Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Mbl/Berglind H. Helgadóttir
Úthlutað úr Verkefnasjóði Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar
Styrkur til tilraunareksturs
tveggja hæða strætisvagns
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Skilorð
vegna
líkams-
árásar
KARLMAÐUR á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í
tveggja mánaða fangelsi skil-
orðsbundið til þriggja ára fyrir
líkamsárás.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa í september á síðasta
ári slegið mann hnefahögg í
andlitið þannig að hann meidd-
ist nokkuð. Atburðurinn var á
snyrtingu á veitingastaðnum
Kaffi Akureyri. Maðurinn við-
urkenndi brot sitt fyrir dómi
og þá kom þar fram iíka að
samkomuiag hefði orðið milli
hans og brotaþola að maður-
inn greiddi honum tæplega 80
þúsund krónur í skaðabætur.
Spurninga-
keppni
Baldursbrár
HIN árlega spumingakeppni Kven-
félagsins Baldursbrár hefst í kvöld,
föstudagskvöldið 17. október, kl.
20.30. í safnaðarsal Glerárkirkju.
Aðgangseyrir er 600 krónur og
gildir sem happdrættismiði.
Allur ágóði rennur til söfnunar
fyrir steindan glugga í Glerár-
kirkju.
FJÓRÐU úthlutun úr Verkefna-
sjóði Atvinnuþróunarfélags Eyja-
fjarðar er lokið. Að þessu sinni
bárust 19 umsóknir að upphæð 8
milljónir króna en til ráðstöfunar
voru rúmar 2,8 milljónir króna. At-
vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
hefur verið þátttakandi í verkefni
því sem Flugleiðir og Flugfélag ís-
lands hafa sett í gang um aukn-
ingu ferðamanna til Norðurlands
utan hefðbundins ferðamannatíma
og bera styrkveitingar að þessu
sinni nokkurn keim af því.
Má þar nefna að Sérleyfisbílar
Akureyrar fengu 350 þúsund
króna styrk til innflutnings og
reksturs á tveggja hæða strætis-
vagni sem nota á til kynnisferða
um bæinn. Sportferðir á Akureyri
fengu hálfa milljón króna í styrk
til þróunar á hvataferðum, fram-
leiðslu kynningarefnis og þátttöku
ÓVENJUMIKILL útflutningur
hefur verið á fersku kjöti til Banda-
ríkjanna á vegum Norðlenska, fé-
iags sem varð til fyrr á árinu með
samruna Kjötiðnaðarsviðs KEA og
Kjötiðjunnar á Húsavík nú þessa
fyrstu sláturtíð félagsins. Útflutn-
ingurinn hefur skilað hærra verði til
bænda en áður hefur fengist. Kjöt-
inu er pakkað í neytendaumbúðir og
hafa um 10 manns starfað við þetta
verkefni.
Norðlenska ákvað að greiða
bændum sem skipta við félagið
hærra verð fyrir útflutning en áður
hafði verið ákveðið, eða 175 kr. á
í sýningum. Pólar-hestar í Grýtu-
bakkahreppi fengu 250 þúsund
króna styrk til reksturs hestaleigu
og flutnings ferðamanna og Ævar
og Bóast sf. á Dalvík fengu 150
þúsund króna styrk til aukaferða
um Eyjafjörð á laugardögum með
ferðamenn.
Þrír aðilar fengu styrk vegna
nýsköpunar. Björgvin Björgvins-
son í Ólafsfirði, kr. 400 þúsund til
gerðar viðskiptaáætlunar vegna
hönnunar og framleiðslu á rafli
sem koma á í stað einnota raf-
hlaðna í höfuðlínumælum sem not-
aðir eru við togveiðar og verður
knúinn áfram á toghraða skips.
Asgeir E. Guðnason á Akureyri,
kr. 400 þúsund til gerðar við-
skiptaáætlunar vegna fyrirhugaðs
sæeyrueldis á Hauganesi og Guð-
mundur Karlsson Akureyri, kr.
100 þúsund til frekari þróunar á
hvert kg. Sláturtíðin hefur gengið
vel, en öll sauðfjárslátrun var færð
til Húsavíkur. Hefðbundinni slátur-
tíð lýkur í lok þessa mánaðar en alls
verður slátrað tæplega 60 þúsund
dilkum og 6 þúsund ám. Meðal-
þyngd dilka er 15,26 kílógrömm.
Breytingar voru gerðar á slátur-
línunni í haust en það hafði í för með
sér að vinnan varð léttari og færra
fólk þurfti við slátrunina. Mann-
skapur hefur að sögn forsvars-
manna Norðlenska verið einstak-
lega góður og á það ekki hvað
minnstan þátt í hversu vel hefúr
gengið. Afkastabónus var hækkaður
aðferð til að fullnýta lax- og sil-
ungsafskurð til mamingsgerðar og
sem hráefni í salat.
44 verkefni fengið styrk
Frá því að Verkefnasjóður AFE
hóf starfsemi sína í ársbyrjun 1999
hefur sjóðurinn fengið 68 umsókn-
ir. Af þeim hafa 44 verkefni fengið
styrk í fjórum úthlutunum að fjár-
hæð rúmar 10 milljónir króna. Að
auki hefur sjóðurinn komið að
nokkrum umsóknum sem synjað
var vegna þes að verkefnin féllu
ekki innan þess ramma sem sjóðn-
um er ætlað að að vinna eftir. Hef-
ur þá verið gerður þjónustusamn-
ingur við viðkomandi umsækjanda
um aðgang að verkefni hans eða
samning um samstarfsverkefni.
Verkefnasjóður hefur á þann hátt
styrkt óbeint fjögur verkefni, sam-
tals að fjárhæð 1,7 milljónir króna.
í haust og það ásamt auknum af-
köstum hefur bætt kjör starfsfólks-
ins. Um 60 manns hafa að jafnaði
starfað við slátrunina, þar af um 10
til 15 útlendingar.
Norðlenska bauð flutning á slát-
urfé út sl. sumar og borga innleggj-
endur fast verð fyrir hvert kg. Til
flutninganna eru notaðir bílar með
sérsmíðuðum 240 dilka flutnings-
kössum á tveimur hæðum og hefur í
stærstum dráttum verið góð reynsla
af þessu fyrirkomulagi. Farið verð-
ur yfir reynsluna af flutningunum í
lok sláturtíðar svo að gera megi
breytingar til batnaðar.
Haust á
Akureyri
AKUREYRARBÆR skartar sínu
fegursta á stitltum haustdögum
sem þessum þegar roðagylltir
haustlitirnir varpa ævintýraleg-
um bjarma á náttúruna sem senn
leggst í dvala yfír köldustu vetr-
armánuðina.
-----f-4-*----
Vilja þátttöku
í Staðardag*-
skrá21
SVEITARST JÓRN Eyjafjarðar-
sveitar hefur beint þeim tilmælum til
Héraðsnefndar Eyjafjarðar að hún
kanni áhuga allra sveitarfélaga við
Eyjafjörð fyrir sameiginlegri þátt-
töku í „Staðardagskrá 21“ og að ráð-
inn verði sérstakur starfsmaður til
að fylgja verkefninu eftir og stjóma
því.
Fram kemur í greinargerð með
ályktun þessa efnis að með hliðsjón
af umræðum um framtíð Eyjafjarð-
arsvæðisins, vöxt þess og viðgang
gæti virk þátttaka allra sveitarfélag-
anna í Staðardagskrá 21 verið
áhugavert sóknarfæri.
--------------
Ráðstefna
um þjónustu
í heima-
byggð
ÞROSKAHJÁLP á Norðurlandi
eystra heldur ráðstefnu á Fosshótel
KEA dagana 27. og 28. október
næstkomandi og er hún haldin í
samvinnu við félagssvið Akureyrar-
bæjar.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
þjónustu í heimabyggð, framtíðar-
sýn í skóla og búsetumálum fatl-
aðra, frá sjónarhóli ráðamanna, for-
eldra, aðstandenda og þeirra sem
vinna með fötluðum. Ráðstefnan er
öllum opin og eru foreldrar ungra
fatlaðra barna sérstaklega hvattir
til að koma og kynna sér hvaða
þjónustu bæjarfélagið býður upp á.
-----HH-------
Fleiri 30
km hverfi
ákveðin
UMHVERFISRÁÐ Akureyrar-
bæjar samþykkti á fundi sínum í
vikunni, að leggja til að farið verði í
aðgerðir við 30 km hverfi í Hlíða-
hverfi, Gerðahverfi I og Holta-
hverfi á næsta ári. Áætlaður kostn-
aður við framkvæmdimar er um 14
milljónir króna.
Fyrr í mánuðinum var bæjaryfir-
völdum á Akureyri afhentur undir-
skriftalisti með nöfnum 119 íbúa í
Holtahverfi, þ.e. Þverholti, Lang-
holti, Einholti og Hraunholti, þar
sem farið var fram á að bæjaryfir-
völd breyti Holtahverfi í 30 km
hverfi sem allra fyrst. íbúarnir
bentu á í bréfi sínu að umferðar-
hraði við þessar götur sé mikill og
þar sem fjöldi bama sé í hverfinu
geti skapast þar mikil slysahætta.
Kirkjustarf
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirlguskóli í Grenivíkurkirkju
28. október kl. 13.30. Kyrrð-
arstund í Grenivíkurkirkju kl.
21 á sunnudagskvöld, 29.
október. Kirkjuskóli verður í
Svalbarðskirkju á morgun,
laugard., kl. 11.
Sláturtíð fer senn að ljúka hjá Norðlenska
Óvenjumikill útflutn-
ingur á fersku kjöti