Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 67
FRÉTTIR
Einn eigendanna, Helga Björg Jónasardóttir, í versluninni.
Nýtt kertagallerí
í Vesturbænum
Fyrirlestur um
lækningasögu
Matsáætiun
Búðarháls-
virkjunar
kynnt
SKIPULAGSSTOFNUN hefur bor-
i ist tillaga Landsvirkjunar að mats-
áætlun vegna mats á umhverfisáhrif-
um Búðarhálsvirkjunar, allt að 12
MW og 220 kV Búðarhálslínu 1. Allir
geta kynnt sér tillöguna og lagt fram
athugasemdir.
Hægt er að óska eftir eintökum af
tillögunni hjá Skipulagsstofnun,
Laugavegi 166 í Reykjavík. Tillagan
er aðgengileg á heimasíðum Lands-
virkjunar og Skipulagsstofnunar:
http:/Avww.lv.is og http://www.skipu-
lag.is. Athugasemdir skulu vera
skriflegar og berast eigi síðar en 6.
nóvember 2000 til Skipulagsstofnun-
ar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Þar fást ennfremur nánari upplýs-
ingar um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur leitað um-
sagnar Asahrepps, Djúpárhrepps,
Holta- og Landsveitar, Gnúpverja-
hrepps, Náttúruvemdar rfldsins,
Ferðamálaráðs, Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands, iðnaðar- og viðskipta-
ráðuneytisins, Landgræðslu rfldsins,
Orkustofiiunar, Vegagerðarinnar,
U veiðimálastjóra, Þjóðminjasafns ís-
lands og samvinnunefndar miðhá-
lendis. Akvörðun Skipulagsstofnun-
ar um tillögu framkvæmdaraðila að
matsáætlun mun liggja fyrir 20. nóv-
ember 2000.
VAXANDI EHF. opnaði um síð-
ustu mánaðamót verslun í Vestur-
bænum. Verslunin er á Hring-
braut 119 í Reykjavík (JL-húsinu).
Vaxandi er kertagerð og sér-
verslun með kerti, listmuni, gjafa-
vörur og kertagerðarvörur. Eig-
endur eru Helga Björg
Jónasardóttir, Ásta Margrét Þór-
hallsdóttir, Viðar Garðarsson og
Jóhannes Már Jóhannesson.
Vaxandi framleiðir hágæða-
kerti í miklu úrvali og býður þá
þjónustu að sérhanna og fram-
leiða kerti að ósk viðskiptavina,
segir í fréttatilkynningu. Nám-
skeið eru í boði fyrir einstaklinga
og hópa til að læra undirstöðuat-
riðin í kertagerð. Tilvalið er fyrir
vinnustaðahópa og saumaklúbba
að bóka námskeið eina kvöldst-
und.
Gallerí Veggur er starfrækt í
versluninni. Myndlistarmaður
mánaðarins er að þessu sinni Sig-
urður Árni Sigurðsson.
FYRIRLESTUR, sem nefnist
„Scientific Biography as a Genre in
Medical History“ verður haldinn
laugardaginn 28. október kl. 10.30 í
fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðunnar
á vegum Félags áhugamanna um
sögu læknisfræðinnar. Fyrirlesari
er Thomas Söderqvist, prófessor í
lækningasögu við Kaupmannahafn-
arháskóla.
, Fyrirlesturinn er kenndur við
Egil Snorrason, (1915-1996). Egill
var danskur læknir, en af Islend-
ingum kominn í föðurætt. Hann
var einn af fremstu vísindamönn-
um Norðurlanda á sviði lækninga-
sögu. Árið 1981 stofnaði danskur
lyfjafræðingur, Povl M. Assens,
sjóð, sem skyldi til heiðurs Agli
Snorrasyni kosta árlegan fyrirlest-
ur á íslandi um lækningasögu. Allt
frá árinu 1982 hafa fyrirlesarar frá
Norðurlöndum haldið Egils
Snorrasonar fyrirlestra á vegum
Félags áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar og nú er boðið til
19. Egils Snorrasonar fyrirlestrar-
ins.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦
Trésmíðaverkstæði
til
Gott verkstæði við Drangahraun í
Hafnarfirði til sölu ásamt 200
fm húsnæði, góðum tækjum,
búnaði og viðskiptasam-
böndum. Útborgun
aðeins 4,0 milij.
ÁRSAUCT
FASTEIGMASALA
Ugrrtto S - T. twð - nayfcjMfc
533 4200
FAX 533 4206
♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦ Ársalir- fasteignamiðlun ♦
j
Enn vantar 900
sjálfboðaliða
ENN vantar um 900 sjálfboða-
liða til að Ganga til góðs í Lands-
söfnun Rauða krossins gegn al-
næmi. Einkum vantar fólk af
höfuðborgarsvæðinu, meðal ann-
ars til að ganga í Grafarvogi,
Breiðholti og Seltjarnarnesi.
Þegar hafa um 1.100 manns
boðist til að ganga í hús á laug-
ardag, en takmarkið er að ná í
hvert einasta hús á landinu og
safna 20 milljónum króna til
átaks gegn alnæmisplágunni í
Afríku. Um 24 milljónir Afríku-
búa eru sýktar og 12 milljónir
barna munaðarlausar.
Mikil þörf er á umönnun þessa
fólks og fræðslu til þess að koma
í veg fyrir að faraldurinn haldi
áfram að breiðast út.
Þeir sem vilja skrá sig til
göngunnar geta gert það á
www.redcross.is og með því að
hringja í 570 4000.
Fyrirlestur um tvær sigurskákir
Heimsmeistaramótsfararnir Dagur
Arngrímsson og Guðmundur Kjart-
ansson mæta á unglingaæfingu hjá
Taflfélagi Reykjavíkur laugardaginn
28. október og skýra tvær sigurskák-
ir frá heimsmeistaramóti barna og
unglinga sem er nýlokið á Spáni.
Hefst dagskráin stundvíslega kl.
14 og að henni lokinni hefst síðan
venjubundin skákæfmg fyrir börn og
unglinga 14 ára og yngri. Fyrirlest-
urinn verður haldinn í félagsheimili
Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12,
og er opinn öllum en skákæfingar
TR eru fyrir börn og unglinga 14 ára
ogyngri.
Cartíse
Hamraborq 1
Ný sending
Glæsilegir
árshátíðarkjólar,
dragtir og dress
Glitrandi
jakkar
Ótrúlegt verö
- lágmarks
álagning
Cartíse
Hamraborg 1, Garðarsbraut 15, Húsavík,
sími 554 6996. sími 464 2450.
Slúu)
EFtm .
booT Af
uie
Stórfelld hætta stafar af
glerbrotum eftir helgarskemmtan
borgarbúa. Starfsmenn í
hreinsunardeild borgarinnar gera
sitt besta við að hreinsa áður en
borgin vaknar. En nú hafa
skemmtistaðir opið lengur svo
þetta næst ekki alltaf. Börnin fara
snemma á kreik og eru í mestri
hættu á að meiða sig á brotunum.
Hugsaðu áður en þú hendir.
fBorgarstjórinn í Reykjavík
Hreinsunardeild Gatnamálastjóra
LÁTTU EKKI MTT
EFTIR LIGGJA