Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 41
40 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík.
Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson.
Ritstjórar: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KVÓTAÞAK OG
FISKVEIÐISTJÓRN U N
Igrein eftir Halldór Hermannsson,
skipstjóra á ísafirði, sem birtist
hér í blaðinu í gær segir svo: „í
forystugrein Mbl. 24. ágúst, tekur
blaðið eindregið undir þau ummæli
ýmissa forvígismanna stórkvótaeig-
enda að undanförnu að afnema þurfi
þak það, sem nú er í lögum um hámark
aflaheimilda í einstökum tegundum.
Þetta sé nauðsynlegt til þess að ná
betri hagræðingu í greininni. Mbl. tel-
ur hins vegar að forsendur fyrir þeim
lagabreytingum séu, að atvinnugrein-
in sjálf fallist á að greiða auðlinda-
gjald fyrir þann rýmkaða rétt. Að því
tilskildu telur blaðið rétt og sjálfsagt
að afnema öll þök á frjálsu framsali.“
Það er misskilningur hjá Halldóri
Hermannssyni, að Morgunblaðið telji
að útgerðin eigi að greiða auðlinda-
gjald fyrir „rýmkaðan rétt“ með af-
námi kvótaþaks.
Morgunblaðið er og hefur verið
þeirrar skoðunar, að útgerðin eigi að
greiða gjald fyrir réttinn til þess að
nýta fiskimiðin, sem eru samkvæmt
lögum, sem Alþingi hefur sett, sam-
eign íslenzku þjóðarinnar allrar. Það
er að sjálfsögðu ekki bara útgerðin,
sem á að greiða fyrir slíkan rétt.
Hið sama á t.d. við um orku fallvatn-
anna og þau sérstöku réttindi, sem
fylgja farsímarásum, sjónvarpsrásum
eða útvarpsrásum.
Þær takmarkanir, sem nú eru á um-
svifum útgerðarfyrirtækja, bæði í
sambandi við framsal veiðiheimilda en
einnig vegna lagaákvæða um hámark
veiðiheimilda eru ekki eðlilegar. Þær
virka þvert á móti sem höft á athafna-
frelsi þeirra, sem stunda útgerð.
Þessar takmarkanir eru komnar til
af pólitískum ástæðum. Stjórnmála-
mennirnir hafa fundið hina þungu
gagnrýni, sem að þeim hefur beinzt
frá almenningi, sem hefur fylgzt nán-
ast agndofa með því, þegar milljarðar
hafa streymt frá útgerðinni til tiltölu-
lega fámenns hóps einstaklinga vegna
sölu á kvóta. Þess vegna hafa þeir sett
takmarkanir á athafnafrelsi útgerðar-
innar með ýmsum hætti.
Þegar það kerfi er komið á, að út-
gerðin borgi gjald í sameiginlegan
sjóð eigenda auðlindarinnar fyrir
réttinn til þess að nýta fiskimiðin og
þegar nauðsynlegar breytingar hafa
verið gerðar á lögum, sem heimila
frestun á skattgreiðslum af söluhagn-
aði, eru ekki lengur pólitískar for-
sendur fyrir því að takmarka rétt til
framsals veiðiheimilda. Þá eru heldur
ekki forsendur fyrir því að viðhalda
lagaákvæðum um hámark kvóta ein-
stakra útgerðarfyrirtækja.
Halldór Hermannsson segir: „Rit-
stjóra Morgunblaðsins virðist engu
skipta hvað þetta gjald yrði hátt hér
og hafa reyndar látið að því liggja, að
slíkt skipti ekki máli, einungis að það
heiti auðlindagjald.“
Frá sjónarhóli Morgunblaðsins
skiptir meginmáli, að það kerfi verði
tekið upp í grundvallaratriðum, að
greitt sé gjald fyrir afnot af takmark-
aðri auðlind, hver sem hún er. En það
er mikill misskilningur hjá Halldóri
Hermannssyni, að Morgunblaðið telji
engu máli skipta hvað gjaldið verði
hátt. Það liggur í augum uppi, að það
væri fáránlegt að leggja á útgerðina
gjald fyrir afnotarétt af auðlindinni,
sem íþyngdi henni um of.
í grein sinni í Morgunblaðinu í gær
segir Halldór Hermannsson: „Vert er
að skoða hverjar afleiðingar yrðu, ef
fyrrnefndar kvótatakmarkanir yrðu
afnumdar og algjörlega frjálst fram-
sal yrði með aflaheimildir eins og
Morgunblaðið virðist vilja. A þeim
stöðum, sem útgerð með smábáta er
uppistaðan í atvinnulífi byggðarinnar,
mundi þessi útgerð þurrkast upp á
skömmum tíma. Auðhringar í útgerð-
arstétt myndu fljótlega kaupa þá upp
og þar með tækist að útrýma strand-
veiðiflota landsmanna.“
Margir hafa haft áhyggjur af því á
undanförnum árum, að kvótakerfið
mundi hafa þau áhrif, sem skipstjór-
inn á Isafirði lýsir. Flest bendir þó til
þess, að málin séu að taka allt aðra
stefnu. Fyrir nokkrum dögum skýrði
Morgunblaðið frá því að skuldir sjáv-
arútvegsins hefðu á síðustu 4-5 árum
aukizt úr 100 milljörðum í 160-175
milljarða. Þegar skýringa var leitað á
þessari miklu skuldaaukningu á
skömmum tíma kom í Ijós, að ein af
ástæðunum var mikil kvótakaup á
undanförnum árum. Þar eru að ein-
hverju leyti komnir milljarðarnir, sem
streymt hafa út úr útgerðinni á und-
anförnum árum.
Mikil skuldaaukning af þessum
ástæðum bendir óneitanlega til þess,
að hagræðingin í sjávarútvegi hafi
ekki orðið jafnmikil og menn hafa vilj-
að halda fram.
A sama tíma hefur smábátaútgerðin
blómstrað. Kostnaður við þá útgerð er
langtum minni en við stórútgerðina og
hráefni, sem smábátarnir koma með
að landi, betra. Gamlir útgerðarstaðir
á Vestfjörðum eru að ganga í endur-
nýjun lífdaga vegna blómlegrar smá-
bátaútgerðar, sem nýtir sér þá kosti
Vestfjarða að liggja svo nálægt ein-
hverjum beztu fiskimiðum, sem hægt
er að finna við Island.
Það er fullkomið álitamál, hvort
stórútgerðirnar eru að þessu leyti
samkeppnisfærar við smábátaútgerð-
ina og þess vegna er engin ástæða til
að ætla fyrirfram, að smábátaútgerð-
in mundi leggjast niður, þótt framsal-
ið yrði frjálst og kvótaþakinu lyft.
Halldór Hermannsson telur, að
„kvótaandstæðingar hefðu ekki getað
fengið verri samherja en Morgunblað-
ið til þess að standa með málstað sín-
um í baráttunni gegn ranglæti kvóta-
kerfisins“.
í þessari afstöðu sinni til stefnu
Morgunblaðsins í fiskveiðistjórnun á
Halldór Hermannsson sér öfluga
bandamenn í forystu LÍÚ. Segja má,
að á þessum áratug hafi ekki verið
haldinn aðalfundur í þeim samtökum
án þess að stóryrðum væri beint að
Morgunblaðinu með sama hætti og
Halldór Hermannsson gerir nú.
Morgunblaðið hefur með skrifum
sínum ekki verið að berjast fyrir sér-
hagsmunum einstakra hópa innan út-
gerðarinnar heldur fyrir hagsmunum
fólksins í landinu, eigenda auðlindar-
innar að íslenzkum lögum. Þeirri bar-
áttu mun blaðið halda áfram, þar til
viðunandi niðurstaða fæst.
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 41
Stafróf lífsins
Freistandi að kort-
leggja Rhodothermus
Kortlagning genamengis mannsins er mikilvæg en gen annarra lífvera eru einnig forvitnileg. Guðmundur Egg-
ertsson, prófessor við Háskóla Islands, rannsakar örverur og segir þær „ótrúlega skemmtilegar“. Nýjar tegund-
ir af örverum hafa fundist hér en aðeins er búið að greina örlítið brot af milljónum tegunda örvera í heiminum.
Guðmundur
Eggertsson
ISLENSKIR íræðimenn hafa
ekki einskorðað sig við rann-
sóknir á erfðum manna, þeir
hafa l£ka sinnt erfðarann-
sóknum á dýrum og plöntum auk ör-
vera. Um 1970 hófust hér rannsókn-
ir á E. coli bakteríum og síðar
hitaþolnum hveraörverum og hefur
nú verið stofnað sérstakt fyrirtæki
til að kanna ensím úr hveraörverum
sem talið er að gætu nýst í iðnaði.
Talið er að sum af þessum ensímum
gætu komið að gagni við sérstök
verkefni i læknisfræðirannsóknum.
Hveraörverur hafa verið rannsakað-
ar hér síðan á miðjum níunda ára-
tugnum en dr. Guðmundur Eggerts-
son, prófessor í líffræði við Háskóla
Islands, sem hefur mikið kannað E.
coli bakteríur, hóf erfðafræðilegar
athuganir á hveraörverum á
Líffræðistofnun Háskólans 1989.
„Hin stórkostlega bylting í sam-
eindaerfðafræðinni í heiminum varð
á sjötta og sjöunda áratugnum,“
segir Guðmundur. „Þá tókst mönn-
um að átta sig á því hvað erfðaefnið
DNA væri, hvernig sameindir þess
væru uppbyggðar. Og tókst að skilja
hvemig það eftirmyndast í hverri
frumukynslóð og ákvarðar gerð
prótína. Með þessum uppgötvunum
voru opnaðir nýir heimar. Það sem
menn eru að gera með því að
ákvarða röð gena í litningum manns-
ins er í sjálfu sér alls ekki jafnbylt-
ingarkennt og það sem gerðist þá.
Genamengiskortið
auðveldar eftirleikinn
Genamengiskortið er merkur
áfangi, það er tæknilegt afrek og
auðveldar eftirleikinn en breytir
ekki á svipstundu skilningi okkar á
erfðum mannsins. Þrennt er mikil-
vægt.
I fyrsta lagi að hafa skrá yfir öll
genin, í öðru lagi að vita hvaða hlut-
verki þau gegna. Þar er margt sem
við vitum ekki, jafnvel í sambandi við
genamengi baktería þótt búið sé að
raðgreina mengið. í ýmsum tegund-
um þeirra vantar okkur skilning á
hiutverki 20-30 af hundraði gen-
anna. í þriðja lagi þurfum við að
skýra hvernig starfsemi genanna er
stjómað og það er erfiðasti áfang-
inn. Við vitum að þessi tilhögun er
gífurlega flókin hjá bakteríum, þar
sem við þekkjum þetta best en dýr
og plöntur eru ofboðslega flókin að
þessu leyti. Þetta er svo margslung-
ið mál.
Það mun áreiðanlega taka marga
áratugi áður en við komumst að því
hvemig starfi hinna ýmsu gena
mannsins er stjórnað og enn lengri
tíma áður en það verður kannað tU
fullnustu. Líklega verða rannsóknir
á stjóm genastarfsins aðal-viðfangs-
Morgunblaðið/RAX
Frá Námaskarði í Mývatnssveit. Islenskir vísindamenn hafa meðal annars rannsakað hitaþolnar örverur og
hyggjast reyna að selja þekkinguna fyrirtækjum og framleiðslu á efnum til iðnaðar.
efni sameindaerfðafræðinnar á
næstu áratugum og það er rétt að
hefjast. Sennilegt er að genamengi
annarra tegunda en mannsins verði
mikið notað í tilraunum. Maðurinn
er ekki sérlega heppilegt tilrauna-
dýr í þessum efnum!
Öll vUjum við vita hvað greinir
okkur í erfðafræðilegum skilningi
frá dýrunum og plöntunum. Það er
geysilega forvitnilegt fyrir okkur að
vita hvað greinir á milli okkar og
apa, nánustu ættingja okkar í lífrík-
inu. Erfðafræðilegi munurinn á okk-
ur og simpönsum virðist vera svo lít-
ill, innan við 1%. Margir hafa áhuga
á að raðgreina genamengi apa og nú
þegar mun vera byrjað að greina
mengi músar.
Og kannski er munurinn mjög lít-
ill. Þetta gæti verið spuming um
stjórnun á þroskunarferlum þar sem
tiltölulega fá prótín koma við sögu
en eru notuð á svolítið annan hátt í
manninum en apanum, örlítið frá-
vik.“
Guðmundm- hefur verið frum-
kvöðull í örverurannsóknum hér-
lendis. Öiverur eru bakteríur og
veirur, hinar síðai’nefndu eru mun
minni og sumar þeirra lifa og dafna í
bakteríum. Vafasamt er talið að líta
á veiruna sem minnstu lifandi ein-
inguna þar sem hún getur ekki lifað
sjálfstæðu lifi heldur er algerlega
háð lifandi frumu.
Allt mannkyn á genin
Thomas R. Odhiambo
er frá Kenýa. Hann
er forseti Vísinda-
akademíu Afríku og á
sæti í siðfræðinefnd
SÞ og tók nýlega þátt
í ráðstefnu á Islandi.
AÐ mati Thomas R. Odhiambo
eru blikur á lofti í sambandi við
skráningu á erfðamengi manns-
ins, eins og hún hefur til þessa
verið framkvæmd, vegna þess að
hið opinbera í löndum heims hef-
ur ekki lagt neitt verulegt fé af
mörkum til þessa málaflokks.
Eru Bandaríkin þarna undan-
skilin.
Á sama tíma hefði líftækni-
siðnaðurinn hins vegar sett í
þetta stórar fjárhæðir og sömu-
leiðis ýmis lyfjafyrirtæki. Þrjú
eða fjögur þeirra hafi meira að
segja ekki gert neitt annað um
árabil en vinna að
þessu eina verkefni. I
Bretlandi væri meira
að segja einka-
fyrirtæki að vinna að
skráningunni, og rík-
isstjórnin hefði lagt
fé í það mál, svo ein-
kennilegt sem það nú
virtist.
„Mistökin sem
Bandaríkjastjórn
gerði á 8. áratugnum
var að veita ákveðn-
um fyrirtækjunum
einkaleyfi á genun-
um. I raun ætti slíkt ekki að við-
gangast, af því að allt mannkyn-
ið á þessi gen, eða raunar
náttúran öll og sjálf.
Hin siðferðilegu
álitamál mörg og stór
Annað sem menn óttast er að
farið verði að krukka í genin og
að framleiða erfðabreytt börn.
Ef einstaklingur með slík gen
tæki upp á því að eignast af-
kvæmi með venjulegum einstakl-
ingi, óbreyttum, hvers eðlis yrði
Thomas R.
Odhiambo
það? Hin siðferði-
legu álitamál eru
því mörg og stór.
Ilvað getur með-
aljóninn gert til að
koma í veg fyrir að
þetta verði misnot-
að?
Mér finnst að
það ætti að koma
hlutunum svo fyrir
að niðurstöður
rannsóknanna og
allt sem þessu við-
kemur verði í eigu
heimsins alls. I
öðru lagi verður að setja á lagg-
irnar siðfræðihóp til að fylgjast
með öllum þeim breytingum sem
kynnu að verða gerðar á erfða-
menginu, eða einstökum genum
þess, og notkun á hinum breyttu
genum. Það veit nefnilega eng-
inn hver langtímaáhrif slíks eru.
Hið jákvæða við skráningu á
erfðamengi mannsins er það að í
kjölfarið verður hægt að gera
nákvæmari og betri lyf en áður,
og hvað snertir erfðabundna
sjúkdóma verður bylting."
Á nær hverri bakteríu er að að
minnsta kosti ein veira. Tegunda-
fjöldi baktería og veira skiptir mOlj-
ónum, sumar valda mönnum tjóni en
aðrar eru hið mesta þarfaþing. Ekki
má gleyma að bakteríur bijóta niður
úrgang í náttúrunni sem ella myndi
safnast upp. Og megnið af bakter-
íum hefur ekki enn verið greint. Á
hinn bóginn er nokkuð umdeilt hve
margar tegundir séu til af bakter-
ium þar sem munurinn milli afbrigða
er oft svo lítill, t.d. er oft vandséð
hvað kalla á tegund og hvað afbrigði.
Síðan má ekki gleyma tíðum frum-
uskiptingum þeirra og þess hve
stökkbreytingar eru örar. Efna-
skiptin sem fara fram í bakteríum
eru fjölbreytileg, sérstaklega hvað
varðar nýtingu næringarefna og
segir hann að minnst af þeim hafi
enn verið kannað. Nýtingarmögu-
leikar baktería í hvers kyns fram-
leiðslu byggjast ekki síst á þessum
margvíslegu hæfileikum. Til eru
bakteríur sem eru algerlega frum-
bjarga og þurfa enga lífræna nær-
ingu, aðrar nýta sér ýmis lífræn efni.
Síðustu tíu árin hafa visindamenn
uppgötvað margt óvænt í sambandi
við örverur, einkum að þær eru mun
flóknari og fjölbreyttari en áður var
talið. Guðmundur segir að uppgötv-
aðar hafi verið hér nýjar örverur, ein
þeirra er hverabakterían Rhodo-
thermus marinus sem fannst í ísa-
fjarðardjúpi. Segist hann vel geta
hugsað sér að raðgreina genamengi
hennar. Úr henni var einangrað ens-
ím, svonefndur fjölliðari, polymer-
ase, er kann að vera heppilegur til
raðgreiningar á DNA-sameindum.
Ef E. coli skipti sér
ítvo sólarhringa...
Langflestar örverur virðist ekki
eða varla vera hægt að rækta á til-
raunastofum en þá er oft hægt að
greina þær með aðferðum sam-
eindaerfðafræðinnar.
„Og með erfðatækninni flytja
menn til gen og safna saman í einni
bakteríu mörgum genum sem geta
til dæmis verið gagnleg við eyðingu
á eiturefnum. Einnig hafa menn flutt
fjöldamörg gen úr mannafrumum og
fengið örverumar til að framleiða
efni eins insúlín, vaxtarhormóna og
önnur prótín. Kosturinn við þetta er
ekki síst hvað bakteríurnar skipta
sér hratt og framleiðslan er því mik-
il. Því er líka tiltölulega auðvelt að
leita uppi ákveðnar stökkbreytingar
milli kynslóða, biðin er ekki löng.
E-coli er ekki mikil vexti, um einn
þúsundasti úr millimetra að lengd.
En við hagstæð skilyrði getur e-coli
skipt sér á 20 mínútna fresti og ef
hún fengi að skipta sér þannig við-
stöðulaust, ef ekkert hindraði hana, í
tvo sólarhringa myndi hún framleiða
massa sem væri nokkur þúsund
sinnum stærri en öll jörðin! Ef mað-
ur setur nokkrar bakteríur í ræktun
í einn millilítra af næringarvökva að
kvöldi getur fjöldinn verið orðinn
þúsund milljónir að morgni."
Hann er spurður hvort menn geti
orðið heillaðir af örverum.
„Já, svo sannarlega, þær eru ótrú-
lega skemmtilegar lífverur."
Morgunblaðinu
í dag fylgir
aukablað um
genarannsóknir
SPÁNN
Fólk sem ersvo fallegt ad það á
hvergi heima nema í hulduhúsum
Gaudis; alls ekki í tízkuhúsum
Við horfðum yfir tumspírur
dómkirkjunnar, þær gnæfa uppúr
götum og húsaþyrpingum og við
sjáum yfir þetta leiksvið eins og
guð sjálfur, horfum af himnum;
enginn bíll, engin mannvera,
borgin eins og mauraþúfa og
mauramir ósýnilegh’, annaðhvort
undir þessum gömlu veðmðu þök-
um eða að heiman. En það skiptir
ekki máli; það eitt er mikilvægt
sem augað sér og sagt er að auga
guðs sé alltsjáandi. Og það er mik-
ið að sjá í miðborg Barsinó þegai’
maurarnir em komnir á stjá undir
kvöld og götumar fyllast af fólki,
alls konar fólki, rassstóm fólki,
innskeifu fólki, feitu fólki og mjóu,
hálsstuttu fólki, fólki sem leiðist
og fólki sem kyssist eins og dúfur,
fólki sem er svo ljótt að það er yf-
irtak og fólki sem er svo fallegt að
það á hvergi heima nema í huldu-
húsum Gaudis; alls ekki í tízku-
húsum fegmnariðnaðarins. Þar
em beinu linumar sem Gaudi
þoldi ekki; uppgerðin; tómið.
Og þama bak við kirkjuna er
elzta torg borgarinnar þar sem
Kólumbus stóð að Ameríkuförmni
lokinni og sagði ísabellu drottn-
ingu og Ferdinand konungi frá
landafundum sínum; hann hefði
fundið Indland. Hann hafði komið
með fyrstu sex indíánana frá Suð-
ur-Ameríku og látið skíra þá í
dómkirkjunni sjálfri og honum
var fagnað eftir landafundinn, en
þó að sjálfsögðu einkum fyrir gull-
ið og silfrið sem var í vændum.
Baráttan við márana ynnist ekki
án þessara málma. Og þama á
torginu Kólumbus með hýrri há
og nokkum tíma á eftir, en síðan
skrikaði honum fótur og dýrðin
breyttist í venjulega j arðneska
eymd. Nú er vegur hans minni en
oft áður og margir sem telja að
Kólumbus hafi verið illmenni eða
þrælahaldaii. Hann á undir högg
að sækja en Leifúr The Norse-
man á uppleið, jafnvel vígóður
faðir hans, Eiríkur rauði, að sækja
í sig veðrið, ef mai’ka má tízku-
stellingar.
En Kólumbus kvaddi þennan
heim án þess að vita nokkum tíma
að hann hefði fundið Ameiíku.
Hann fór með Indland inn i eilífð-
ina. Það minnir á Lúther sem ætl-
aði aldrei að verða lútherskur
heldur flikka upp á sannfæringu
sinnar dýrlegu kaþólsku móður-
kirkju.
En hvað þá um safn Picassos í
gamla bænum í Barsínó? Það
stendur við einhverja eftir-
minnilegustu götu borgarinnar,
en þai’ hefur mörgum gömlum
húsum verið breytt í söfn og þau
standa svo sannarlega fyrir sínu,
rétt eins og nýja listasafnið í
Hafnarhúsinu.
í Picasso-safninu em mjmdir
frá öllum tímabilum í list hans,
ekki sízt bláa tímabilinu og hinu
kúbíska frá 3. áratugnum - eða
um sama leyti og Kandinsky var
að breyta hefðinni i afstraktnú-
tíma, enda lágu allar þessar
breytingar í loftinu og í raun em
ótrúlega margir meistarar að
vinna svipaðar myndir, Picasso,
Braque, Gris og svo mætti áíram
telja.
Eitthvað varð að gera.
Samt vom þetta meistarar sem
allt kunnu. Picasso málaði svo
meistaralegar myndir um ferm-
ingu að margir aðrir sem hafa
fengizt við myndlist hafa ekki á
gamals aldri náð jafn langt. Þama
em ekki sízt margar myndir frá
því Pieasso stundaði nám við list-
VISINDIOG KÆRLEIKI. -Myndsem Picasso málaði
aðeins 16 áragamall.
háskólann í Barcelona, en þar bjó
hann ásamt fjölskyldu sinni í níu
ár, eða eftir að hann hvarf frá
Malaga. Þessar myndir sýna að
Picasso var ekki einungis meistari
í grein sinni, heldur fæddur meist-
ari. Hann var einungis sextán ára
þegar hann málaði Vísindi og
kærleika. Hvað skyldu margir
listamenn hafa málað aðra eins
mynd á löngum starfsferli?
Áhyggjumar í andlitum fólksins,
kærleikann, vonina persónugerðá
í lækninum, bamið og nunnuna.
Það vom einungis slíkh' sniiling-
ar sem gátu umskapað mynd-
listina. Enginn hefur, að ég held,
málað jafn góðar afstraktmyndir
og frumkvöðullinn sjálfur, Kand-
insky. Afstrakt hans hefui’ ekki
verið slegið út, sumar myndir hans
em þær eftirminnilegustu sem
gerðar hafa verið í þessum stfl.
Þessir menn höfðu hefðina í
blóðinu. Þeir kunnu allt. Þeir era
eins og píanóleikari sem getur
spilað erfiðustu verk Rachmanin-
offs nótnalaust. Það em einungis
slíkir menn sem geta umskapað
listina; einnig bókmenntimai’.
Og þá ekki sízt Ijóðlistina.
Fólk sem kann til fullnustu það
sem ætlunin er að breyta.
Eins og Debussy.
14. maí,
sunnudagur
Mig dreymdi Þórberg í nótt,
kannski er það vegna þess hann
hefur að öllum likindum verið
klónaður hér í Barcelona. Og þó.
Líklega er orsök þessa draums
fremur sú að Pétur Pétursson
hefur lesið allt Kompaníið fyrir
Rikisútvarpið og mér skilst það
verði flutt á þessu afmælisári. Ég
hef ekki heyrt upplestm’ Pétm-s,
en hlakka til þess. Hann er frábær
upplesari og það er mikii list í frá-
sögnum hans, eins og ég hef heyrt
þær milliliðalaust, af vöram hans.
Pétur las séra Árna í útvarp og
gerði það með afbrigðum vel. Eg
var eiginlega aðalhvatamaður
þess að Pétur læsi Kompaníið.
Hann kann að meta það. Bima,
kona hans, segir það sé vanmetin
bók. Það skiptir ekki máli. Það
eitt skiptir máli að eitthvað sé
sæmilega gert; að eitthvað sé gert
eins og náttúran; að eitthvað sé
tifraun til fullkomnunar; að eitt-
hvað sé sprottið af fullkomnunar-
áráttu. En fullkomnun er víst ekki
til, ekki einu sinni í náttúmnni. Og
þó kannski einna helzt þar.
En hvort sem Þórbergur hefur
verið klónaður hér í Barcelona eða
ekki, er hann eitthvað að velkjast í
huga mínum eftir að ég hitti leið-
sögumanninn sem fór með okkur í
dómkirkjuna. Og það er svo sem
ekkert að því að dreyma Þórberg.
Hann trúði á drauma. Trúði á allt
yfimáttúmlegt. Trúði á allt sem
er ekki af þessum heimi. Trúði
meira að segja á paradís á jörð.
Mikil var trú hans! Hann hefði
haft gaman af því að fara í ævin-
týragarðinn sem Gaudi hannaði
hér í Barsínó. Og huldufólkshúsin.
Hann hefði verið fljótur að upplifa
þetta ævintýri.
En sem sagt, nú ætlar Pétur að
vera í Kompaníi okkar Þórbergs
um stund. Ég efast ekki um það
geti orðið bærileg veizla.
Margir listamenn em eins og
hvítir hrafnar. Þeir falla ekki inní
þjóðfélagið, ekki alveg. Ef þeir
ætla að gera það, verða þeir að
bæla ákveðinn þátt síns listræna
eðlis. Það gerði Hannes Hafstein
og hætti að yrkja, að mestu.
Einn þessara hvítu hrafna var
brezki rithöfundurinn Lawi’ence
Durrell. Ég hef haft gaman af að
lesa skáldsögur hans héðan frá
Miðjarðarhafinu. Þær koma úr
annarri átt. Þær era byggðar á h'fi
hans sjálfs, ævintýmm hans
sjálfs. Hann var einskonar dipló-
mat eða jafnvel njósnari og talinn
kynferðisleg alæta. Mér dettur
hann í hug vegna þess ég var að
lesa í einhverju dagblaðanna að
ein af söguhetjum hans, Sabri
Takir, hefði verið skotinn á Kýpur
í vikunni; hann var kýpurtyrki en
þótti ævintýralegur braskari - og
hefði tekið sig vel út á kvóta- og
verðbréfamarkaðnum hér! Var
vinur Durrells sem studdist við
persónu hans í einni af skáldsög-
um sínum. Mér fannst þessi frétt
lýsa lífí hans vel. Nú er verið að
drepa eina af söguhetjum hans,
löngu eftir að hann er sjálfur
dauður. Það er svo sem eftir öðra
og ætti ekki að koma neinum á
óvart sem hefur fylgzt með þess-
um fijóa og sagnaglaða sí-
drykkjumanni.
Sabri Takir átti víst sökótt við
einhveija krimma eins og í nú-
tímametsölubók. Hann var drep-
inn á hóteh sem hann átti sjálfur í
Lefkosa, helztu borginni á Norð-
ur-Kýpur. Hann er persóna í sög-
unni Bitter Lemons.
Durrell segir að Takir hafi lifað
lífinu áreynslulaust. Hann var
betur vakandi en flestir aðrir, ekki
sízt þegar hann seldi fasteignir!
Samt var hann með syfjuleg augu,
bætir Durrell við. Sem sagt, aust-
urlenzk og dreymin. Sá - án þess
að horfa!
M.
+