Morgunblaðið - 03.11.2000, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Úrslit heimsmeistaraeinvígisins í London réðust í fímmtándu skákinni í gær
GARRÍ Kasparov hefur lengi haft
mikla trú á keppinaut sínum, Vladí-
mír Kramník, sem nú hefur lagt hinn
fyrmefnda að velli. Nýi meistarinn er
að mörgu leyti nemandi og skjól-
stæðingur Kasparovs, var m.a. að-
stoðarmaður heimsmeistarans í ein-
víginu við Indverjann Viswanathan
Anand 1995.
„Það er alveg ljóst að Kramník hef-
ur að þessu leyti staðið mjög vel að
vígi og betur en Anand á sínum
tíma,“ segir Friðrik Ólafsson, stór-
meistari og fyrrverandi forseti Al-
þjóðaskáksambandsins, FIDE. Rætt
var við hann í gær er 15.K skákin í
London stóð enn yfir. „Kasparov hef-
ur ekki náð að sýna allt sem í honum
býr og erfitt að segja hvað veldur,
það gæti verið eitthvað persónulegt.
Hann hefur ekki unnið eina ein-
ustu skák í einvíginu til þessa. Það
hefur ekki gerst í heimsmeistaraein-
vígi síðan 1921, þegar Capablanca
lagði Lasker, að heimsmeistari halaði
ekki inn einn einasta vinning. En þótt
menn séu ungir eins og Kasparov,
hann er 37 ára, geta þeir líka verið í
óstuði!
Kramník var greinilega mjög vel
búinn undir einvígið og hann veit
hvemig á að tefla við Kasparov. Eftir
að hafa verið aðstoðarmaður hans
veit hann margt sem hjálpar honum
núna. Hann veit hvemig Kasparov
hugsar. Hann þekkir andstæðinginn
og stíl hans til hlítar og fátt er mikil-
vægara í undirbúningi fyrir einvígi."
Kasparov hefur lengi átt í hörðum
deilum við FIDE sem ekki viður-
kennir hann sem heimsmeistara.
„Þetta hefur auðvitað angrað hann
undir niðri að vera ekki alls staðar
viðurkenndur sem slíkur,“ segir
Friðrik. „Það gekk ekkert of vel að
koma þessu einvígi á, íyrst ætlaði
Kasparov að tefla við Anand en það
gekk ekki upp. Þessi mál gætu hafa
Kramník svipti læri
föðurinn krúnunni
haft sín áhrif en ég veit satt að segja
ekki hvað er að. Hann nær sér ekki á
strik og Kramník hefur einnig tekist
vel að stöðva hann, hindra hann í að
ná upp stöðu sem hann kann vel við.
Vömin sem Kramník teflir, „Berl-
ínarmúrinn", miðar að því að draga
strax spennuna úr stöðunni og það
hefur gengið vel hjá Kramník.“
Spádómur Kasparovs 1992
Vladímír Kramník er fæddur 25.
júní 1975 í bænum Tuapse við
Svartahaf. Er faðir hans mynd-
höggvari en móðir hans tónlistar-
kennari.
Aðeins fimm ára gamall var
Kramník orðinn tíður gestur í skák-
klúbbunum og er hann var 11 ára
duldist engum lengur, að hann ætti
eftir að ná langt. Skömmu síðar sett-
ist hann í hinn fræga Botvinnik-skák-
skóla í Moskvu og varð síðar heims-
meistari í bama- og unglingaflokki.
Kramník var fyrsti varamaður í liði
Rússa, sem sigraði á Ólympíuskák-
mótinu í Manila 1992 og var árangur
hans betri en nokkurs annars eða 8,5
vinningar í níu skákum.
Það var Kasparov sjálfur sem upp-
götvaði hæfileika Kramníks og fékk
því framgengt, að sautján ára gamall
yrði hann tekinn í rússneska skák-
landsliðið. Er Kramník var að keppa
á þýðingarlitlu móti í Dusseldorf í
Þýzkalandi þetta sama ár fylgdist
Kasparov með og sagði þá við aðstoð-
armann sinn: „Sjáðu þennan þama,
Reuters
Kasparov (t.v.) og Kramník að tafli í London í gær. Skákinni lyktaði með
jafntefli og er Kramník því orðinn heimsmeistari.
það er hann, Kramník. Hann getur
orðið heimsmeistari.“ Eftir að
Kramník hóf alþjóðlegan skákferil
sinn settist hann í byrjun tíunda ára-
tugarins að í Berlín og spilaði þar
með skákklúbbnum Empor Berlin,
og gerði - eftir því sem þýzka frétta-
tímaritið Der Spiegel greinir frá - at-
hyglisverðar tilraunir, eins og þá,
hvort hann væri fær um að vinna
skákmót eftir næturlanga vodka-
drykkju. Honum tókst það. Eftir An-
and, einum helzta keppinauti Kramn-
fks, hefur verið haft: „Ef hann hættir
hugmyndirjnnb|ástur
honn
HAMRABORG 1,200 KÓPAVOGI, SÍMI5544011. NETFANG: innval@innval.ls
að drekka verður hann ósigrandi."
Fyrir fimm ámm varð Kramník
ljóst, að hann yrði að breyta um lífs-
stfl, ætlaði hann sér að ná langt. Síð-
an þá drekkur hann sjaldan og spilar
jafnvel tennis.
Á Ólympíuskákmótinu í Moskvu
1994 tefldi Kramník á öðru borði og
fékk þá átta vinninga í 11 skákum.
Tefldi hann líka á Olympíuskákmót-
inu í Jerevan í Armeníu 1996 og þá
var árangurinn 4,5 vinningar í níu
skákum.
1995 var Kramník kominn í þriðja
sæti á ELO-listanum yfir skákstig og
í ársbyrjun 1996 var hann í fyrsta
sæti. Hann var fyrir einvígið í öðru
sæti á eftir Kasparov.
Kramník er aðeins 25 ára en hann
þykir hafa sýnt meiri þroska í skák-
um sínum en aðrir menn jafn gamlir
honum hingað til. Hann á líka það
met, að fram í júlí á þessu ári hafði
hann ekki tapað skák í 18 mánuði en á
þeim tíma tefldi hann 80 skákir á
stórmótum víða um heim.
Garrí Kasparov er fæddur 1963 í
Bakú, höfuðstað Aserbaídsjan sem
þá var hluti Sovétríkjanna gömlu.
Faðir hans var af gyðingaættum, hét
Kim Weinstein en móðirin Kasparian
og er skáksnillingurinn var 12 ára tók
hann upp eftirnafn hennar í-
rússneskri útgáfu, nefndi sig Kaspar-
ov.
Er hann var 14 ára gamall, árið
1977, varð hann unglingameistari
Sovétríkjanna í Riga. Arangurinn
var ótrúlegur, 8 og hálfur vinningur
úr níu skákum. Arið eftir sigraði
hann á tveim sterkum mótum og varð
síðar á árinu yngsti maður sem feng-
ið hafði að keppa á meistaramóti
Sovétríkjanna.
Þróunin var hröð. Hann birtist
fyrst á lista FIDE yfir bestu skák-
menn í júlí árið 1979, var þá með 2545
ELO-stig, í janúar 1980 voru stigin
orðin 2595. Tveim mánuðum síðar
varð hann stórmeistari og í ágúst
sigraði hann á heimsmeistaramóti
unglinga, skákmanna undir tvítugu, í
Dortmund. Hann sigraði síðan keppi-
nauta sína um réttinn til að skora á
heimsmeistarann, Anatolí Karpov,
hvern af öðrum árið 1984. Karpov var
með 2700 stig en Kasparov tíu stigum
hærri.
Sló gamalt met Fischers
Veturinn 1984-1985 fór síðan fram
í Moskvu hið fyrsta af nokkrum ein-
vígjum þeirra Kasparovs og Karpovs
um titilinn. Jafnteflin hlóðust upp,
ætlunin hafði verið að sá sem hlyti
fyrr sex vinninga ynni en einvíginu
lauk í reynd áður en úrslit réðust.
Fullyrt var að ráðamenn í sovéska
skákheiminum hefðu gripið inn þeg-
ar þeir sáu að farið var að halla á
Karpov sem með réttu og röngu hef-
ur ávallt verið talinn fulltrúi gamla
sovétkerfisins.
Þeir settust aftur við skákborðið
um haustið og nú sigraði Kasparov
með 13 vinningum gegn 11. Hann var
orðinn heimsmeistari, aðeins 22 ára
gamall, yngsti maður sem náð hefur
þeim titli. Og þegar Kasparov var 26
ára var loks slegið gamalt skákstiga-
met Bandaríkjamannsins Bobby
Fischers, 2785 stig. Þá reyndist
Kasparov vera kominn með 2800 stig.
Heimsmeistaraferill Kasparovs
hefur verið stormasamur og 1993
stofnaði hann eigin heimssamtök til
höfuðs FIDE vegna ósamkomulags
um tilhögun keppninnar um titilinn.
Ihaldsflokkurinn í Bretlandi
Portillo segir
skilið við
„Aldrei að víkja“
London. The Daily TelegTaph.
HÆGRI armur breska
íhaldsflokksins varð
fyrir áfalli á miðviku-
dagskvöld, eftir að
tveir af forystumönn-
um hans sögðu skilið
við félagsskapinn No
Turning Point, eða
„Aldrei að víkja“, sem
settur var á fót til að
standa vörð um póli-
tíska arfleifð Margrét-
ar Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Michael Portillo,
talsmaður Ihalds-
flokksins í ríkisfjár-
málum, og Francis
Maude, talsmaður flokksins í utan-
rfldsmálum, tilkynntu á fundi
,AJdrei að víkja“ á miðvikudags-
kvöld að þeir sæju sér ekki fært að
sækja fleiri samkomur á vegum fé-
lagsins, þar sem frásögnum af síð-
asta kvöldverðarfundi þess hefði
verið lekið til fjölmiðla. Portillo
hafði á þeim fundi hlotið harða
gagnrýni annarra félagsmanna fyrir
að reyna að höfða til þeirra kjós-
enda sem áður fylgdu Ihaldsflokkn-
um að málum en kusu Verkamanna-
Michael Portillo
flokkmn í síðustu
kosningum. Að sögn
fjölmiðla átöldu félags-
menn Portillo fyrir að
verja of miklum tíma í
að útlista þá stefnu
flokksins að allir gætu
fundið samastað innan
vébanda hans, en of
litlum tíma í að ráðast
á efnahagsstefnu
Verkamannaflokksins.
Portillo og Maude
voru báðir meðal
stofnenda „Aldrei að
víkja“ á níunda ára-
tugnum, og búist er
við að margir félags-
menn muni fylgja þeim eftir.
Um það bil tuttugu þingmenn
Ihaldsflokksins hafa myndað innsta
kjarna félagsskaparins, og breskir
fjölmiðlar leiddu getum að því í gær
að brotthvarf tvímenninganna hefði
það í för með sér að dagar hans
yrðu senn taldir. Málið hefur beint
athyglinni að hinum djúpstæða
ágreiningi sem ríkir milli frjáls-
lyndra og íhaldssamra flokksmanna
og kom berlega í ljós á flokksþing-
inu í síðasta mánuði.