Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 4

Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Úrskurður um laxeldi í Mjóafírði til ESA Telja varúðarreglu umhverfisréttar virta að vettugi 17 mönnum sagt upp hjá Isfélaginu Handtekin með 100 g af kókaíni LÖGREGLAN hefur handtekið fjóra menn vegna aðildar að inn- flutningi á tæplega 100 grömmum af kókaíni. Tollgæslan á Keílavíkurflugvelli stöðvaði 20. nóvember par sem var að koma til landsins vegna gruns um að það væri með fíkniefni. Þau voru úrskurðuð í viku gæsluvarðhald. Ás- geir Karlsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, sagði að í Ijós hefði komið að þau voru með tæplega 100 grömm af kókaíni innvortis. Hann sagði að litlu seinna hefði einn maður til viðbótar verið handtekinn og úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. í gær hefði svo fjórði maðurinn verið handtekinn vegna gruns um aðild að málinu. Asgeir sagði að hin grunuðu væru á milli tvítugs og fertugs. Sum þeirra hefðu tengst fíkniefnamálum áður. Að rannsókn málsins hafa unnið starfsmenn tollgæslunnar á Kefla- víkurflugvelli og lögreglunnar í Reykjavík. Að sögn Asgeirs hefur það sem af er árinu verið lagt hald á 880 grömm af kókaíni. Fyrir sex vik- um voru þrír ítalir teknir í Keflavík með um 200 grömm af þessu fíkni- lyfi, auk um 50 gramma af e-töflu- dufti. ------H-«-------- Sjúklingar grunaðir um lyfjasölu DÆMI eru um að geðlyfið ritalín sé notað í öðrum tilgangi en læknar ætla, en það er lyfseðilsskylt. Þetta kemur fram á heimasíðu SAA þar sem fjallað er um verð á vímuefnum. Fram kemur að verslun með rita- lín hafi verið könnuð í tvo mánuði. Sex sjúklingar höfðu keypt lyfið á 14 daga tímabili af systkinum eða for- eldrum þeirra sjúklinga sem lyfið var ætlað, svo og af sjúklingunum sjálfum sem telja sig ekki þurfa á því að halda og selja það frekar á svört- um markaði. Sigurður Guðmundsson landlækn- ir tjáði Morgunblaðinu að grunur hefði vaknað í einu tilviki um slíka misnotkun en embættinu hefði ekki tekist að fá það staðfest. Yiðbúnaður vegna hreyf- ilbilunar MIKILL viðbúnaður var á Reykja- víkurflugvelli síðdegis í gær vegna flugvélar í áætlunarflugi frá Gjögri með sex manns innanborðs. Drepa þurfti á öðrum hreyfli vélarinnar, sem var af gerðinni Cessna 404s og frá Leiguflugi ísleifs Ottesen. Lend- ingin tókst giftusamlega. Tveir flugmenn og fjórir farþegar voru um borð. Líkt og venja er í til- vikum sem þessum var slökkvilið Reykjavíkurflugvallar í viðbragðs- stöðu við flugbrautina. Þá var Suður- götu lokað í um 5 mínútur. ----------------- Ekki fundað um helgina FUNDUR í kjaradeilu framhalds- skólakennara og ríkisins stóð í um sex klukkustundir í gær. Þórir Ein- arsson ríkissáttasemjari segir að far- ið haíi verið yfir stöðu mála en ekkert markverst hafi gerst á fundinum. Þórir segist ekki sjá fram á funda- höld um helgina að svo komnu máli en þó sé ekki útilokað. Boðað hefur verið til nýs fundar í dag. ÚRSKURÐUR umhverfisráðherra um að sjókvíaeldi á laxi í Mjóafirði skuli ekki sæta mati á umhverfis- áhrifum hefur verið kærður til Eft- irlitsstofnunar EFTA (ESA). Kær- endur, sem eru Landssamband veiðifélaga, Veiðfélög Selár, Vest- urdalsár, Hofsár og Sunnudalsár, eigendur Haffjarðarár og Norður- Atlantshafslaxasjóðurinn (NASF), vilja láta á það reyna hvort úrskurð- urinn brjóti í bága við EES- samninginn, einkum tilskipanir um mat á umhverfisáhrifum. „Með ákvörðun sinni hefur ráð- herrann virt að vettugi varúðar- reglu umhverfisréttar er kveður efnislega á um að náttúran skuli njóta vafans, segir í fréttatilkynn- ingu frá Landssambandi veiðifé- laga. „Fram til þessa hefur um- hyggja fslendinga fyrir umhverfinu, hreinum vatnsfollum og ómenguðum sjó notið eindregins FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefúr fellt niður heimild Lloyd’s til að bjóða lögboðnar ökutækjatiyggingar hér á landi frá og með 24. nóvember sl. í fréttatilkynningu frá Fjármálaeftir- litinu segir að aðdraganda þessa megi rekja til þeirrar ákvörðunar Lloyd’s að hætta töku nýtrygginga og hætta að endumýja vátryggingasamninga. Fram kom í seinasta mánuði að Octavian, dótturfyrirtæki Lloyd’s í London, hefði ákveðið að endumýja ekki samstarfssamning við Alþjóð- lega miðlun ehf., sem rekur FÍB- tryggingar. Baldvin Hafsteinsson hjá FIB-tryggingum, segir að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hafi enga sér- staka þýðingu fyrir FÍB-tryggingar. „Octavian dró sig út úr tryggingum í októbermánuði. Við útskýrðum þá að erfitt væri að fá annan til þess að taka við tryggingunum á þeim tíma. Hins vegar er nú fyrirhugað að við byrjum aftur að bjóða bílatryggingar í janúar,“ sagði hann. Aðspurður um hvaða vátryggjanda væri að ræða sagði hann að ekki væri búið að til- kynna formlega um það samstarf. stuðnings náttúruvemdarfólks, öðr- um jarðarbúum til eftirbreytni. Með úrskurði sinum gengur umhverfis- ráðherra í berhögg við þá stefnu.“ í tilkynningunni segir að gert sé ráð fyrir að framleiða 6 til 8 þúsund tonn af eldisfiski af norskum stofni í Mjóafírði. „Vísindamenn hafa staðfest að laxeldi af þessari stærðargráðu, ekki síst þar sem notuð em seiði af erlendum uppmna, hefur mikla hættu í for með sér fyrir villta laxa- stofna, bæði hættu á erfðablöndun og sjúkdómum. Og ef Ijón verður er það óafturkræft. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar ero á sömu skoðun. Þrátt fyrir þessar staðreyndir hefur umhverfisráðherra hafnað mati á umhverfisáhrifum fyrir framkvæmdina og tekur eingöngu mið af sjónarmiðum þeirra er hyggjast fara í laxeldi." Baldvin sagði að ákvörðun Fjár- málaeftirlitsins væri í raun og veru bara afleiðing af ákvörðun Octavian að hætta að bjóða bifreiðatryggingar utan Bretlands og þá væri sjálfgert að heimild viðkomandi fyrirtækis til slíkrar starfsemi yrði felld niður eins og lög gerðu ráð fyrir. Var ákvörðun Fjármálaeftirlitsins tekin í fullu sam- ráði við alla sem hlut áttu að máli og að vandlega athuguðu máli. Geta ekki hoppað inn og út af markaðinum Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að áður en heimildin var felld niður hefði Lloyd’s getað komið fyrirvaralaust aftur inn á markaðinn hér á landi en það væri hins vegar ekki viðunandi að fyrir- tæki sem byðu lögboðnar ökutækja- tryggingar gætu hoppað inn og út af markaðinum. STJÓRN ísfélags Vestmannaeyja hefur ákveðið að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir áframhaldandi taprekstur en tap á rekstrinum síð- astliðið starfsár var um 155 milljónir króna. Ákveðið hefur verið að leggja niður vélaverkstæði og trésmíða- verkstæði fyrirtækisins og fækka störfum á öðrum deildum. Samtals verður 10 iðnaðarmönnum sagt upp og 7 verkamönnum. Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri ísfélagsins, sagði að ekki væru fyrirhugaðar neinar breyt- ingar á landvinnslu fyrirtækisins. Stjómendur þess hefðu fulla trú á landvinnslunni og ætluðu að einbeita sér að því að fullvinna þann afla sem bærist á land af kvóta fyrirtækisins. Lögð yrði enn meiri áhersla á vinnslu uppsjávarfiska til manneldis. Félagið ætlaði að auki að landa eins miklu af bræðsluííski skipa sinna og nokkur kostur væri í fiskimjölsverksmiðjum sínum. „Við höfum hins vegar tekið ákvörðun um að leggja niður stoð- deildirnar, þ.e. vélaverkstæðið og trésmíðaverkstæðið, sem hafa annast Áhrif þessarar ákvörðunar væru þau að ef Lloyd’s hygðist bjóða öku- tækjatryggingar á nýjan leik hér á landi þyrfti fyrirtækið að fara í gegn- um sama afgreiðsluferil og þegar það kom inn á markaðinn í upphafi. Það þyrfti þá að tilkynna ákvörðun sína til fjármálaeftirlitsins í Bretlandi og það myndi svo tilkynna þá ákvörðun til Fjármálaeftirlitsins hér, sem þyrfti að fara yfír skilmála áður en sam- þykki yrði veitt. Aðspurður sagði hann mismunandi hversu langan tíma slík afgreiðsla tæki. Alþjóðlegar bifreiðatryggingar á íslandi sf. bera ábyrgð á tjónum sem valdið er af óvátryggðum ökutækjum. í yfirlýsingu frá Olafi B. Thors, for- manni Alþjóðlegra bifreiðatrygginga, í gær er vakin athygli á að þótt starfs- heimild Lloyd’s hafi verið afturkölluð liggi fyrir að samningar sem gerðir voru fyrir 17. október sl. haldi gildi viðhald á bátum, verksmiðjum og frystihúsi félagsins. Markmiðið er að draga verulega úr viðhaldi. Við erum með nýja bræðslu í Vestmannaeyjum og nýtt og gott frystihús. Bræðslan á Akureyii er í ágætis standi þannig að við teljum að við getum að skaðlausu di-egið úr viðhaldi. Það viðhald sem nauðsynlegt er ætlum við að kaupa af verktökum og þá stefnum við að því að gera það í tilboðs- eða útboðsformi." Jóhann sagði að starfsfólk ísfé- lagsins þyrfti ekki að óttast frekari uppsagnir. Um 250 manns starfa hjá fyrirtækinu og sagði Jóhann að eftir uppsagnimar yrðu álíka margir starfandi hjá því og voru í fyrrahaust. „Við erum búnir að vera að bíða undanfama mánuði eftir sameiningu við annað fyrirtæki í Eyjum. Það má segja að á meðan hafi ekki verið tekið á málum þar sem menn voru að und- irbúa allt annað en að reka fyrirtækið í óbreyttu formi. Isfélagið var rekið með 155 milljóna tapi í fyrra og það er ekki viðunandi. Haustið hefur farið illa af stað hjá okkur og það var kom- inn tími til að taka á málum,“ sagði Jóhann. sínu út umsaminn vátryggingartíma. Bifreiðaeigendur geti ekki endurnýj- að tryggingar sínar hjá Lloyd’s/FIB- tryggingu eða stofnað til nýrra. ,>Að öllu óbreyttu er hér ekki um bráðabirgðaástand að ræða, eins og gefið hefur verið í skyn, enda hefur Fjármálaeftirlitið fellt starfsheimildir vátryggjandans niður,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Tryggingar halda gildi sínu til næstu endurnýjunar í fréttatilkynningu Fjármálaeftir- litsins segir að þrátt fyrir þá ákvörð- un að fella niður heimild Lloyd’s til að bjóða ökutækjatryggingar sé ennþá íjöldi vátryggingasamninga í gildi hér á landi á vegum Lloyd’s sem muni halda gildi sínu fram til næstu endur- nýjunar. ,Að óbreyttu munu þeir samningar ekki verða endumýjaðir hjá Lloyd’s og því þurfa vátrygging- artakar að huga að endumýjun þeirra hjá öðrum vátryggjanda. MMvægt er að hafa hugfast að þýðingarlaust er að merkja við Lloyd’s á tilkynningu um eigendaskipti á ökutækjum." ^ Morgunblaðið/Ásdís LITLIRfæturþurfaaðgangamargfaltfleiriog A "J_ * ___ "1 _ * orðnir ansi lúnir í lok dagsins og kunna vel að hraðari skref en þeir stdru til að komast yfir li I Tll I / | meta styrka hönd til að halda í á heimleiðinni og sömu fjarlægðir. Ungir íslendingar emþvíoft ■*. A. 11 ekki spillir ef förunauturinn léttir byrðamar. Heimild Lloyd’s til að bjóða bifreiðatryggingar felld niður FÍB-tryggingar hyggjast bjóða bílatryggingar í janúar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.