Morgunblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Áform á Akureyri
og Athygli í Reykja-
vík sameinast
Almanna-
tengsla- og
kynningar-
ojónusta
efld nyrðra
FYRIRTÆKIN Áform ehf. -
almannateng'sl á Akureyri og
kynningar- og almanna-
tengslafyrirtækið Athygli ehf.
í Reykjavík hafa verið sam-
cinuð undir nafni Athygli. í
kjölfar sameiningarinnar
verður starfsstöðin á Akur-
eyri stækkuð frá því sem áður
var hjá Áformum ehf. og
verða þrír starfsmenn hjá At-
hygli á Akureyri. Eftir sam-
eininguna munu starfsmenn
Athygli verða 12 talsins og
hefur fyrirtækið m.a. innan-
borðs nokkra af reyndustu
blaða- og fréttamönnum
landsins.
Athygli og Áform hafa unn-
ið náið saman á undanförnum
árum, m.a. að viðamikilli út-
gáfu fyrir Fiskifélag íslands,
og búa þannig yfir víðtækri
reynslu í flutningi verkefna til
Akureyrar sem áður voru
unnin á höfuðborgarsvæðinu.
Markmiðið með sameining-
unni er að bjóða viðskiptavin-
um enn öflugri þjónustu en
áður á sviði alhliða Ijölmiðla-,
útgáfu- og vefþjónustu.
I frétt um sameiningu fyrir-
tækjanna kemur fram að
þjónustan verði efld á Akur-
eyri, bæði gagnvart við-
skiptamönnum á svæðinu sem
og öðrum viðskiptamönnum
Athygli á landinu. Starfsem-
inni séu engin markaðsleg
landamæri. Störfum verður í
kjölfar sameiningarinnar
fjölgað á Akureyri og þar
verða nú þrír menn að störf-
um.
Eigandi og framkvæmda-
stjóri Áforma ehf., Jóhann Ól-
afur Ilalldórsson, verður einn
þriggja starfsmanna á Akur-
eyri og hluthafi í Athygli. Eig-
endur Athygli verða eftir
sameiningu: Valþór Hlöðvers-
son, Atli Rúnar Halldórsson,
Kristinn Gylfi Jónsson, Árni
Þórður Jónsson og Jóhann Ól-
afur Halldórsson.
Starfsemi Athygli á Akur-
eyri er til húsa í Hafnarstræti
82.
Yfírtaka Slökkviliðs Akureyrar á Slökkviliði Akureyrarflugvallar
I athugun að byggja nýja
slökkvistöð við flugvöllinn
Morgunblaðið/Kristj án
Slökkvilið Akureyrar er til húsa við Árstíg en í athugun er að byggja nýja slökkvistöð við Akureyrarflugvöll,
þar sem slökkvilið bæjarins og flugvallarins yrðu til húsa.
SLÖKKVILIÐ Akureyrar tekur yfir
rekstur Slökkviliðs Akureyrarflug-
vallar um næstu áramót af Flugmála-
stjóm og í framhaldinu er til athug-
unar að byggja nýja slökkvistöð
undii’ alla starfsemina við Akureyr-
arflugvöll. Umhverfisráð Akureyrar-
bæjar samþykkti á fundi sínum ný-
lega að leggja til að könnuð verði til
fullnustu hagkvæmni byggingar
nýrrar slökkvistöðvar, að því gefnu
að núverandi húsnæði Slökkvistöðv-
ar Akureyrar seljist á viðunandi
verði.
Jafnframt að leitað verði samninga
við Flugmálastjóm um hennar hlut-
deild í fi-amkvæmdinni og rekstri
nýrrar stöðvar. Á fundi umhverfis-
ráðs kom fram að samkvæmt skýrslu
Útrásar er talin nokkur hagkvæmni í
því að byggja nýja slökkvistöð bæjar-
ins og Flugmálastjómar við Akur-
eyrarflugvöll. Tómas Búi Böðvars-
son, slökkviliðsstjóri á Akureyri,
sagði að varðandi staðsetningu nýrr-
ar slökkvistöðvar væra tvö svæði
sérstaklega til skoðunar. Annars
vegar á uppfyllingu austan Drottn-
ingarbrautar, á móts við gatnamót
Þórannarstrætis og Drottningar-
brautar og hins vegar á uppfyllingu
norðan við flugstöðina á Ákureyrar-
flugvelli.
Ellefu umsóknir um
stöður slökkviliðsmanna
Tómas Búi sagði að rætt væri um
2.000 fermetra byggingu en að ekki
væri farið að ræða neinar tímasetn-
ingar komi til þessara framkvæmda.
„Þetta ferh tekur ákveðin tíma, þar
sem m.a. þarf að breyta aðalskipulagi
og fyrst er að kanna hagkvæmni þess
að byggja og reka starfsemina sam-
an.“
Með yfirstöku Slökkviliðs Akur-
eyrar á slökkviliði Akureyrarflug-
vallar, verður starfsemin á flugvellin-
um aukin og stöðugildum fjölgað.
Nýlega vora stöður slökkviliðsmanna
auglýstar lausar til umsóknar og er
umsóknarfrestur liðinn. Alls bárast
11 umsóknfr en að sögn slökkviliðs-
stjóra er stefnt að því að ráða í það
minnsta fjóra nýja slökkviliðsmenn.
Þá hefur Birgir Finnsson, aðstoð-
arslökkviliðsstjóri á Akureyri, sagt
upp starfi sínu en hann hefur verið
ráðinn til Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins. Tómas Búi sagði að Bfrgir
léti af störfum í byrjun næsta árs og
að staða aðstoðarslökkviliðsstjóra
yrði auglýst innan tíðar.
Tillögum um hækkun á heimaþjónustu vísað til bæjarstjdrnar
Veruleg hækkun á kostnaði
við akstur á heimsendum mat
BÆJARRÁÐ samþykkti í gær að
vísa tillögum félagsmálaráðs að
gjaldskrárbreytingum varðandi
heimaþjónustu til afgreiðslu í bæj-
arstjórn. Þá samþykkti bæjarráð
einnig að vísa tillögum íþrótta- og
tómstundaráðs til afgreiðslu bæjar-
stjórnar, þ.e. öðram en þeim sem
varða eldri borgara.
Ráðið lagði í byrjun þessa mán-
aðar til að ellilífeyrisþegar, 67 ára
og eldri, greiddu barnagjald fyrir
aðgang að sundlaugum og skíða-
mannvirkjum bæjarins, en eldri
borgarar hafa síðustu ár ekki þurft
að greiða fyrir aðgang að þessum
íþróttamannvirkjum. Félag eldri
borgara og Félag hjartasjúklinga
hafa mótmælt því að gjald verði
tekið upp og á fundi bæjarráðs í
gær vora lögð fram mótmæli frá
Félagi íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, Norðurlandsdeild og læknar-
áði Heilsugæslustöðvarinnar á
Akureyri.
Snarpar umræður urðu um málið
á fundi bæjarstjórnar í síðustu
viku, en gera má ráð fyrir að bæjar-
ráð fjalli um tillögurnar á næsta
fundi sínum. Tillögur félagsmála-
ráðs um gjaldskrárbreytingar varð-
andi heimaþjónustu vora einnig til
umfjöllunar í bæjarráði í gær.
Heimaþjónustutími kostar nú 200
krónur, en tillögurnar gera ráð fyr-
ir 30 króna hækkun á næsta ári. Þá
er gert ráð fyrir að akstur sem nú
kostar 100 krónur hækki í 125
krónur eftir áramót og heimsendur
matur sem nú kostar 390 krónur
fari í 430 krónur. Alls er gert ráð
fyrir að tekjuaukinn nemi tæplega
1,2 milljónum króna.
Heimaþjónustutímar hækkuðu
síðast hjá Akureyrarbæ í byrjun
árs 1998. Fram kemur í upplýsinga-
blaði frá Heimaþjónustunni sem
lagt var fram á fundi bæjarráðs í
gær, að kostnaður við akstur heim-
sends matar hafi hækkað verulega
síðustu tvö ár. Akureyrarbær nið-
urgreiðir nú hvern matarbakka um
160 krónur, en niðurgreiðslan verð-
ur 120 krónur á bakka hækki verðið
í 430 krónur. Hækkunin sem nú er
lögð til mætir því einungis þeirri
hækkun sem orðið hefur á kostnaði
við aksturinn.
Engin greiðsla fyrir félags-
starf og leikfimi á Akureyri
Á fundi bæjarráðs voru lögð fram
gögn um kostnað við ýmsa þjónustu
sem eldri borgurum stendur til
boða á Akureyri, Reykjavík, Kópa-
vogi, Hafnarfirði og Keflavík. Þar
kemur m.a. fram að heimsendur
matur er ódýrastur á Akureyri, 390
krónur en dýrastur í Kópavogi, 560
krónur. Á Akureyri greiða eldri
borgarar 100 krónur fyrir akstur í
félagsstarf og 150 krónur í Reykja-
vík, en ekki er boðið upp á slíka
þjónustu í hinum sveitarfélögunum.
Ekkert gjald er tekið vegna þátt-
töku eldri borgara í félagsstarfi á
Akureyri, en greiða þarf nokkur
hundruð krónur í hinum sveitarfé-
lögunum á mánuði fyrir slíka þátt-
töku. Þá er heldur ekki tekið gjald á
Akureyri vegna þátttöku í leikfimi
en það er gert í hinum sveitarfélög-
unum fjórum, nokkur hundruð
krónur á mánuði.
Slökun!
20% kynningarafsláttur
af nuddolíunum fra
~/:Xiril\'C/C'ibs
. \7< /.‘ vvív.v\ 'W/Aí/VG'íVtfi' ■XJWrtiiHWbM'
Slökunarolta, vödvaolia,
unaðsolía og ástareldur.
1®!
Kynning í LYFJU Kópavogi
föstud. t. des. kL 14-17 og taugard. 2. des. kL 11-13.
Kynning í LYFJU Hafnarfirði
föstud. t.des. kí. 14-17 og laugard. 2. des. kt. 13-16.
KEA o g mjólkurframleiðendur
í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu
Sameiginlegt
félag*, Norður-
mjdlk, stofnað
SAMRUNAÁÆTLUN, sem felur í
sér samrana MSKEA ehf. og MSKÞ
ehf. og Grana, en það er hlutafélag í
eigu Auðhumlu sem aftur er sam-
vinnufélag í eigu mjólkurframleið-
enda í Eyjafjarðar- og Þingeyjar-
sýslum ehf. hefur verið undirritað.
Unnið hefur verið að stofnun sam-
eiginlegs félags KEA og mjólkur-
framleiðenda sem annast á mjólkur-
vinnslu á Húsavík og Akureyri á
undanförnum mánuðum og nú hefur
áætlun um samranann verið undir-
rituð.
Áætlunin felur í sér samruna fé-
laganna frá og með 1. september síð-
astliðnum og heitir nýja félagið
Norðurmjólk ehf. Hluthafar verða
tveir, Kaupfélag Eyfirðinga og Auð-
humla og geta mjólkurframleiðend-
ur eignast allt að 34% í hinu nýja fé-
lagi.
I stjórn Norðurmjólkur voru
kjörnir þeir Eiríkur S. Jóhannsson,
Erlingur Teitsson, Haukur Hall-
dórsson, Stefán Magnússon og
Tryggvi Þór Haraldsson en í vara-
stjórn eru Ásvaldur Ævar Þormóðs-
son og Oddur Gunnarsson.
Eiríkur S. Jóhannsson kaupfé-
lagsstjóri mun gegna störfum fram-
kvæmdastjóra Norðurmjólkur þar
til gengið verður frá ráðningu nýs
framkvæmdastjóra.