinu flugi með farþega
milli Tel Aviv og New York. Fyrsta
flugið var farið 31. júlí síðastliðinn.
Að undanförnu hefur verið mjög
góð nýting á flugvélaflota félags-
ins.
Það er ein af Boeing 747-300 vél-
um Flugfélagsins Atlanta, TF-
ATH, sem leigð hefur verið í þetta
verkefni. Um það bil eitt hundrað
manns starfa á vegum félagsins í
tengslum við það, þar af er um það
bil þriðjungur íslendingar. Flugfé-
lagið Atlanta hefur opnað starfs-
stöð í Tel Aviv í Israel til að halda
utan um verkefnið fyrir EL AL en
stöðvarstjóri er Garðar Forberg.
ÚTSALA
Húsgögn allt að 40% afsláttur
Vegg- og loftljós allt að 15% afsláttur
Mörkinni 3.
Sími 588 0640.
Opið daglega frá kl. 12-18.
Cassina
ligne roset
Haustútsala!
Seljum síðustu Sun-Lite pallhúsin með 50.000 króna
afslætti. Nýtið þetta einstaka tækifæri til að eignast
pallhús í sérflokki á einstöku verði. 10 ára góð
reynsla, þetta eru pallhúsin sem bílaleigurnar velja!
Ármúla 34, simar 553 7730 og 897 3507.