Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 47
UMRÆÐAN
Símenntun eykur hagnað
SÍMENNTUN lækkar kostnað
og eykur gæði fi-amleiðslu og þjón-
ustu fyrirtækja. Starfsmenn sem
sækja námskeið eða fá þjálfun í
tengslum við starf sitt afkasta
meiru, gera færri mistök og eru
ánægðari í starfi. Símenntun veitir
starfmönnum hæfni, þekkingu og
skilning á starfi sínu og starfsum-
hverfi sem þeir myndu annars öðl-
ast á ómarkvissari hátt og taka
mun lengri tíma. Sjóndeildarhring-
urinn víkkar og um leið munu fyr-
irtæki geta gert meiri kröfur um
framlag starfsmanna til starfsemi
og stefnu fyrirtækis. Símenntun
nær til allra þátta starfs og starfs-
tæki í dag verða að leita að nýjum
tækifærum og örva nýsköpun til
að vera samkeppnisfær og slíkt
verður aldrei án framlags starfs-
manna. Nýsköpun gerir kröfur um
að starfsmenn geti aðlagað sig
breyttum aðstæðum, hugsun og
framleiðslu á öllum stigum fyrir-
tækisins. Markviss sí- og endur-
menntun flýtir fyrir aðlögun
starfsmanna að þeim breytingum
sem nýsköpun hefur í för með sér.
Kostnaður samskipta-
örðugleika
Starfsmenn eru í samskiptum
við fjölda aðila bæði innan fyrir-
tækis og utan þess.
Samskiptahæfni starfsmanna
hefur áhrif á andrúmsloftið á
vinnustaðnum og um leið á afköst.
Þar sem ekki er tekið á samskipta-
örðugleikum munu þau að lokum
hafa áhrif á rekstur fyrirtækisins.
Því er nauðsynlegt að einnig sé
lögð áhersla á að auka hæfni
starfsfólks í samskiptum, sam-
vinnu og að það kunni að taka á
ágreiningi og vandamálum sem
koma upp. í þýsku viðskiptatíma-
riti er því haldið fram að sam-
skiptavandamál í fyrirtækjum
kosti þýsk fyrirtæki 100 milljarða
marka á ári. Ef þetta vandamál er
af svipaðri stærðargráðu á íslandi
kostar það íslensk fyrirtæki 13
milljarða á ári.
Starfshópurinn Símenntun
og atvinnulífið
Mikilvægt er að fyrirtæki hafi
stefnu í símenntun eins og það
hefur í öðrum þáttum rekstrar.
Markviss símenntun skilar aukn-
um hagnaði. Mestur árangur næst
ef símenntun er skipulögð í sam-
ræmi við þróun fyrirtækisins. Lítil
og meðalstór fyrirtæki eða þau
fyrirtæki sem hafa ekki fræðslu-
stjóra hafa síður þekkingu innan-
húss eða tíma til að sinna þessum
málum. Það getur verið erfitt að
átta sig á hvernig eigi að standa að
árangursríkri símenntun starfs-
manna. Starfshópurinn Símenntun
og atvinnulífið sem er á vegum
Menntar (www.mennt.is) vinnur að-c,
því að vekja athygli forystumanna
lítilla og meðalstórra fyrirtækja á
mikilvægi símenntunar fyrir þróun
þeirra og samkeppnishæfni. Hann
ætlar sér að vekja athygli á því
hve mikilvægt er að auka framboð,
eftirspurn og gæði símenntunar.
Einnig vinnur hann að því að finna
leiðir svo stjórnendur eigi auðveld-
ara með að meta þörf á sí- og end-
urmenntun og hvernig þau geti
staðið að árangursríkri símenntun.
Höfundur er forsvarsmadur
starfshópsins Símenntun og atvinnu-
lífið sem er á vegum Menntar.
Rannveig
Einarsdóttir
Símenntun
Mikilvægt er að fyrir-
tæki hafí stefnu í sí-
menntim, segir Rann-
veig Einarsdóttir, eins
og það hefur í öðrum
þáttum rekstrar.
umhverfis og getur bæði verið
skipulagt nám sem og þjálfun inn-
anhúss.
Meiri afköst -
færri mistök
Afköstin aukast því starfsmað-
urinn lærir betur á þau verkfæri
sem hann hefur í starfi sínu og
þeim verkefnum sem hann á að
sinna. Með því að skilja betur
þarfir þess sem tekur við af starfs-
manni í framleiðslukeðjunni er lík-
legt að hann skili starfi sínu enn
betur en áður, þ.e. gagnkvæmur
skilningur eykst og það hefur já-
kvæð áhrif á rekstur. Ef fyrirtæki
nær að fækka mistökum eða göll-
um hefur það bein áhrif á hagnað
fyi-irtækis svo ekki sé minnst á án-
ægðari viðskiptavini og áhrif á
aukna sölu.
Tíð starfsmannaskipti
eru dýr
Staðreynd er að starfsmenn sem
hafa tækifæri til að bæta við þekk-
ingu sína og hæfni þ.e. fá að
þroskast í starfi eru mun ánægðari
en ella. Fyrirtæki sem sinna ekki
símenntun starfsmanna eiga erfið-
ara með að halda í gott starfsfólk
eða laða til sín nýtt. Tíð starfs-
mannaskipti eru fyrirtækjum dýr
því það tekur tíma þar til nýr
starfsmaður skilar fullum afköst-
um.
Nýsköpun krefst sí- og
endurmenntunar
Hæfni og kunnátta starfsmanna
verða að breytast í takt við örar
breytingar í umhverfinu. Fyrir-
\hreinsunin
gsm 897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
ALLIR A LOFT
í ORRUSTUNA UM BRET
60 ára afmæli Battle of Britain!
Viðhafnarflugsýning sem aðeins
er haldin á 10 ára fresti!
rilfíifS'IjDfílfi xt
Gufjfjíjf Pur'Zizui'Zzuii
ÞDfSÍíijfJíJ.r. iÚSI'ZUUn
Difjíjf ítHiji&íúun
Of&I'/t&z
STdfií&imúúúzzun
40-50 gamlar herflugvélar sýna listir á lofti - 24 flughæfar Spitefire - Fjögurra klukkustunda lífleg flugatriði
Duxford, stærsta flugminjasafn Evrópu - Landhernaðarsafn á Duxford - Hendon flugminjasafn RAF
Gist á nýju 4 stjörnu hóteli á besta stað í London - Flugskemmtikvöld í glæsilegum kastala í sveitinni
Fáið persónulega mynd af ykkur med Steina Jóns við Spitefire
Verð 43.300 kr.
Miðað við 2ja manna herbergi.
Innifalið: Flug, flugvallagjöld, gisting í 3 nætur,
morgunverður, rúta til og frá flugvelli,
íslensk fararstjórn, upplýsingahandbók, nafnspjald.
Söluaðili:
Samvinnuferðir-Landsýn
FYRSTA FLUGS FÉLAGIÐ
Símar: 561 2900 & 899 2900
alla daga vikunnar frá kl. 10-22
FLUGÁHUGAFÓLK! BEINUM VIÐSKIPTUMTIL ÞESSARA FYRIRTÆKJA SEM STYÐJA FLUGÁHUGAMENNSKU!