Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 74
MORGUNBLAÐIÐ
74 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
FÓLK í FRÉTTUM
Setning Jazzhátíðar Reykjavíkur
> Verðug
tíu ára
afmælis-
hátíð
JAZZHÁTÍÐ Reykjavíkur verður
sett í tfunda sinn í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavfkur f dag kl. 16 og
það er borgarstjórinn Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir sem setur hátíð-
ina. Aðgangur er ókeypis.
Níu daga djassveisla
Djasslistamenn beggja vegna
Atlantshafsins munu sækja ís-
lenska djassgeggjara heim auk
þess sem fjölmargir íslenskir
djassleikarar munu leika einir eða
með útlendingunum. Eftir níu
daga veislu lýkur hátíðinni síðan
með stórtónleikum Dave Holland í
Islensku óperunni.
Við setningarathöfnina grípa
góðir menn í hljóðfærin sín. Fyrst
ber að nefna hina spennandi Ut-
íendingahersveit sem lék í fyrsta
og eina skiptið á Jazzhátíð 1992,
en tónleikar þeirra í ár verða á
sunnudagskvöld á Broadway. Eins
og nafnið gefur til kynna eru þeir
félaganir búsettir vfða um veröld.
Árni Egilsson bassaleikari og Jón
Páll Bjamason gítarleikari eru
búsettir í Los Angeles, Þórarinn
Ólafsson pfanisti býr og starfar í
London, Pétur Östlund trommari í
Stokkhólmi og Árni Scheving
víbrafónleikri í Reykjavík.
Kvartett Tómasar R. Einars-
sonar leikur nokkur tónverk Tóm-
asar ásamt danska ljóðræna
trompetleikaranum Jens Winther
sem bæði hefur starfað áður með
Tómasi og líka Mezzoforte. Tón-
leikar þeirra verða síðar um
kvöldið á Kaffí Reykajvík.
Síðast en ekki síst eru það full-
trúar hinnar nýju kynslóðar djass-
leikara sem taka lagið. Það er
verðlaunatríóið FLIS sem keppir
fyrir íslands hönd í Norrænu
ungliðakeppninni sem fer fram á
hátfðinni. Trfóið skipa Davíð Þór
Jónsson pfanóleikari, Helgi Svavar
Helgason trommuleikari og og
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
Verðlaunatríóið Flfs keppir fyrir Islands hönd
í Norrænu djassungliðakeppninni.
Hinn danski Jens Winther leikur
ásamt Kvartetti Tómasar R. á
setningarhátfðinni.
bassaleikari.
„Mér líst alveg stórvel á þetta
allt saman og ég held að þetta
verði mjög skemmtileg afmælis-
hátíð og verðugur tíu ára póstur í
sögu hátíðanna," segir Friðrik
Theodórsson, framkvæmdastjóri
Jazzhátfðar. „Einkum og sér í lagi
er það ákveðinn tónlistarviðburð-
ur í fslenskum djassi að fá Út-
lendingahersveitina hingað, fyrir
utan það að fá toppdjasssveitina f
dag, Dave Holland, sem lokaatriði.
Norrænt og ungt fólk
Mér fínnst þema hátíðarinnar
vera ungt fólk með norrænu ívafi.
Það kemur mikið af norrænum
listamönnum og hápunkturinn í
því er að frá fímm Norðurlöndum
koma útvaldir ungliðar í djassi til
að keppa um það hver sé besta
ungliðasveitin á Norðurlöndum.
Laugardagskvöldið 9. septem-
ber leikur Stórsveit Samúels Sam-
úelssonar, en hann er ungur mað-
ur sem útskrifaðist í vor úr
Tónlistarskóla FIH og hélt þá
glæsilega útskriftartónleika með
þessari hljómsveit. Þar á eftir
koma ungliðarnir allir f, jam-
session" og þar á eftir leikur
Funkmaster 2000 fyrir dansi.
Þannig má segja að þetta
laugardagskvöld verði Jazzhátfð
unga fólksins," sagði Friðrik að
lokum.
, JAZZHÁTÍÐ U,
REYKJAVÍKUR 'Jl
l. ta. SBfTtMífcH «9« 'V—
Morgunblaðið/Jim ÍSmart
Þeir hafa nú farið í nokkra eltingaleiki í kringum nóturnar þessir,
Tómas R. Einarsson og Jens Winther.
Stálminni Tómasar
„ÞETTA er í sjötta skiptið sem hann
kemur hingað,“ segir Tómas R. Ein-
arsson og á þar við danska trompet-
leikarann Jens Winther sem leikur
ásamt kvartett Tómasar á Kaffi
Reykjavík í kvöld.
„Er þetta í sjötta skiptið?" spyr
Jens hissa.
„Já, þú komst hingað fyrst árið
1985,“ segir Tómas.
„Nei, ég kom ekki hingað þá,“
svarar Jens undrandi.
„Jú, jú,“ segir Tómas, viss í sinni
sök.
„Jú heyrðu, það er rétt. Þá var ég
að spila með Mezzoforte, er það
ekki? Það var að minnsta kosti áður
en við byrjuðum að spila saman,“
hugsar Jens upphátt.
„Jú, þú spilaðir aðallega með
Mezzoforte," staðfestir þá Tómas.
„Já, en hver var það aftur sem
bauð mér hingað? Nei, heyrðu, ég
kom sem sólóleikari á Jazzhátíðina
þá. Alveg rétt.“ Og þar með hafði
Jens rifjað það upp.
„Þú komst svo aftur árið 1987 til
þess að spila á plötunni Hinsegin
blús. Svo komstu hálfu ári seinna til
þess að spila á tónleikum," segir
Tómas.
„Já, það átti að vera með þessum
tenórleikara, en hann mætti ekki,“
segir Jens og er greinilega hissa á
því hvað kollegi hans er minnugur.
,Árið 1989 gerðum við saman plöt-
una Nýr tónn,“ rifjar Tómas upp
áfram ásamt vini sínum. „Og árið
1995 fórum við í tónleikaferð um
landið. Svo þetta er því sjötta heim-
sóknin þín hingað."
Auðvelt að tóna sig saman
Á tónleikunum í kvöld verða leikn-
ar nýjar tónsmíðar eftir Tómas sem
kvartett hans ætlar svo að hljóðrita
ásamt Jens meðan á dvöl hans stend-
ur. Aðrir meðlimir kvartettsins eru
þeir Eyþór Gunnarsson píanisti, Jóel
Pálsson saxófónleikari og Matthías
Hemstock trommari.
„Ég hef ekki enn heyrt lögin en ég
hef lesið nóturnar," segir Jens að-
spurður.
„Ég þekki líka fyrra efni Tómasar.
Hann segist þó vera undir nýjum
áhrifum núna frá kúbverskri tónlist.
Við djassaramir eigum svo auðvelt
með að tóna okkur saman, sem er
helsti kostur þess að vera djassari.
Ef við gætum það ekki værum við
ekki djassarar."
Það er auðséð að norrænu djassar-
amir bera mikla virðingu fyrir hvor
öðram og báðir hafa þeir líklegast
fallega hluti að segja um hvor annan.
„Eg sagði það við Jens þegar ég
hringdi í hann í vor út af þessum tón-
leikum og plötuupptöku að hann
væri eini núlifandi trompetleikarinn
sem ég kynni virkilega að meta.
Fyrst Chet Baker gaf upp öndina
fyrir ellefu áram yrði ég að stóla á
Jens Winther. Því yrði hann að gæta
heilsu sinnar. Hann er nú hingað
kominn til þess að vinna nýja sigra
með mér,“ segir Tómas og Jens
þakkar honum kærlega fyrir hrósið.
Fyrir þá sem vilja fá smáforskot á
sælu kvöldsins mun Jens Winther
spila ásamt kvartettinum við setn-
ingu Jazzhátíðarinnar í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 16 í dag.
Tómas gaf út nú á dögunum
geisladisk með framsamdri tónlist
við Ijóðaflutning Einars Más
Guðmundssonar, en það verk fram-
fluttu þeir á Jazzhátíðinni í fyrra.
Lúðrasveit í nýja átt á Kaffi Reykjavík
Við lofum mik-
illi skemmtun
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sammi, Kjartan, Helgi Svavar, Eyþór og Snorri voru smá leiðir yfir því að Leifur komst ekki á æfíngu.
„ÉG ER hljómsveitarstjórinn,"
segir Helgi Svavar Helgason,
trommuleikari í hljómsveitinni
Dram & Brass sem er með tónleika
á efri hæð Kaffi Reykjavíkur í kvöld
td. 22. Með Helga Svavari era í
sveitinni þrír básúnuleikarar að
nafni Samúel Jón Samúelsson, Ey-
þór Kolbeins og Leifur Jónsson, og
tveir trompetleikarar, þeir Kjartan
Hákonarson og Snorri Sigurðarson.
- En af hverju þessu furðulega
hljóðfæraskipan ?
„Furðulega? Hefurðu aldrei farið
niður í bæ á 17. júní? Þetta er bara
lúðrahljómsveit," segir Sammi bás-
úna.
„Já, lúðrasveit í nýja átt,“ tekur
hljómsveitarstjórinn undir með
þisúnuþeytaranum. „Ég fékk þessa
'fl'ugu í höfuðið fyrir um tveimur ár-
um, og allt gerðist mjög hratt, allt í
einu voram við orðnir fimm í sveit-
inni og mættir upp á svið í Laugar-
dalshöllinni að hita upp fyrir Sigur-
rós sem hitaði upp fyrir No
Smoking Band. Við sömdum pró-
grammið og æfðum það á einum sól-
*ajrhring,“ segir Helgi Svavar og það
er ekki laust við að honum hlýni um
hjartaræturnar þegar hann rifjar
upp þessi fyrstu skref sveitarinnar.
„Og nú er Sigurrós að hita upp
fyrir Radiohead og það er allt okk-
ur að þakka,“ bætir Samúel kump-
ánlega við.
- Tónleikagestir mega þá búast
viðsígildum lúðrasveitalögum?
„Nei, alls ekki. Þetta verður mjög
óvænt prógramm, “ segir Helgi
með þungri áherslu. „Við leikum
jafnt þjóðlög sem barnalög, eða
djass-standarda, teiknimynda-,
kvikmyndalög, lúðrasveitamarsa,
lög eftir okkur sjálfa og alls konar
slagara."
„Lög sem hafa fylgt okkur í
gegnum tíðina," bætir Samúel við
og glottir. „Höfum verið að þykjast
æfa voða mikið, en höfum aðallega
verið að borða pizzur.“
- En hvernig verður takturinn?
Verður hægt að dansa? Ég meina
drum & brass...
„Já, það era nokkur dram & bass
lög. Það var upphaflega pælingin að
nota brasshljóðfæri og trommur til
að spila þá tónlist, en við höfum eig-
inlega farið fram úr okkur í nýjum
hugmyndum, það er svo mikið hægt
að gera með þessum hljóðfæram,“
segir Helgi Svavar.
„Það er svona frjáls spuni ríkj-
andi í þessu hjá okkur,“ bætir bás-
únuleikarinn Sammi við.
- Er það afþví að þið borðið bara
pizzur og nennið ekki að æfa?
„Nei, nei, nei, við eram að æfa
það núna. Við ætluðum alltaf að
hafa þetta mjög frjálst. Allt opið,“
segir Sammi.
„Við erum með grunnhugmynd
að því hvaða þema við höfum í
hvaða lagi. Hvort við eram að spila
undir teiknimynd eða í teknó-par-
týi, og svo er frjáls spuni út frá því
og þetta snýst mest um hann,“ út-
skýrir hljómsveitarstjórinn skil-
merkilega.
- Eitthvað að lokum?
Sammi: Við viljum hvetja alla til
að mæta með opinn huga.
Helgi: Við lofum mikilli skemmt-
un fyrir alla.
Sammi: Við lofum engu!