Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 13

Morgunblaðið - 02.09.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 1 3 FRÉTTIR Afengi selt á N etinu VEFVERSLUN ÁTVR var opnuð í gær og barst fyrsta sendingin frá versluninni til Geirs H. Haarde fjármálaráðherra á heimili hans í Granaskjóli 20 um tvöleytið í gær. Til þess að geta átt viðskipti við vefverslun ÁTVR þarf kaupandi að skrá sig sem notanda. Þeir ein- ir geta skráð sig sem eru 20 ára og eldri. Við skráningu er gefin upp kennitala, fullt nafn, heimilis- fang, póstfang og bæjarfélag, tölvupóstfang og lykilorð sem er að lágmarki sex stafir. Notandi þarf eingöngu að skrá sig í eitt skipti. Eftir það er nægilegt að muna lykilorðið sem valið var við upphaflegu notandaskráninguna. Að skráningu lokinni er vöru- listi ÁTVR skoðaður. Kaupandinn velur vörur úr kjarnaflokki og flokki reynsluvína og tínir þær í innkaupakörfu. Hann getur hve- nær sem er kannað hvort magn og verð sé það sem hann ætlaði og getur tínt úr og í körfuna að vild. Þegar hann er sáttur við innihald innkaupakörfunnar ýtir hann á hnappinn „Panta“. Pöntun færist þá á svæði þar sem loka- staðfesting pöntunar fer fram og slegið er inn kreditkortanúmer og gildistími þess. Loks er ýtt á hnappinn „Staðfesta pöntun“. Pöntun þarf að berast ÁTVR fyrir kl. 14 til þess að hún fari samdægurs í vörslu Islandspósts. Islandspóstur afhendir kaupanda vöruna gegn framvísun pers- ónuskilrfkja að jafnaði 1-3 dögum eftir að pöntun er gerð. Islan- dspóstur sér um að afhenda vör- una en sé kaupandi ekki til staðar þarf að vitja sendingar á næsta pósthús. Burðargjald er jafnaðar- gjald um Iandið allt og greiðist um leið og varan. Starfsmaður íslandspósts afhendir Geir H. Haarde fjármálaráðherra fyrstu sendinguna úr vefverslun ÁTVR í gær. Fjölhæfari og þægilegri fjölskyldubfll Renault Scénic RT 21.198,- á mánuði* Verð 1.738.000,- 5 dyra - 5 gíra - 1600cc - 4 loftpúðar - abs bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samiæsingar Renault Scénic RT sjálfskiptur 22.460,- á mánuði* Verð 1.838.000,- 5 dyra - 4 þrepa sjálfskipting - 1600 cc - 4 loftpúðar - abs bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar Renault Scenic RX4 29.134,- á mánuði* Verð frá 2.390.000,- 5 dyra - 5 gíra - 2000cc - 4 loftpúðar - abs bremsur - fjarstýrð hljómtæki - fjarstýrðar samlæsingar *ineðalgreiðsla á mánuði miðað við 25% útborgun (t.d. notaðan bíl) og afganginn á 84 mánuðum. Gijótliáls 1 Sítni 575 1200 Söludeild 575 1220 Prófaðu Renault Scénic til að svara kalli fjölskyldunnar um þægilegri bíl sem hægt er að aðlaga sérlega vel að liverri ferð fyrir sig. RENAULT fiOTI FÓIK MtCAMN-EIKKSON - SÍA • 1J1S1 kJM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.