Morgunblaðið - 08.09.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 23
Handavinnuklúbburinn NÝTT Á PRJÓNUNUM
Ertþú
ekki L ás ' öruggh krífand Tl
m-t
pennan
Lundavin.na
l
Vertu með
í bútasaumskeppninni,
skilafrestur er til
1. október.
Frábært inngöngutilboð!
Þú færð 50% afslátt af fyrsta pakkanum,
borgar aðeins 640 krónur og auk þess færðu
prjónahandbók að gjöf.
Iprjónunum
Gríptu tœkifœríð
og skráðu þig í
kiúbbinn, síminn er
550 3000
„FLÆÐI hlýsjávar í þessum mæli
inn á norðurmið stendur í vegi fyrir
köldum áhrifum frá norðri og eykur
líkur seiðanna á að komast af,“ segir
Héðinn Valdimarsson, haffræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, um
ástand sjávar umhverfis landið.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær lauk 28 daga árlegum
rannsóknum Hafrannsóknastofnun-
ar á fjölda og útbreiðslu fiskseiða 5.
september. Seiðarannsóknirnar
voru gerðar á hafrannsóknaskipinu
Bjarna Sæmundssyni og einskorð-
uðust við hafsvæðið umhverfis land-
ið. Auk þessara rannsókna fóru
fram hita- og seltumælingar sjávar,
mælingar á koltvísýringi og nær-
ingasöltum í sjó á tveimur völdum
stöðvum fyrir vestan og norðaustan
land og talning á sjófuglum og söfn-
un magasýna úr þeim en leiðang-
ursstjóri var Sveinn Sveinbjörns-
son.
Hólma-
(lrangTir
til Suður-
Afrfku
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hefur tekið kauptilboði í frystitogar-
ann Hólmadrang ST 70 að upphæð
225 milljónir króna frá Talmone
Trading í Suður-Afríku. Reiknað er
með að skipið verði afhent eftir tvær
vikur og segii- í frétt frá ÚA að salan
valdi hvorki sölutapi, né söluhagnaði.
Kvóti skipsins, sem er 2.345 stonn
verður fluttur yfir á önnur skip fé-
lagsins.
Guðbrandur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri ÚA, segir að skipið
hafí ekki verið á söluskrá, en tilboð
hafi engu að síður borizt og hafi það
verið það hagstætt að ákveðið hafi
verið að ganga að því. Hólmadrang-
ur er svokallaður heilfrystitogari og
hefur hann að undanförnu verið á
heilfrystingu á grálúðu og karfa og
hafa afurðirnar verið seldar til Aust-
urlanda fjær. Salan á skipinu hefur
ekki áhrif á vinnu fólks í landi og seg-
ir Guðbrandur að félagið hafi nægan
skipakost til að bæta við sig kvóta
Hólmadrangs.
Hólmadrangur komst í eigu ÚA
með sameiningu Hólmadrangs hf. á
Hólmavík við félagið fyrir nokkru og
var hann gerður út þaðan. Nú er
unnið að aukningu afkastagetu
rækjuvinnslu félagsins á Hólmavík
um 1.500 tonn á ári og verður þá
hægt að vinna þar um 4.000 tonn af
rækju árlega. Tvö skip útgerðarfé-
lagsins, Svalbakur og Rauðinúpur,
sjá rækjuverksmiðjunni fyrir hrá-
efni til vinnslunnar.
---------------
Vinna
krabba
AÆTLAÐ er að opna nýja krabba-
vinnslu í bænum Nanortalik, sunnar-
lega á Grænlandi 1. nóvember nk.
Um 50 til 60 manns fá vinnu við
vinnsluna. Hún verður starfrækt í
húsnæði þar sem áður var gerð til-
raun til selapylsugerðar. Tveir
kanadískir framleiðendur hafa gert
samning til fimm ára um leigu á
tækjum og húsnæði undir fram-
leiðsluna. Með þessu telja eigendur
húsnæðisins góða möguleika á að
vinna upp það 174 milljóna króna tap
sem var á selapylsuævintýrinu. Auk
þess telja þeir að í þessu felist góðir
möguleika á auknum veiðum við
Suður-Grænland en einnig sé verið
að kanna veiðar á krabba við Austur-
Grænland.
Seiðarannsóknir og ástand sjávar
Hlýr sjór eykur
möguleika seiða
Ljósmynd/Jón Páll
Hólmaborg SU tekur inn trollið í fyrradag í færeysku lögsögunni, skammt sunnan línunnar.
Besti túr Hólmaborgar
Veður var hagstætt mestallan
rannsóknartímann og hafís var ekki
til trafala en hvað sjávarástandið
varðar eru niðurstöður þær að sunn-
an og vestan Islands var sjór hlýr og
selturíkur með mikilli upphitun yfir-
borðslaga. Flæði hlýsjávar vestur
og norður fyrir land var sterkt og
náði allt til Austfjarða eins og í
fyiTa. Hinn kaldi Austur-íslands-
straumur var all fjarri landi fyrir
Norðaustur- cg Austurlandi. Upp-
hitun yfirborðslaga var mikil á öllu
hafsvæðinu og úti fyrir Norðaustur-
og Austurlandi og var yfirborðshiti
yfirleitt 1 til 2° C hærri en 1998 en
svipaður og hann var 1999.
Aukin útbreiðsla
Héðinn segir að ánægjulegast í
fyrra og nú sé að hlýnunin er farin
að ná norðuraustur- og austur fyrir
land. „Það munar töluvert miklu á
útbreiðslunni,“ segir hann og bætir
við að svipað ástand í þrjú ár sé ekki
nýtt.
„Það hefur verið töluvert mikið af
Atlantssjó á norðurmiðum undan-
farin þrjú ár en við höfum séð svona
kaflaskipti áður. 1983, 1984 og 1985
voru ár sem komu með hlýsjó eftir
frekar rysjótta tíð þar á undan en
þetta voru einmitt góð nýliðunarár.
Við vonum að þetta haldi áfram því
það eykur möguleika seiða að kom-
ast af. Vitað er að Atlantssjórinn
ber með sér næringarsölt í meira
mæli en pólsjór og sjór af norðlæg-
um ættum og það ýtir undir fram-
leiðni. Þetta er eins og í sveitinni.
Þegar vel árar er góð spretta."
JÓHANN Krisfjánsson skipstjóri
kom með Hólmaborg SU til Eski-
fjarðar um hádegið í gær með full-
fermi af kolmunna, um 1.700 tonn.
Fyrir viku eða 1. september land-
aði Hólmaborgin liðlega 1.700 tonn-
um á Eskifirði og hélt aftur á miðin
rétt innan færeysku lögsögunnar
daginn eftir en þangað er um 12
tíma sigling. Veiðin að þessu sinni
gekk mjög vel og í raun er þetta
besti túr skipsins í langan tíma.
Að sögn Kristgeirs Friðgeirsson-
ar, 1. stýrimanns, fengu skipverjar
aflann í sex holum og þar af um
1.350 tonn síðustu tvo dagana. „Við
komum á miðin 3. september en rif-
um trollið og fengum ekkert fyrsta
sólarhringinn. Síðan kom þetta
jafnt og þétt, á fjórða hundrað tonn
í holli og rúm 700 tonn síðasta sól-
arhringinn, fyrst um 380 tonn og
svo um 330 tonn.“ Kristgeir segir
að undanfarnir tveir túrar hafi ver-
ið ágætir og vel hafi gengið.
Gott veður hafi verið á miðunum
þegar þeir voru að veiðum en
ákveðið hafi verið að fara í land áð-
ur en veðrið versnaði. „Það hefur
verið ansi hvasst hérna fyrir austan
og spáin er leiðinleg en ég geri ráð
fyrir að við fórum fljótlega út aftur
þegar veðrið gengur niður.“