Morgunblaðið - 03.11.2000, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið / Rax
Friðrik Þór ávarpar gesti við upphaf kvikmyndahátíðarinnar í Bombay.
Friðrik Pór boðið
að gera kvikmynd
á Indlandi
Delhí. Morgnnblaðið.
Forsvarsmenn Grundar funda með heimilisfólki
Grund verður ekki lokað
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíðarsalur Grundar var þéttsetinn á fundi um daggjaldamálið í gær.
FRIÐRIK Þór Friðrikssyni var í
gær boðið að gera kvikmynd í
stærsta kvikmyndaveri heims, Film
City við borgina Bombay á Indlandi,
og kveðst hann reikna með að af því
verði á næstu tveimur árum. Friðrik
Þór fundaði með forráðamönnum
Film City í gærmorgun og buðu þeir
honum þá að gera mynd á staðnum,
sem hann segir hafa komið
skemmtilega á óvart, auk þess sem
þeir lýstu því yfir að þeir vildu fjár-
magna myndina. Jafnvel verða ein-
göngu indverskir leikarar í henni.
„Þeir vilja endilega að ég geri
mynd þarna. Þeir horfðu á Böm
náttúrunnar í gær og sögðust hafa
verið mjög hrifnir af henni," sagði
Friðrik Þór í samtali við Morgun-
blaðið en hann er í fylgdarliði Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Is-
lands, í opinberri heimsókn hans til
Indlands. Friðrik segist í mörg ár
hafa verið mjög hrifinn af dans- og
söngvamyndum, hann hefur lengi
dreymt um að gera eina slíka - og
segir að nú sé tækifærið komið. Það
verði slík mynd sem hann geri í
Bollywood, eins og kvikmyndaverið
í Bombay hefur lengi verið kaliað,
til samanburðar við Hollywood í
Bandarikjunum. Nú mun kvik-
myndaverið við indversku borgina
reyndar vera kailað Mollywood eft-
ir að heimamenn tóku upp á því að
kalla hana Mumbai!
Mikil hefð er á Indlandi fyrir
dans- og söngvamyndum og eru
LJÓSAHÁTÍÐIN Ljósin í norðri
verður sett við gömlu Rafstöðina í
Elliðaárdalnum í Reykjavík í dag kl.
17.30 og stendur fram á mánudags-
kvöld. Þar virkja listamenn frá nor-
rænu menningarborgunum þremur,
Helsinki, Bergen og Reykjavík, sam-
spil ljóss og myrkurs víðs vegar um
borgina.
Ljósin í norðri er fyrsta hátíð sinn-
ar tegundar sem haldin hefur verið
hér á landi en hún á rætur að rekja
til Helsinki, þar sem um nokkurra
ára skeið hefur verið efnt til mikillar
þær í miklum meirililuta þeirra 850
kvikmynda sem framleiddar eru í
landinu árlega. Þar af eru um 700
framleiddar í Film City.
Heillaður af landinu
Friðrik Þór segist vera með hug-
mynd að dans- og söngvamynd en
alveg eigi eftir að útfæra hana. Auk
þess þurfi hann að gera eina kvik-
mynd næsta sumar, jafnvel tvær,
þannig að hann hafi ekki tíma strax
tif að snúa sér að umræddri mynd
sem hann muni gera á Indfandi.
Hann segist mjög spenntur fyrir
því að gera kvikmynd á Indlandi.
„Eg er mjög heillaður af þessu
landi. Ogþað var ævintýri líkast að
koma inn í þetta kvikmyndaver;
nánast eins og að ganga inn á bygg-
ingasvæði pýramídanna í Egypta-
landi. Þarna var verið að byggja svo
rosalega stórai- leikmyndir. 550
manns voru að vinna við að byggja
þær og annað eins við leikmuni.
Friðrik Þór og Anna María Karls-
dóttir, eiginkona hans, sögðu fítið
hafa verið um að vera í Film City í
gær miðað við það sem oft gerist.
Ekki voru „nema“ 20 litlar kvik-
myndir í vinnslu í gær en þar sé
gjarnan unnið við 25 stórmyndir
daglega þegar mest er um að vera.
Nokkrar myndir Friðriks Þórs
eru sýndar á íslenskri kvikmynda-
hátíð sem haldin er bæði í Delhí og
Bombay í tengslum við hcimsókn
Ólafs Ragnars.
ljósahátíðar í svartasta skammdeg-
inu. Orkuveita Reykjavíkur, Nor-
ræna húsið, Listaháskóli íslands og
Leikfélag Reykjavíkur hafa tekið
höndum saman um að gera hátíðina
að veruleika en hún er einnig styrkt
af Norræna menningarsjóðnum.
Verkefnisstjóri er Hanna Styrmis-
dóttir. Miðstöð hátíðarinnar verður
Norræna húsið og miðbærinn en hún
mun einnig teygja anga sína í Elliða-
árdal, Grafarvog og víðar.
■ Ljósin í norðri/32
FJÖLMENNUR fundur heimilis-
fólks Elli- og hjúkrunarheimilisins
Grundar, aðstandenda þess og
starfsfólks samþykkti í gær álykt-
un þar sem skorað var á heilbrigð-
isráðuneytið að falla frá málsókn á
hendur Grund. Eins og kunnugt er
hefur ráðuneytið höfðað málið
vegna ágreinings um daggjalda-
greiðslur. Lýsti fundurinn jafn-
framt yfir stuðningi við forsvars-
menn Grundar í baráttu þeirra
fyrir hærri daggjaldagreiðslum frá
ríkinu.
Um 150 manns voru á fundinum
sem haldinn var í hátíðarsal
Grundar í gær en að sögn Guð-
mundar Óskars Ólafssonar, stjórn-
arformanns Grundar, var tilgang-
ur fundarins að upplýsa starfs-
menn, heimilisfólk og aðstand-
endur þeirra um málavexti
daggjaldamálsins. Kom fram í máli
hans sem og fleiri forsvarsmanna
Grundar að ágreiningurinn við
heilbrigðisyfii’völd þýddi þó ekki
að til stæði að loka Grund eins og
heimilisfólk og aðstandendur
þeirra hefðu óttast undanfarnar
vikur. Yrði niðurstaða málsins
ÁKVÖRÐUN um að vísa til dóm-
stóla deilu heilbrigðisráðuneytis og
Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund-
ar, um hvort gerðardómur geti
hnekkt ákvörðun ráðherra um dag-
gjöld, var tekin af ráðherra í samráði
við embættismenn ráðuneytisins, að
því er kemur fram í yfirlýsingu frá
ráðuneytinu í gær.
Þá segir í yfirlýsingunni, sem heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
ið gefur út af gefnu tilefni í leiðara
Morgunblaðsins í gær um málefni
Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund-
ar, að varðandi þá fullyrðingu sem
fram komi í leiðaranum, að Hæsti-
réttur hafí með tilnefningu sinni tek-
ið þá afstöðu að gerðardómurinn
væri bær til þess að taka ákvörðun
um daggjöld, bendi ráðuneytið á að
skrifstofustjóri Hæstaréttar hafi
þvert á móti í tölvupósti til ráðuneyt-
isins tekið eftirfarandi fram: „Rétt-
urinn telur sig ekki með neinu móti
vera að taka afstöðu til þess hvort
gerðardómurinn eigi úrlausnarvald
um ágreiningsefnið eða ekki með
skipun í gerðardóminn.“
Fjárveitingavaldið
til gerðardóms?
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytis-
stjóri heilbrigðisráðuneytisins, segir
í samtali við Morgunblaðið að ráð-
herra taki ár hvert ákvörðun um
daggjaldataxta sem taki mið af þeim
fjárveitingum sem Alþingi ákveði við
afgreiðslu fjárlaga. Því snúist fyrr-
greint dómsmál um það hvort Al-
Grund í óhag þýddi það lakara við-
hald en ella, frestun ýmissa fram-
kvæmda og rýrnun varasjóða. Það
myndi hins vegar ekki koma niður
á þjónustu við heimilismenn.
I máli Júlíusar Rafnssonar,
framkvæmdastjóra Grundar, kom
m.a. fram að Grund þyrfti hærri
daggjöld, m.a. til að geta búið
heimilismönnum þá aðstöðu sem
krafist væri í nútímasamfélagi. En
þingi og ráðherra eða gerðardómur
eigi að ákveða fjárveitingar
daggjaldastofnana. Segir Davíð úti-
lokað að gerðardómi verði fengið það
fjárveitingavald sem Alþingi hafi í
dag, það hlyti að leiða til þess að
stofnanir færu gerðardómsleið ef
þær myndu ekki una við fjárveiting-
ar sínar. Þar með væri búið að flytja
fjárveitingavaldið frá Alþingi til
gerðardóms.
Viðbótarfjárveitingar
til að nájöfnuði
Elliheimilið Grund og stofnunin
Ás/Ásbyrgi í Hveragerði fá eins og
allmargar aðrar stofnanir sérstaka
fjárveitingu á þessu ári til að ná jafn-
vægi í rekstrinum. Ákvörðun um
þetta var tekin í lok síðasta árs þegar
fjárlaganefnd fól Ríkisendurskoðun
að fara ofan í rekstui- heilbrigðis-
stofnana og meta hversu mikið fjár-
magn vantaði í reksturinn til að jöfn-
uði yrði náð. Samtals fá Grund og
Ás/Ásbyrgi 51,8 milljónir króna. I
framhaldi af þessu voru daggjöld
Grundar hækkuð í byrjun þessa árs
um 15% og eru þau nú 8.580 kr. en
voru á síðasta ári 7.481 kr. Þau eru
nú hin sömu og á Hrafnistu í Reykja-
vík.
Hjúkrunarheimili fá greidd dag-
gjöld samkvæmt hjúkrunarþyngd
sem reiknuð er út eftir svonefndum
RAI-stuðli einu sinni til tvisvar á ári.
Samkvæmt upplýsingum ráðu-
neytisins fékk Grund um síðustu
áramót einnig 28 milljónir króna
til þess að svo gæti orðið þyrfti
verulegt fé til endurbóta á bygg-
ingum Grundar. Greindi hann enn-
fremur frá því að Grund hefði
löngum staðið í deilum við heil-
brigðisyfirvöld um dag-
gjaldagreiðslur og sagði að Grund
fengi mun minna með hverjum
heimilismanni en þær hjúkrunar-
stofnanir sem væru á föstum fjár-
lögum.
vegna halla árið 1999 og á þessu ári
hefur Grund fengið sérstaka leið-
réttingu, 24 milljónir króna, vegna
launabreytinga auk 15% hækkunar
daggjalda sem áður er getið. Sam-
tals eru því fjárveitingar til Gi-undar
og Áss/Ásbyrgis, umfram daggjöld á
árinu, 103,8 milljónir ki'óna.
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri
Interpol
ALLSHERJARÞING Interpol,
sem haldið er á eynni Ródos,
kaus í gær Ronald Noble sem
nýjan íramkvæmdastjóra al-
þjóðalögreglunnar. Hann tekur
við starfinu í dag af Raymond
Kendall sem hefur verið íram-
kvæmdastjóri Interpol frá árinu
1985.
Noble, sení er lögfræðingur,
hefur gegnt mörgum trúnaðar-
störfum fyiir bandarísku ríkis-
stjómina. Hann var m.a. yfir-
maður lögreglumála hjá
fjármálaráðuneyti Bandaiikj-
anna. Noble hefiir einnig starfað
innan Interpol, m.a. í starfshópi
sem berst gegn peningaþvætti.
Ljósahátíð í fyrsta
sinn á Islandi
Heilbrigðisráðuneytið um deiluna við Grund
Ákvörðun um málshöfð-
un tekin af ráðherra
Sérblöð í dag
/ /
BIOBLAÐIÐ
A FOSTUDOGUM
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is