Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 59
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 59 MINNINGAR INGIBJORG EFEMIA JÓNSDÓTTIR tlngibjörg- Efemía Jónsdóttir fædd- ist í Brekku, Seylu- hreppi, Skagafjarð- arsýslu. 16. maí 1904. Hún lést á Dvalar- heimili aldraðra á Sauðárkróki 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Jón Benedikts- son (1872-1924) og Sigurlaug Brynjólfs- dóttir (1870-1966). Systur Ingibjargar voru Una, f. 1898, d. 1996; Bima, f. 1905 og Kristín, f. 1913. Þá áttu þau Jón og Sigurlaug dóttur, Ingibjörgu, sem dó bam að aldri. Eiginmaður Ingibjargar var Sigurður Sigurjónsson frá Geld- ingaholti (1900-1983). Þau áttu sjö börn og em barnabörn þeirra 25. 1) Guðrún, f. 14. febrúar 1934. Eig- inmaður hennar er Guðmundur Magnússon og eiga þau sex börn. 2) Erla Guðbjörg, f. 3. febrúar 1935. Eiginmaður hennar er Har- Mig langar með nokkrum orðum að minnast ömmu minnar Ingibjarg- ar Jónsdóttur á Marbæli. Hún ólst upp á Grófargili í Seyluhreppi og bjó síðar ásamt afa mínum, Sigurði Sig- urjónssyni frá Geldingarholti, fyrst í Holtskoti í fáein ár en eftir það á Marbæli. Síðustu árin bjó hún á Dval- arheimili aldraðra á Sauðárkróki. Hún lifði tímana tvenna og þegar hún var einhvem tímann spurð að því hvað henni hefði þótt merkilegasta breytingin þá nefndi hún án umhugs- unar rafmagnið. Það var bæði Ijósið sem kom í staðinn fyrir myrkrið og rafmagnstækin sem léttu hið daglega amstur. Amma mín hafði ákveðnar lífs- skoðanir. Hún sagðist hafa sína barnatrú og það yrði að hafa það þó það væri ekki alveg inni á línu prest- anna, þó hún bæri virðingu fyrir þeim og kirkjunni. Hún var sannfærður spíritisti og hafði mjög ákveðna vissu fyrir því að dauðinn væri flutningur yfir á annað tilverustig og kveið hon- um ekki. Hún hafði einnig ríka sam- kennd með þeim sem minna máttu sín og man ég að hún sagði sögur af því hvernig einstaka „betri“ bændur fyrr á öldinni fóru með leiguliða sína og lék enginn vafi á því hvorum meg- in hennar samúð lá. Gestrisni var henni í blóð borin og var ævinlega borið á borð ef gesti bar að garði. Eins var það eftir að hún fluttist á Dvalarheimilið á Sauðár- króki að það var henni mikið í mun að geta boðið gestum sínum eitthvað og átti ævinlega eitthvert góðgæti í skápnum sínum sem gladdi litla munna. En mikilvægasta í augum ömmu minnar var fjölskyldan, eða „fólkið" eins og hún kallaði það. Hún spurði ævinlega þegar ég talaði við hana hvort ég hefði hitt eitthvað af „fólk- inu“ og meinti þá ættingjana. Ef svo hafði ekki verið átti hún til að veita netta ofanígjöf fyrir það. Henni var fjölskyldan mjög mikilvæg og lagði áherslu á að fjölskyldan, böm hennar og barnabörn héldu sambandi sín á milli. Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. aldur Sigfús Magn- ússon og eiga þau þijú böm. 3) Jón Ein- ar, f. 16. desember 1937. Eiginkona hans var Katrín Jó- hannesdóttir og eignuðust þau tvær dætur. Hún lést 1981. Onnur sambýliskona Jóns var Kristín Jónsdóttir. Hún lést 1996. 4) Sigurlína, f. 20. ágúst 1940. Eig- inmaður hennar var Guðmundur Rósin- karsson. Hann lést 1989. Þau eignuðust þrjú böm. 5) Árni Theodór, f. 27. júlí 1942, d. 12. október 1942. 6) Ámi Sigutjón, f. 14. apríl 1944. Eiginkona hans er Ragnheiður Guðmundsdóttir og eiga þau fjóra syni. 7) Sigrún, f. 24. júní 1947. Eiginmaður hennar er Hjörleifur Guðmundsson og eiga þau einn son. títför Ingibjargar fer fram frá Glaumbæjarkirkju í dag og hefst afhöfnin klukkan 14. Þegar hún Ingibjörg amma mín lést hinn 24. ágúst var hún komin á 97. aldursár. Líkaminn vai' farinn að bila þrátt fyrir að andinn hefði haldið sér að mestu. Um leið og ég kveð hana vil ég þakka henni fyrir allt. Sigurður Árnason. í dag kveðjum við elskulegu ömmu okkar og langar okkur til að minnast hennar í örfáum orðum. Það var ætíð mikið ævintýri og til- hlökkun að fara norður í sveitina til afa og ömmu á hverju sumri. Þegar sást í bæinn þeirra, Marbæli, vom það hamingjusamir krakkar sem sátu í aftursætinu hjá mömmu og pabba. Þau vissu að framundan var tími sem var gerólíkur raunveruleikanum í Kópavogi. Lífið í sveitinni snerist um aðra hluti en við áttum að venjast og verkefnin vom næg. Það þurfti að reka og sækja beljurnar, fara í fjósið, raka túnin og svo auðvitað að leika sér í heyinu. I minningunni vomm við hörkudugleg og ómissandi vinnu- ki-aftur en auðvitað vomm við bara krakkar sem reynt vai’ að hafa ofan íyrir með alls kyns verkefnum. Þegar litið er til baka er það aðdáunarvert hvað amma og afi vom viljug að leyfa okkur að dvelja hjá sér og emm við þeim þakklát fyrir það. Það var gam- an að sitja í eldhúsinu hjá ömmu og hlusta á hana segja frá bæði líðandi stundu sem og liðnum atburðum. Amma hafði svo ríka írásagnagáfu og hafði gaman af því að hafa fólk í kringum sig. Þegar amma ákvað að flytja á dvalarheimilið á Sauðárkróki var það ekki síst vegna þess félagslífs sem þar var. Hún hafði einstakt lag á bömum og kunni mikið af vísum og bamaþulum. Hún var mjög góð amma og jafnframt ákveðin en ávallt stutt í glettnina og hláturinn. Það var ömmu eðlilega mjög erfitt þegar afi dó enda höfðu þau átt meira en hálfa öld saman en hún var viss í þeirri trú að hann biði hennar en væri jafnframt alltaf hjá henni. Það er okkur því huggun að vita að núna hafi amma losnað frá þeim þjáningum sem hrjáðu hana undir það síðasta og að amma og afi séu loksins aftur sam- an. Það var falleg sýn sem lang- ömmuböm hennar sáu í himninum yfir Skagafirði þegar þau fóm að kveðja hana hinstu kveðju. Það var sem opnast hefði himinninn og þar væri hús, hvítir hestar og stigi niður. Þessi sýn fullvissaði þau um að nú væri amma komin upp til afa. Ingibjörg Rósa, Sigur- borg S. og Auðun Már. + Útför ástkaerrar móður minnar, fósturmóður, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, MÁLFRÍÐAR ERLINGSDÓTTUR, Holtsgötu 27, Njarðvík, fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Hátúni 2, Reykjavík, mánudaginn 4. september kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast hennar, láti Krabbameinsfélag (slands njóta þess. Þórey Ragnarsdóttir, Svavar Borgarsson, Sólrún Samuelsson, Stefan Samuelsson, Hlöðver Kristinsson, Pálína Guðnadóttir, Guðrún Erlingsdóttir, Gunnar Erlingsson, Herdís Erlingsdóttir, Hlífar Erlingsson, Björg Erlingsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður míns og frænda okkar, BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Sigurdís Guðmundsdóttir, Kristjana Ragnarsdóttir, Guðmundur Ágúst Sveinsson. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar, GUÐJÓNS MAGNÚSSONAR frá Hrútsholti. Fyrir hönd barna okkar og fjölskyldna þeirra, Erla Hulda Valdimarsdóttir. + Okkar ástkæri, VIKTOR MAGNÚSSON, hjarta- og lungnavélasérfræðingur, Skólavörðustíg 20, Reykjavík, sem lést af slysförum þriðjudaginn 29. ágúst sl., veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 6. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hallgrímskirkju. Ida Anna Karlsdóttir, Hulda Guðrún Þórólfsdóttir, Sonja Viktorsdóttir, Annalísa Magnúsdóttir, Kristján Gr. Tryggvason, Gunnar Már Kristjánsson, Hermann Kristjánsson, Guðborg A. Guðjónsdóttir, Signý 0. Kristjánsdóttir, Þórólfur Jónsson, Guðný Laxdal og aðrir aðstandendur. + Systir okkar, INGIBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR, Stekkum 9, Patreksfirði, lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar fimmtudaginn 31. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Halldórsdóttir, Þórður Halldórsson. + Ástkær sambýliskona og móðir mín, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSTA ÁSMUNDSDÓTTIR frá Bíldudal, sem andaðist þriðjudaginn 29. ágúst á Hrafn- istu, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnar- fjarðarkirkju mánudaginn 4. september kl. 13.30 Kristján Símonarson, Bragi Stefánsson, Svala Karlsdóttir, og börn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS JÓNS ÓLAFSSONAR, Hávallagötu 17, Reykjavík. Stefana Karlsdóttir, Ásmundur Karl Ólafsson, Guðbjörg Eggertsdóttir, María Ásmundsdóttir, Atli Grímur Ásmundsson, Hjördís Heiða Ásmundsdóttir, Kjartan Skarphéðinsson, Ólafur Kristinn Ólafsson, Ásta Unnur Jónsdóttir, Stefana Kristín Ólafsdóttir, Sunneva Lind Ólafsdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Einar Eyland, Julía Beatrice Harrison, Einar Ólafur Eyland. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, HJÁLMARS KRISTIANSEN, Álftarima 3, Selfossi. Guðrún Steindórsdóttir, Gunnar Svanur Hjálmarsson, Guðrún Katla Kristjánsdóttir, Margrét Anna Hjálmarsdóttir, Jón Rúnar Gíslason, Dóra Kristín Hjálmarsdóttir, Magnús Hafsteinsson og barnabörn. * •1 | V;
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.