Morgunblaðið - 27.10.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000 59
okkur verði sköpuð sú grundvallar-
aðstaða sem okkur er nauðsynleg til
að geta stundað nám okkar með
sómasamlegum hætti. Við viljum
t.d. geta treyst því að fá að sitja við
borð í kennslustundum, að við þurf-
um ekki að mæta löngu fyrir
kennslustundir til að sjá örugglega
á glærur kennarans og að við þurf-
um ekki að horfa upp á ókláruð verk
eins og Nátturufræðahúsið í mörg
ár á meðan nemendum fjölgar ört.
Fjárveitingar
Helsta forgangsmál
Háskólans
Rektor Háskóla íslands hefur
lýst því yfir að helsta forgangsmál
Háskóla íslands sé að ljúka bygg-
ingu Náttúrufræðahússins. Við
stúdentar erum sammála rektor og
bendum á nauðsyn þess að ríkið
komi í auknum mæli að bygginga-
framkvæmdum. Það er kominn tími
til að ráðamenn verði við óskunum
og veiti Háskólanum raunhæfan
möguleika á að vinna sig út úr þeim
aðstöðuvanda sem hann býr nú við.
Höfundur situr í Stúdentaráði og
háskólaráði fyrir Röskvu.
Peysur
IÁF&
Ilucmn/i
5T (LL
Neöst á Skólavörðustíg
Við kynnum THER-A-PEDIC, bandarískar
heilsudýnur, sem unnið hafa til margra
verðlauna fyrir hönnun og gæði.
Komdu og leggðu þig!
FIMMTUDAGINN
19. október hélt Stúd-
entaráð upp á 80 ára
afmæli sitt. I tilefni
dagsins skiluðu for-
svarsmenn Stúdentar-
áðs á þriðja þúsund
póstkortum til
menntamálaráðherra
þar sem stúdentar
skora á ráðherra að
beita sér fyrir því á Al-
þingi að samþykkt
verði aukafjárveiting
til byggingafram-
kvæmda við Háskóla
Islands.
Mikil þátttaka
stúdenta
Hin mikla þátttaka stúdenta í
póstkortaherferðinni, hin góða
mæting þeirra á málþingið sem
fram fór í Náttúrufræðahúsinu og
hin mikla áhersla Stúdentaráðs á
auknar fjárveitingar til bygginga-
framkvæmda sýna að stúdentar
hafa fengið nóg af aðstöðuleysinu
við skólann. Það er augljóst að sú
stefna, að Háskólinn standi nánast
alfarið undir byggingaframkvæmd-
um sínum sjálfur, gengur ekki til
frambúðar. Á meðan nemendum
hefur fjölgað ört hefur nánast ekk-
ert miðað í byggingaframkvæmdum
og aðstöðuleysið verður sífellt al-
varlegra.
Framlögin dropi í hafið
Náttúrufræðahúsið í Vatnsmýr-
inni hefur nú þegar verið tæplega 5
ár í byggingu. Á þeim tíma hefur
nemendum fjölgað um u.þ.b. 1000
manns. Ekki er endalaust unnt að
koma öllum nemendum fyrir í þeim
byggingum sem fyrir eru, þrátt fyr-
ir góðan vilja og viðleitni. Frekari
uppbyggingar er þörf. Enn vantar
hinsvegar 900 milíjónir til að Ijúka
Náttúrufræðahúsinu. Þær 30 millj-
ónir sem fjárlagafrumvarpið gerir
ráð fyrir eru einungis dropi í hafið
og fniðað við það mun taka mörg ár
í viðbót að ljúka húsinu. Þessa upp-
hæð verður að hækka ef Háskólan-
um á að vera mögulegt að takast á
við þann aðstöðuvanda sem hann
býrvið.
Frekari upp-
bygging
nauðsynleg
Náttúrufræðahúsið
eitt sér leysir hinsveg-
ar ekki öll vandamál
Háskólans, heldur
þarf frekari uppbygg-
ing aðeiga sér stað. Því
er mikilvægt að horft
verði til framtíðar þeg-
ar aðkoma ríkisins að
byggingaframkvæmd-
um við Háskóla ís-
lands verður rædd.
Nauðsynlegt er að
þeirri aðkomu verði
komið í fastan og reglulegan farveg
þannig að Háskólinn geti gert ráð
fyrir þátttöku ríkisins þegar fram-
tíðaruppbygging er skipulögð.
Næstu byggingar þurfa að taka mið
af hagkvæmni og skynsemi og verð-
Háskóli íslands
Við stúdentar, segir
Dagný Jónsdóttir, bíð-
um spenntir eftir við-
brögðum menntamála-
ráðherra og annarra
ráðamanna við áskorun
okkar.
ur það ekki síst okkar stúdenta að
beita okkur fyrir því að svo megi
verða.
Biðjum um
grundvallaraðstöðu
Stúdentar hafa nú með áþreifan-
legum hætti komið þeim kröfum
sínum á framfæri að framlög ríkis;
ins til byggingaframkvæmda við HI
verði hækkuð. Við bíðum spennt
eftir viðbrögðum menntamálaráð-
herra og annarra ráðamanna og
vonum að tiilit verði tekið til óska
okkar þegar fjárlagafrumvarpið
kemur aftur til kasta Alþingis. Við
erum ekki að biðja um lúxus eða
leðurstóla. Við erum að biðja um að
V'.-
Dagný
Jónsdóttir
EFTIR BREYTINGAR
STÆRRI VERSLUN
Á SAMA STAÐ
í Kringlunni
I TILEFNl DAGSINS FÁ ALLIR
VIÐSKIPTAVINIR OKKAR GLAÐNING
Othebodyshop
KRINGLUNNI • S í M I 588 7299