Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR N emendaskipti Frakka og Islendinga HÓPUR franskra menntaskóla- nema frá Nantes á Bretagne-skaga hefur verið í heimsókn hjá nemend- um Menntaskólans í Reykjavík undanfarna tiu daga. Frakklandsfélagið hefur veg og vanda af þessari heimsókn krakk- anna, sem eru 21 talsins, auk tveggja kennara. Þessi heimsókn markar fimmtán ára sögfu nemendaskipta milli fs- lands og Frakklands en samtals hafa um tuttugu grunn- og mennta- skólar í báðum löndum tekið þátt í samstarfinu. Þeir eru enda fjöl- margir nemendumir sem kynnst hafa menningu og siðum vináttu- þjóðarinnar í gegnum árin og segir Fran?ois Scheefer forseti Frakk- landsfélagsins (Association Fran?a- ise Pour la Promotion Culturelle er Pedagogique de l’Islande) að þeir séu nú orðnir 2.800 unglingarnir sem notið hafa góðs af starfinu. I tilefni dagsins heimsótti sendi- herra Frakka á Islandi, Louis Bardollet, menntskælingjana á Sal skólans og hélt stutta tölu. Nem- endur þökkuðu heimsóknina með fjöldasöng þar sem „Sá ég spóa“ var sungið hátt og snjallt. Frakk- arnir virðast hafa náð ótrúlegum Morgunblaðið/Ásdls Franski sendiherrann á Sal Menntaskólans í Reykjavík. tökum á íslensku í þessari stuttu dvöl þar sem ekki mátti heyra mun á framburði gesta eða gestkomandi í söngnum. Sendiherrann skemmti sér hið besta og brosti út að eyrum. Þór Stefánsson frönskukennari hefur ásamt Guðbjarti Kristófers- syni náttúrufræðikennara séð að miklu leyti um skipulagningu nem- endaskiptanna í samvinnu við Shceefer. Þór sagði mörg ólík verkefni hafa verið unnin á þessum stutta tíma og skemmtilegt væri frá því að segja að söngurinn hafi reynst einn aðalsamskiptamáti þjóðanna þar sem hver aukatími sem gafst hafi verið notaður til söngiðkunar. Frönsku nemarnir hafa einnig nýtt tímann til að skoða ísland. Mikil kátína ríkti í hópnum vegna þriggja daga skoðunarferðar um Austurland þar sem m.a. þjóðgarð- urinn í Skaftafelli var skoðaður. Einnig var farið að Gullfossi og Geysi auk þess sem Guðbjartur fór með hópinn í jarðfræðiferð um Reykjanes. Tuttugu nemendur úr 5. bekkj- um Menntaskólans í Reykjavík tóku þátt í verkefninu og hafa ver- ið í hlutverki gestgjafa sl. daga. Nemendurnir eru allir í frönsku- námi sem á væntanlega eftir að nýtast þeim vel í ferð þeirra til Nantes sem farin verður á vordög- um. Úrskurður umhverfísráðherra vegna laxeldis í Mjdafírði ræddur á Alþingi Nefnd landbúnaðarráðherra kanni lagaramma fiskeldis GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra hefur sett á fót nefnd sem hefur það hlutverk að fara yfir þætti sem snerta sambýli kvíaeldis og villtrar náttúru, m.a. lagalega umgjörð fisk- eldis og mögulega staðsetningu þess. Þetta kom fram í utandagskrárum- ræðu um laxeldi í Mjóafirði á Alþingi í gær en málshefjandi var Jón Bjama- son, þingmaður Vinstrihreyfingar- innar - græns framboðs. Fullyrti Jón að lagasetning um fiskeldi hefði setið á hakanum og aðrir þingmenn stjómarandstöðunnar lýstu eftir heildstæðu mati á áhriium fiskeldis við ísland. Tilefni umræðunnar var staðfest- ing Sivjar Friðleifsdóttur umhverfis- ráðherra á úrskurði Skipulagsstofn- unar um að fyrirhugað laxeldi á norskum laxi í sjókvíum í Mjóafírði þurfi ekki að sæta umhverfismati. í máli Jóns kom fram að hann teldi ófullnægjandi að erfðamengunar- þættinum væri vísað til leyfishafa í stað þess skýr lög taki á málunum. Varpaði hann þeirri spumingu til um- hveifisráðherra hvort hún myndi endurskoða úrskurð sinn í Ijósi veikra laga og hann innti landbúnaðarráð- herra eftir því hvenær hann myndi leggja fram frumvarp að heildstæðri löggjöf um fiskeldi á Islandi Umhverfisráðherra benti á að lax- eldi væri ekki matsskylt heldur til- kynningarskylt. Sagði hún að Skipu- lagsstofnun hefði grundvaÚað úrskurð sinn á umsögnum ýmissa að- ila þar sem sumir mæltu með um- hverfismati en aðrir ekki. Siv tók hins vegar fram að niðurstaða Skipulags- stofnunar og umhverfisráðuneytisins að þessu sinni hefði ekki almennt for- dæmisgildi gagnvart kvíaeldi. Skipu- lagsstofnun myndi skoða hvert mál íyrir sig eins og henni væri skylt sam- kvæmt lögum. Siv sagði ennfremur að það væri í verkahring landbúnaðarráðuneytis að gera úttekt á fiskeldi og upplýsti að landbúnaðarráðherra væri búinn að skipa nefnd um þessi mál. ALÞINGI Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra sagði að vissulega væri mikil- vægt að fara að öllu með gát hvað varðaði fiskeldi við ísland. Hér væru miklar auðlindir í húfi. „Nauðsynlegt er að fara yfir lagaumhverfi og regl- umar og setja þær af festu og ná samstöðu um hvemig að þessum at- vinnuvegi verður staðið,“ sagði hann. Þingmenn Samfylkingar, Jóhann Ársælsson og Einar Már Sigurðar- son, tóku undir þau orð að fiskeldi gæti reynst mikilvæg atvinnugrein á íslandi. Jóhann sagði líklegt að verk- efnið hefði fengið jákvæða niðurstöðu hefði það farið í mat á umhverfisáhrif- um en hann var hins vegar ekki viss um að ákvörðun umhverfisráðherra væri skynsamleg. Sagði hann að aðal- reglan ætti að vera sú að svona fram- kvæmdir fæm í umhverfismat. Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæð- isflokki, lagði hins vegar áherslu á mikilvægi þess að hægt væri að taka skjótar ákvarðanir. Mátti ráða af máli hennar og Jóns Kristjánssonar, Framsóknarflokki, að þau teldu fisk- eldi á Austurlandi geta reynst góða búbót á svæðinu. Kristján Pálsson, Sjálfstæðisflokki, taldi hins vegar að hafa hefði átt nánara samráð við hagsmunaaðila. Kolbrún Halldórsdóttir og Stein- grímur J. Sigfússon, þingmenn Vinstri grænna, lögðu áherslu á að hér væm miklir hagsmunir í húfi og að horfa yrði á málið í víðara sam- hengi. „Hér ríkir vafi og náttúran á að fá að njóta vafans,“ sagði Kolbrún. „Fyrstur tilað kyssa kú Júdasar- kossi“ SVERRIR Hermannsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi Guðna Ágústsson landbúnaðarráð- herra í utandagskrárumræð- um um Laxeldi í Mjóafirði. Hann ásakaði Guðna um að vera að útrýma íslensku kúnni og var þá að vísa til þess að í fyrradag heimilaði Guðni afmarkaða tilraun með innflutning á fósturvísum úr norskum kúastofni. Hann sagði að Guðni hefði þar orðið „fyrstur til að kyssa kú Júd- asarkossi". Landbúnaðarráðherra svaraði Sverri og var harð- orður. Hann sagði Sverri Hermannsson búa við „aumt hlutskipti“ ef hann þyrfti að koma með útúrsnúninga sem þessa. „Svo ergist hver sem hann eldist," sagði hann. Afþlngí Dagskrá ALÞINGI kemur til fundar í dag kl. 10.30. Dagskrá er sem hér seg- ir: 1. Greiðsluþátttaka sjúklinga í lyfjakostnaði, utandagskrár umræða. Málshefjandi er Jó- hanna Sigurðardóttir, Sam- fylkingu, en til andsvara verður Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. 2. Námsmatsstofnun, 1. um- ræða. 3. Blindrabókasafn íslands, 1. umræða. 4. Leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis, 1. umræða. 5. Fjarskipti, 1. umræða. 6. Póst- og Qarskiptastofnun, 1. umræða. 7. Ríkisábyrgðir, 1. umræða. 8. Skipulags- og byggingarlög, 1. umræða. 9. Virðisaukaskattur, 1. um- ræða. 10. Umboðsmaður aldraðra, fyrri umræða. 11. Umferðarlög, 1. umræða. 12. Greiðslur hlunninda og bif- reiðastyrkja í ríkiskerfinu, fyrri umræða. 13. Ábyrgðarmenn, 1. umræða. 14. Umgengni um nytjastofna sjávar, 1. umræða. 15. Tekjuskattur og eignar- skattur, 1. umræða. Vilja regfur um flutning eldfímra efna um Hvalfjarðargöng Flutningum á olíu og gasi líkt við rússneska rúllettu GUÐJÓN Guðmundsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti fyrir þings- ályktunartillögu á Alþingi í gær sem felur í sér að ríkisstjóminni verði fal- ið að setja reglur um flutning á eld- fimum efnum, þ.e. eldsneyti og próp- angasi, um jarðgöng. I reglunum yrði m.a. kveðið á um hvort slíkir flutningar skuli leyfðir og þá með hvaða skilyrðum, þ.e. flutn- ingstækjum, ökuhraða, eftirliti og hvort loka skuli göngum fyrir annarri umferð meðan flutningurinn fer fram. Fram kom í framsöguræðu Guðjóns, sem er einn fjöguma flutn- ingsmanna, að tillagan er einkum til- komin vegna mikillar aukningar bíla- umferðar um Hvalfjarðargöng. Þingmaðurinn fagnaði reyndar til- komu ganganna en taldi nauðsynlegt að huga að þeim hættum sem gætu leynst, t.d. með eldsvoðum í göngun- um en alvarleg slys hefðu orðið er- lendis á undanförnum árum í sam- bærilegum göngum vegna eldsvoða. Guðjón sagði það hafa komið fram í fréttum að árlega væru flutt 180 tonn af própangasi frá Straumsvík til Grundartanga um Hvalfjarðargöng. Faiið væri vikulega og talsmaður gasfélagsins hefði sagt að farið væri á morgnana. „Það hrukku margir við sem heyrðu þessa frétt,“ sagði Guð- jón. ,Á morgnana er mikil umferð um göngin og fjöldi manns fer þar dag- lega, m.a. til vinnu eða í skóla. Það er að mínu mati fullkomlega fráleitt að leyfa gas- og bensínflutninga um göngin á þessum tíma sólarhrings og reyndar finnst mér að það ætti ekki að leyfa slíka flutninga samtímis ann- ani umferð um göngin og helst ætti að banna þá alveg.“ Guðjón sagði að þessir flutningar væru eins og rússnesk rúlletta, eitt óhapp gæti valdið óbætanlegum skaða. Hann greindi frá því að Vinnu- eftirlit ríkisins hefði í vor bent á þá hættu sem stafar af flutningi hættu- legra efna um Hvalfjarðargöng en reglum um þá hefði enn ekki verið breytt. Vakti hann ennfremur athygli á því að ekki hlytist mikið ónæði þó að reglur yrðu hertar, ágætur vegur væri fyrir Hvalfjörð með lítilli umferð og því upplagt að flytja gas og elds- neyti landsveginn. Tillaga Guðjóns hlaut góðar undir- tektir meðal þingmanna í gær og lýsti Kristján L. Möller, Samfylkingu, þeim vilja sínum að hún fengi flýti- meðferð enda væri nauðsynlegt að draga strax úr hættu vegna flutninga eldfimra efna um Hvalfjarðargöng. Þjóðfáni verði sýnilegur í þingsalnum GUÐMUNDUR Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, hefur lagt fram á Álþingi tillögu til þings- ályktunar um að í þingsal skuli vera þjóðfáni Islendinga. í greinargerð er tekið undir þau orð forseta ís- lands frá setningu Alþingis f októ- ber að þingið hafi einstæðan sess í lýðræðissögu veraldarinnar. Því sé undarlegt að innan veggja Alþingis, þar sem rætt sé um eflingu, vegs- emd og gildi þingsins, skuli þjóðfán- inn ekki hafinn til vegs og virðingar. í greinargerðinni er rifjað upp að árið 1998 hafi heimildir til að nýta þjóðfánann verið rýmkaðar. Var það m.a. gert til að aflétta ofvernd- un fslenska þjóðfánans og stuðla að því að gera hann sýnilegri. Segir ennfremur að sýnt sé frá fundum Alþingis í sjónvarpi og ekki verði annað sagt en að mikil blæbrigði yrðu á sjónvarpsmjynd og ásýnd önnur ef þjóðfáni Islendinga væri sýnilegur við eða nærri forsetastóli. Þessi háttur virðist aukinheldur vera viðhafður í erlendum þjóðþing- um. „Flutningsmaður telur það mjög við hæfi að þjóðfáni íslendinga skipi veglegan sess í þingsal AI- þingis. Það yrði hinu háa Alþingi til sóma, sem og þjóðfána vorum til vegs og virðingar."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.