Morgunblaðið - 08.09.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
Island
fyrir ís-
lenska rík-
isborgara?
Frá Þráni Stefánssyni:
JÓN NOKKUR Vigfússon, formað-
ur Félags íslenskra þjóðernissinna,
sem hlýtur að vera stjórnmálaafl ís-
lenskra öfgasinnaðra hægiimanna,
spyr í grein 5. september síðastliðinn
hvort Island sé fyrir Islendinga.
Þetta er náttúrulega mjög kjánaleg
spurning svo ekki sé meira sagt.
Eins og flestir vita eru flestir útlend-
ingar sem á íslandi starfa í einhverj-
um skítastörfum sem íslendingar
fást ekki í og þessvegna neyðast
margir atvinnurekendur til að ráða
útlendinga ellegar að loka fyrirtæk-
inu. Hvernig dettur þessum Jóni í
hug að hægt sé að banna atvinnu-
rekendum að flytja inn erlent vinnu-
afl, þetta eru svo kjánalegar vanga-
veltur. Nú er konan mín af erlendu
bergi brotin en er í dag íslenskur rík-
isborgari. Finnst Jóni hún hafa rétt á
vinnu eins og aðrir íslendingar eða
ætti að stoppa það líka þar sem hún
er ekki hvít á litinn? Það er nefnilega
stefna Félags íslenskra þjóðemis-
sinna, það sem þeir eru að segja er
Island fyrir hvita íslendinga. Þetta
eru öfgasamtök þar sem kynþátta-
hatur er efst á stefnuskránni. Það er
mín einlæg von að þetta félag nái
ekki að skjóta rótum hér á landi.
Hinsvegar er ég á móti lögbanni, því
eins og Jón segir er málfrelsi á Is-
landi sem betur fer en þá verður
málflutningur þeirra félaga að vera
innan skynsamlegra marka. En
hvort sem íslendingurinn er svartur,
gulur eða rauður er hann alveg jafn-
mikill íslendingur og Jón og félagar
hvort sem honum líkar betur eða
verr. Eða verður það kannski það
næsta hjá þjóðernissinnum að þeir
vilji að íslenskir ríkisborgarar af er-
lendum uppruna skili inn íslenska
vegabréfinu sínu? Spyr sá sem ekki
veit.
Að lokum: komið út úr torfkofun-
um, þjóðemissinnar, það er árið 2000
ekki 1000. Fólk ferðast á milli landa
og sest að á ólíklegustu stöðum, líka
litla íslandi. Eina sem útlendingar
gera okkur er gott, auðga menningu
okkar og víkka sjóndeildarhring
okkar. Lifum og njótum...
ÞRÁINN STEFÁNSSON,
Glaðheimum 14, Reykjavík.
Fingur
tannbursfi
sébécarÍ]
Barnavagnar
Hlíðasmára 17
s. 564 6610
4
www.mbl.is
Námskeið fyrir byrjendur og lengra komna í
sundlaug Kópavogshælis.
Nánari upplýsingar og skráning í símum 588 6652
og 861 5161.
Sæunn Gísladóttir, íþróttakennari.
QPIN KERFI HF.
Tilkynning v. rafrænnar skráningar hlutabréfa Opinna kerfa hf.
Hinn 9. október 2000 verða hlutabréf Opinna kerfa hf. tekin
til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf.
Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins
þann dag. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félagsins sem eru
útgefin á pappírsformi í samræmi við heimild í ákvæði til
bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997 um rafræna eignar-
skráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000 um breyting-
ar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráning-
ar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000 um rafræna eign-
arskráningu verðbréfa í verbréfamiðstöð.
Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkum vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært
í hlutaskrá Opinna kerfa hf., að staðreyna skráninguna með
fyrirspurn til skrifstofu Opinna kerfa hf. á Höfðabakka 9, 110
Reykjavík, fyrir nefndan dag. Ennffemur er skorað á þá sem
eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veð-
réttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings-
stofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki).
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings-
stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskrán-
ingu Islands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í fé-
laginu. Hluthöfum félagsins hefur einnig verið kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjóm Opinna kerfa hf.
, ELLE
Iþróttao^
ÍDAG
FÖSTUDAG
TILBOÐ
Buxur
+ 2 toppar
aðeins
5000 kr.
Öllum kaupum
á íþróttafatnaði fylgir
1 stakur tími í
World Class.
Korthafar
í World Class
fá 10% aukaafslátt.
NATAMA
TÍSKWÖRWVERSLWN
LAWQAVEQI 87
SÍMI 511 6665
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 2000 55
■jtastbeef
m998:
Steiktar
hakkabollur
^ 64a-4ob:
25% afsiáttur víð kassa
eðaiaris
Gordon blue
25% afsláttur við kassa
Steíktar _
beikonbollur
Bssa- 749:
125% afsláttur víð kassa
Opíð aiia daga til kl. 23:
Kiúkiingaliorgarar
2 stk. í pakka m/brauði
320,198=
d