Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 10

Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Harkalegri aðferðir við rán samkvæmt ársskýrslu ríkislögreglustjóra Markvissar aðgerðir hafa skil- að árangri í fíkniefnamálum ÁRSSKÝRSLA embættis ríkislög- reglustjóra íyrir árið 1999 var birt í gær. í skýrslunni má sjá að aukning varð í flestum brotaflokkum á milli ára. Mest var aukning í fíkniefna- brotum sem fjölgaði um tæplega 35% milli ára og í auðgunarbrotum sem voru um fjórðungi fleiri árið 1999 en árið á undan. í fyrra var lagt hald á meira magn af fíkniefnum en nokkru sinni fyrr. Guðmundur Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir að þennan góða árangur megi rekja til markvissra aðgerða lög- reglu og tollgæslu. Hann bendir á að fíkniefnabrot séu sjaldnast kærð heldur upplýsist þau vegna frum- kvæðis löggæslumanna. Fyrir vikið sé aukning fíkniefnabrota milli ára ekki einhlít vísbending um aukningu fíkniefna í umferð heldur bendi ekki síður til aukinnar löggæslu. Hann segir að samvinna lögregluembætta hafi verið aukin og tækjabúnaður bættur. Þá hafi lögreglan nú betri yfirsýn yfir fíkniefnavandann og hvaða aðferðum brotamenn beita. I skýrslunni segir þó að þrátt fyrir nokkrar verðsveiflur á fíkniefnum í kjölfar aðgerða lögreglu og toll- gæslu hafi götuverð fíkniefna haldist stöðugt þegar til lengri tíma er litið. Það, ásamt þvi mikla magni fíkni- efna sem lagt er hald á, bendi til þess að talsvert af fíkniefnum sé í umferð. Það sem af er þessu ári hafa lög- reglan og tollgæslan lagt hald á um 21.500 e-töflur en allt árið í fyrra var lagt hald á um 7.500 e-töflur. Svip- aða sögu má segja af ástandinu ann- ars staðar í Evrópu en þar var lagt hald á þrefalt fleiri e-töflur árið 1999 en árið á undan. „Á þessu ári hefur verið lögð enn aukin áhersla á bar- áttuna gegn fíkniefnum," segir Guð- mundur. Hann nefnir sem dæmi að UR SKYRSLU RIKISLOGREGLUSTJORA1999 4500 Fjöldi brota 4000 1998 1999 1998 1999 1998 1999 1998 1999 1998 1999 Kynferðis- Fíkniefna- Brot á Eignaspjöll Líkams- brot mál* áfengislögum meiðingar * Það athugist að ffcniefnamál sem komu upp hjá tollgæslunni á Keflavikurllugvelli og tollgæslunni í Reykjavik eru skráð hjá Iðgreglustjóranum ÍReykjavik á yfírlitinu hér að ofan. Helgast það af þvi að rannsóknarþáttur málanna er hjá þvf embætti. aðgerðir lögreglu og tollgæslu um og fyrir síðustu verslunarmanna- helgi hafi dregið verulega úr fram- boði fíkniefna að hans mati. Rán tvöfalt fleiri og ofbeldisfyllri í skýrslu nTcislögreglustjóra kem- ur fram að 40 rán voru framin árið 1999 en aðeins 18 árið á undan. Að- ferðirnar við ránin voru jafnframt harkalegri en áður. í fyrra voru tveir stungnir, ógnað var með byssu og rafstuðtæki. í skýrslunni segir ennfremur að um helmingur þeirra sem frömdu rán í íyrra hafi verið vopnaður. í rúmlega tíunda hvert skipti var vopnum beitt sem er mun meira en fyrir áratug en þá heyrði til algerra undantekninga að ræningjar beittu vopnum. Flestir þeir sem verða fyrir rán- um eru á aldrinum 16-20 ára og flestir gererendur eru litlu eldri. I skýrslunni segir að langflest rán séu framin til að fjármagna vímuefna- neyslu, hvort sem er áfengis- eða fíkniefna. Fjölgun rána megi m.a. rekja til þess að neysla fíkniefna hef- ur færst í vöxt á síðari árum. Þá fari aldur neytenda lækkandi. Mikil aukning þjófnaðarmála varð milli ára, einkum á höfuðborgar- svæðinu en um 80% þjófnaða voru framin þar. I skýrslunni segir að mikil aukning hafi orðið á þjófnaðar- tilkynningum vegna GSM-síma en í skýrslunni segir að þær nemi hundr- INNBROT OG ÞJÓFNAÐIR 10000 8000- jS s 8.173 Lands- byggðin 1998 1999 uðum á ári hveiju. í tölum um stolna farsíma geti leynst allmörg tilvik þar sem símar hafi týnst en þeir til- kynntir sem stolnir. Guðmundur segir að á þessu ári hafi verið lögð sérstök áhersla á að gera samantektir um fíkniefnabrot, rán og ofbeldisbrot. Leitast er við að greina mismunandi tegundir afbrota og tengsl þeirra við önnur brot. Af- brotagreining geri viðbrögð og starf lögreglunnar mun markvissari en ella. Þegar hafi verið geftn út skýrsla um fíkniefnabrot. Hann segir næsta verkefni ríkis- lögreglustjóra verða afbrotafræði- legar rannsóknir á auðgunarbrotum í samvinnu við lögregluembætti landsins. Kannað verði hvaða brot- um fjölgi helst, hver sé helsta skýr- ing þess og til hvaða úrræða sé hægt að grípa. Guðmundur segir að þrátt fyrir að markmið lögreglunnar um fækkun afbrota um 20% hafi ekki náðst megi alls ekki h'ta svo á að árangurinn hafi verið slakur. Lögreglan hafi náð um- talsverðum árangri í starfi, sérstak- lega í baráttunni gegn fíkniefnum. Þýska lögreglan fékk upplýsingar frá ríkislögreglusljóra Fjárkúg- arar hand- teknir í kjölfarið ALÞJÓÐADEILD rfkislögreglu- stjdra aðstoðaði í fyrra lögreglu- yfírvöld í Þýskalandi við að hafa hendur í hári fjárkúgara sem reynt höfðu að kúga jafnvirði rúmlega 300 milljúna krúna út úr matvælaframleiðandanum Nestlé. Upplýsingar sem starfsmenn rfkislögreglustjúra fengu hjá ís- lensku netþjúnustufyrirtæki komu þýsku lögreglunni á spor fjárkúgaranna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu rfkislögreglustjúra fyrir árið 1999. Fjárkúgararnir höfðu sett við- vörunarmiða á matvörur þar sem fúlk var varað við að kaupa til- teknar vörur, m.a barnamat. Á miðunum var sagt að búið væri að setja eitur í matinn og í sumum tilfellum var búið að setja skor- dýraeitur í hann. Dagana 11. og 12. núvember 1999 könnuðu fjár- kúgarnir hvort búið væri að leggja peninga inn á bankareikn- ing þeirra á Grenada. Þetta gerðu þeir á Netinu með hugbúnaði ís- lensks netþjúnustufyrirtækis. Lögeglan í Þýskalandi fúr fram á aðstoð fslensku lögreglunnar og sama dag fékk efnahagsbrota- deild ríkislögreglustjúrans dúms- úrskurð frá Héraðsdúmi Reykja- víkur um að unnt væri að krefjast þessara upplýsinga frá fyrirtæk- inu. Upplýsingarnar voru sendar áleiðis til Þýskalands og urðu til þess að lögreglan þar komst á spor fjárkúgaranna, sem reyndust vera par, og voru þeir handteknir af lögreglunni í Múnchen í lok desember. Framtíðarstefna í öldrunarmálum rædd á ráðstefnu á Hótel Loftleiðum Lágmarks íslensku- kunnáttu krafíst í öldrunarþj ónustu Drög að umferðaröryggisáætlun stjórnvalda 2001-2012 kynnt á Umferðarþingi í gær Stefnt að fækkun alvarlegra umferðarslysa um 40% Morgunblaðið/Ámi Sæberg Meðal þátttakenda á Umferðarþinginu voru Súlveig Pétursdúttir dúms- málaráðherra, Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjúri. FÆRRI aldraðir úska eftir þjún- ustu á stofnunum og sffellt fleiri kjúsa að búa á heimilum sfnum eins lengi og kostur er. Þrátt fyr- ir þetta og viðamikla upp- byggingu vistunarmála aldraðra undanfarin tíu ár vantar enn yfir 300 hjúkrunarrými, þar af 230 á höfuðborgarsvæðinu. Langir bið- listar eru áhyggjuefni sem illa gengur að vinna á og er ástandið með því verra sem sést hefur um árabil. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnunni „Verðmæti umönnunar fyrir fslenskt samfé- lag - öldrunarþjúnusta sam- ábyrgð þjúðarinnar" þar sem ímynd ellinnar og þess að starfa með öldruðum var rædd. 10,3% þjúðarinnar eru 67 ára og eldri og gera spár Þjúðhagsstofnunar ráð fyrir að þeim fjölgi stöðugt á næstu áratugum og verði tæpur fímmtungur þjúðarinnar árið 2020. Vel menntað og þjálfað starfsfölk Aukinn fjöldi aldraðra krefst meiri umönnunar og þarf sú þjún- usta að sögn Júhanns Árnasonar, framkvæmdastjúra hjúkrunar- heimilisins Sunnuhlíðar, að vera margbreytileg og miðast við þarf- ir hvers og eins. Júhann lagði í erindi sínu ríka áherslu á að þjúnusta væri aldrei betri en þeir sem veita hana. „Grundvöllur gúðrar öldrunar- þjúnustu er vel menntað og þjálf- að starfsfúlk," sagði Júhann og benti á að ein lausn á vandanum væri að ráða erlent starfsfúlk til umönnunarstarfa eins og gert hefur verið í æ ríkari mæli að undanförnu þar sem mannekla væri mikil í umönnunarstörfum. 7 til 8% starfsfölks af erlendu bergi brotin Um 7 til 8 prúsent starfsfúlks á hjúkrunarheimilum í Reykjavík eru af erlendu bergi brotin. Anna Birna Jensdúttir sviðs- stjúri öldrunarsviðs sagði áhyggjuefni að hafa ekki ís- lenskumælandi fúlk í öldrunar- störfum og nauðsyn væri að koma á þeim lágmarksskilyrðum fyrir ráðningu að fúlk hefði sútt nám- skeið í tungumálinu og grunnum- önnun. Vísir að þessu er þegar til staðar þar sem 30 starfsmenn Landakots hafa nýlokið 7 vikna starfstengdu íslenskunámskeiði og eru áform um frekara nám- skeiðahald fyrirhuguð. UMFERÐARÞING Umferðarráðs var sett í gær. Meðal þess sem rætt verður á þinginu er umferðaröryggis- áætlun fyrir árin 2001-2012. í drög- um að áætluninni er gert ráð fyrir að fækka alvarlegum umferðarslysum og banaslysum um 40% fyrir árslok 2012. Stefnt er að því að færri en 120 slasist alvarlega eða látist í umferð- inni við lok tímabilsins. Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra sagði að landsmenn hefðu að undanfömu verið rækilega minntir á þær hættur sem stafa af umferð. Al- varleg slys hefðu verið alltof mörg. Of margir lægju í valnum eða hefðu beð- ið óbætanlegt heilsutjón. Þá hefðu miklir fjármunir farið í súginn. Hún bætti við að því miður væri slysalaus umferð fjarlægt markmið en hvert skref sem tekið væri að bættu um- ferðaröryggi væri í rétta átt Sólveig sagði að ýmislegt hefði verið gert til að stuðla að auknu umferðaröryggi, t.d. með auknum rannsóknum og að- haldi og eftirliti með ökumönnum. Þá kom fram í máli Sólveigar að til at- hugunar væri að herða refsingar við umferðarlagabrotum en þær væru ekki mjög harkalegar miðað við það sem gerðist í nágrannalöndum ís- lands. Æfingasvæði fyrir ökukennslu tekið í notkun árið 2002 Viljayfirlýsing um stofnun félags sem hefur það að markmiði að byggja upp og starfrækja æfingasvæði til ökukennslu var undirrituð á Umferð- arþingi í gær af þeim Sólveigu Péturs- dóttir dómsmálaráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir, borgarstjóra í Reykjavík, Guðbrandi Bogasyni, for- maðnni Ökukennarafélags íslands, og Sigmari Ármannssyni, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra. Reykjavík- urborg hefur úthlutað félaginu lóð til starfseminnar við Gufunes í Reykja- vík. Rannsóknarráð umferðar- öryggismála sett á laggirnar Gert er ráð íyrir að uppbygging æf- ingasvæðisins hefjist vorið 2001 og stefnt er að því að það verði tekið í notkun árið 2002. Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri umferðarráðs sagði að með þessu væri gamalt bar- áttumál ráðsins loksins í höfn. Á þinginu var tilkynnt stofnun rannsóknarráðs í umferðaröryggis- málum. Hreinn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega- gerðarinnar, sagði að einn þeirra þátta sem gætu komið í veg fyrir um- ferðarslys væri aukið rannsóknar- og þróunarstarf. Það væri e.t.v. ekki stærsti þátturinn en gæti þó vissulega verið lóð á vogarskálamar. Hann sagði hlutverk rannsóknarráðs um- ferðaröryggismála verða að standa fyrir hvers konar rannsóknum sem nýta mætti til að koma í veg fyrir um- ferðarslys og draga úr afleiðingum þeirra og jafnframt afla erlendra rannsókna sem komið gætu til góða hér á landi. Áætlað er að ráðið hafi um 20-30 milljónir til ráðstöfunar árlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.