Morgunblaðið - 02.09.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 1 3
FRÉTTIR
Afengi selt á N etinu
VEFVERSLUN ÁTVR var opnuð í
gær og barst fyrsta sendingin frá
versluninni til Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra á heimili hans í
Granaskjóli 20 um tvöleytið í gær.
Til þess að geta átt viðskipti við
vefverslun ÁTVR þarf kaupandi
að skrá sig sem notanda. Þeir ein-
ir geta skráð sig sem eru 20 ára
og eldri. Við skráningu er gefin
upp kennitala, fullt nafn, heimilis-
fang, póstfang og bæjarfélag,
tölvupóstfang og lykilorð sem er
að lágmarki sex stafir. Notandi
þarf eingöngu að skrá sig í eitt
skipti. Eftir það er nægilegt að
muna lykilorðið sem valið var við
upphaflegu notandaskráninguna.
Að skráningu lokinni er vöru-
listi ÁTVR skoðaður. Kaupandinn
velur vörur úr kjarnaflokki og
flokki reynsluvína og tínir þær í
innkaupakörfu. Hann getur hve-
nær sem er kannað hvort magn
og verð sé það sem hann ætlaði
og getur tínt úr og í körfuna að
vild. Þegar hann er sáttur við
innihald innkaupakörfunnar ýtir
hann á hnappinn „Panta“. Pöntun
færist þá á svæði þar sem loka-
staðfesting pöntunar fer fram og
slegið er inn kreditkortanúmer
og gildistími þess. Loks er ýtt á
hnappinn „Staðfesta pöntun“.
Pöntun þarf að berast ÁTVR
fyrir kl. 14 til þess að hún fari
samdægurs í vörslu Islandspósts.
Islandspóstur afhendir kaupanda
vöruna gegn framvísun pers-
ónuskilrfkja að jafnaði 1-3 dögum
eftir að pöntun er gerð. Islan-
dspóstur sér um að afhenda vör-
una en sé kaupandi ekki til staðar
þarf að vitja sendingar á næsta
pósthús. Burðargjald er jafnaðar-
gjald um Iandið allt og greiðist
um leið og varan.
Starfsmaður íslandspósts afhendir Geir H. Haarde fjármálaráðherra
fyrstu sendinguna úr vefverslun ÁTVR í gær.
Fjölhæfari og þægilegri fjölskyldubfll
Renault Scénic RT
21.198,-
á mánuði*
Verð 1.738.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs bremsur -
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samiæsingar
Renault Scénic RT sjálfskiptur
22.460,-
á mánuði*
Verð 1.838.000,- 5 dyra - 4 þrepa sjálfskipting - 1600 cc - 4 loftpúðar - abs
bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
Renault Scenic RX4
29.134,-
á mánuði*
Verð frá 2.390.000,- 5 dyra - 5 gíra - 2000cc - 4 loftpúðar - abs bremsur -
fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar
*ineðalgreiðsla á mánuði miðað við 25% útborgun (t.d. notaðan bíl) og afganginn á 84 mánuðum.
Gijótliáls 1
Sítni 575 1200
Söludeild 575 1220
Prófaðu Renault Scénic til að svara kalli fjölskyldunnar um þægilegri
bíl sem hægt er að aðlaga sérlega vel að liverri ferð fyrir sig.
RENAULT
fiOTI FÓIK MtCAMN-EIKKSON - SÍA • 1J1S1 kJM