Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Krabbamein
Lítið skref stigið í átt að
þróun bóluefnis?
Sálfræði
Sagt frá hugtakinu
„sturlun" og notkun þess
Nýjungar
Plastpillur gætu aukið
verulega áhrifamátt lyfja
Börn
Sýkingar á barnaheim-
ilum nauðsynlegar?
Pillur úr
plasti
The New York Times Syndicate.
VÍSINDAMENN eru nú að rann-
saka hvort unnt sé að nota fjöl-
liður sem plast er búið til úr til
að bera lyf þangað sem þeirra er
mest þörf, fremur en að þau fari
um magann. Lyf á borð við asp-
irín, til dæmis, innihalda sýru
sem getur eytt „klæðningunni" á
maganum og valdið blæðingu.
Hið mjög súra umhverfí í mag-
anum getur eytt lyfjum á borð
við insúlin áður en þau ná að
virka.
En ef unnt er að blanda plasti
við lyfín með einhverjum hætti
gæti það komið í veg fyrir að
þau brotni niður í maganum, að
því er vísindamennirnir segja.
„Með fjölliðum fæst staðbundin,
stýrð losun Iyfja," segir Kathryn
Uhrich, prófessor í efnafræði við
Rutgers-háskóla í Banda-
ríkjunum.
Hún og samstarfsfólk hennar
bjuggu til svokallað PolyAspr-
inT, þar sem aspirín er blandað
með plasti. Fyrsti þátturinn er
acetýlsalisílsýra, sem er helsta
virka efnið í aspiríni, og er það
tengt við fjölliðuna, að sögn
Uhrichs. PolyAsprinT er hannað
til þess að sleppa framhjá melt-
ingunni í maganum og brotna
niður í smáþörmunum.
Lyf sem búin eru til með þess-
um hætti gætu nýst við meðferð
á fjölda kvilla, allt frá þarma-
bólgu til berkla, segir Uhrich.
Þá gætu tannlæknar notað þetta
til að bera aspiríngel á sár eftir
að tönn hefur verið fjarlægð eða
viðgerð farið fram og þannig
myndi verkur linast einmitt þar
sem hann á upptök sín. Þar eð
Morgunblaðið/Ásdís
lyfið er skammtað beint á þann
stað þar sem verkurinn hefst tel-
ur Uhrich að minna yrði notað
af lyfínu.
Gæti valdið byltingu
Aðrir vísindamenn eru að
reyna öðru vísi aðferðir til að ná
sama markmiði. í stað þess að
blanda lyfjum og plasti eru vís-
indamenn við Purdue-háskóla í
Bandaríkjunum að gera tilraun
með að setja lyf inn í örsmáar
plastagnir til að koma í veg fyrir
að þau meltist í maganum. Agn-
irnar eru um einn hundraðasti
af mannhársbreidd að stærð.
„Þessi tækni lofar einstaklega
góðu,“ segir Nicholas Peppas,
prófessor í efna- og líffræðilegri
læknisfræði við Purdue. „Þetta
gæti valdið byltingu á þessu
sviði.“ Uhrich líkir þessari að-
ferð við smákökubakstur þar
sem plastögnin er deigið og lyfið
er súkkulaðimolarnir.
Uhrich telur að þessar tvær
aðferðir geti bætt hvor aðra
upp, fremur en að önnur komi
til með að útiloka hina. Líklega
muni einstök lyf henta betur
annarri hvorri aðferðinni og
önnur betur hinni aðferðinni.
Tenglar
American Chemical Society:
http://www.acs.org/
Bóluefni gegn
krabba hugsanlegt?
VÍSINDAMENN í Bandaríkjunum
telja að þeir hafi stigið fyrsta skrefið,
smátt að vísu, í átt til þess að unnt
kunni að reynast að þróa bóluefni
gegn flestum tegundum krabba-
meins. Greint var frá þessu á frétta-
vef breska ríkisútvarpsins, BBC, á
miðvikudag.
Sérfræðingar vara við óhóflegri
bjartsýni og taka fram að ólíklegt
megi teljast að nokkurn tíma verði
unnt að þróa bóluefni gegn öllum
tegundum krabbameins.
Hins vegar hefur hópur vísinda-
manna við Duke-háskóla í Banda-
ríkjunum uppgötvað prótín sem
verður til við myndun helstu tegunda
þeirra krabbameina sem leggjast á
mannfólkið. Prótín þetta getur örvað
myndun ónæmisfrumna til að vinna
gegn sjúkdómnum. Onæmisfrum-
urnar sem verða til fyrir tilstilli
þessa prótíns hafa reynst þess
megnugar að drepa ólíkar og
ótengdar tegundir krabbameins-
frumna úr mönnum í tilraunaglösum
og í músum.
Vonin er sú að þarna geti verið
fundin leið til að þróa fram bóluefni
gegn þessum sjúkdómi.
Fram til þessa hafa rannsóknir yf-
irleitt miðast við að einangra tiltekin
prótín sem eru tilteknum tegundum
krabbameins eiginleg. Hugsunin
hefur þá verið sú að hver einstök teg-
und krabbameins eigi sér tiltekna
mótefnavaka.
I rannsókninni sem E1 Gilboa pró-
fessor stýrði við Duke-háskóla
beindist leitin hins vegar að einum
mótefnavaka sem dugað gæti til að
kalla fram ónæmisviðbrögð hjá öll-
Associated Press
Vísindamenn telja hugsanlegt að þróa megi bóluefni gegn helstu teg-
undum krabbameina.
um krabbameinssjúklingum.
Greint er frá þessari rannsókn í
tímaritinu Natural Medicine en hún
var unnin í samvinnu við einkafyrir-
tæki er nefnist Geron Corporation.
Tenglar
Tímaritiö Natural Medicine:
www.nature.com/nm/
Læknamiöstöö Duke-há
skóla:www.mc. duke.edu/
Hvað er sturlun ?
GYLFIÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Orðið sturlun er gamalt
og gott orð um það þegar menn
ruglast eða missa vitið. Er það not-
að í fræðilegri merkingu í dag yfir
geðveiki eða einhverja tegund
hennar? Hvað felst í því að vera
sturlaður?
Svar: Sturlun er orð sem er
vissulega í fullu gildi í dag og er
notað af fræðimönnum á sviði geð-
sjúkdóma. Sturlun kemur fyrir í
ýmsum tegundum geðsjúkdóma,
bæði sem langvinnt og skamm-
vinnt ástand. Tímaritið Geðvemd
gaf út þemahefti um sturlun árið
1993 og þar segir ritstjórinn, Eir-
íkur Örn Arnarson, í formála:
„Sturlun er ákveðið ástand sem
sérkennist af truflun á raunveru-
leikamati og -skyni ásamt röskun á
persónugerð. Einkennin eru marg-
vísleg og koma fram í óráði, rugli,
hugvillum og skynvillum. Þau geta
komið í kjölfar sótthita og eitrana.
Að auki geta einkennin verið fylgi-
fiskur annarra sjúkdóma, s.s. geð-
klofa, geðhvarfa, hrörnunar-
sjúkdóma og stafað af truflun á
blóðrennsli í heila.“ í samræmi við
þetta eru greinar í blaðinu sem
fjalla um geðklofa, geðhvarfa-
sjúkdóma, ölæði og elliglöp auk
greinar um endurhæfingu vegna
alvarlegra geðsjúkdóma.
Eitt af því sem athugað er við
geðskoðun er hvort sjúklingurinn
sé áttaður á stað og stund. Sé hann
það ekki er hann úr tengslum við
veruleikann sem er eitt af einkenn-
um sturlunar. Samfara þessu hef-
ur hann oft ranghugmyndir og of-
skynjanir eða skynvillur. Hann
lifir í eigin hugarheimi og túlkar
því það sem hann upplifir út frá
eigin forsendum, hugmyndum sem
eru byggðar á hans eigin ímyndun-
um en eru ekki í samræmi við ytri
staðreyndir eða það sem við nefn-
um veruleika. Oft verða ranghug-
myndir hans að rökheldu kerfi sem
erfitt er að brjóta niður. Hann lok-
ast inni í hugmyndaheimi sínum og
getur þá einnig dottið út úr til-
finningalegu og félagslegu sam-
bandi við annað fólk. Þetta eru
marktækustu einkenni geðklofa og
geta orðið langvinn. Það sem flest-
ir tengja þó við sturlun og er
Geðrænt
ástand
stundum einkenni hjá geðklofa
sjúklingum er óráðstal og rugl-
ingsleg hegðun. Það sjáum við
einnig í skammvinnri geðveiki og
það getur veríð erfitt að greina
hver sjúkleikinn er sem liggur að
baki einkennunum fyrr en að
nokkrum tíma liðnum þegar bráir
af honum. Það á t.d. við um marga
geðhvarfasjúklinga sem í fyrstu
hafa einkenni sem mjög líkjast
geðklofa, þ.e. röskun á veruleika-
tengslum, ranghugmyndir og rugl-
ingslega heðgun og tal. Með réttri
meðferð hverfa þessi einkenni hjá
þeim að mestu eða öllu leyti og
þeir verða fullkomlega eðlilegir á
ný. Hjá geðklofasjúklingum má
hins vegar oftast sjá eftirstöðvar
af þessum einkennum sem skerða
starfshæfni þeirra og setja á þá
mörk sín til lengri tíma.
Ölæði er ein tegund sturlunar.
Áfengi hefur deyfandi áhrif á mið-
taugakerfið og getur valdið stjórn-
leysi í hegðun. Jóhannes Berg-
sveinsson segir í grein sinni um
ölæði í Geðvernd: „Hegðun ein-
staklingsins verður hömluminni,
fljótfærnislegri og frumstæðari.
Hugsunin verður óskýrari og það
dregur úr skerpu skynjunarinnar
en það getur síðan leitt til skyn-
truflana, mistúlkana og hugsana-
truflana hjá mikið drukknum
mönnum. Allt hefur þetta svo áhrif
á og mótar hegðun þeirra með af-
leiðingum sem stundum geta orðið
hroðalegar." Mjög er misjafnt hve
einstaklingar þurfa að neyta mikils
áfengis til að verða ölóðir og þar
með sturlaðir. Sumir umhverfast
eftir aðeins lítið magn. „Þannig
getur annars dagfarsprúður, hæg-
látur og feiminn maður eftir einn
veikan áfengan drykk orðið uppi-
vöðslusamur og árásargjarn," seg-
ir Jóhannes í grein sinni. Hann
nefnir dæmi um ölæði úr íslensk-
um bókmenntum en þar eru minn-
isstæðir menn eins og Egill Skalla-
grímsson og Magnús í
Bræðratungu.
í elliglöpum koma stundum
fram einkenni sturlunar. Mið-
taugakerfið er hætt að starfa eðli-
lega vegna hrörnunar og
sjúklingurinn missir stjórn á hugs-
un og hegðun sem stundum verður
óráðskennd. Hið sama á sér einnig
stað við líkamleg veikindi, t.d. þeg-
ar fólk fær óráð við háan sótthita.
Þar er þó um mjög tímabundið
ástand að ræða sem á sér skýrar
orsakir.
Eins og fram hefur komið er
sturlun geðrænt ástand sem er
fylgifiskur margra sjúkdóma, bæði
líkamlegra og geðrænna. Sturlun
er geðveikisástand, stundum
langvinnt eins og í geðklofa en
einnig tímabundið á meðan verstu
einkenni sjúkdómsins eru að
gangayfir.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sál-
fræðinginn um það sem þeim liggur á
hjarta. Tekið er móti spurningum á virkum
dögum milliklukkan 10 og 17 í sfma 569110
og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok,
Fax: 5691222. Einniggeta lesendur sent
fyrirspumir sfnnr með tölvupósti á netfang
Gylfn Ásmundssonar: gylfias(S)li.is.