Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 31
LISTIR
Ljósmynd eftir Barböru Niggl Radloff.
Ljósmyndasýning Barb-
öru Niggl í Grófarhúsi
í GRÓFARHÚSINU, Tryggvagötu
15, stendur yfir sýning á ljósmynd-
um Barböru Niggl Radloff,
„Portr ettlj ósmyndir 1958-1962
Á sýningunni gefur að lfta
mannamyndir af ýmsum þekktum
rithöfundum, myndlistarmönnum
og heimspekingum m.a. Ásgeir
Jorn, Giinter Grass, Truman Cap-
ote, Heinrich Böll, Evelyn Waugh
og Otto Dix.
Barbara Niggl Radloff hafði ný-
lokið námi í blaðaljósmyndun í
Miinchen þegar stærstu dagblöðin í
Þýskalandi hófu að birta Ijósmyndir
hennar í lok sjötta áratugarins.
Barbara hefur haldið fjölda sýninga
víða um heim og hlotið góða dóma.
Hún býr nú og starfar í Miinchen.
Það er Goethe-Zentrum og Ljós-
myndasafn Reykjavíkur sem standa
að sýningunni. Hún er opin frá kl.
10-16, virka daga, og lýkur 17. sept-
ember.
Listaháskólinn settur öðru sinni
Ný leiklistardeild
og breytingar í
myndlist og hönnun
LEIKLISTARDEILD tekur nú
til starfa við Listaháskóla ís-
lands og breytingar verða á
námstilhögun í myndlistardeild
og á hönnunarsviði, sem eru und-
anfari stofnunar sjálfstæðrar
hönnunardeildar innan skólans.
Listaháskólinn var settur öðru
sinni í gær og kynnti þá rektor
skólans, Hjálmar H. Ragnarsson,
þessar breytingar í starfi skól-
ans.
A myndlistarsviðinu verður
horfið frá því að nemendur flokki
sig í afmarkaðar skorir eða
brautir eftir því í hvaða miðlum
þeir útfæra hugmyndir sínar og
þess í stað lögð áherzla á að út-
færslan ráðist af sjálfu inntakinu
eða hugmyndunum sem búa að
baki hverju sinni. Verkstæði
skólans í Laugarnesi hafa verið
betrumbætt með auknum tækja-
kosti og sérstakir verkstæðisfor-
menn settir yfir þau til að kenna
nemendum handtök og aðferðir
og hafa yfirumsjón með vinnu
þeirra þar. Þetta eru verkstæði í
ljósmyndun, sem Leifur Þor-
steinsson stýrir, prentverkstæði
- Ríkharður Valtingojer, tré- og
járnsmíðaverkstæði - Daníel Þ.
Magnússon, og mynd og hljóð-
vinnsluver - Haraldur Karlsson.
Þá stjórnar Helga Kristinsdóttir
tölvuverum á hönnunarsviði.
Hönnunarsviðið á fyrsta ári
skiptist nú niður í þrjár brautir,
þ.e. grafíska hönnun, textíl og
hönnun nytjahluta, en grafísk
hönnun deilist síðan niður í sjá-
miðla og prentmiðla. Nú verður
sú breyting á hönnunarsviðinu að
kennsla á fyrsta ári verður frek-
ar en áður sveigð að markmiðum
markaðssamfélagsins, þ.e. að í
stað þess að þungamiðjan verði á
handverk og listiðnað verður
áherzlan lögð á kennslu í hönnun
frumgerðar, sem ætluð er til
fjöldaframleiðslu á stærri mörk-
uðum.
Prófessorar í myndlistardeild
eru þessir: Anna Líndal, Einar
Garibaldi Eiríksson, Ingólfur
Örn Ai'narson og Tumi Magnús-
son. Gestaprófessor í myndlist er
Ólafur Sveinn Gíslason, mynd-
listarmaður frá Hamborg, og
Gunnar Harðarson er
gestaprófessor á sviði fræði-
greina. Á hönnunarsviðinu eru
umsjónarkennarar Guðmundur
Oddur Magnússon, Guðrún
Gunnarsdóttir, Ólöf Erla Bjarna-
dóttir og Katrín Pétursdóttir.
I ræðu rektors kom fram, að
ekki verða gerðar róttækar
breytingar á leiklistarnáminu að
svo stöddu og verður Nemenda-
leikhúsið rekið með hefðbundnu
sniði. Ragnheiður Skúladóttir,
forseti leiklistardeildar, kom m.a.
inn á það í ávarpi sínu, að rann-
sóknir á sviði leiklistar ættu að
fara fram innan veggja skólans
og þar kæmi, að við deildina yrði
stofnuð fræðaskor og boðið upp á
undirbúningsnám í leikstjórn auk
þess sem
eitt af hlutverkum skólans
væri að hlúa að og búa til vett-
vang fyrir leikritahöfunda fram-
tíðarinnar.
Átta kennarar hafa verið fast-
ráðnir í leiklistardeild og þar af
tveir sem umsjónarkennarar sér-
gi'eina; Hafdís Árnadóttir og
Hilde Helgason.
Opið iaugardag
kl. 13.00 til 17.00
Fiat Punto Sporting
Álfelgur, spoilerar, 6 gírar, 100 watta
bassakeila, ABS og 4 loftpúðar.
Fiat Punto ELX ödyra
Hlaut hœstu elnkunn, 4 stjörnur
í árekstraprófun Euro-NCAR
Fiat Multipla SX
6 sœti, 6 hnakkapúðar, 6 þriggja
punkta belti, þarftu að vita meira.
• W
Istraktor