Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÓL í brids Islending- ar í 5. sæti ÍSLAND vann fullnaðarsigur á Pal- estínu, 25-5, í 15. umferð riðla- keppninnar á Ólympíumótinu í brids í gærkvöldi en var í 5. sæti í sínum riðli, tveimur stigum á eftir Nýja- Sjálandi sem er í 4. sæti en fjórar efstu sveitirnar í hverjum riðli kom- ast áfram í úrslitakeppni sem hefst á sunnudag. Tveir síðustu leikirnir í undankeppninni verða spilaðir í dag. Ítalía hefur 313 stig í efsta sæti D-riðils, Argentína og Noregur 285, Nýja-Sjáland 271 stig, ísland 269 og Kína 254. Urslit leiks Islendinga og Itala í 13. umferð í gærmorgun breyttust síðdegis. Leikurinn var fyrst skráð- ur 19-11 fyrir ítala en í einu spil- anna hafði keppnisstjóri breytt skor, Islendingum í óhag. Við nánari athugun kom í ljós að keppnisstjór- inn hafði fengið rangar upplýsingar og byggði úrskurðinn ekki á réttum forsendum. Því var úrskurðinum breytt og endaði leikurinn þá 16-14 fyrir ítala. Tveir síðustu leikimir í riðla- keppninni verða spilaðir í dag og þá etur ísland kappi við Malasíu og Búlgaríu. Nýsjálendingar spila við Tyrki og Kínverja og ættu að eiga heldur erfiðari leiki fyrir höndum en íslendingar. ■ Spennandi/62 Wolfgang Thierse í opinberri heimsókn á fslandi Heimsótti Alþingi og Pingvelli í gær WOLFGANG Thierse, forseti þyska Sambandsþingsins, kom í gærmorg- un í opinbera heimsdkn til Islands í boði forseta Alþingis. Thierse heim- sdtti Alþingi í gærmorgun og átti fund með Guðmundi Árna Stefáns- syni, 1. varaforseta þingsins, og átti einnig viðræður við Tdmas Inga 01- rich, formann utanríkismálaneftid- ar og Vilhjálm Egilsson, formann íslandsdeildar þingmannanefndar EFTA. Að því búnu hélt Wolfgang Thierse til Þingvalla og sat hádegis- verð í boði Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. Síðdegis í gær átti Thierse fundi með Jdnínu Bjartmarz, þingmanni Framsdknarflokksins, Ama Stein- ari Jdhannssyni, þingmanni Vinstri- hreyfingarinnar og Ossuri Skarp- héðinssyni, formanni Samfylk- ingarinnar. I gærkvöldi sat Thierse kvöldverð í boði forseta Alþingis til heiðurs forseta þýska Sambandsþingsins. í dag fer Wolfgang Thierse í skoðunarferð á Vatnajökul og í Skaftafell en á sunnudag, síðasta degi heimsdknarinnar, mun hann Morgunblaðið/Sverrir heimsækja forseta íslands á Bessa- Davíð Oddsson forsætisráðherra sýnir Wolfgang Thierse, forseta þýska stöðum. Sambandsþingsins, umhverfí Þingvallabæjar. Útflutningur á hrossum kærður til dýraverndunarráðs „Þola vítis- kvalir vegna sumarexems“ DÝRAVERNDUNARRÁÐI hefur borist erindi þar sem óskað er eftir áliti ráðsins á útflutningi á íslenskum hestum. í erindinu er athygli ráðsins vakin á því að íslenskir hestar, sem fluttir eru úr landi, þurfi að þola mikl- ar kvalir af völdum sumarexems. Vís- að er til laga um vemd dýra frá árinu 1994 og laga um dýralækna og heil- brigðisþjónustu. Dýraverndunarlög nái einnig til útflutnings Það er Friðbert P. Njálsson sem sendi umhverfisráðherra erindið og hefur ráðherra vísað því til dýra- vemdunarráðs. Erindinu hefur verið dreift til þeirra sem sitja í ráðinu og verður það tekið íyrir á fundi nk. mánudag. I erindinu er bent á að þær kröfur sem gerðar séu um vernd dýra hér á landi hljóti einnig að ná til þeirra þús- unda hrossa sem seld séu úr landi í umhverfi og aðstæður sem þau hafi ekki vanist. „Á erlendri grundu fá þau þúsundum saman svokallað sumar- exem, mjög alvarlegan sjúkdóm, og lifa mörg hver við vítiskvalir eftir það í a.m.k. átta mánuði á ári hverju allt það er þau eiga þá eftir ólifað.“ Friðbert spyr í bréfinu hvort ekki sé óráðlegt að bíða eftir að erlendir aðilar geri okkur þá skömm að stöðva innflutning á íslenskum hrossum inn í lönd sín á grundvelli dýravemdar og náttúruverndar. Hiti yfir meðallagi í ágúst- mánuði VEÐUR í ágúst var heldur hlýrra í Reykjavík og á Akur- eyri en í meðalári að sögn Trausta Jónssonar veður- fræðings. Það er að hans sögn í takt við áratuginn sem hefur verið í hlýrri kantinum. I Reykjavík var meðalhiti 10,7 gráður sem er 0,4 gráðum yfir meðalhita. Úrkoma var 71 mm sem er 15% yfir meðallagi. Alls vora úrkomudagar 22 sem er tveimur dögum meira en meðaltalið er. Það segir hins vegar ekki alla söguna að sögn Trausta því suma daga sem úr- koma mældist var hún varla merkjanleg. Þess utan hafi 40% úrkomunnar fallið á einum degi þannig að ekki sé hægt að tala um rigningatíð í ágúst. Sólskinsstundir vora 113 sem er 41 stund undir meðallagi. Eingöngu fjóra daga var sól all- an daginn en hins vegar vora það ekki margir dagar sem vora alveg sólarlausir. A Akureyri var meðalhiti 11,3 gráður sem er 0,7 gráðum yfir meðalhita. Það er ekkert óvanalegt að sögn Trausta enda hefur meðalhiti þrisvar sinnum verið hærri í ágústmánuði sl. áratug. Úrkoma var 40% undir meðallagi eða 47 mm. Sól- skinsstundir vora 150 sem er 13 stundum meira en í meðalári. Að sögn Trausta er ekkert óvenjulegt við þessar tölur enda hefur verið heldur hlýrra sl. áratug en áratuginn þar á undan. Áttundi áratugurinn var í meðallagi en sjöundi í hlýrra lagi. Þess má geta að meðalhiti ágústmánaðar byggir á meðalhita ágústmánaða á tímabilinu 1961-1990. Trausti segir vera skipt um viðmiðunartímabil á 30 ára fresti og tímabilið sem miðað var við áður, 1931-1960 hafi verið hlýrra en það sem nú er miðað við. Niðurstaða valnefndar Seltjarnarnesprestakalls Sr. Sigurður Grétar Helga- son valinn sóknarprestur SÉRA Sigurður Grétar Helgason var í gær valinn af valnefnd Seltjarnarnesprestakalls til að gegna embætti sóknarprests í prestakallinu. Alls voru fjórir umsækjendur um embættið en það var auglýst laust til umsóknar fyrr í sumar þegar séra Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrv. sóknarprestur á Seltjarnar- nesi, tók við embætti sóknarprests í Möðravallaprestakalli. Sr. Sigurður Grétar hefur verið prestur á Seltjarnarnesi undanfarin tvö og hálft ár. Hann sagði í sam- tali við Morgun- blaðið í gær að sér væri efst í huga innilegt þakklæti fyrir þann stuðning sem hann hefði orðið var við síð- ustu vikur. „Ég hef gegnt starfi prests við Seltjarnarneskirkju í tvö og hálft ár og það hefur verið afskaplega ánægjulegur og lærdómsríkur tími. Ég hef kynnst mörgu góðu fólki. Það eru ákveðin forréttindi að fá að starfa þarna því þetta er góður söfn- uður. Fólk á Seltjarnarnesinu lætur sig kirkjuna sína varða,“ sagði hann. Sigurður Grétar er fæddur 5. maí 1968 í Reykjavík. Hann lauk embættisprófi frá guðfræðideild Háskóla Islands árið 1996. Sigurður Grétar er kvæntur Ragnheiði Ás- grímsdóttur viðskiptafræðingi. Eiga þau eina dóttur en fyrir á Sig- urður einn son. Opinber heimsókn Li Peng hefst í dag’ OPINBER heimsókn Li Peng, for- seta þjóðþings Kína, til Islands hefst í dag. Li Peng og fylgdarlið hans koma með einkaþotu frá New York og er gert ráð fyrir að hún lendi á Keflavíkurflugvelli kl. 08.30. Opinber dagskrá heimsóknar hans hefst hins vegar ekki fyrr en síðdegis í dag. Fjölmörg félagasamtök hafa boðað til mótmælafundar við Al- þingishúsið vegna heimsóknar Li Peng á sunnudag kl. 14.30. Einstakar tímasetningar dag- skrár heimsóknarinnar verða ekki birtar fyrr en í dag en Li Peng mun síðdegis í dag hitta Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands, á Bessastöðum og Davíð Oddsson forsætisráðherra í Ráðherrabú- staðnum. Á sunnudag heimsækir Li Peng Alþingi og á mánudag fer hann í skoðunarferð á Þingvelli, að Gullfossi og Geysi og mun einnig skoða Nesjavallavirkjun. Li Peng og fylgdarlið hans dvelja á Hótel Sögu meðan á heim- sókninni stendur en reiknað er með að fylgdarmenn hans verði á annað hundrað talsins. Heimsókn Li Peng lýkur 5. september. ■ Mótmæli/14 Sérblöð í dag ___ LESBÖK ÁLAUGARDÖGUM Drög að korti yfir genamengi mannsins eru orð- in að veruleika. Blaðinu í dag fylg- ir aukablað um erfðafræði- rannsóknir og framtíðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.