Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 71
I DAG
Arnað heilla
O A ÁRA afmæli. í gær,
O V/ föstudaginn 1. sept-
ember, varð áttræður
Eskhild Jóhannesson,
Holtsgötu 1, Sandgerði.
Hann tekur á móti ætt-
ingjum og vinum í dag,
laugardaginn 2. septem-
ber frá kl. 17-19 í Sam-
komuhúsinu í Sandgerði.
HA ÁRA afmæli. Þann
í 1/4. september nk.
verður sjötug Aðalheiður
Ólafsdóttir, Jórutúni 5,
Selfossi. Af því tilefni taka
hún og eiginmaður henn-
ar, Guðmundur Jónsson, á
móti gestum í Karlakórs-
heimilinu, Gagnheiði 40,
Selfossi, sunnudaginn 3.
september kl. 15-18.
O A ÁRA afmæli. í dag,
O U laugardaginn 2.
september, verður áttræð-
ur Þórður Sigurðsson,
Blikahólum 12, Reykja-
vik. Sambýliskona hans er
Kristín Halldóra Krist-
jánsdóttir. Þau taka á móti
vinum og vandamönnum í
Lionsheimilinu Sóltúni 20,
Reykjavík, á afmælisdag-
inn kl. 17-20.
A A ÁRA afmæli. Á
O\jmorgun, sunnudag-
inn 3. september, verður
sextug Helga Daníelsdótt-
ir, Fífumóa 5c, Reylq'a-
nesbæ. í tilefni dagsins
bjóða börnin hennar ætt-
ingjum og vinum að sam-
fagna með aímælisbaminu
í sal Karlakórs Keflavíkur
á Víkurbraut 17, Reykja-
nesbæ, í dag 2. september
frákl. 20.
17 A ÁRA afmæli. Erla
I V/Hafliðadóttir,
Brunnum 14, Patreks-
firði, verður sjötug á
sunnudaginn, 3. septem-
ber. Hún er fædd að Hval-
látrum í Rauðasands-
hreppi en bjó allan sinn
búskap á Patreksfirði þar
sem hún rekur gistihús.
Eiginmaður Erlu var
Kristján Jóhannesson, en
hann lést 1986. Erla tekur
á móti gestum með fjöl-
skyldu sinni í Félagsheim-
ilinu á Patreksfirði á af-
mælisdaginn milli kl. 17 og
21.
Mistök urðu við birtingu
tilkynningar í blaðinu í
gær og er beðist velvirð-
ingar á því.
SKAK
llmsjón llclgi Áxs
Grétarsxon
i. i
Hvitur á leik.
Alla jafnan aukast jafn-
teflislíkur þess sem hefur
lakari stöðu þegar mislitir
biskupar eru á borðinu.
Hins vegar getur slíkt virk-
að öfugt og sérstaklega þeg-
ar drottningar eru með í
spilunum því að kóngurinn
getur þá orðið auðvelt skot-
spæni. Staðan er prýðilegt
dæmi slíkt en hún kom upp á
milli stórmeistaranna
Mikhaíl Krasenkov (2702),
hvítt, og Peter Svidler
(2689) á ofurmótinu í Polan-
ica Zdroj er lauk fyrir
stuttu. 40. c7! Dxc7 og
svartur gafst upp um leið.
Próðlegt er að velta fyrir sér
hvers vegna en þegar nánar
er að gáð er lausnin frekar
einíold: 41.Del + ! Kg5 eða
41...Kh5 er svarað með
42.De6 í báðum tilfellum og
hvítur mátar.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, 2. september, eiga 50 ára hjú-
skaparafmælj hjónin Guðrún Ánna Kristjánsdóttir og
Sigmundur Óli Reykjalín Magnússon vélfræðingur. Þau
giftu sig að Möðruvöllum í Hörgárdal 1950, en séra Sig-
urður Stefánsson prófastur gaf þau saman. Þau eru að
heiman. Með þeim á myndinrii er sonurinn Þórir Ottó
sem er látinn.
LJOÐABROT
HAUSTKVOLD
Rökkvar og rennur dagur
til Ránar eins og í gær;
hann styttist, það hallar að hausti;
á hlíðinni’ er fölur blær.
Þegar hallar að hausti
og húmið er milt og rótt,
þá dreymir mig skrítna drauma,
og dreymir þá fram á nótt.
Það er ekki vorsins yndi,
sem omar og kveikir bál;
nei, það er einhver rökkurró,
sem reifast þá mjúkt um sál.
Og ekki’ er það vonaeldur,
sem allt gerir bjart og heitt;
það eru einhver hulduljóð,
sem hafa mig allan seitt.
Þei, þei! Álftir við ósinn
og engilröddum kvaka;
þær una við hag sinn eins og ég,
og er þó af litlu að taka.
Jóhann G. Sigurðsson.
STJÖRIVUSPÁ
eftir Francex Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
ákafamaður en ert með of
mörgjám í eldinum til þess
að ná tangarhaldi á for-
ystuhlutverki.
Hrútur
(21. mars -19. apríl) “f*
Nýjar upplýsingar valda þvi
að þú átt erfitt með að taka
ákvörðun. Gefðu þér góðan
tíma og þegar ákvörðun ligg-
ur fyrir lætur þú ekkert
stöðva þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tillitssemin er gulls ígildi og
þú ættir að minnast þess þeg-
ar þér finnst ekkert ganga
upp hjá þér og allt vera öðr-
um að kenna.
Tvíburar t
(21. maí - 20. júní) nrt
Nú er upplagt að framkvæma
það sem að þig hefur lengi
Iangað til. Skeyttu því engu
þó aðrir telji það barnalegan
hégóma. Þeir dauðöfunda
þig!____________________
Krabbi
(21. júní-22. júlí) *7l!fc
Með örlítilli fyrirhyggju ættir
þú að geta sveigt atburðarás-
ina þér í hag. Gættu þess þó
að missa ekki yfisýnina, því
þá missir þú allt úr böndun-
um.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu tilbúinn með áætlun
þína áður en þú lætur til skar-
ar skríða svo að viðleitni þín
beri þig ekki til öfugrar áttar.
Vertu öruggur með þig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (DlL
Mundu að sjaldan veldur einn
þá tveir deila. Vertu þvi
víðsýnn og gefðu skoðunum
annarra gaum. Ef þú gerir
það ekki, taka aðrir ekki tillit
til þín.
(23. sept. - 22. okt.) m
Hluturiir gerast hraðar í
kringum þig en þér finnst
þægilegt. Reyndu að skapa
sjálfum þér sóknarfæri og
fylgdu þeim svo fast eftir.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóv.)
Veltu hlutunum fyrir þér þvi
oft er það farsælast sem ekki
liggur strax í augum uppi.
Gefðu þér þvi góðan tíma til
að kryfja málin til mergjar.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) mO
Hláturinn lengir lífið og það
er mikil guðsgjöf að geta séð
spaugilegu hhðar tilverunn-
ar. Njóttu þess fölskvalaust,
sem lífið gefur þér.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) éíÍP
Taktu einn hlut fyrir í einu
því ef þú ert með of mörg járn
í eldinum þá nærðu ekki tök-
um á neinu. Varastu að senda
öðrum misvísandi skilaboð.
Vatnsberi
(20.jan.-18. febr.)
Það eru ýmsir möguleikar í
stöðunni en farðu þér hægt
því að flas er ekki til fagnað-
ar. Sýndu öðrum samstarfs-
vilja, ef þú vilt ná árangri.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er fyrir öllu að þú notir
hæfileika þína til góðra verka
en sóir þeim ekki í einhver
stundarfyrirbrigði sem ekk-
ert gefa af sér.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
YOGASTÖÐ VESTURBÆJAR
í HUSI SUNDLAUGAR SELTJARNARNESS
YOGA YOGA YOGA
Mánudaga og fimmtudaga kl. 17:40 og 19:00
Þriðjudaga og föstudaga kl. 17:40
ANNA BJÖRNSDÓTTIR, yogakennari
Innritun og upplýsingar í síma 561 0207
Ný sending af drögtum frá
Liðra
utniarion
Strandgötu 11, sími 565 1147
Verslunin
Prinsessan
Mjódd, sími 567 4727.
Brúðarkjólar - FRÁ 12.500 KR.
Brúðarmeyjarkjólar - frá 5.500 kr.
Drengjakjólföt og SMÓKING - FRÁ 6.500 KR.
Hárskraut og sængurgjafir.
RAHUL
PATEL
- NÝTT NÁMSKEIÐ
Vegna gífurlegrar eftirspurnar í kjölfar
einstaks námskeiðs í fyrra, mun Rahul
Patel halda nýtt námskeið um hin
heillandi heim orkuheilunar.
Upplýsingar á www.lifandi.is eða í síma 552 3210
og á Suðurlandsbraut 10, 2. hæð kl. 12.00 -18.00
Meðvitundarbreyting er upphaf allrar heilunar.
Rahul Patel hefur stórkostlegt innsæi í eðli þessara
breytinga. Kennsla hans mun hjálpa þeim sem eru
tilbúnir til að hlusta.
-Deepak Chopra. Höfundur metsölubókarinnar
Lögmálin sjö um velgengni.
Námskeiðið er styrkt af Liósifendl
I ehf.