Morgunblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 68
68 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Islensk list
Fálkagötu 30b
Gleðilegir jólaglerfuglar
Opið frá kl. 14-18, sírnar 552 8141 og 861 5693
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
Turta(ji
ull
HArvörur leysa vandann
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
UTSOLUSTAÐIR: HEILSUVORUVERSLANIR OG APOTEK UM ALLT LAND.
ÚR.SMÍDUR
Þú kaupir tvo hluti eða fleiri í
HARD CANDY o3 við setjum þá
í fallega hjartalaga gjafaöskju fyrir þig,
þér að kostnaðarlausu
Ráögjafi verður á staðnum
Föstudag Lau3arda3 Sunnudas
Hagkaup Kringlunnl Hagkaup Kringlunni Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáratorg Hagkaup Akureyri Hagkaup Akureyrl
Hagkoup Spönglnni Top Shop
Aðrlr útsölustaðir eru Gallery Förðun Keflavík, Hagkaup Skelfunnl o3 Ubla MJódd
Afleiðingamar af
þeim breytingum á
opinbera húsnæðis-
lánakerfinu sem fé-
lagsmálaráðherra stóð
fyrir, og tóku gildi i
ársbyrjun 1999 með
niðurlagningu Hús-
næðisstofnunar og
stofnun Ibúðalána-
sjóðs, vom ekki ein-
vörðungu aukinn
rekstrarkostnaður.
Kostnaður íbúðalána-
sjóðs á síðasta ári var
um 100 milljónum
króna hærri en meðal-
kostnaður Húsnæðis-
stofnunar á árunum
1994 til 1997 samkvæmt úttekt Rík-
isendurskoðunar sem nýlega var
birt. Framkvæmdastjóri Ibúðalána-
sjóðs sagði svo í blaðaviðtali fyrir
skömmu að rekstrarkostnaður sjóðs-
ins á þessu ári muni einnig fara úr
böndunum. Þessu öllu til viðbótar
kostaði rúmar 100 milljónir að fram-
kvæma breytingar ráðherrans á hinu
opinbera húsnæðislánakerfl á sínum
tíma. Til samanburðar má nefna að
ríkisstjórnin boðar að hætta að nið-
urgreiða vexti á lánum til byggingar
leiguíbúða en til þess var einmitt var-
ið 100 milljónum á þessu ári. Breyt-
ingamar höfðu einnig önnur óheilla-
vænleg áhrif. Þær höfðu víðtæk áhrif
á fasteignamarkaðinn til hins verra,
m.a. 30 til 40% hækkun á leigu- og
fasteignaverði. Mistök á mistök ofan
hafa því einkennt þessar aðgerðir
ráðherrans og liðsmanna hans.
Skellt við skollaeyrum
Með tilkomu íbúðalánasjóðs var
reglum um greiðslumat í húsbréfa-
kerfinu nánast sleppt lausum. Við-
miðanir um greiðslugetu voru hækk-
aðar langt umfram það sem reynsla
liðinna ára sýndi að skynsamlegt
væri. Samhliða miklum uppgangi í
þjóðfélaginu almennt átti þetta sinn
þátt í verulega auknum fasteignavið-
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðuntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
skiptum. íbúðalána-
sjóður hvatti auk þess
fólk óspart með auglýs-
ingum til að festa kaup
á húsnæði, nokkuð sem
aldrei hafði áður gerst í
hinu opinbera hús-
næðislánakerfi enda
varla tilgangur kerfis-
ins. Mikil fasteignavið-
skipti leiddu til aukinn-
ar útgáfu húsbréfa sem
jók þensluna, magnaði
upp verðbólguna og
hækkaði fasteignaverð.
Þegar fasteignaverð
hækkar hækkar fast-
eignamatið og þar af
leiðandi fasteignagjöld-
in. Og nú gerðist það líka að þar sem
eignamörkum vegna vaxtabóta og
bamabóta var ekki breytt lenti
bamafólk í nýjum vanda þegar þess-
ar greiðslur lækkuðu svo numið gat
tugum þúsunda hjá einni fjölskyldu.
Nú hækkaði líka húsaleiga upp úr
öllu valdi í kjölfar þess að félagslega
húsnæðiskerfið hafði verið lagt niður
og þetta tvennt hitti lægst launaða
fólkið verst fyrh-.
Óbætanlegur skaði
Samfylkingin varaði við afleiðing-
um þessara breytinga og undirbún-
ingsnefnd félagsmálaráðherra sem
sá um að koma Ibúðalánasjóði á
laggimar var margoft bent á þær af-
leiðingar sem breytingar á greiðslu-
mati vegna lána Ibúðalánasjóðs
myndu hafa en skellti skollaeymm
við. Það tók stjómendur húsnæðis-
mála næstum allt síðasthðið ár að
uppgötva mistökin með rýmkun
reglna um greiðslumat sem hafa nú
verið þrengdar í áttina að því sem
var áður. En skaðinn var skeður.
Rýmkað greiðslumat átti sinn þátt í
að margir reistu sér hurðarás um öxl
og kom fram í gífurlegri hækkun
skulda heimilanna, sem Seðlabank-
inn segir að séu nú komnar á vem-
lega hættulegt stig.
Félagslegar íbúðir úr leik
Rýmkað greiðslumat íbúðalána-
sjóðs er ekki það eina sem leitt hefur
til aukinnar skuldasöfnunar heimil-
anna í landinu á síðastliðnum tveim-
ur áram. Niðurlagning félagslega
íbúðalánakerfisins hafði sitt að segja.
Fólki sem áður var úthlutað félags-
legu húsnæði sveitarfélaganna var
öllu í einu ýtt út á almenna húsnæðis-
markaðinn með fyrirheitum um við-
bótarlán auk húsbréfanna. Þetta átti
sinn þátt í hækkun fasteignaverðs.
Því auk þess að gífurleg kerfisbreyt-
ing var gerð á lánum til láglaunafólks
þá hafði þessi breyting aðrar afleið-
ingar. I áratugi hafa sveitarfélögin á
suðvesturhorninu byggt félagslegar
íbúðir, hin síðari ár sem nemur
Húsnæðismál
Allar þessar breytingar
hafa reynst herfileg
mistök, segir Rannveig
Guðmundsdóttir. Það
eina sem lukkaðist hjá
ráðherranum var að
koma sínum mönnum
fyrir í kerfinu.
hundmðum á ári. Þegar skyndilega
var skrúfað fyrir þessar fram-
kvæmdir varð samdráttur í íbúða-
byggingum á sama tíma og flutning-
ur af landsbyggðinni til suðvestur-
hornsins var í algleymingi. Niður-
lagning félagslega húsnæðiskerfisins
á því einnig stóran þátt í auknum
skuldum heimilanna.
Umræða á villigötum
Umfjöllun um félagslega húsnæð-
iskerfið hefur að undanfömu verið á
nokkuð einhæfum nótum. Margir
hafa í ræðu og riti lýst því kerfi sem
úreltu. Menn era fljótir að gleyma.
Þegar mesta uppbyggingin var í fé-
lagslega kerfinu, í kringum 1990,
vora aðstæður á fjármálamarkaði
allt aðrar en þær eru nú. Skortur var
á lánsfjármagni og vextir hærri en
síðustu ár. Ef ekki hefði verið ráðist í
þá uppbyggingu sem átti sér stað í
félagslega húsnæðiskerfinu þá,
hefðu fjölmargar fjölskyldur verið á
götunni svipað og nú er. Það hefur
nefnilega verið farið í hring í þessum
málum. Þeim sem hafa úr minnstu að
spila hefur aftur verið gert erfitt með
að eignast þak yfir höfuðið.
Herfíleg mistök
Það eina „úrelta" við félagslega
húsnæðiskerfið er niðurlagning þess
á einu bretti sem félagsmálaráð-
herra stóð fyrir með stofnun íbúða-
lánasjóðs. Þetta hefur leitt til þess að
fólk getur til að mynda ekki skipt um
íbúðir innan kerfisins og situr því
fast. Afnám forkaupsréttar og kaup-
skyldu sveitarfélaga er skammgóður
vermir þó það geti hentað einhverj-
um eigendum félagslegra íbúða við
núverandi aðstæður. Hvað ef sam-
dráttur kemur fram á fasteigna-
markaði?
Félagsmálaráðherra mistókst að
draga úr rekstrarkostnaði hins opin-
bera húsnæðislánakerfis með því að
leggja niður Húsnæðisstofnun og
stofna Ibúðalánasjóð í staðinn.
Breytingarnar höfðu auk þess um-
talsverð áhrif á allan fasteignamark-
aðinn, þensluna og verðbólguna.
Þegar litið er yfir liðin misseri og
þróun mála reynast allar þessar
breytingar herfileg mistök. Það eina
sem lukkaðist hjá ráðherranum var
að koma sínum mönnum fyrir í kerf-
inu.
Höfundur er þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
UMRÆÐAN
Mistök frá upp
hafí til enda
Rannveig
Guðmundsdóttir
Ny sendinn á rýmingapsBlMna PDTBTM
Úlpur m/fleece
Fleecepeysur
íþróttagallar m/2 buxum
Puma skór st. 39-42
Inniskór m/frönskum
áður kr. 13.90D
áður kr. 8.900
áður kr. 4.990
áður kr. 7.990
áður kr. 3.990
nú kr. 6.990
nú kr. 3.990
nú kr. 2.990
nú kr. 990
nú kr. 1.490
Barnaúlpur kr.
Stakar stærðir kr.
Regngallar kr.
1.990- 3.990
500-1.990
1.990- 2.990
Enn meiri verðlækkun
SPAR SPORT
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI
NÓATÚN 17
▼
S. 511 4747