Morgunblaðið - 01.12.2000, Blaðsíða 92
Ji&ihiM
-setur brag á sérhvem dag!
MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Áreksturinn varð á beinum vegarkafla á Strandarheiði. Óljóst er um tildrög slyssins.
Þrír létust í bflslysi
á Reykjanesbraut
ÞRÍR létu lífið í hörðum árekstri tveggja biíreiða á
Reykjanesbraut síðdegis í gær. Óljóst er um til-
drög slyssins, en þó er ljóst að bílamir, fólksbíll og
jeppi, komu hvor úr sinni áttinni. Slysið átti sér
stað á beinum vegarkafla. Að sögn lögreglunnar í
Keflavík, sem annast rannsókn á slysinu, var ekki
hálka á veginum.
í fólksbflnum voru hjón, fædd 1955 og 1951, og
létust þau bæði. í jeppanum voru feðgin. Ökumað-
urinn, sem fæddur var 1970, lést en dóttir hans,
fædd 1996, var flutt á sjúkrahús. Að sögn læknis á
gjörgæsludeild er líðan stúlkunnar stöðug. Hún er
með minniháttar höfúðmeiðsl en er ekki í lífshættu.
Slysið átti sér stað um kl. 16:45 á Strandarheiði,
um tvo kflómetra vestan við Kúagerði. Loka varð
Reykjanesbraut í rúmar þrjár klukkustundir með-
an lögregla og hjúkrunarfólk voru að störfum. Um-
ferð var beint um Vatnsleysuveg á meðan. Lög-
reglulið frá Keflavík, Hafnarfírði og Reykjavík,
auk sjúkrabifreiða og tækjabfls slökkviliðsins, voru
kölluð til vegna slyssins.
Lögreglan í Keflavík óskar eftir að þeir sem urðu
vitni að slysinu gefi sig fram ef það mætti verða til
að varpa Ijósi á orsök þess.
Flestir
treysta
RÚV o g
Morgun-
blaðinu
MORGUNBLAÐIÐ fékk 4,3 í ein-
kunn fyrir að treysta megi frétta-
flutningi þess í nýrri fjölmiðlakönn-
un Gallups þar sem spurt var um
gæði. Ríkissjónvarpið fékk sömu
einkunn og Rás 1 og Rás 2 fengu
4,4.
I könnuninni var að þessu sinni
spurt um gæði og voru þátttakendur
beðnir að gefa fjölmiðlum einkunn
fyrir ákveðnar fullyrðingar. Ein full-
yrðingin var: Það má treysta frétta-
flutningi þess og fékk Morgunblaðið
4.3 í einkunn. Rás 1 og Rás 2 fengu
4.4 í einkunn fyrir þá fullyrðingu.
Ríkissjónvarið fékk einnig 4,3 í ein-
kunn, Stöð 2 3,2 og DV 3,4. Þá fékk
Morgunblaðið 4,1 í einkunn fyrir
fullyrðinguna: Er miðill sem gefur
mér mikilvægar upplýsingar um
vöru og þjónustu. DV fékk þar 3,7
og Sjónvarpið 3,6.
Vefsíðan mbl.is er oftast heimsótt
íslenskra netmiðla eða tvisvar í viku
að meðaltali, samkvæmt nýrri fjöl-
miðlakönnun Gallups. Næstur net-
miðla kemur visir.is sem heimsóttur
er 1,7 sinnum og er marktækur
munur á þessum miðlum. I þriðja
sæti er leit.is en þátttakendur í
könnuninni heimsóttu hann að með-
altali 1,3 sinnum í viku.
Að meðaltali lesa 61,5% þátttak-
enda Morgunblaðið en 40,3% DV.
Þá lásu 81,6% þátttakenda Morgun-
blaðið eitthvað í vikunni, en 81% í
könnun í mars sl., og 64,9% lásu DV.
■ Yfir 81% les/6
_ Gengi
deCODE
10,56
Sendiherrar ESB-ríkja kallaðir á fund sljórnvalda í gær og öll sendiráð
í Evrópu virkjuð vegna fyrirhugaðs banns við notkun fiskimjöls í skepnufóður
Andstaða í nefnd, en málið
fer til ráðherraráðs ESB
GENGI hlutabréfa í deCODE, móð-
urfélagi íslenskrar erfðagreiningar,
hólt áfram að lækka á bandaríska
Nasdaq-verðbréfamarkaðnum í gær.
Lokagengi bréfa í deCODE í gær
var 10,5625 bandaríkjadalir og lækk-
aði gengið um 2,375 dali eða um
18,36%. Gengi bréfa deCODE hefur
aldrei verið lægra skráð.
Hinn 11. september var skráð
’Sfckagengi deCODE 28,75 og miðað
við opinbert gengi Seðlabankans var
markaðsverðmæti deCODE 106,6
milljarðar. í gær var markaðsverð-
mætið komið í 40,1 milljarð króna.
ÁFANGASIGUR náðist í gær í bar-
áttu íslands fyrir því að fiskimjöl
verði undanþegið frá banni á notkun
dýramjöls í skepnufóður, að mati
Halldórs Ásgrímssonar utanrfldsráð-
herra og Gunnars Snorra Gunnars-
sonar, sendiherra íslands í Brussel.
Tillaga um að bannið nái til alls mjöls
sem unnið er úr dýraafurðum, þar
með talið fiskimjöls, var tekin fyrir í
dýralæknanefnd ESB í gær, en ekki
reyndist vera meirihlutastuðningur
íyiir henni í nefndinni. Tillagan var
lögð fram vegna vaxandi ótta í
Evrópu við kúariðu og Creutzfeldt-
Jakob-sjúkdóminn. Sams konar bann
hefur verið samþykkt í Frakklandi og
til stendur að samþykkja það á þýska
þinginu í dag.
Gunnar Snorri sat fundinn fyrir ís-
lands hönd og fékk hann stuðning
Norðmanna í málflutningi sínum. Til-
laga um bannið kemur til kasta ráð-
herraráðs ESB, sem fundar næst-
komandi mánudag.
Mikill þungi var settur í þá vinnu
innan utanríkisþjónustunnar í gær að
koma sjónarmiðum Islands á fram-
færi. Sendiherrar þeirra ríkja ESB
sem kaupa fiskimjöl af íslendingum
voru kallaðir á fund þriggja ráðherra
og sátu þann fund einnig fulltrúar
fiskimjölsframleiðenda og nýr sendi-
herra ESB gagnvart málefnum ís-
lands. Þá voru öll sendiráð í Evrópu
virkjuð til að tala máli íslands og
beita þrýstingi um að undanskflja
fískimjöl í banni á kjöt- og beinamjöli
til skepnufóðurs.
Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi
fyrir íslenskan sjávarútveg verði
bann samþykkt í Brussel á mánudag-
inn. íslendingar fluttu út um 235 þús-
und tonn af fiskimjöli í fyrra og þar af
um 146 þúsund tonn til landa
Evrópusambandsins. Útflutnings-
verðmæti fiskimjöls til ríkja ESB
nam í fyrra um 7 milljörðum króna og
útflutningur fiskimjöls alls um 8,5
mifljörðum. Á síðustu árum hefur
hlutur fískimjöls í öllu útflutnings-
verðmæti þjóðarinnar verið á bflinu
5-15%.
Alvarlegt fyrir
fiskimjölsiðnaðinn
Magnús Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Eskifjarðar,
sem er stór útflytjandi á mjöli, sagði í
samtali við Morgunblaðið að myndi
Evrópusambandið ákveða að banna
notkun á fiskimjöli dræpi það einfald-
lega iðnaðinn. Markaðsstjóri SR-
mjöls, Sólveig Samúelsdóttir, sagði
að það yrði gríðarlegt áfall fyrir þjóð-
ina yrði bannið samþykkt.
Halldór Ásgrímsson utanrfldsráð-
herra sagði við Morgunblaðið að nið-
urstaða dýralæknanefndar ESB í
gær hefði gefið aukið svigrúm til að
koma sjónarmiðum íslands betur á
framfæri við ríki Evrópusam-
bandsins.
■ Áfangasigur/46
Hringdu í
907 2121
og þú gætir unnid milljón!
u svarar spurníngunni kostar símtalið 199 kr.
Keppendur verda að verá 16 ára eða eldri.