Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA SIGURBJÖRT MAGNÚSDÓTTIR,
Vallarbraut 1,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju mánu-
daginn 30. október kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Guðmundur S. Halldórsson, Brynhildur R. Jónsdóttir,
Magnús Halldórsson,
Erlendur Þ. Halldórsson,
Gunnsteinn Halldórsson,
Sólveig A. Halldórsdóttir,
Halldór Halldórsson,
Hildur Árnadóttir,
Sesselja M. Blomsterberg,
Magnús H. Magnússon,
Sigríður Nini Hjaltested
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
iangamma,
ESTHER ÞORFINNSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 24. október, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. nóvember nk.
kl. 14.00.
Róbert Lauridsen,
Sigurður Dagsson,
Birgir Einarsson,
Gísli Einarsson,
Einar Emil Einarsson,
Emelía H. Einarsdóttir, Stefán M. Autrey,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigríður Magnúsdóttir,
Ragnheiður Lárusdóttir,
Hrafnhiidur Kristjánsdóttir,
Sigríður Gunnarsdóttir,
Sigurbjörg Ragnarsdóttir,
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
INGUNNAR KJARTANSDÓTTUR,
Flagbjarnarholti,
Landsveit.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks
Landspítala Hringbraut á deild 11E og líknardeildarinnar Kópavogi.
Teitur Kjartansson,
börn, tengdabörn,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
+
Kærar þakkir sendum við ykkur öllum, sem
sýndu okkur góðan hug og vináttu við andlát
og útför
VALGARÐS BJÖRNSSONAR,
Skagfirðingabraut 4,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 1 á
Sjúkrahúsinu Sauðárkróki.
Jakobína Valdimarsdóttir,
Kári Valgarðsson, Hulda Tómasdóttir,
Valgarð H. Valgarðsson, Valdís Skarphéðinsdóttir,
María Valgarðsdóttir, Guðmundur Gíslason,
Sverrir Valgarðsson, Karlotta Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð vináttu og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
EIRÍKS TÓMASSONAR
áður bónda í Miðdalskoti,
Torfholti 6,
Laugarvatni.
Guðrún Karlsdóttir,
Margrét Eiríksdóttir, Einar G. Friðgeirsson,
Karl Eiríksson, Margrét S. Lárusdóttir,
Ósk Eiríksdóttir, Haraldur R. Haraldsson,
Eiríkur Rúnar Eiríksson, Helga H. Sturlaugsdóttir
og barnabörn.
+ Svava Jónatans-
dóttir fæddist í
Dalsmynni í Eyja-
hreppi 15. septem-
ber 1912. Hún lést á
Vífílsstöðum 17.
október. Foreldrar
hennar voru Guðrún
Jónsdóttir og Jón-
atan Lífgjamsson.
Systkini sammæðra
eru Lárus Jónatans-
son, Úlfar Jónatans-
son, Sigríður Jóna-
tansdóttir, Ingibjörg
Jónatansdóttir og
Ragnar Jónatansson. Sammæðra
er Þórmóður Haukur Jónsson.
Dóttir Svövu er Tína Simmer-
mann. Dætur Tínu eru Svava
Elvarsdóttir og Sara Newton.
títfór Svövu fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Elsku amma mín.
Ég vona bara að þú vitir hvað mér
þykir vænt um þig og hve mikils virði
þú varst mér. Frá þvi ég fæddist
ólstu mig upp frekar sem dóttur en
sem barnabam. Þegar ég byrjaði í
skóla varst þú hætt að vinna þannig
að þú varst alltaf heima þegar ég
kom heim. Já amma mín, þú lést allt-
af þarfir annarra ganga fyrir þínum
eigin og það sem þú vildir mest af
öllu var að ég, mamma og Sara vær-
um hamingjusamar.
Ég held að þú hafir
aldrei neitað mér um
nokkurn hlut og þú
studdir mig í öllu sem
ég tók mér fyrir hend-
ur. En nú veit ég að þú
ert kominn á betri stað
þar sem sorg og sárindi
fyrirfinnast ekki og ég
veit að þar bíður þú
mín með opnum örm-
um daginn sem við hitt-
umst á ný. Ég þakka
guði á hverjum degi
fyrir að hafa gefið mér
svona góða og umhyggjusama ömmu
sem hafði svo góð áhrif á mig og alla
sem hana þekktu.
Hvfldu nú í friði, elsku amma mín.
Með eilífri ást,
Svava.
Með þessum örfáu orðum vil ég
minnast Svövu vinkonu minnar.
Leiðir okkar lágu saman fyrir 38 ár-
um eða árið 1962. Þá hafði hún dvalið
í Danmörku í 25 ár og fluttist hingað
heim með Tínu dóttur sína, þá sjö
ára gamla. Fljótlega eftir að hún
kom heim hóf hún störf í verslun Jó-
hannesar Norðfjörð sem var þá í
eigu Vilhelms Norðfjörð.
Þar unnum við saman í mjög mörg
ár og urðum við bestu vinkonur við
fyrstu kynni og bar aldrei skugga á
vinskap okkar. Svava var tryggur
vinur og vissi ég alltaf að ég gæti
treyst henni. Við fórum eitt sinn í
þriggja vikna ferð til Lignano á ítal-
íu og var það ógleymanleg ferð. Við
spiluðum bingó einu sinni í viku al-
veg þar til heilsa Svövu brást. Fyrir
tuttugu og tveimur árum eignaðist
Tína sína fyrri dóttir, Svövu, og var
það henni mikið gleðiefni að taka við
ömmuhlutverkinu. En fyrir níu árum
kom seinna barnabarn hennar í
heiminn, Sara , og bjuggu þær alltaf
allar saman.
I Danmörku eignaðist Svava mjög
góða vinkonu, Sus, og hefur þeirra
vinskapur verið mjög tryggur og fyr-
ir fjórum árum kom hún hingað til
Islands og bjuggu þær hér hjá mér í
vikutíma. Þetta var mjög góður og
skemmtilegur tími og fórum ég og
maðurinn minn með þær í margar
góðar dagsferðir. Það var mikið tal-
að og var það mér mikil ánægja að
geta gefið þeim tækifæri til að vera
saman.
Fljótlega eftir þetta fór astminn
að koma fram hjá Svövu og hefur
hún dvalið síðustu fjórtán mánuði að
Vífilsstöðum. Þar eignaðist hún enn
eina góða vinkonu, hana Hönnu, hún
og hennar fjölskylda styttu henni
margar stundirnar. Ekki má gleyma
systrum hennar sem komu til hennar
næstum daglega. En alltaf var hún
samt ánægðust þegar Tína kom með
dætur sínar í strætó alla leiðina úr
vesturbænum.
Ég og fjölskylda mín, vottum
Tínu, Svövu, Söru og systkinum
Svövu okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
IQördís Erla Pétursdóttir.
SVAVA
JÓNA TANSDÓTTIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu
okkur samúð við andlát og útför
GUÐJÓNS INGA SVERRISSONAR
prentara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Kristnesspítala
Akureyri.
Ófeigur Jóhann Guðjónsson,
Ingunn Anna Guðjónsdóttir,
Jónína Guðjónsdóttir, Benny Jensen,
Ingunn S. Guðmundsdóttir, Guðjón E. Long,
Hrafnhildur Helgadóttir, Georg Guðjónsson
og systkini.
Guðný Helgadóttir, Pétur Jónasson,
Björg Helgadóttir, Þráinn Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega hluttekningu við fráfall og útför
BJARNA EINARSSONAR,
Háaleitisbraut 109,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og Líknar-
deildar Landspítalans.
Sigrún Hermannsdóttir,
Guðný, Einar, Stefanía Sigríður, Hermann, Guðríður,
tengdabörn, barnabörn.
Birting
afmælis-
ogminn-
ingar-
greina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á
ritstjórn blaðsins í Kringlunni
1, Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is).
Nauðsynlegt er, að símanúm-
er höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakl-
ing birtist formáli, ein uppi-
stöðugrein af hæfilegri lengd,
en aðrar greinar um sama
einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við með-
allínubil og hæfilega línu-
lengd, - eða 2.200 slög (um 25
dálksentimetra í blaðinu). Til-
vitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú
erindi. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára og eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um
fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í
textameðferð og kemur í veg
fyrir tvíverknað. Auðveldust
er móttaka svokallaðra
ASCII-skróa sem í daglegu
tali eru nefndar DOS-texta-
skrár. Þá eru ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect einnig
auðveld í úrvinnslu.