Morgunblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 35
LISTIR
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Listíðahópurinn, f.v. Ólöf Sigr. Davíðsdóttir, Rita Freyja, Páll Jensson,
Snjólaug Guðmundsdóttir, Gróa Ragnvaldsdóttir, Þórir Ormsson,
Ástríður Sigurðardóttir og Guðmundur Sigurðarson. Á
myndina vantar Sverri Vilhelmsson.
Tónleikar í
Fella- og
Hólakirkju
BREIÐFIRÐINGAKÓRINN í
Reykjavík verður með tónleika í
Fella- og Hólakirkju nk. laugardag,
2. desember, kl. 17.
Tónleikar þessir eru tileinkaðir
minningu Fríðar Sigurðardóttur,
en hún var ein af stofnendum kórs-
ins.
Þeir sem fram koma eru Breið-
firðingakórinn, Svarfdælingakór-
inn, Veirurnar, kvartett, dúett og
einsöngvararnir Halla Soffía Jónas-
dóttir, Ásgeir Eiríksson, Margrét
Stefánsdóttir, Guörún Lóa Jóns-
dóttir og Sigurður Örn Sigurgeirs-
son. Undirleikari er Þóra Fríða
Sæmundsdóttir. Trompetleikur
Örn Sigurðarson. Stjórnandi kór-
anna er Kári Gestsson.
Kynnir er Ingibjörg Guðmunds-
dóttir, formaður Breiðfirðingafé-
lagsins.
Ágóði af tónleikunum rennur til
líknar- og vinarfélagsins Bergmáls.
----------------
Aðventutón-
leikar í Heima-
landi
AÐVENTUTÓNLEIKAR verða
haldnir í Heimalandi undir Eyjafjöll-
um annað kvöld, laugardagskvöld,
kl. 21. Það eru Samkór Rangæinga,
Kvennakórinn Ljósbrá og Karlakór
Rangæinga sem halda þar sameigin-
lega söngskemmtun. Efnisskráin er
fjölbreytt jólalög frá ýmsum löndum
o.fl.
Stjórnandi Samkórsins og Karla-
kórsins er Guðjón Halldór Óskars-
son og á píanóið leikur Hédi Maróti,
hornleikari er László Czenek.
Stjórnandi Kvennakórsins er
Nína María Morávek. Þetta eru
fyrstu sameiginlegu aðventutónleik-
ar þessara kóra.
Áðgangseyrir er 1.500 krónur.
----------------
Tónleikar
Tónskóla Sig-
ursveins
,Á JÓLUNUM er gleði’ og gamarí1
er yfirskrift tónleika forskólabarna
sem verða í Langholtskirkju á morg-
un, laugardag, kl. 14.
Tónleikarnir eru á vegum Tón-
skóla Sigursveins og koma um 100
nemendur fram.
Flutt verða jólalög frá ýmsum
löndum af kór, blokkflautukór og
slagverkssveit forskólanema ásamt
strengjasveit.
JL-húsið
verður
Þekkingar-
hús
ALLIANCE Frangaise flytur í
JL-húsið við Hringbraut 121 í
Reykjavík í dag, fostudag, en
fyrir eru í „Þekkingarhúsinu"
ReykjavíkurAkademían og
Myndlistaskólinn í Reykjavík.
Alliance Frangaise er íslenskt
félag sem hefur að markmiði að
kynna franska tungu og menn-
ingu hér á landi. Félagið var
stofnað árið 1911, sama ár og
Háskóli íslands var stofnsettur.
Alliance Frangaise rekur
frönskuskóla þar, franskt bóka-
safn og menningarmiðstöð. All-
iance Frangaise heldur uppi
menningardagskrá, m.a. kvik-
myndaklúbbi, listsýningum, fyr-
irlestrum, vínsmökkun o.fl.
Listíðahóp-
urinní
Borgarnesi
Borgarnesi. Morgunblaðið.
LISTÍÐ, sýning í Safnahúsi Borg-
arfjarðar, var opnuð 25. nóvem-
ber. Lístíðahópurinn samanstend-
ur af níu listamönnum sem li'fga
upp á tilveruna í svartasta
skammdeginu með því að sýna
listrænt handverk. Það eru borg-
firskir skraut- og nytjamunir úr
horni, beini, tró, ull, gleri og
fleiru. Flestir eru hlutirnir til
sölu. Fjöldi fólks var viðstaddur
opnunina, þar sem boðið var upp
á gos og konfekt auk þess sem
átta manna sönghópur undir
stjórn Steinunnar Árnadóttur lét
í sér heyra.
Sýningin stendur til 22. desem-
ber og er opin virka daga kf. 13-
18 og á fimmtudagskvöldum kf.
20-22. Sérstök helgaropnun verð-
ur 16. og 17. des.
Síðustu
sýningar
SÍÐASTA sýning leikfélagsins
Fljúgandi fiska á nýrri leikgerð á
gríska harmleiknum Medeu eftir
Evrípídes í leikstjórn Hilmars Odds-
sonar í Iðnó verður næst komandi
sunnudag, kl. 20.
Sýningin tekur um 1 klst. og 30
mín. í flutningi.
NÚ er sýningum Þjóðleikhússins
að ljúka á gamanleiknum Draumur
á Jónsmessunótt eftir breska
leikritaskáldið William Shake-
speare, og verður síðasta sýningin
næst komandi laugardag, 2. des-
ember.
Starf
í þágu þjóðar.
Rúmt ár er nú liðið síðan
Slysavarnafélag íslands og
Landsbjörg, landssamband
björgunarsveita, sameinuðust
í ein öflug björgunar- og
slysavarnasamtök.
Víðtækt starf Slysavarna-
félagsins Landsbjargar miðar
að því að bjarga mannslífum og
verðmætum og koma í veg fyrir
slys. Þar byggir hið nýja félag
á áralangri reynslu þeirra 250
félagseininga og þúsunda
einstaklinga sem inna af hendi
fórnfúst starf um allt land.
Þetta er sjálfboðastarf sem
unnið er í þágu þjóðarinnar
og byggist á öflugum
stuðningi hennar.
Því leitum við nú til þín.
1+)
SLYSAVARNAFEIAGIÐ
LflNDSBJÖRG
mm
.■■'- ■'í f , .
ÞU VINNUR!
- hvernig sem á það er litið!
23 C.":i! (32ZZ3
Qtnó4Cl<u.
:.íasknM B"SM15 dcsember : *&***&*<&$&*-
icr.ssaaæ=3æsBSEi|
3«o vinnlngar að verðm*tl kr. 35.700.0
HAUSmAPPBHAm '
tANOSÖÍOftG
1
• **•«<%** i
■y •*»
vÁV
NJíxyÞ ki, Hiitsio0
A <*>***■ *****
að v*,»»«»é Mi,
1 i ) ****** ** ***•>» b*lml**l*r.
***-’ YwfcNKik. iCAftyi
200
Jíjö OaiV
316 vinningar að
rðmæli kr. 35.700.000
Dregið 15. desember
HA USTHAPPDRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGSINS LANDSBJARGAR