Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Áætlunarflug og sjúkraflug boðið út í sama útboði
Sömu vélar verða notaðar
í FYRIRHUGUÐU útboði vegna sjúkraflugs á
landinu er gert ráð fyrir því að sömu flugvélar
geti sinnt bæði áætlunarflugi og sjúkraflugi. Að
sögn Jóns Karls Olafssonar, forstjóra Flugfé-
lags íslands, er áætlunarflugið og sjúkraflugið
boðið út í einum pakka en eru þó tveir aðskildir
þættir.
„í útboðinu er gert ráð fyrir því aðsamnýting
sé á milli þessara tveggja þátta og heimild er
fyrir því. Þannig er hægt að samnýta vélarnar.
Gera þarf ráð fyrir ákveðinum viðbragðsflýti
fyrir sjúkraflug en vélin sem sinnir því getur
einnig nýst í áætlunarflugi,“ sagði Jón Karl.
Varðandi áætlunarflug frá Akureyri sem sagt
var frá í Morgunblaðinu í gær, sagði Jón Karl
að flogið væri til fímm staða. Er þáT UITi So "zSs.
Isafjörð, Grímsey, Þórshöfn, Vopnafjörð og Eg-
ilsstaði. Að sögn Jóns Karls getur t.d. áætlunar-
flug til ísafjarðar einnig fylgt Vestfjarðasvæðinu
en í útboðinu er landinu skipt upp í þrjú svæði.
Jón Karl taldi víst að í útboði fyrir sjúkraflug
og áætlunarflug út frá Akureyri gengi ríkið til
samninga við einn og sama aðilann. „Mér finnst
ÓMkJegt að það verði brotið upp,“ sagði Jón Karl.
Undirbúningur hafínn vegna
byggingar fjölnota iþróttahúss
Skipað hefur ver-
ið í sex manna
verkefnalið
UNDIRBUNINGUR vegna
byggingar fjölnota íþróttahúss á
Akureyri er nú að hefjast, en
skipað hefur verið í svokallað
verkefnalið sem halda mun utan
um málið, en það er skipað sex
mönnum.
I verkefnaliðinu eru Þórarinn
B. Jónsson frá íþrótta- og
tómstundaráði, Þórarinn E.
Sveinsson, tilnefndur af bæjar-
ráði, Stefán Gunnlaugsson, KA,
Árni Óðinsson, Þór, Haukur
Valtýsson frá Ungmennafélagi
Akureyrar og þá er Ásgeir
Magnússon fulltrúi fram-
kvæmdaráðs í verkefnaliðinu.
Þórarinn B. Jónsson, formað-
ur Iþrótta- og tómstundaráðs,
sagði að fyrsti fundur liðsins
yrði innan tíðar, en áætlanir
gera ráð fyrir að hafíst verði
handa við byggingu fjölnota
íþróttahússins næsta sumar og
verkið taki um tvö ár, þannig að
gangi allt upp mun því verða
lokið árið 2002. Að sögn Þórar-
ins mun Akureyrarbær leggja
fram um 230 milijónir króna
vegna þessa verkefnis. íþrótta-
húsið verður á félagssvæði
íþróttafélagsins Þórs náist um
það samkomulag við félagið, að
sögn Þórarins.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Starfsmenn Stíganda;s Signý Hreiðarsdöttir, Alda M. Traustadóttir og
Bryndís Gunnarsdóttir.
Mikið að gera í fískvinnslu í Ólafsfírði
Vantar starfsfólk
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA:
Guðsþjónusta á morgun, sunnu-
dag kl. 11, séra Svavar A. Jónsson.
Morgunsöngur kl. 9 á þriðjudag.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12
og hefst hún með orgelleik. Hægt er
að fá léttan hádegisverð í Safnaðar-
heimilinu eftir kyrrðarstundina.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Almenn samkoma ki. 20 annað
kvöld, sunnudagskvöld. Heiðurs-
hjónin Óskar Jónsson og Ingbjörg
Jónsdóttir stjórna og tala.
HVÍTASUNNUKIRKJ AN:
Brauðsbrotning kl. 20 í dag, laug-
ardag. Sunnudagaskóli fjölskyld-
unnar kl. 11.30 á morgun, sunnudag.
G. Theodór Birgisson forstöðumað-
ur Hvítasunnukirkjunnar sér um
kennsluna. Léttur málsverður að
samkomu lokinni. Almenn vakning-
arsamkoma kl. 20 um kvöldið, þar
sem G. Theodór Birgisson mun
predika. Fyrirbænaþjónusta.
NÚ BER svo við að það vantar
fólk til fiskvinnslu hér í Ólafs-
fírði. Stóru fyrirtækin í fisk-
vinnslu, Sigvaldi Þorleifsson hf.
og Stígandi hf., eru hvort um sig
með um það bil 20 manns í vinnu
að meðaltali, en bæði fyrirtækin
sárvantar fólk.
„Já, það er satt,“ sagði Sigur-
páll Gunnarsson hjá Stiganda við
Tind í gær, fimmtudag. „Við höf-
um verið með þetta tuttugu
manns í vinnu að meðaltali, þar
með talið skólafólk. Nú er það
fólk farið í skóla og menn hafa
meira að segja hætt óvænt! Það
þýðir bara eitt, að okkur vantar
fólk og það núna.“ Hann nefnir
sem dæmi að nú sárvanti lyftara-
mann hjá Stíganda. Það sem Sig-
urpáli fínnst skrítnast er að það
er hreint ekkert auðvelt að fá
fólk í fiskvinnslu.
Talsverðar framkvæmdir voru í
húsnæði Stiganda á dögunum,
meðal annars voru gólf brotin
upp og steypt upp á nýtt. Nú er
þeim framkvæmdum lokið.
„Það er nóg af físki núna. Til
dæmis bíða 47 kör af fiski á Ak-
ureyri því að ég kemst ekki í að
vinna það núna. Svo á ég eftir að
pakka skreið, svo útlitið með
vinnu er gott og ekki hægt að
kvarta út af því,“ segir Sigurpáll
Gunnarsson.
Vika símennt-
unar í
Eyjafirði
VIKA símenntunar í Eyjafirði verð-
ur sett formlega af Bimi Bjamasyni
menntamálaráðherra á Fiðlaranum á
Akureyri kl 11 mánudaginn 4. sept-
ember. Yfirskrift vikunnar er
„Menntun er skemmtun“ og er vikan
hluti af alþjóðlegu verkefni á vegum
menntamálaráðuneytisins.
Dagskráin í Eyjafirði einkennist af
þátttöku mjög margra aðila og lýsir
þessí íjöldi þaíííakenda kannski best
þeirri hugarfarsbreytingu gagnvart
sí- og endurmenntun sem á sér stað í
öllum heiminum í dag, eins og segir í
fréttatilkynningu.
Meðal dagskrárliða á viku
símenntunar má nefna að fræðsluaði-
lar á svæðinu ferðast á milli fjölfar-
inna staða og kynna þá fræðslu sem
þeir munu bjóða upp á á næstu önn.
Einnig verða vinnustaðir sóttir
heim. Nethátíð verður sett af Val-
gerði Sverrisdóttur, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, á netkaffinu Bláu
könnunni þann 6. september. Þai'
gefst fólki færi á að kynna sér nánar
bankaþjónustu, þjónustu tengda net-
væðingunni sem einstök fyrirtæki
bjóða og kynningu á þeim tæknibún-
aði sem í boði er. Nethátíðin stendur í
þrjá daga.
Að iokum munu fræðsluaðilar
bjóða Eyfirðingum í heimsókn til sín
laugardaginn 9. september en það
verður kynnt nánar síðar.
------UH---------
Akureyrsk
mynd sýnd
á Aksjón
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 4. septem-
ber kl 21.15 verður frumsýnd á Ak-
sjón algjörlega akureyrsk kvik-
mynd, FAR. Framleiðendur eru
Baldvin Z og Trausti Björgvinsson.
Leikstjóri er Baldvin Z og aðalhlut-
verk eru í höndum Elmars Berg-
þórssonar og Atla Hergeirssonar.
Ónnur hlutverk í myndinni leika
ýmsir vinir og vandamenn framleið-
endanna.
Kvikmyndin FAR fjallar um tvo
sólarhringa í lífi fjögurra unglinga,
æskuvina sem hittast aftur á ungl-
ingsárunum. Endurfundirnir verða
ekki eins og ungmennin vonuðust til,
eitthvað fer úrskeiðis og endurfund-
irnir verða að sannkallaðri martröð.
Auglýsing um lausar
byggingalóðir
Umsóknareyðublöð, úthlutunarskilmálar og skipulags- og byggingaskilmálar liggja frammi á
skrifstofu byggingafulltrúa og í upplýsingaanddyri bæjarskrifstofu á Geislagötu 9.
Umsóknum skal skila á þessa staði fyrir 8. september nk.
Eldri umsóknir skal endurnýja
Eftirtaldar lóðir eru lausar til umsóknar
Einbvlishús Bakkasíða 6 ein hæð Urðargil 2—6 ein hæð
Bakkasíða 16 ein — ein og hálf hæð Valagil 2—14 tvær hæðir
Borgarsíða 22 ein og hálf hæð Valagil 11—23 tvær hæðir
Borgarsíða 23 hæð og ris Vesturgil 1—9 tvær hæðir
Borgarsíða 29 hæð og ris Vesturgil 14—20 tvær hæðir
Borgarsíða 39 ein og hálf til tvær Víkurgil 2—6 tvær hæðir
Brekkusíða 6 ein hæð Miðteigur 8 tvær hæðir
Brekkusíða 8 ein hæð Mosateigur 6 tvær hæðir
Brekkusíða 10 ein hæð Steinatröð hæð og ris (kjallara)
Brekkusíða 16 hæð og ris
Raðhús—parhús Fjölbýlishús
Valagil 1—9 tvær hæðir
Iðnaðar- ob biónustulóðir utan miðbæiarsvæðis
Kiðagil 1 þjónusta/verslun/6 íbúðir
Freyjunes 4 iðnaður/þjónusta/verslun
Óseyri 24 lóð á hafnarsvæði
Sandgerðisbót verbúðir
Ósvör verbúðir
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Þórgunnur Reykjalín, nýr skólastjóri í Ólafsfirði, lengst til vinstri ásamt
Jónínu Björnsdóttur, nýjum iþróttakennara við skólann.
Nýr skólastjóri ráð-
inn í Ólafsfirði
NÝR skólastjóri hefur verið ráðinn
við Gagnfræðaskólann í Ólafsfirði.
Þórgunnur Reykjalín heitir hún,
Dalvíkingur að ætt og uppruna, en
hún kenndi á Egilsstöðum sfðasta
skólaár.
Óskar Þór Sigurbjörnsson sem
hefur verið skólastjóri Gagnfræða-
skólans í tuttugu ár fer í tveggja
ára leyfi, en hann hefur tckið að
sér hið nýja starf skólamálafull-
trúa á Úteyjafjarðarsvæðinu.
^gunbl.is
-Al.LTAf= fJÝTT
Bvssinsafulltrúi Akurevrarbæiar.
Enski boltinn á Netinu