Morgunblaðið - 08.09.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 9
Sjálfstæðismenn á Yesturlandi,
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra
Þingmenn funda innan
nýrra kjördæmamarka
ÞINGMENN Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi, Vestfjarða-
kjördæmi og Norðurlands-
kjördæmi-vestra héldu sameiginleg-
an fund með fulltrúum í stjórnum
kjördæmisráða flokksins í Búðai'dal
sl. sunnudag. Samkvæmt hinni nýju
kjördæmaskipan verða þessi þrjú
kjördæmi gerð að einu kjördæmi,
Norðvesturkjördæmi, í næstu al-
þingiskosningum.
Vai' þetta fyrsti sameiginlegi fund-
urinn sem þingmenn halda innan
nýrra kjördæmamarka og var hann
haldinn til til að ræða undirbúning
vegna þessara breytinga, skv. upp-
lýsingum Einars K. Guðfinnssonar
þingmanns á Vestfjörðum.
Ljóst er að töluverður kostnaður
mun íylgja kjördæmabreytingunni
fyrir einstaka þingmenn s.s. vegna
stækkunai' kjördæmanna.
Einar var formaður nefndar full-
trúa allra flokka sem falið var það
verkefni, í tengslum við kjördæma-
breytinguna, að leggja fram annars
vegar tillögur um mótvægisaðgerðir
í byggðamálum og hins vegar hvern-
ig gera mætti þingmönnum í stærri
kjördæmum kleift að rækta milliliða-
laust samband sitt við kjósendur
með sama hætti og áður.
„Nefndin skilaði tillögum í báðum
þessum tilvikum og lagði til að þing-
menn í Suðurkjördæmi, Norðaustur-
kjördæmi og Norðvesturkjördæmi
fengju aðstoðarmenn, sem störfuðu
úti í kjördæmunum. Eg lít svo á að
það sé um það pólitísk samstaða að
stórefla aðstoð við þingmenn þessara
kjördæma. Menn voru auðvitað að
bregðast við því að þingmönnum
þessara svæða, sérstaklega norð-
vesturhlutans, mun fækka veru-
lega,“ sagði hann.
Einai' sagði aðspurður að einnig
væri ljóst að ferðakostnaður þing-
manna á landsbyggðinni muni stór-
aukast við stækkun kjördæmanna en
ekki hafi verið ákveðið hvernig
brugðist verður við því.
Auka á fræðilega umræðu
innan Kennaraháskólans
MEÐ aukinni faglegri umræðu
meðal nemenda og kennara innan
Kennaraháskóla Islands má virkja
nemendur og kennara og bæta
ímynd kennarastarfsins, segir
Sara Dögg Jónsdóttir, formaður
nemendafélags KHÍ.
Sara er nýkomin frá Svíþjóð þar
sem fram fór ráðstefna undir yfir-
skriftinni „Frá nema til kennara“
en hún var haldin af samtökum
kennaranema á Norðurlöndunum
sem nefnast LISTEN.
Reglulegir málfundir
innan Kennaraháskólans
Sara segir ímynd kennarastarfs-
ins gjarnan neikvæða og svo sé
einnig á hinum Norðurlöndunum.
Oftast sé einblínt á bág kjör kenn-
ara og þau rædd til hlítar en mikil-
vægir þættir kennslunnar falli í
skuggann af þeirri umræðu.
„Breyta þarf umræðunni,“ segir
Sara „og byrja þarf innan Kenn-
araháskólans sjálfs.“ Hún segir
alla fræðilega umræðu vanta innan
skólans. Ur því á nú að bæta og til
stendur að virkja reglulega mark-
vissa umræðu um málefni er varða
kennara almennt, þá gjarnan í for-
mi málþinga og umræðufunda.
Kennarar og aðrir fagaðilar verða
fengnir til að miðla af reynslu
sinni, að sögn Söru, og mun nem-
endum gefast kostur á að fræðast
nánar um fagið. Jafnvel væri hugs-
anlegt að halda heils dags ráð-
stefnu.
Aðild nema að kennara-
samböndum rædd
Fleira markvert kom til tals á
ráðstefnunni í Svíþjóð. Til dæmis
vai' rætt hvort ekki mætti taka
betur á móti nýútskrifuðum
kennaranemum þegar þeir hefja
störf í skólum. Sara segir mikil-
vægt að ákveðinn hópur fólks inn-
an hvers skóla sjái um að taka á
móti nýjum kennurum og séu þeim
til leiðsagnar til að byrja með.
Sara segir að komið hafi fram sú
hugmynd á ráðstefnunni hvort
ekki væri við hæfi að kennaranem-
ar ættu fulltrúa innan kennara-
sambanda. Á ráðstefnunni í Sví-
þjóð voru fulltrúar nokkurra
kennarasambanda á Norðurlönd-
unum og tóku þeir vel í þær hug-
myndir, segir Sara.
Sara segir íslendinga ekki vera
aðila að samtökum kennaranema á
Norðurlöndunum en nú sé verið að
íhuga aðild. Stjórn LISTEN mun
koma hingað til lands í september
og að sögn Söru vilja fulltrúar
samtakanna gjarnan fá Islendinga
til liðs við þau.
Fluttur
til Islands
til að af-
plána dóm
ÍSLENSKUR karlmaður sem
hafði reynt að komast undan því að
afplána dóm með því að forða sér
úr landi var fluttur hingað til lands
á þriðjudag. Hann mun nú afplána
dóm fyrir fjárdrátt og skjalafals
sem héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi hann í á sínum tíma.
Maðurinn var handtekinn í
Kaupmannahöfn í lok síðasta mán-
aðar og úrskurðaður í gæsluvarð-
hald. Fangelsismálastofnun óskaði
eftir því við ríkislögreglustjóra að
farið yrði fram á að hann yrði
framseldur til íslands. Dómari í
Kaupmannahöfn samþykkti þá
beiðni síðastliðinn mánudag og
hann var fluttur hingað til lands
daginn eftir. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Fangelsismálastofnun er
ekki algengt að menn reyni að
komast undan fangelsisdómi með
því að flýja land.
Fréttir á Netinu
mbl.is
_/KLLTAf= £ITTH\SA£> NÝTT
Lagersala á Bíldshöfða 14
Skór, töskur, belti, leðurhanskar o.fl.
Mikið úrval. Alltaf eitthvað nýtt!
Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19
og laugardaga milli kl. 12 og 16.
www.sokkar.is
oroblu@sokkar.is
Sjúkranuddstofur, Vegmúla2, 108 Reykjavík
Höfum sameinað sjúkranuddstofur í Vegmúla 2, 3. hæð.
Erum allar löggiltir sjúkranuddarar, menntaðar frá Canadian
College of Massage and Hydrotherapy í Kanada.
Björg Einarsdóttir, s. 553 5880, gsm 862 7675.
Hjördís Þóra Jónsdóttir, s. 553 5880, gsm 699 7926.
Elísabet Richter Arnardóttir, s. 588 5005, gsm 695 5650.
Elsa Lára Arnardóttir, s. 588 5005, gsm 692 3572.
Jóhanna Viggósdóttir, s. 568 2744, gsm 863 7457.
Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir á opnun stofunnar föstu-
daginn 8. september milli kl. 18 og 20 og þiggja léttar veitingar.
Ný sending
wwjl Stretch buxur 7/8 02 síðar. Frábært verð
o, ...
ber honnun
(dprýði
Álfh
sérverslun - Fataprýði
Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347.
Síðir kjólar
TESS
Ermalausir og með löngum ermum
V. Neðst við Dunhaga
X sími 562 2230
Opið virka daga kl. 10-18
Opið laugardaga kl. 10-14
Ný sending
stærðir 36-52
Öissa tískuhús
Hverfisgötu 52, simi 562 5110
Mikið úrval af
buxnadrögtum
og síðkjólum
á góðu verði.
Silfurpottar í Háspennu frá
24. ágúst - 6. sept. 2000
Dags. Spilastaður: Upphæð:
6.sept. Háspenna Laugavegi..............78.992 kr.
4.sept. Háspenna Skólavörðustíg.....70.593 kr.
4.sept. Háspenna Hafnarstræti.......76.292 kr.
3.sept. Háspenna Laugavegi.............106.554 kr.
3.sept. Háspenna Hafnarstræti.......91.252 kr.
2.sept. Háspenna Hafnarstræti......271.475 kr.
I.sept. Háspenna Hafnarstræti......112.196 kr.
I.sept. Háspenna Laugavegi.............146.017 kr.
31 .ág. Háspenna Hafnarstræti......123.684 kr.
30.ág. Háspenna Laugavegi..............269.820 kr.
28.ág. Háspenna Hafnarstræti.......133.332 kr.
26.ág. Háspenna Laugavegi..........105.265 kr.
24.ág. Háspenna Laugavegi...............82.974 kr.
24.ág. Háspenna Laugavegi.......82.974 kr.
24.ág. Háspenna Laugavegi.......233.303 kr.
Háspenna, Laugavegi 118, Hafnarstræti 3, Skólavörðustíg 6