Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Boðað til mótmælafundar vegna komu Li Peng
Mörg félög skora á
ráðamenn að snið-
ganga heimsóknina
MÖRG félagasamtök efna til sam-
eiginlegs útifundar á Austurvelli á
morgun, sunnudag, til að mótmæla
opinberri heimsókn Li Peng, fyrrv.
forsætisráðherra Kína, til Islands.
A fundinum verður vakin athygli á
ástandi mannréttinda í Kína og
fórnarlamba blóðbaðsins á Torgi
hins himneska friðar verður
minnst.
Eftirtalin samtök efna til úti-
fundarins: Heimdallur, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, ís-
landsdeild Amnesty Intemational,
Samband ungra framsóknarmanna,
Samband ungra sjálfstæðismanna,
Ungir jafnaðarmenn, Ungt fólk í
Vinstri hreyfingunni - grænt fram-
boð og Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta. Fundurinn hefst kl.
14.30.
I sameiginlegri fréttatilkynningu
fundarboðenda segir: „í júní árið
1989 börðu kínversk stjórnvöld
andóf námsmanna og lýðræðissinna
niður í blóðbaði á Torgi hins himn-
eska friðar. Fjöldi fólks lét lífið og
þúsundir manna voru fangelsaðar
fyrir andbyltingaráróður. Msundir
manna eru í haldi í Kína í dag fyrir
að opinbera skoðanir sínar, hvetja
til umbóta eða stofna stjórnmála-
samtök."
Samband ungra sjálfstæðis-
manna skorar í fréttatilkynningu á
íslenska ráðamenn að hunsa vænt-
anlega heimsókn Li Peng til Is-
lands og taka þannig undir hörð
mótmæli ungra sjálfstæðismanna
vegna komu hans til landsins.
„Fáir stjórnmálamenn samtím-
ans skilja eftir sig jafn blóði drifna
slóð og Li Peng, en hann og sú
ógnarstjórn sem hann er í forsvari
fyrir hefur síðustu áratugi haldið
þjóð sinni í helgreipum eymdar og
örbirgðar og neitað kalli kínversku
þjóðarinnar og hins vestræna
heims um lýðræðislega stjórnar-
hætti í Kína,“ segir m.a. í fréttatil-
kynningu SUS.
„Engin þjóð sem staðið hefur í
framvarðasveit lýðræðisríkja heims
á að taka opnum örmum á móti
slíkum sem Li Peng er. Með slíkum
móttökum væru íslenskir ráðamenn
að gefa til kynna að þeir umbæru
grimmileg mannréttindabrot ógn-
arstjórnar kommúnista í Kína og
það ofbeldi sem Li Peng og stjórn
hans hefur beitt þegna sína og ber
ábyrgð á,“ segir þar ennfremur.
Breytingar í upplýsinga-
deild Flugleiða
GUÐJÓN Amgrímsson hefur verið
ráðinn upplýsingafulltrúi Flugleiða
frá og með 1. september. Hann mun
stýra daglegu
starfi upplýsinga-
deddar félagsins.
Deildin verður
eftir sem áður á
stefnumótunar-
og stjómunar-
sviði fyrirtækis-
ins undir stjórn
Einars Sigurðs-
sonar fram-
Arngrímsson kv^mdastjóra.
Emar helur venð
upplýsingafulltrúi Flugleiða í 12 ár
og nú um tveggja og hálfs árs skeið
hefur hann gegnt því hlutverki ásamt
framkvæmdastjórastarfi. Þessar
breytingar á stefnumótunar- og
stjórnunarsviði Flugleiða tengjast
auknu hlutverki þess í stefnumótun
og áætlanagerð Flugleiðasamstæð-
unnar og mótun hennar.
Guðjón Arngrímsson hefur starfað
við fréttamennsku ogkynningarstörf
um árabil. Hann var m.a. fréttamað-
ur á Morgunblaðinu og Stöð 2 og var
einn eigenda kynningarfyrirtækisins
Athygli. Guðjón hefur einnig fengist
við ritstörf og m.a. skrifað tvær bæk-
ur um sögu vesturfaranna, Nýja Is-
land og Annað ísland. Hann hefur
frá 1999 verið dagskrár- og upplýs-
ingastjóri Landafundanefndar.
íslandsdeild Amnesty Inter-
national hefur sent samhljóða bréf
til forseta Islands, forsætisráð-
herra, utanríkisráðherra og forseta
Alþingis, þar sem vakin er athygli
á ástandi mannréttindamála í Kína
í tengslum við heimsókn Li Peng.
„Dauðarefsingu er beitt í Kína fyr-
ir fjölmörg brot, þ. á m. þjófnað og
spillingu. Samkvæmt heimildum
Amnesty International voru árið
1999 felldir 1.720 dauðadómar í
Kína og 1.077 aftökur fóru fram.
Þessar tölur eru þó samkvæmt
áreiðanlegum heimildum mun lægri
en raunverulegur fjöldi dauðadóma
og aftakna, þar sem kínversk yfir-
völd meðhöndla upplýsingar um
dauðarefsinguna sem „ríkisleyndar-
mál“. Islandsdeild Amnesty Int-
ernational vill vekja sérstaka at-
hygli yðar á yfirvofandi aftöku
kínverska þingmannsins Cheng
Kejie sem dæmdur var til dauða
31. júlí sl. vegna spillingar,“ segir
m.a. í bréfinu.
„Hefur notað ríkisvaldið til að
myrða og pynta saklaust fólk“
í fréttatilkynningu frá Heimdalli,
félagi ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, er skorað á þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að sniðganga
opinberar móttökur til heiðurs
fyrrverandi forsætisráðherra Kína,
Li Peng.
„Heimdallur hefur unnið að því
síðustu daga að sameina félög ungs
fólks í öllum stjórnmálaflokkum,
Islandsdeild Amnesty International
og samtök stúdenta við Háskóla ís-
lands í mótmælum fyrir framan Al-
þingi á sunnudaginn næstkomandi.
Það er vonandi að þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins verði í okkar fé-
lagsskap í stað manns sem hefur
notað ríkisvaldið til að myrða og
pynta saklaust fólk. Frelsi.is mun
fylgjast með hveijir taka þessari
áskorun okkar,“ segir í fréttatil-
kynningu Heimdallar.
Einnig hefur Stúdentaráð Há-
skóla Islands samþykkt ályktun
vegna heimsóknar Li Peng þar sem
atburðirnir á Torgi hins himnska
friðar eru harðlega gagnrýndir.
Stúdentaráð segir HI fá minni fram-
lög á hvern nemanda
Framlög ríkissjóðs á hvern nemanda
í háskólum á íslandi
þús. kr. ---------------------------------
Háskóli Kennara- Háskólinn Tækni- Háskólinn Lista- Viðskipta-
íslands háskóli áAkureyri skólinn ÍReykjavík háskólinn háskólinn
_____________Islanris_____________________________________________________á Bifröst
Fjársvelti gerir
samkeppnis-
stöðu HI erfíða
STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands
gagnrýnir innbyrðis skiptingu rík-
isútgjalda til háskóla og segir Há-
skóla Islands búa við fjársvelti.
Samkeppnisstaða skólans gagn-
vart einkareknum háskólum, sem
ofan á ríkisframlög innheimti
skólagjöld, sé af þeim sökum afar
erfið. Háskóli íslands geti ekki
staðið undir hlutverki sínu sem
þjóðskóli og alþjóðlegur rannsókn-
arháskóli nema með auknum ríkis-
framlögum. Stúdentaráð skorar á
menntamálaráðherra og stjórnvöld
að veita auknu fé til Háskóla ís-
lands í næstu fjárlögum.
í ályktun sem Stúdentaráð sam-
þykkti á fundi sínum í fyrradag
segir að HÍ hafi fengið næst-
minnst framlag af þeim átta skól-
um á landinu sem starfa á háskóla-
stigi miðað við fjárlög fyrir árið
2000. Engu að síður hafi HÍ rann-
sóknarskyldu umfram marga hina
skólana. Stúdentaráð segir HÍ
hafa fengið u.þ.b. 7% minna á
hvern nemanda en Háskólinn í
Reykjavík. Þegar dregin er frá sú
fjárhæð sem Háskóli Islands þurfi
vegna rannsóknarskyldu verði
munurinn enn þá meiri enda hafi
Háskólinn í Reykjavík ekki rann-
sóknarskyldu.
Eiríkur Jónsson, formaður Stúd-
entaráðs, segir tölurnar miðaðar
við innritaða nemendur í HI og
framlög ríkisins til skólans í fjár-
lögum árið 2000 enda gefi það
Hlutfali framlaga til annarra
háskóla miðað yið framlög
% til Háskóla íslands
70
60
50
40
30
20
10
0
gleggsta mynd af raunverulegum
fjárframlögum til HÍ. Samanburð-
ur sýni að HÍ fái minni fjárfram-
lög á hvern nemanda en aðrir há-
skólar, þar á meðal einkareknir
háskólar sem innheimti skólagjöld.
„Samkeppnisstaða HÍ er gríðar-
lega erfið þegar samið er um jöfn
fjárframlög frá ríkinu en síðan
innheimti aðrir skólar að auki
skólagjöld," segir Eiríkur. Hann
telur eðlilegt að HÍ fái hærri fjár-
framlög frá ríkinu en þeir háskólar
sem innheimta skólagjöld.
Við bætist að fjárframlög til há-
skólamenntunar séu þau lægstu á
meðal OECD-ríkja og langt undir
meðaltali. Því sé ekki verið að
skipta stórri köku á milli skólanna.
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, um mjdlkursamlagsmálið
Hagræðing er nauð-
synleg í norðlensk-
um mjólkuriðnaði
EIRÍKUR S. Jóhannsson kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Eyfirðinga,
KEA, segir nauðsynlegt að hag-
ræða í norðlenskum mjólkuriðnaði
og að enginn stjórnandi segi upp
starfsfólki nema að vel athuguðu
máli og að fyrir því séu gildar
ástæður. Skipulagsbreytingar sem
boðaðar hafa verið hjá mjólkursam-
lögum MSKÞ og MSKEA hafa að
undanförnu verið til umræðu, en
allir mjólkurfræðingar sem starfa
hjá MSKEA sögðu í vikunni upp
störfum vegna þessara breytinga.
Eiríkur sagði þær breytingar á
rekstri mjólkursamlaganna sem
kynntar hafa verið að undanförnu
tengjast fyrirhugaðri stofnun á öfl-
ugu norðlensku félagi í mjólkur-
vinnslu með sameiningu MSKEA,
MSKÞ og félags í eigu bænda sem
nefnist Granir. Komið hefur verið á
fót undirbúningsstjórn vegna stofn-
unar hins nýja félags og var stjóm-
inni kunnugt um þær tillögur til
hagræðingar sem lagðar voru fram.
Eiríkur sagði hins vegar ljóst að
þær aðgerðir, sem nú hafi verið
ráðist í, væru alfarið á sína ábyrgð.
Mjólkuriðnaður hefur
ekki efni á að biða
Nefnir Eiríkur að efast hafi verið
um nauðsyn á hagræðingu í mjólk-
uriðnaði og bent hafi verið á að
samlögin tvö hafi verið rekin með
hagnaði. Það segi hins vegar ekkert
um þá framtíð sem við blasi og vert
sé í því sambandi að horfa til sögu
iðnaðar á Akureyri. Fyrir fáum ár-
um fiafi um 1.000 manns starfað við
iðnfyrirtæki á Gleráreyrum, en nú
láti nærri að það sé um 100. Þar
hafi ekki verið hugað nægilega að
framtíðinni og afleiðingarnar voru
afdrifaríkar. Að sama skapi standi
mjólkuriðnaður frammi fyrir stór-
aukinni samkeppni frá útlöndum.
Jógúrt hafi verið flutt inn í stórum
stíl að undanförnu og þess sjái stað
í sölu hjá MSKÞ, eins stærsta fram-
leiðenda jógúrts hér á landi. „Það
er skelfileg tilhugsun ef örlög norð-
lensks mjólkuriðnaðar yrðu þau
sömu og iðnfyrirtækjanna á Glerár-
eyrum. Mjólkuriðnaðurinn hefur
ekki, frekar en aðrar atvinnugrein-
ar, efni á að bíða eftir því sem koma
skal. Hann þarf að vera vel búinn
undir framtíðina," segir Eiríkur
Eiríkur segir vinnu við hagræð-
ingu í mjólkuriðnaði á Akureyri og
Húsavík eiga sér lengri sögu en lát-
ið hafi verið í veðri vaka síðustu
daga. Ágúst Þorbjörnsson stjórn-
unarráðgjafi hafi haft veg og vanda
að þeirri vinnu og hafi hann langa
starfsreynslu að baki varðandi
vinnu við mjólkuriðnaðinn. Segir
Eiríkur allt tal um að með ráðningu
Ágústar sem framkvæmdastjóra
MSKEA og MSKÞ hafi á einhvern
hátt verið komið aftan að starfsfólki
með öllu óskiljanlegt. Ágúst hafi
verið ráðinn af kaupfélagsstjóra til
að leita hagræðingarleiða í mjólk-
uriðnaðinum og tímabundin ráðn-
ing hans í starf framkvæmdastjóra
hafi einfaldlega verið talin nauðsyn-
leg til að hrinda í framkvæmd þeim
aðgerðum sem grípa þurfti til.
Málflutningur kemur á óvart
Þá sagðist Eiríkur hafa á síðustu
árum átt gott samstarf við formann
Félags mjólkurfræðinga, en mál-
flutningur hans í þessu máli nú
komi sér á óvart.
Eiríkur segir gagnrýni fyrrver-
andi samlagsstjóra Mjólkursamlags
KEA,
Þórarins E. Sveinssonar, á fyrir-
hugaðar skipulagsbreytingar ekki
svara verðar. „Ummæli af þessu
tagi koma mér ekki á óvart, ég hef
heyrt þetta allt áður, en það er al-
veg á hreinu að ég karpa ekki í
fjölmiðlum við fyrrverandi starfs-
menn kaupfélagsins," sagði Eiríkur
og óskaði Þórarni velfarnaðar í
nýju starfi sem framkvæmdastjóri
Matvælaseturs Háskólans á Akur-
eyri.
„Þótt gripið hafi verið til ákveð-
inna aðgerða í hagræðingarskyni,
m.a. uppsögnum nokkurra starfs-
manna, er öllum ljóst að starfsfólk
MSKEA og MSKÞ hefur unnið frá-
bært starf á undanförnum árum og
áratugum og er vonandi að samein-
að, öflugt félag fái áfram notið
krafta sem flestra. Á því veltur í
raun framtíð norðlensks
mjólkuriðnaðar. Þær aðgerðir sem
ráðist var í hjá MSKEA og MSKÞ
eru hlutur sem hver stjórnandi þarf
að geta tekist á við. Þetta er mál
sem nauðsynlegt er að vinna áfram
innan fyrirtækisins en stóryrtar yf-
irlýsingar í fjölmiðlum bæta engu
þar við og valda öllum skaða. Eink-
um rýra þær þó atvinnuöryggi
framleiðenda og annars starfsfólks
í greininni til lengri tíma litið,“
sagði Eiríkur.