Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Áhugaljdsmyndaklúbbur Akureyrar, ÁLKA, gefur út ljósmyndabók Svipmyndir af heimabyggð ÁHUGALJÓSMYNDAKLÚBBUR Akureyrar, ÁLKA, hefur ráðist í stórvirki og gefíð út bókina; Akur- eyri - bærinn okkar. Bókin er um 100 blaðsíður og í henni eru um 250 ljósmyndir eftir þrettán félags- menn í Ijósmyndaklúbbnum, sem þó eiga misjafnlega margar mynd- ir. Myndunum fylgir stuttur texti á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku, sem saminn var af félagsmönnum ÁLKA,J>eim Björg- vini Steindórssyni og Arna Ólafs- syni. Þeir félagar komu einnig að hönnun bókarinnar og myndavali ásamt Sigurði Baldurssyni og Þór- halli Jónssyni. Tilefni útgáfunnar er hátíðarár stóraldamóta, eins og segir í kynn- ingu, afmælisár kristnitöku og landafunda. Ennfremur segir, að það að bókin er gerð af félögum í ÁLKA, geri hana sérstæða í tvenn- um skilningi. Annars vegar felur áhugamennskan í sér að ekki liggja atvinnu- eða arðsemissjónar- mið á bak við myndatöku og efnis- tök og hins vegar að bókin er unn- in af hópi heimamanna sem skoða og birta brot úr eigin heimahögum en eru ekki gestir eins og títt er þegar atvinnuljósmyndarar fást við hliðstæð viðfangsefni. Þórhallur Jónsson gjaldkeri ÁLKA sagðist ánægur með út- komuna. Bókin væri eiguleg og til- valin gjöf til vina og ættingja er- lendis og til allra þeirra fjölmörgu gesta, innlendra og erlendra sem sæktu Akureyri heim. Eitt ár í sögu bæjarins Tilgangurinn með útgáfu bókar- innar er að bregða upp svipmynd af heimabyggðinni, sem sýnir mannlíf og umhverfí, atvinnulíf og athafnasemi, menningu og við- burði - eitt ár í sögu bæjarins - til fróðleiks og ánægju og ef til vill til samanburðar síðar. Myndirnar voru teknar frá haustinu 1999 og fram á haustið 2000. Myndasíðum og syrpum er raðað í meginatrið- um í tímaröð eftir árstíðum - byrj- að á kuldalegum vetrarmyndum í janúar og endað með flugeldasýn- ingum um áramót. Bókinni er þó ekki ætlað að vera annáll, heldur hefur val við- fangsefna ráðist af áhuga og nán- asta umhverfi þeirra félaga sem að bókinni unnu. Norðan tveir, Akur- eyri, sáu um litgreingu, mynd- vinnslu og hönnum kápu en Oddi ehf. sá um filmur og prentun. Magnús Teitsson og Rafn Kjartans- son sáu um enska þýðingu textans í bókinni og Herdís Gunnlaugsdóttir um þýðingu textans á þýsku. UJAT€ ■ S V L I sverö 3 kr. 167.9 \ *- \í% * ■ | ; • # i il % i! % » \ j \m r ■■ |: :90 cm 85x85 cm 120x90 cm Hjartalaga tveggja manna nuddbaSkar meo framhliS. Verð kr. 145.800,-^ Stærð 143x143 cm. NuddbaSkar úr emeleruSu stáli. Verð kr. 115.200,- verÖ án hlífa og höfuðp^v, ^ Stærðir 180x83 cm og 170x83cm ílæsilegt úrval af sturtuhurðum, -hornum og öryggisgleri. Vife Fellsmúla Simi 588 7332 www.heildsoiuverslunin.is OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-J lauqard. kl. 10-14 Kirkjan, Leikfélag Hörgdæla og Þeiamerkurskóli Samstarf um að- ventukvöld LEIKFÉLAG Hörgdæla, Þelamerkurskóli og kirkjan í Möðruvallaklausturspresta- kalli hafa tekið höndum sam- an um að gera aðventukvöldið árið 2000 ógleymanlegt. Aðalsteinn Bergdal var ráð- inn til að leikstýra helgileik fermingarbarna og kirkjukórs á aðventukvöldi kirkjunnar sem verður á sunnudagskvöld, 3. desember kl. 20:30. Ef vel tekst til mun helgileikurinn einnig verða sýndur á aðvent- ukvöldum í Glæsibæjarkirkju 10. desember og sameiginlegu aðventukvöldi Bægisár- og Bakkasókna í Bakkakirkju þann 17. desember. Á aðventukvöldinu í Möðru- vallakirkju á sunnudag munu börn úr Tónlistarskóla Eyja- fjarðar leika á hljóðfæri og börn úr Þelamerkurskóla verða með Lúsíusöng undir stjórn Guðmundar Engil- bertssonar kennara. Ræðumaður kvöldsins verð- ur Bernharð Haraldsson, en stundinni lýkur með helgi- stund í umsjá sóknarprestsins sr. Solveigar Láru Guðmunds- dóttur. Einnig verður mikill almennur söngur, svo hin sanna jólastemmning mun ríkja í Möðruvallakirkju fyrsta sunnudag í aðventu. Orgeltónleik- ar á aðventu BJÖRN Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju, heldur orgeltónleika í kirkjunni á morgun, laugar- daginn 2. desember, kl. 12. Á efnisskránni verður að- ventutónlist eftir Johann Seb- astian Bach, Johann Gottfried Walther og Dietrich Buxte- hude. Lesari á tónleikunum er sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Að tónleikunum loknum verð- ur svo léttur hádegisverður í Safnaðarheimilinu. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir vel- komnir. Kirkjustarf LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju kl. 11 á morgun, laugardaginn 2. desember. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 21 á sunnudags- kvöld. Kirkjuskóli verður í Grenivíkurkirkju á morgun, laugardag, kl. 13.30. Guðsþjón- usta verður í kirkjunni kl. 14 á sunnudag. Byrjum aðventuna með kirkjugöngu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.