Morgunblaðið - 08.09.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tillögur um framkvæmd til úrbóta á launamismun kynjanna hjá Akureyrarbæ
Nýtt launamynd-
unarkerfí ákvarði
laun starfsmanna
STARFSHÓPUR sera bæjarstjórn
Akureyrar skipaði sl. vetur til að fara
yfir skýrslu Félagsvísindastofnunar
Háskóla íslands um launamismun
kynjanna hjá Akureyrarbæ og leita
nákvæmra skýringa á því hvers
vegna konur hjá bænum hafa lakari
heildarlaun en karlar hefur lagt fram
tillögur um framkvæmd til úrbóta.
Greinargerð starfshópsins var til
umræðu á fundi bæjarráðs í gær.
Starfshópurinn telur lykilinn að
réttlátri lausn sé að sama starfs-
matskerfi verði notað til að ákvarða
laun allra starfsmanna bæjarins.
Nýtt launamyndunarkerfi muni
verða prófsteinn á það hvort takist
að vinna sig út úr núverandi vanda
og hvort nýtt starfsmatskerfi nái
þeim markmiðum bæjarstjórnar
sem fram koma í starfsmannastefn-
unni. Náist þau markmið ekki í nýju
launamyndunarkerfi að jafna laun
karla og kvenna og breyta þeirri
stöðu sem nú er, verði ekki annað séð
en að taka verði upp persónubundna
ráðningarsamninga til að ná fram
markmiðum bæjarstjómar.
Rannsókn Félagsvísindastofnunar
náði til allra starfsmanna bæjarins
sem voru í reglubundnu starfi í febr-
úar og mars 1997, eða alls 1.137
starfsmanna. Æðstu yfirmönnum,
bæjarstjóra og sviðsstjórum var þó
sleppt. Starfshópurinn leggur til að
laun stjómenda hjá bænum verði
ákveðin af sérstakri kjaranefnd sem
skipuð verði af bæjarstjóm. Þessi
hópur verði eins víðtækur og lög
heimila. Kjaranefndin móti starfs-
reglur sem nota skal við launamynd-
un fyrir embættismannahópinn.
Starfshópurinn leggur m.a. til að
ákvörðuð verði ákveðin heildarlaun í
hveijum launaflokki en ekki greidd
föst yfirvinna og til þess ætlast af
þessum stjómendum að þeir sæki
íúndi og önnur tilfallandi stjómunar-
störf utan dagvinnutíma án þess að
sérstakar greiðslur komi fyrir. Að
öðra leyti verði yfirvinna greidd
samkvæmt tímamælingu.
Fáar konur í hæsta
launapíramídanum
Vinna starfshópsins leiddi í ljós að
mjög fáar konur fylla þann flokk
embættismanna hjá Akureyrarbæ
sem hæst sitja í launapíramídanum.
Þess vegna muni ofangreind tillaga
ná skammt sem jafnréttisaðgerð.
Þar sem nefndinni var falið að fara
ofan í saumana á launamisrétti kynj-
anna telur hún það hlutverk sitt að
benda á þá þætti í framkvæmd
launastefnu bæjarins sem hún telur
ekki í nægilega góðum farvegi eða í
samræmi við starfsmannastefnu
bæjarins.
I starfsmannastefnu bæjarins
kemur m.a. fram að bæjarstjóm vill
að laun taki mið af kröfum til starfs-
ins, hæfni, starfsmannsins og
frammistöðu í starfi og að unnt verði
að umbuna einstökum starfsmönn-
um með öðram hætti fyrir hæfni og
vinnuframlag. Jafnframt kemur
fram að bæjarstjóm vill að launakjör
laði að hæft starfsfólk og haldi því í
starfi. Laun hjá bænum taki mið af
launum á vinnumarkaði þannig að
starfsmenn njóti hliðstæðra kjara og
bjóðast í sambærilegum störfum
annars staðar.
Samkeppni við fijálsan
vinnumarkað tilviljanakennd
Þama telur starfshópurinn að sé
veruleg brotalöm þar sem sam-
keppni um vinnuafl við fijálsan
vinnumarkað sé mjög tilviljana-
kennd. Þannig hafi stéttir innan um-
önnunargeirans, sem að meginhluta
era skipaðar konum, litla eða enga
samkeppni á vinnumarkaðnum.
Þessar stéttir mennti sig nær ein-
göngu til að starfa fyrir ríki og sveit-
arfélög. Hvað varði skrifstofustörf
innan bæjarkerfisins sem að miklum
meirihluta séu unnin af konum þá sé,
að mati starfshópsins, engin tilraun
gerð til þess af hálfu bæjaryfirvalda
að rétta hlut þeirra eða nota saman-
burð á þeim stöfum við frjálsan
markað en aðeins stuðst við niður-
stöður starfsmats. Hins vegar pjóti
tæknimenntað fólk, að stærstum
hluta karlar, markaðsviðmiðunar.
Hér vanti tilfinnanlega samræmi í
framkvæmd launastefnu bæjaryfir-
valda sem bitni fyrst og fremst á
konum.
Akureyrarbær hefur falið launa-
nefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð
til kjarasamningagerðar fyrir sína
hönd og hefur því skuldbundið sig til
að hlíta samþykktum nefndarinnar
og þeim kjarasamningum sem launa-
nefndin gerir fyrir hönd bæjarins.
Breytingar, viðbætur og frávik
kjarasamnings á gildistíma hans séu
því óheimilar án samþykkis launa-
nefndar.
Ekki sérstök
kvenna- og karlastörf
Þrátt fyrir þessa ákvörðun bæjar-
stjórnar vill starfshópurinn mælast
til þess að fyrir næstu kjarasamn-
inga beiti bæjarstjórn Akureyrar sér
fyrir því við launanefnd sveitarfé-
laga, að við gerð nýs launamyndun-
arkerfis/starfsmatskerfis verði sér-
staklega tekið tillit til starfsmanna
sem skipa mikilvægar stöður í kerf-
inu, t.d. skrifstofu- og umönnunar-
störf, en konur sinna nær eingöngu
þessum störfum.
Þá leggur starfshópurinn áherslu
á að staða kynjanna verði jöfnuð og
að stuðlað verði að því að störf flokk-
ist ekki í sérstök kvenna- og karla-
störf. Raunhæfasta leiðin sé að laun
greiðist þannig fyrir hin ýmsu störf
að þau verði eftirsóknarverð fyrir
bæði kyn.
Starfshópinn skipuðu þau Sigurð-
ur J. Sigurðsson, Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir og Sigrún Stefánsdóttir.
A fundi sínum í gær fól bæjarráð
bæjarstjóra að hefja undirbúning að
framkvæmd tillagnanna. Jafnframt
tekur bæjarráð undir álit starfshóps-
ins er varðar komandi kjarasamn-
inga og fól formanni ráðsins að koma
sjónarmiðum bæjarins á framfæri
við launanefnd sveitarfélaga.
Æfíngar hafnar
á Gleðigjöfunum
FYRSTI samlestur
á fyrstu frum-
sýningu Leikfélags
Akureyrar á leikrit-
inu Gleðigjöfunum
eftir Neil Simon var
í vikunni og æfingar
þar með hafnar. Um
er að ræða gaman-
leik sem Gísli Rúnar
Jónsson hefur þýtt
og staðfært þannig
að nú gerist leikritið
á Akureyri á okkar
dögum, en það fjall-
ar um tvo menn sem vora þekktir
skemmtikraftar og skemmtu saman
í áratugi. Eitthvað slettist upp á vin-
skapinn, en til stendur að gera
sjónvarpsþátt um íslenska skemmti-
krafta og stóra spurningin snýst um
hvort þeir fáist til að skemmta sam-
an aftur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Leikarar í þessari sýningu era
Þráinn Karlsson, Skúli Gautason,
Aðalsteinn Bergdal og Sunna Borg.
Leikmynd og búninga gerir Hall-
mundur Kristinsson, Ingvar Björns-
son annast lýsingu en leikstjóri er
Saga Jónsdóttir. Framsýning er fyr-
irhuguð 20. október næstkomandi.
Árleg plastpokasala lionskvenna að hefjast
Barnadeild
FSAfærð
mjaltavél
að gjöf
KONUR í Lionsklúbbnum Ösp á
Akureyri afhentu barnadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
mjaltavél að gjöf í vikunni. Mjalta-
vél sem þessi er þykir mikið þarfa-
þing en hún er lánuð mæðrum sem
vilja mjólka handa sínum börnum
en geta ekki haft þau á brjósti af
ýmsu ástæðum. Mjaltavélar eru því
lánaðar mæðrum í mislangan ti'ma,
frá nokkrum vikum og upp í mán-
uði.
Lionsklúbburinn Ösp hefur á
undanförnum árum styrkt deildir
FSA, Heilsugæslustöðina á Akur-
eyri og lagt fé til uppbyggingar
endurhæfingarlaugar á Kristnesi.
Helsta fjáröflun Asparkvenna er
árleg plastpokasala á Akureyri og
er salan einmitt að hefjast þessa
dagana. Líkt og undanfarin ár hafa
klúbbfélagar leitað til bæjarbúa
Morgunblaðið/Kristján
vegna fjáröfiunar til líknarmála.
Söfnunarféð að þessu sinni mun
renna til deilda FS A og vímuvarna
og nú sem endranær vonast Aspar-
konur eftir góðum undirtektum hjá
bæjarbúum.
NÝNEMAR við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri vora vígðir inn í
samfélag hinna eldri í gær með
mikilli viðhöfn, en ekki er hægt
að segja að veðrið hafi leikið við
nemana, hrollkaldur haustdagur
með úrhellisrigninu. Hersingin
lagði upp frá höfuðstöðvunum við
Eyrarlandsholt sem leið lá niður
að gamla gagnfræðaskóla, en
þaðan ver haldið á lögreglustöð-
Busar
vígðir
una og komið við hjá sýslumanns-
embættinu og hafa nýnemarnir
vafalaust fengið viðeigandi
fræðslu á þessum viðkomustöð-
um. Bára nýnemar kröfuspjöld
þar sem áberandi áletranir sner-
ust um gildi þess að hækka aldur
þeirra sem fá bílpróf.
Eftir gönguferðina var haldið
heim þar sem tók við athöfn inn-
an dyra og þá var nýnemum boð-
ið upp á veitingar. Væntanlega
hefur þeim verið vel tekið eftir
hina hressandi gönguför um
bæinn.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Gaman á gæsluvellinum
ólafsfírði. Morgunblaðið.
ÞAÐ er alltaf gaman hjá bömunum þessi mynd var tekin af nokkrum
í leikskólanum í Ölafsfirði þar sem börnum að leik nú á dögunum.