Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Tíu umsækjendur um sænsk UMTS-farsímaleyfí Morgunblaðið. Ósló. Heímagæsla Öryggismiástöðvar íslands á kr. 4.365 á mánuöl Nú býöst korthöfum ViSA heimagæsla á sérstöku tilboðsverði; Einungis ergreitt fyrir 10 mánuði á árí sem jafngildir um það bil 17% afsiætti eða kr. 3.638,- á mánuði. Innifalinn I tilboði erallur búnaður, uppsetning og þjónusta. Sími533 2400 TIU fyrirtæki eða fyrirtækjahópar sóttu um þau fjögur leyfi til rekstr- ar UMTS-farsímakerfisins sem í boði eru í Svíþjóð. Umsóknarfrest- ur rann út um miðjan dag í gær. Hluti fyrirtækjanna sækir einnig um leyfi til GSM-rekstrar. Að því er fram kemur í norrænum fjölmið- lum er búist við að fjarskiptafyrir- tæki, sem þegar starfrækja GSM- kerfi í Svíþjóð, fái leyfin. Sænska póst- og fjarskiptastofn- unin mun taka umsóknirnar til at- hugunar og veita leyfin á grundvelli fjárhagslegs styrkleika fyrirtækj- anna, tækniþekkingar, markaðs- áætlana og reynslu þeirra. Einnig verður tekið til athugunar hversu fljótt og yfir hve stórt svæði fyrir- tækin telja sig geta boðið þjónust- una. Flest fyrirtækin lofa 100% út- breiðslu UMTS-kerfisins í Svíþjóð árið 2003. Óheimilt að bjóða leyfin upp Þau fjögur félög sem hreppa leyfi munu greiða 12.000 evrur í sænska ríkissjóðinn, eða um 900 þúsund ís- lenskar krónur, auk 0,15% af ár- legri veltu. Óheimilt er samkvæmt sænskum lögum að bjóða leyfín upp, að því er fram kemur í Dagens nyheter, en uppboðsfyrirkomulagið var m.a. notað í Þýskalandi og Bretlandi og mun það skila yfir- ÁKVEÐIÐ hefur verið að sameina Umbúðamiðstöðina hf. og Kassa- gerð Reykjavíkur hf. og hafa hlut- hafar og stjórnir fyrirtækjanna samþykkt samrunann, en það var FBÁ sem hafði milligöngu um sameininguna. Áætluð velta fyrir- tækisins er um 1,8 milljarðar króna á ári og hjá því munu starfa 185 manns og það rekur einnig söluskrifstofur í Ameríku og Af- ríku. Ekki hefur fengist upp gefið hver eignarhlutur hvors fyrirtækis í hinu sameinaða fyrirtæki verður. Guðmundur Karlsson, forstjóri Umbúðamiðstöðvarinnar, segir að fyrirtækin muni starfa áfram hvort á sínum stað og enn hafi ekki verið teknar neinar ákvarðan- ir um að flytja starfsemi þeirra á einn stað: „Sameiningin er eigin- lega á frumstigi og í raun hefur ekkert verið ákveðið um útfærslu samrunans eða hvar hið sameinaða fyrirtæki verður staðsett eða hvort byggt verður á nýjum stað.“ Aukin alþjóðleg samkeppni Aðspurður segir Guðmundur að markmiðið með sameiningunni sé að styrkja fyrirtækin og gera þau betur í stakk búin til þess að mæta aukinni alþjóðlegri samkeppni á þessum markaði. Vélar til fram- leiðslu sem þau fáist við séu afar dýrar og nýting þeirra því lykila- triði og nauðsynlegt að geta keyrt þær á þremur vöktum. Um 20% af framleiðslu Umbúðamiðstöðv- arinnar hefur farið á erlenda markaði en mun minna hjá Kassa- gerðinni en Guðmundur segir að stefnt sé að því að reyna að auka útflutninginn og þá sérstaklega til Bandaríkjanna sem sé bæði spenn- andi og stór markaður. Prentun hjá bandarísku fyrirtækjunum sé síðri en á íslandi og auk þess séu menn færir um að afgreiða pant- anir héðan með skemmri fyrirvara en stóru bandarísku fyrirtækin. völdum háum fjárhæðum sem not- aðar verða til að grynnka á skuld- um hins opinbera. Dagens nyheter reiknast til að sænsku leyfin séu 50 milljarða sænskra króna virði, eða um 430 milljarða íslenskra króna. Umsækjendurnir tíu eru stærsta símafélag Svíþjóðar, Telia, Tele2 (dótturfélag NetCom), Europolitan (dótturfélag Vodafone), Telenordia, Broadway Communications, Or- ange Sverige, Mobility4 Sweden, Reach Out Mobile, HI3G og sam- eiginleg umsókn Teracom, Ratos og Nomura. Telia áformar að fjárfesta fyrir 7-11 miiljarða sænskra króna Stærsta fjarskiptafélag Svíþjóð- ar, Telia, áformar að fjárfesta á bil- inu 7-11 milljarða sænskra króna í UMTS á tíu ára tímabili. Sam- kvæmt áætlun Telia verða hlutar af kerfinu tilbúnir strax á næsta ári en árið 2002 nái það til meirihluta Svíþjóðar. Tele2, dótturíyrirtæki Netcom, skilaði einnig inn umsókn í gær. Talsmaður fyrirtækisins sagði í samtali við Dagens industri að fyr- irtækið myndi fjárfesta meira í UMTS en Telia hefur tilkynnt. Telenordia er fjórða stærsta síma- félag í Svíþjóð og hefur byggt upp netþjónustu og almenna símaþjón- Aðspurður segir Guðmundur að samkeppnisyfirvöld þyrftu að fjalla um málið þar sem fyrirtækin væru þau einu hér á landi á sviði umbúðaframleiðslu. „Kassagerðin hefur að vísu verið ein um bylgjupappakassaframleiðslu svo þar breytist ekkert. En á sviði annarrar umbúðaframleiðslu hefur verið um samkeppni þeirra í mill- um að ræða. Samkeppni við innfluttar umbúðir Hins vegar hafa bæði fyrirtækin átt í mikilli samkeppni við inn- flutning umbúða og hefur sá inn- flutningur verið á hendi margra aðila. Því verður áfram um mikla samkeppni að ræða á þessu sviði þótt Umbúðamiðstöðin og Kassa- gerðin sameini framleiðslu sína svo ég fæ ekki séð að samruninn muni mæta andstöðu sámkeppnis- yfirvalda." Kassagerð Reykjavíkur var stofnuð árið 1932 af Kristjáni Jó- hanni Kristjánssyni og Vilhjálmi Bjarnasyni en núverandi eigendur eru afkomendur Kristjáns. Kassa- gerðin fæst við hönnun og fram- leiðslu umbúða auk þess að veita viðskiptavinum alhliða umbúðaráð- gjöf. Um þrír fjórðu hlutar fram- leiðslunnar eru matvælaumbúðir og af þeim eru þrír fjórðu umbúðir fyrir fiskafurðir. Hjá Kassagerð- inni starfa um 140 manns. Umbúðamiðstöðin var stofnuð af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og fyrirtækjum innan SH árið 1964 en Prentsmiðjan Oddi keypti Umbúðamiðstöðina árið 1996. Umbúðamiðstöðin hefur starfað við umbúðaframleiðslu úr pappír og almenna prentun en framleiðsla fyrir sjávarafurðir hefur ávallt verið stór hluti í rekstrinum. Þá starfrækir Umbúðamiðstöðin vöru- hótel í 7.000 fermetra húsnæði. Hjá Umbúðamiðstöðinni starfa um 45 manns. ustu þar. Breytingar urðu á eignar- haldi félagsins í fyrradag þegar Telenor og British Telecom keyptu hlut Tele Danmark og eiga nú um 50% hvort. Áður áttu fyrirtækin þrjú jafna hlutdeild í félaginu. Að því er fram kemur í Aftenposten greiddi Telenor sem samsvarar um 11 milljörðum íslenskra króna fyrir hlutabréf Tele Danmark í Tele- nordia. Broadway Communications samanstendur af Tele 1 Europe, dótturfélagi NetCom, með 40%, Western Wireless með 40%, en fé- lagið er hluthafi í íslenska fjar- skiptafyrirtækinu Tali, og finnska félagið 2G/3P, Rix Telecom frá Sví- þjóð og norska félagið You Comm- unication deila 20%. Orange Sverige er sameiginlegt félag Orange (dótturfélags France Telecom), norska útgáfufélagsins Schibsted, og sænsku félaganna Skanska og Bredbandsbolaget. í umsókn hópsins kemur fram að reiknað er með að árið 2003 verði kerfið tilbúið að fullu til notkunar en næsta vor gæti fyrsta samtalið farið fram. Hópurinn áætlar að uppbygging UMTS-kerfis geti kostað allt að 20 milljörðum sænskra króna. Mobility4sweden er sameiginlegt félag sænska fjarskiptafélagsins Utfors með 29%, alþjóðarisans FLUGLEIÐIR og Landssimi ís- lands hf. hafa gert með sér samn- ing um samstarf við uppbyggingu Destal, sem er heildstæð veflausn fyrir ferðaþjónustu. Síminn mun meðal annars koma að þróun staðsetningarbundinnar þjónustu Destal fyrir ferðafólk. í þeirri þjónustu felst að með þráðlausu neti geta ferðamenn fengið upp- Iýsingar um þjónustu eða afþrey- ingu í nágrenninu og stundað verslun og viðskipti í gegnum GSM-síma eftir þvi hvar þeir eru staddir hverju sinni. Samhliða samstarfssamningnum var gerður samningur um kaup Símans á 7,5% hlut í Destal hf. Síðar á þessu ári verður fleiri fjárfestum gefinn kostur á að kaupa hlut í Destal. Ennfremur mun Síminn annast rekstrarþjónustu tölvubúnaðar og netaðgangs fyrir Destal hf. ásamt því að bjóða ferðaþjón- ustuaðilum samskipti við Destal í gegnum Netið. „Staðsetningarbundin þjónusta ABB með 26% og T-Mobile (dóttur- félags Deutche Telecom) með 45%. Félagið sækir einnig um GSM-leyfi. Uppbygging fyrirtækisins er fjár- mögnuð að hluta til af Chase Man- hattan-bankanum, að því er fram kemur í Dagens industri. Áætlað er að GSM-kerfi verði komið á fót í apríl á næsta ári og UMTS-kerfið tilbúið ári síðar, ef leyfi fást. Reach Out Mobile er í 45% eigu finnska fjarskiptafélagsins Sonera, Industrikapital á 35% og Telefonica á Spáni 20%. Félagið mun starfa með sænskum orkufyrirtækjum. Reach out Mobile áætlar að UMTS- kerfi fyrirtækisins verði tilbúið í síðasta lagi 31. desember árið 2003, að því er Dagens industri greinir frá. Fjárfestingarfélögin Nomura frá Japan og Ratos standa að umsókn með sænska fjarskiptafyrirtækinu Teracom sem hefur einbeitt sér að gervihnöttum. Einnig eru Glocal- net, Internetö, Worldcom, RSL Com og Home.se aðilar að umsókn- inni. HI3G leggur fram sameiginlegt tilboð Investor með 40% og Hutchinson Whampoa frá Hong Kong með 60% en síðarnefnda fé- lagið hætti við þátttöku í tilboði í þýskt UMTS-leyfi ásamt hollenska félaginu KPN í síðasta mánuði. við fólk á ferðalagi með þráð- lausu neti er gott dæmi um afar spennandi þróun fjarskiptatækn- innar,“ segir Þórarinn V. Þórar- insson, forstjóri Sfmans. „Þráð- laust net er á næsta leiti, fyrst með tilkomu GPRS-tækninnar í GSM-símakerfum og síðan með tilkomu þriðju kynslóðar far- símakerfa, svokölluðum UMTS- rásum. Destal er í fararbroddi í þróun staðsetningarbundinnar þjónustu og það er alveg ljóst að þetta er mjög áhugavert við- skiptatækifæri." Fyrirtækið Destal hf. var nýlega stofnað af hálfu Flugleiða til að annast þró- un Destal-veflausnarinnar. ís- land verður fyrsta landið þar sem Destal-veflausnin verður tekin í notkun á vefslóðinni Iceland- Total.com. Þar munu ferðamenn geta komist í beint samband við flestalla aðila í íslenskri ferða- þjónustu. Á einni og sömu vef- slóðinni geta ferðamenn fengið allar upplýsingar, bókað og gengið frá greiðslum. Kassagerðin og Umbúðamið- stöðin sameinuð Morgunblaðið/Jim Smart Kolbeinn Arinbjarnarson, framkvæmdastjóri Destal, Þórarinn V. Þórarins- son, forsljóri Landssímans, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða hf., og Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða. Landssíminn kaupir hlut í Dest- al af Flugleiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.