Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 MINNINGAR MORGUMBLAÐIÐ MAGNÚS - GUÐMUNDSSON + Magnús Guð- mundsson fædd- ist á Hundastapa, Hraunhreppi, Mýra- sýslu 25. maí 1939. Hann lést á sjúkra- húsinu á Akranesi hinn 25. ágúst síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjúnin Sigurbjörg Olafs- döttir frá Tröðum, f. 10. maí 1898, d. 5. ágúst 1985 og Guð- mundur Jönsson frá Hamraendum í sömu sveit, f. 4. desember 1874, d. 22. ágúst 1965. Magnús ölst upp í foreldrahúsum á Hundastapa. Hann var næst- yngstur fimm systkina. Þau eru Jön, f. 1927, d. 1953, Sigurbjörg, f. 1929, búsett í Reykjavík, Eðvarð, f. 1930, d. 1988, var búsettur í Reykja- vík, og Ólöf, f. 1941, býr á Hundastapa. Magnús lauk lands- pröfi frá Reykholti og pröfi í rafvirkjun frá Iðnskölanum í Reykjavík. Hann tök við búi á Hunda- stapa 1965. Hann sinnti ýmsum trún- aðarstörfum fyrir sveit sína, var m.a í hreppsnefnd frá 1962-1974. Utför Magnúsar fer fram frá Borgarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður á Ökrum síðar sama dag. Þegar Mýramaðurinn Magnús Guðmundsson frá Hundastapa er kvaddur leitar hugurinn ósjálfrátt aftur til löngu liðins síðsumars þegar fyrri helmingur aldarinnar var að renna sitt skeið, eða til ágústmánað- ar árið 1950. Ahugafólk um frjáls- íþróttaiðkun hafði þá undirbúið leik- *4föt, nánar tiltekið á Leirulækjarbökkum, hið fyrsta af nokkrum sem síðan voru haldin á þessu árabili, og öllum til ánægju heppnaðist að fá allstóran hóp ung- menna innan fermingaraldurs til sæmilega virkrar þátttöku. En mitt í þessum minningabrotum kemur fram ein ákveðin sjónmynd, og hún er á þessa leið: Ellefu ára piltur, ekki stór vexti, stígur fram meðal þeirra sem fúsir eru að ganga í leikinn þó lítt æfðir séu og segir nafn sitt en tejcur síðan smávegis þátt í sprett- Tilaupi og stökkum. Er það skoðun mín sem nú byrjar þessa upprifjun að á þessari stundu hafi ég sennilega verið að líta hann augum í fyrsta sinn. Á þessum síðari árum þætti slíkt áreiðanlega fjarstæðukennt og furðulegt, en á þeim tíma gat sam- gangur milli hreppshluta verið óvenju fábreytilegur árið um kring, vegir fremur laklegir og heimilisfar- artæki nánast óþekkt víðast hvar. Það fór þó ekki svo að Magnús gæfi sig íþróttaiðkunum á vald með keppni fyrir augum. Hins vegar var ekki liðið langt á unglingsárin þegar hann hafði gengið til liðs við ung- mennafélagið í sveitinni, Umf. Björn Hítdælakappa, en þar varð þjón- 'Jfcstuhlutur hans stór og í mörgum greinum eftirminnilegur. Það kom svo fljótlega í ljós að sú skoðun var útbreidd að hverju því hlutverki sem Magnús í Hundastapa tæki að sér væri vel borgið. Traust félaga á starfhæfni hans var mikið, enda hafði hann er árin liðu komið að flest- um þáttum forystustarfa innan þess hóps með því til dæmis að gegna starfi varaformanns, gjaldkera og ritara auk setu í félagsheimilisnefnd. Formaður varð hann svo á öndverðu ári 1970 en kaus að eftirláta öðrum þá stöðu að tveim árum liðnum. Sem ungmennafélagi var hann, eins og algengt er, margoft þátttak- andi í alls kyns hópvinnu, ýmist vegna framkvæmdar á sveitar- skemmtunum þar sem undirbúa þurfti dagskrá og annað þar að lút- andi eða við önnur vinnuframlög í nafni félagsins, svo sem hlutaveltur, sem ungmennafélögin héldu til skiptis á meðan fjáröflun til bygging- ar félagsheimilisins stóð yfir. Hvar- vetna þótti vinna hans vönduð og traust, enda mikil verklagni fyrir hendi og eftir henni tekið. Get ég ekki stillt mig um að upplýsa í því sambandi að hann stýrði lagningu hellustéttar þeirrar er liggur heim að anddyri félagsheimilisins Lyng- brekku og er allmikið verk. Vissu- lega munu þeir margir er muna þá framkvæmd, en því get ég þessa hér að slíkt sem þetta er óvenju fljótt að falla í gleymsku þegar árin líða. Þeir sem fylgdust með skemmt- anahaldi á Mýrum um 1970 minnast þess að Magnús gekkst þá undir enn eitt félagslegt hlutverk með því að bregða sér á leiksvið á samkomustað sveitarinnar með góðum árangri. Skömmu síðar tók hann frumkvæði að því að ungmennafélagið hæfi að hljóðrita raddir eldri félaga og ann- arra rótgróinna íbúa byggðarlagsins með því að útvega tæki til þeirra hluta. Tók hann sjálfur sum af fyrstu viðtölunum og gerði ráðstafanir til þess að nokkur önnur og aðrar bein- ar frásagnir kæmust inn á hljóm- bandið. Með þetta í huga voru félag- ar einhuga um að fela honum að sitja við segulbandstækið þegar ung- mennafélagið minntist sextíu ára af- mælis síns, en frá þeim degi á félagið margar ómetanlegar upptökur þess er þá fór fram. Á öðru ári sínu í formannsstarfi birti hann félögum þá tillögu sína að tekin yrði saman saga ungmennafé- lagsins. Ekki var þá þegar áformað að úr því yrði bók, þótt sú yrði raunin vegna efnisins, sem ekki þótti fært Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur aímælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. flft Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá em ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. að takmarka um of þegar út í slíkt verk var komið. Þeir sem þar áttu hlut að máli eiga honum því mikið að þakka að hafa haft til þess framsýni og stórhug að láta á þann hátt stuðla að því að varðveita liðna sögu. Magnús átti létt með nám þó hann kysi ekki að leggja fyrir sig lang- vinna skólagöngu. Lauk hann lands- prófi miðskóla á unglingsámnum, en síðar tóku tækniviðfangsefni að koma fram sem áhugamál. Alls kyns félagslegt bókhald lék í höndum hans. Kom það sér vel fyrir félagið sem hann vann mest og bezt, ung- mennafélagið, og þá ekki síður er honum var falin formennska í sjúkrasamlagi hreppsins, en fyrir því var orðin löng hefð að bókhalds- skyldan hvíldi á formanninum. Þá hafði hann og mjög skýra, jafna og áferðarfallega rithönd frá unga aldri. Bar þar að sama bmnni og með reikningshæfnina að í félagsstörfum mátti slíkt heita lykillinn að fögmm og skipulegum frágangi. Vorið 1962 var hann kosinn í hreppsnefnd Hraunhrepps og end- urkosinn þar til heilsubrestur batt enda á búsetu hans í heimasveit. Em mér ekki kunnug dæmi þess að yngri maður hafi valizt til setu þar, en við upphaf þess starfstíma var hann tuttugu og þriggja ára. Á þessum ár- um varð hann á tímabili formaður Veiðifélags Álftár og sömuleiðis varadeildarstjóri Hraunhrepps- deildar Kaupfélags Borgfirðinga um nokkurt skeið. Það mun vera nokkuð nærri lagi að telja að Magnús hafi í reynd tekið við búsforráðum á æskuheimilinu rétt um tvítugsaldur eða skömmu síðar og að fullu að föður sínum látn- um. Starfaði hann þar mest í sam- vinnu við móður sína og móðurbróð- ur. Með henni og frænda sínum flutti hann síðan í Borgarnes hálffertugur að aldri eftir heilsufarslegt áfall sem ennfremur átti síðar eftir að verða honum fjötur um fót. Á Borgamesárunum tók hann brátt upp þráðinn þar sem frá var horfið í tæknimálunum, en hann hafði á tímabili haslað sér völl á veg- um Landssímans. Nú var það rafvirkjanámið, og gekk það að sjálf- sögðu eins og að var stefnt. Vann hann síðan sem rafvirki í Borgarnesi við góðan orðstír um árabil. Síðustu árin urðu honum ákaflega erfið heilsufarslega séð og ekki auðið að komast fyrir þann vanda svo hann hlyti lífsþrótt sinn á ný. Er það sann- arlega mikið saknaðarefni samtíðar- mönnum, fyrst og fremst fjölskyldu- liði, sveitungum og öðrum góðum vinum að geta ekki lengur vitað hann feta mannlífsgönguna með okkur hinum. Ég mun sennilega ætíð minnast Magnúsar Guðmundssonar sem ungmennafélaga öðru fremur. Þar kynntumst við honum bezt og starfs- háttum hans, sem allajafna ein- kenndust af fumlausri yfirvegun, vandvirkni og nákvæmni. Hávaða- samar yfirlýsingar lágu honum ekki á tungu. Framkoman var látlaus en örugg og flestum sem tóku að kynn- ast honum mun hafa boðið í grun að þar færi maður fremur dulur í skapi. Sjaldan flýtti hann sér til muna að láta í ljós skoðun sína á málefnum dagsins, en sú afstaða sem tekin var bar alltaf með sér skýrleika en enga undirhyggju. Roskinn bóndi í sveit- inni lét eitt sinn svo um mælt í mín eyru að hann teldi að Magnús hugs- aði afar skýrt. Þessu voru sveitung- arnir án efa algerlega sammála, og nægir þar að benda á þann félags- lega trúnað sem honum var veittur og getið hefur verið hér að framan. Eitt er það sem enn hefur ekki verið á minnzt um félagsstörf hans, sem er það að hann átti hægt með að flytja mál sitt í ræðuformi á skipu- legan hátt þótt hann hliðraði sér oft hjá því af meðfæddri hlédrægni. Lesari þótti hann einnig svo góður að margir höfðu orð á, enda mál- blærinn skýr og náði vel eyrum þeirra er á hlýddu. Við leiðarlok er jafnan margs að minnast þegar kveðja skal góðan þegn. Magnús í Hundastapa, eins og okkur fellur mörgum bezt að nefna hann, er allur, - það verðum við að horfast í augu við. Minningamar hverfa okkur þó ekki er við setjum okkur fyrir sjónir lífshlaup þessa yf- irlætislausa manns sem átti þó svo auðvelt með að marka jákvæð spor með hógværð sinni. Eflaust mátti með sönnu segja að hann væri ekki allra en vinátta hans var traust og varanleg. Með þakklæti í huga til þessa horfna félaga flyt ég aðstandendum hans einlægar samúðarkveðjur. Bjarni Valtýr Guðjónsson. Fallinn er frá kær mágur minn Magnús Guðmundsson, 61 árs að aldri, eftir langvarandi veikindi. Hann var fæddur og uppalinn á Hundastapa á Mýrum, næstyngstur fimm systkina. Árið 1953 varð fjöl- skyldan fyrir þeirri sorg að elsti son- urinn, Jón, dó úr hvítblæði 25 ára að aldri, öllum harmdauði. Það mun hafa verið mikið áfall fyrir ungling- inn Magnús. Fljótlega eftir skólag- öngu í Borgarnesi og Reykholti tók hann við búinu með foreldrum sínum á Hundastapa en vann oft á veturna í Reykjavík. Magnús veiktist ungur alvarlega, aðeins 33 ára, vegna mein- semdar í höfði sem var óskurðtæk. Þrátt fyrir nokkurn bata varð hann að hætta búskap og settist að í Borg- amesi ásamt móður og móðurbróð- ur. Ólöf, yngri systir hans, tók við búinu ásamt Ólafi Egilssyni eigin- manni sínum þar sem þau búa nú myndarbúi. Magnús fór í Iðnskólann í Reykjavík eftir veikindin og lærði rafvirkjun þar sem hann náði prýði- legum árangri. Að námi loknu starf- aði hann á rafmagnsverkstæði kaup- félagsins í Borgarnesi í nokkur ár. Aftur veiktist Magnús vegna heila- blæðingar ’83 og í þriðja sinn tíu ár- um síðar. í þessu veikindastríði stóð hann sig afar vel, kvartaði aldrei en gerði oft að gamni sínu sem fyrr. Hann var mikið Ijúfmenni, léttur í lund, gamansamur og dáður af fjöl- skyldu og vinum. Hann var sérlega laghentur, hógvær og hreykti sár ekki enda eftirsóttur í vinnu, þar sem hann hafði einu sinni unnið stóðu honum síðan allar dyr opnar. Ég heyrði á hjúkrunarfólki að því fannst hann ekki erfiður sjúklingur þau skipti sem hann lagðist inn á spítala. Honum fannst aldrei neitt ama að sér. Magnús bjó oftast hjá okkur bróð- ur hans þegar hann var syðra, fyrst vegna vinnu og síðan út af veikindun- um en eftir að Eðvarð bróðir hans dó 1988 var hann mest hjá eldri systur sinni, Sigurbjörgu, sem var hans stoð og stytta í veikindunum. Fyrir ári var svo komið að hann þurfti mikla aðstoð og hjúkrun og fluttist inn á dvalarheimili aldraðra í Borg- amesi. Þar leið honum vel, fékk góða aðhlynningu og hitti marga gamla kunningja af Mýrunum. Það voru oft krakkar í sumardvöl á þessu góða heimili, Hundastapa, eins og á flestum sveitaheimilum. Það var auðséð að þeir löðuðust að Magnúsi og fylgdu honum hvert fót- mál. Ég er þakklát fyrir öll sumrin sem dóttir mín var þar. Ég þakka þessum góða mági mín- um vináttu í rúm 40 ár og hjálp sem hann var alltaf tilbúinn að veita hve- nær sem hennar var þörf. Ég, börn mín og dótturdætur kveðjum Magn- ús með söknuði. Blessuð sé minning hans. Þórunn Bergþórsdóttir. Síðastliðinn mánudag fór ég á bókasafnið í nýja skólanum mínum til þess að skoða tölvupóstinn minn og lesa fréttir að heiman. Eitt fyrsta bréfið sem ég las var frá Agli bróður mínum þar sem hann sagði mér að Maggi frændi væri dáinn. Þó að ég hafi búist við þessu eftir öll veikindin sem hann hefur mátt glíma viðvar mér samt brugðið og mikið hugsaði ég til fjölskyldu minnar heima á Is- landi. Þegar ég var yngri man ég eftir því hvað Maggi var alltaf hress og skemmtilegur og mikill barnakarl. Mér fannst alltaf svo skemmtilegt að þvælast um með honum, fara með honum í bíltúr eða á verkstæðið þar sem hann vann því þar var ýmislegt að skoða. En með árunum eftir að veikindi hans ágerðust urðu samverustundirnar færri og færri komust að honum. Ég bjó hjá honum á Böðvarsgöt- unni í fjögur á meðan ég var í Fjöl- brautaskólanum á Akranesi en lengstum var hann sjálfur í Reykja- vík hjá Siggu systur sinni þar sem honum fannst öruggt og gott að vera. Það fór mjög vel um mig á Böðvars- götunni og ég er honum mjög þakk- lát fyrir að hafa leyft mér að vera þar þennan tíma. Maggi sagði gjarnan þegar ég kom heim úr skólanum: „Hvað lærðir þú í dag?“ Ég reyndi alltaf að hugsa til baka og svara eftir bestu getu þó að ég hafi stundum verið þreytt og úrill eftir langan skóladag. í dag er ég langt í burtu frá fjölskyldu minni þar sem ég er að hefja langt og strangt nám í fjarlægu landi. Nú ætla ég að hafa þessa spumingu í huga og reyna að svara henni eftir hvern skóladag, „hvað lærðir þú í dag?“ Hugur minn er á íslandi í dag, guð blessi ykkur öll. Hanna. Ég kveð Magga frænda sem hafði verið veikur svo lengi. Þó ljóst væri að hverju stefndi þessa síðustu daga er maður aldrei tilbúinn og sorgin er mikil. Langbestu minningar mínar um Magga á ég frá sumrunum í sveitinni hjá honum og ömmu. Hve notalegt var að sitja á mjaltastólnum og hlusta aftur og aftur á sögurnar hans Magga við mjaltirnar. Rölta hönd í hönd út að á og vitja um net; skyldu þeir vera margir í dag? Fimm skín- andi laxar í strigapoka á heimleið. Raka hey í nýjum strigaskóm, henda frá sér hrífunni og hlaupa heim í ein- um spretti til að missa ekki af út- varpssögunni, Kapítólu. Liggjandi í ilmandi töðunni í vagninum heim að hlöðu. Sitja á kolaeldavélinni, borða heitt rúgbrauð með smjöri og hlusta á ættfræðiumræður í kaffitímanum. Glugga í bók úr koffortinu. Hlusta spennt á símhringingu, vonandi hringir til okkar „löng-stutt-löng“! Labba á eftir kúnum, krækja fyrir keldu og athuga dýpi hennar með kúaprikinu. Finna smáan lóuunga. Tína krækiber í lítið box. Gefa hæn- unum og sækja eggin; hvað yrðu þau mörg í kvöld? Sitja í kvöldkaffi með Magga, borða kremkex og mjólk. Biðja bænirnar fyrir svefninn. Dálít- ið kaldur koppur undir rúmi. Hve gott var að liggja á bæjarhólnum og gantast við hundinn og heimalning- inn. Veðrið var alltaf milt, var það ekki? Sveitin hans Magga var Para- dís; með hann ávallt nálægan var líf- ið öruggt, áhyggjulaust og skemmti- legt. Vonandi hefur Maggi nú fundið sér aðra Paradís, eins góða og sveit- ina. Sigurbjörg Eðvaldsdóttir. Þegar ég kveð Magnús Guðmundsson, frænda minn, minn- ist ég þeirrar skelfingar sem greip fjölskyldu hans þegar hann veiktist alvarlega á vordögum 1973. Dögum saman beið fjölskyldan milli vonar og ótta um hvort Magnús myndi lifa og hvort hann næði heilsu. Eldri bróðir hans, sem var eins og hann sérlega vel gefinn, myndarlegur og hæfileikaríkur maður, féll frá á unga aldri. Myndi fara eins fyrir Magn- úsi? Vikur liðu í angist og kvíða. Um síðir var ljóst að Magnús myndi lifa, en hann var ekki samur maður. Tíu árum síðar varð hann aftur fyrir sjúkdómsáfalli og það þriðja kom öðrum tíu árum síðar. Sjálfsagt má segja að Magnús hafi tekið veikindum sínum af karl- mennsku og æðruleysi. Hann bar ekki tilfinningar sínar á torg. Ég velti stundum fyrir mér hvað hann hugsaði. Sótti að honum kvíði, von- leysi, reiði? Ég hugsa að hans nán- asta fjölskylda hefði kosið áð hann hefði sagt frá því hvernig honum leið. Þó þrálát veikindi hafi sett mestan svip á ævi Magnúsar veit ég að margir vilja minnast hans sem ungs hæfileikaríks manns. Manns sem rétt rúmlega tvítugur var kosinn í sveitarstjórn og manns sem af dugn- aði tók við búi foreldra sinna. Þannig vil ég minnast hans. Ég man eftir gamalli ljósmynd af Magnúsi og móður minni þar sem þau eru börn að leika sér heima á Hundastapa. Ég veit að það er sú mynd sem móðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.