Morgunblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 1
277. TBL. 88. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hæstiréttur í Washington tekur fyrir kröfur lögmaima Bush um bann við handtalningri
Óþolinmæði
fer vaxandi
Washington. AP.
SENDIBÍLL með um 450.000 at-
kvæðaseðla í læstum málmkössum
kom í gærkvöldi til Tallahassee, höf-
uðborgar Flórída, eftir um 700 kíló-
metra ferðalag er hófst í Palm Beach
í gærmorgun. Dómari úrskurðaði að
flytja skyldi alla atkvæðaseðla sem
notaðir voru í forsetakosningunum í
tveim sýslum, Palm Beach og Miami-
Dade, til borgarinnar. Hann mun á
laugardag ákveða hvort hann verður
við þeirri kröfu lögmanna A1 Gores
varaforseta að atkvæðin verði hand-
talin.
Hæstiréttur í Washington tekur í
dag fyrir beiðni Bush um að hand-
talning atkvæða í Flórída verði lýst
ólögleg.
Fjöldi lögreglubfla með vopnaða
liðsmenn um borð ók á undan og eftir
sendibílnum alla leiðina og í bflalest-
inni voru auk þess fulltrúar flokk-
anna og fjölmiðla. Sjónvarpsstöðvar
sendu beint frá akstrinum. Annar bfll
með atkvæðin frá Miami-Dade verð-
ur sendur til borgarinnar í dag.
Demókratar vöruðu í gær
repúblikana eindregið við því að
grípa til þess ráðs að láta þing Flór-
ída, þar sem repúblikanar eru í
meirihluta, velja kjörmennina. Kann-
anir sýna þverrandi stuðning við æ
örvæntingarfyllri baráttu Gores við
að knýja fram endurtalningu. I könn-
un sem fréttastofa CBS-sjónvarps-
stöðvarinnar birti í gær kom fram að
rúmlega helmingur kjósenda er að
missa þolinmæðina og vill að komist
verði að niðurstöðu. 42% segja að
Gore beri að viðurkenna ósigur.
Bush átti í gær fund í Texas með
Colin Powell, fyrrverandi forseta
herráðsins, en hann er talinn lfldegur
til að gegna embætti utanríkisráð-
herra í stjóm Bush verði hann for-
seti.
■ Gore segir/33
AP
Ryder-sendibfll með um 450.000 atkvæðaseðla leggur af stað frá Palm Beach áleiðis til Tallahassee í gærmorg-
un. Sjðnvarpsstöðvar sýndu beint frá ferðalaginu sem lauk í gærkvöldi.
Framkvæmdastjóri NATO á fundi með leiðtogum Kosovo-Albana
Skæruhernaðinum í
Serbíu verður að linna
Pristina. Reuters.
ROBERTSON lávarður, framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins (NATO), sagði á fundi með
leiðtogum stjómmálaflokkanna í Kosovo í gær, að
þeir yrðu að gera hvað þeir
gætu til að halda aftur af alb-
önskum skæruliðum, sem nú
era með hernað í Suður-Serbíu.
Hafa um 4.000 manns flúið yfir
til Kosovo vegna átakanna en
þau hafa orðið vatn á myllu
andstæðinga Vojislavs Kostun-
ica, forseta Júgóslavíu.
„Stjómmálaleiðtogar í Kos-
ovo verða að beita sér gegn
þessum öfgamönnum, sem era
ekki síst hættulegir hagsmunum Kosovo-Albana
sjálfra. Þá verður að einangra og allir málsmet-
andi menn í héraðinu verða að fordæma þá,“ sagði
Robertson að loknum fundi með forystumönnum
Kosovo-Albana og einnig nokkram fyrrverandi yf-
irmönnum í Frelsisher Kosovo.
Skæruliðar viya sameina
Presevodal og Kosovo
Albanskir skæraliðar hafa að undanförnu haldið
uppi hernaði í Presevodal í Suður-Serbíu en hann
er að mestu byggður fólki af albönskum ættum.
Vilja þeir sameina dalinn Kosovo og lýsa síðan yfir
sjálfstæði frá Serbíu. í Serbiu og meðfram landa-
mæranum við Kosovo er fimm km breitt belti, sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið að sér að gæta og
samkvæmt samningum við NATO mega Serbar
aðeins senda þangað léttvopnaða lögreglumenn.
Albönsku skæraliðarnir hafa hins vegar komið sér
upp bækistöðvum í skóglendinu á þessum slóðum
og gera þaðan árásir á Serba.
Er þetta mál mjög erfitt fyrir Vojislav Kostun-
ica, hinn nýja forseta Júgóslavíu, og andstæðingar
hans, einkum fyrrverandi ráðamenn, nota það
mjög gegn honum. Hann hefur þó haldið ró sinni
hingað til en serbneskir stjórnmálamenn segja, að
verði ekkert lát á hernaði albönsku skæraliðanna í
Presevodal, sé hætta á, að lýðræðisöflin í Serbíu
muni gjalda þess í þingkosningunum 23. desember
næstkomandi.
Leiðtogar allra stjórnmálaflokka i Kosovo hafa
fordæmt skærahernaðinn í Suður-Serbíu en Ijóst
er samt, að skæruliðar fá mikinn stuðning þaðan.
Carlo Cabigiosu hershöfðingi og yfirmaður
NATO-herliðsins í Kosovo viðurkenndi í gær, að
líklega kæmu flestir skæruliðarnir í S-Serbíu frá
Kosovo en lagði áherslu á, að eftirlit á landamær-
unum hefði verið hert og mikið af vopnum, sem
smygla hefði átt inn í Serbíu, verið gert upptækt.
Robertson
lávarður
Raddgreinir
nemur syfju
London. The Daily Telegraph.
JAPANSKIR vfsindamenn hafa
þróað raddgreini, sem getur komið
í veg fýrir að syfjaðir flugmenn,
skipstjórar, lestarstjórar og flug-
umferðarstjórar sofni í vinnunni.
Tækið nemur breytingar á tíðni-
sviði raddarinnar og getur þannig
greint hvort fólk sé orðið syfjað og
þurfi að gæta sín. Er þá hægt að
vara menn við. Að sögn vísinda-
manna getur tækið greint sylju um
10 til 20 mínútum áður en viðkom-
andi áttar sig sjálfur.
Tillögum Baraks hafnað
Jerúsalem. AP.
EHUD Barak, forsætisráðherra
ísraels, lagði í gær fram tillögur
um lausn á deilunum við Palestínu-
menn. Vill hann að viðkvæmustu
þættirnir eins og framtíð Jerúsal-
em verði látnir í biðstöðu í þrjú ár.
Talsmenn Palestínumanna höfn-
uðu þegar í gær hugmyndum Bar-
aks. Sögðu þeir að um bráða-
birgðalausn væri að ræða.
„Hugmyndirnar sem Barak seg-
ir að gætu orðið nýtt framkvæði
era alls ekki nýjar,“ sagði Abed
Rabbo, ráðherra upplýsingamála í
stjórn Palestínuleiðtogans Yassers
Arafats. „Helsta hagsmunamál
hans var og er að bjarga sjálfum
sér, ekki að bjarga friðarferlinu.“
Barak segist reiðubúinn að viður-
kenna sjálfstætt ríki Palestínu-
manna á Vesturbakkanum og Gaza
og mælir með því að samið verði
um endanlegan frið „í áföngum".
Segja Palestínumenn að tími sé
kominn til að Ijúka friðarferlinu
sem hófst í Ósló fyrir sjö áram.
Leysa þurfi deilurnar um yfirráð
Jerúsalem og hlutskipti palest-
ínskra flóttamanna.
Tveir Palestínumenn féllu í
átökum við ísraelska hermenn í
gær og hafa átökin síðustu tvo
mánuði nú kostað hátt í þrjú
hundrað mannslíf. Stuðningur við
Barak hefur hrapað í könnunum,
stjórn hans hefur ekki lengur
meirihluta á þingi og ákveðið hefur
verið að þingkosningar verði í vor,
sennilega í apríl eða maí.
Lýst eftir
400 millj-
ónum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DANSKA lögreglan stendur nú
frammi fyrir hinu vandræðalegasta
máh, að lýsa eftir rúmum 400 millj-
ónum ísl. kr. Fénu var rænt á mánu-
dag og degi síðar náðist ræninginn.
Hann segist hins vegar hafa týnt því
og lögreglan sér því ekki annað ráð
en að lýsa eftir fjárhæðinni, sem var í
tveimur íþróttatöskum síðast er
fréttist. Lögreglan trúir ekki skýr-
ingu ræningjans sem er í haldi en
hún veit ekki hvar á að leita.
Ræninginn, hinn 24 ára gamli
Andrew Lawrence Johannisson, var
annar ökumanna peningaflutninga-
bflsins sem féð var í. Fullyrti hinn
ökumaðurinn að Johannisson hefði
ógnað sér með skammbyssu og að
annar maður hefði verið í vitorði með
honum en því neitar ræninginn,
kveðst hafa verið einn að verki.
Hann neitar því einnig að hafa verið
með skammbyssu, segist hafa sýnt
ökumanninum bakhlið farsíma sem
hann hafi sagt vera byssu.
Johannisson segist hafa hent tösk-
unum með fénu í runna við Damhus-
vatn skammt frá Kaupmannahöfn til
að fela það en þegar hann hafi komið
að síðar um daginn hafi töskurnar
verið á bak og burt. Þær vega um 140
kg samanlagt og á lögregla erfitt
með að trúa því að Johannisson, sem
er lágvaxinn og grannur, hafi getað
burðast með þær enda heldur hann
því fram að það hafi verið erfitt verk.
MORGUNBLAÐIÐ 1. DESEMBER 2000