Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 40

Morgunblaðið - 01.12.2000, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Uppskrift að góðum dögum BÆKUR Sjál fsrækt FEGRAÐU LÍF ÞITT Eftir Victoria Moran. Þýðandi: Þðra Sigríður Ingólfsdóttir. Útgefandi: Salka. LEIÐARVÍSIR að góðum degi er undirfyrir- sögn þessarar bókar sem í fljótu bragði gæti virst enn ein klisjukennda sjálfshjálparbókin, endurtakandi allt sem hefur verið skrifað í öðr- um sjálfshjálparbókum, bara með öðru orðalagi. En svo er ekki, því hér er aðeins verið að hvetja konur til þess að treysta á eigin dóm- greind - og án þess að þær eigi við vandamál eða fiknir að stdða. Lögð er áhersla á að konur rækti það sem þær hafa í stað þess að kenna þeim aðferðir til að breyta sér. Bókin skiptist í hvorki meira né minna en sjötíu kafla sem allir eru stuttir, skýrt fram sett- ir á blátt áfram hátt og byggjast allir á einfóld- um lífsreglum sem auðvelt ætti að vera að fara eftir. En það er einmitt í einfaldleikanum sem galdur Victoriu Moran felst. Hann minnir les- andann á það hversu miklu hann er að tapa í há- væru, skrumkenndu samfélagi sem dælir inn upplýsingum um það hvemig við eigum að vera og hvemig við eigum ekki að vera. Undirrituð ákvað að taka höfundinn á orðinu í kafla sem ber heitið „Gefðu þér tíma“ og hefur gefið sér býsna góðan tíma til að fara í saumana á bókinni í stað þess að lesa hana f belg og biðu og afgreiða hana sem góða eða slæma - og í kjölfarið rifjað upp einfold lífsgildi sem höfðu gleymst einhvers staðar í miðju gjömingaveðri kröfunnar sem við konur gerum til sjálfra okkar og álítum okkur þurfa að uppfylla. Það var í sjötta kaflanum sem vitranin kom en þar segir: „Næstum allar konur sem ég þekki eru annaðhvort svolítið dasaðar eða algerlega búnar að vera. Ástæðan fyrir þessari líkamlegu og andlegu þreytu virðist mér vera sú að við er- um stöðugt að reyna að komast í heimsmetabók- ina. Okkur finnst við bera ábyrgð á svo mörgum manneskjum og verkefnum að það lítur út fyrir að við höfum heiminn á herðunum. Auðvitað beram við ábyrgð, en að sýna of mikla ábyrgðar- tilfinningu vegna viðskiptavina, eiginmanns og jafnvel barna getm- gert okkur örmagna að óþörfu“ (bls. 31). Eftir skemmtilega skýringu á því hvað átt er við ráðleggur höfundurinn kon- um að losa sig við „ómerkilegustu orkuþjófana, þá verða miklu fremur góðai’ og gildar ástæður fyrir því að þú þreytist“ (bls. 33). Þessir ómerki- legu orkuþjófar geta verið að tala of mikið, sjálfs-vanræksla, óraunhæfar væntingar, heil- inda-gap, slúður og umvandanir og bendir höf- undur á að stöðug ræðuhöld „um heimspekilega lífssýn okkar í hvert skipti sem færi gefst er bein vísun á óendanleg leiðindi og örmögnun" (bls. 33). I bókinni er farið í flesta þá þætti sem koma við daglegt líf kvenna, vinnuna, tilfinningamar, samskipti við ástvini, vinnufélaga og aðra, og ekki verið að prédika um að konur þurfi, eða eigi, að gera hitt og þetta og ekki er boðið upp á neina aðra lausn en þá að hver kona hlusti á sína eigin innri rödd og fylgi henni. Það er líka brýnt fyrir konum að losa sig við þann leiða kæk að vera stöðugt að draga úr gildi sínu, orðum og gjörðum og einbeita sér að jákvæðu hugarfari í eigin garð. Victoria Moran leggur áherslu á að konur helgi sér svæði sem sé alfarið fyrir þær, jafnvel þótt þær búi þröngt, finni sér hvíldar- stund á hveijum degi og umfram allt að þær andi: „Segðu við sjálfa þig um leið og þú andar að þér að þú sért að draga til þín styrk, líf og stórkostlega möguleika. Þegar þú andar svo frá þér hugsaðu þá um að þú sért að ýta frá þér and- legu álagi, reiði og hindranum sem kunna að hafa haldið aftur af þér“ (bls. 97). Sá kafli sem kom þó mest á óvart ber heitið „Mikilvægar flækjur", þar sem höfundur bendir á að lífið sé blanda af einfaldleika og mikilvæg- um flækjum og bætir því við að mestu gleðiefnin séu oft þau sem flækja lífið mest. Hún fjallar um vandamál og flækjur sem eðlilegan hluta lífsins í stað þess að slfkt sé einhver heimsendafyrir- boði, stafi af skemmdum í uppeldi eða því að við- komandi sé misheppnuð. Það er hugarfarið sem skiptir mestu máli; það hvemig við umgöng- umst okkur sjálfar, tölum tO okkar og hvað okk- ur finnst við eiga skilið. Þótt kaflarnir séu sjötíu og þéttir af heilræðum era það allt heilræði sem auðvelt er að flétta inn í daglegt líf. Heilræðin krefjast þess ekki að eiga frátekinn tíma. Þau krefjast engra ferðalaga eða tilfæringa á lífinu. Þau krefjast þess eins að sú kona sem les bók- ina láti sér annt um sjálfa sig hveija mínútu dagsins, hvemig sem allt veltist og snýst. Undirrituð hefur ekki lesið bókina á frammál- inu en þýðingin virkaði prýðilega; henni er „al- gerlega" snúið á íslensku og þá á ég við að hún er ekki bara þýdd samkvæmt orðanna hljóðan eins og mjög algengt er með sjálfsræktarbækur, heldur er röðun orða í setningar samkvæmt ís- lenskum reglum. Lesandinn hnýtur því hvergi um setningar sem hann þarf að raða upp aftur tO að skilja þær. Textinn rennur bara eðlOega. Einu hnökramir era stöku ásláttarvOlur sem hafa sloppið í gegnum prófarkalesturinn. Að öðra leyti er bókin vönduð og í þægdegu broti. Gott að stinga henni í handtöskuna. Fegraðu líf þitt er tvímælalaust ein af þeim bókum sem verða ómissandi hluti af náttborð- inu. Það er gott að fletta upp í henni. Hún er skemmtfleg aflestrar, vel fram sett og ef manni tekst að tileinka sér hana er nokkuð víst að lífið verður fegurra. Súsanna Svavarsdóttir -jbarsem vinmngamirfást HAPPDRÆTTI dae Vinningaskrá 31. útdráttur 30. nóvember 2000 Bif reiða vinningur Kr. 2,000.000___Kr. 4.000.000 (tvðfaldur) 4 3 0 7 3 Ferðavinningur Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 56336 56466 62288 65645 Ferðavinningur Kr. 50.000 Kr. 100,000 (tvöfaldur) 2833 10301 26083 28439 34173 67733 9067 18370 27338 30390 49617 72446 Húsbúnaðarvinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) 1686 11682 22519 31302 38608 50128 59807 71286 2037 12265 22708 31441 39545 50469 59960 71590 3225 15026 23160 31542 40969 54855 60066 71955 4237 15716 25747 31615 41078 55547 60287 72903 4268 16100 27149 31691 41741 55746 61545 73262 4460 16440 27495 32622 43093 56529 63610 74003 6285 17129 27536 34144 43300 57102 64522 75721 7597 17891 27833 35695 44505 57793 67395 78486 8219 18409 28955 36015 45025 58523 69224 79954 8931 18576 29180 37402 47573 58739 69284 9191 19803 29323 37628 47938 58761 69663 9759 20767 29367 37765 48509 58930 70020 10949 21075 30989 38387 48642 59345 70910 Húsbúnaðarvinningur Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur) 37 8945 18315 25243 35282 47303 61243 69511 1158 9038 18387 26190 35683 47934 61810 69768 1236 9168 18971 26343 35878 48732 62331 70091 1632 9475 19209 26926 36321 49253 62563 70635 1882 9572 19332 27158 36352 50421 63016 70722 3024 9973 19974 27505 36945 50906 63226 71050 3231 10418 20307 27718 38557 51089 63271 71 180 3778 10437 20449 28046 38591 51731 63759 71686 3845 10763 20476 28093 38709 51792 63817 71815 4120 11132 20513 28314 38931 51874 63919 71818 4557 1 1287 20542 29219 39259 52001 64213 72003 4729 11575 20682 29518 39320 54325 64596 72170 5798 11891 21005 30061 40522 54364 64861 72666 5808 11951 21043 30278 40535 54435 65129 72843 5809 12154 21202 30450 41376 54513 65141 73013 6227 12507 21255 31129 41889 54910 65575 73042 6288 12626 21605 31255 42383 55898 65602 73833 6391 12751 21737 31451 42764 55947 65634 75656 6465 12782 21915 31887 42965 56439 65639 75826 6681 13053 21960 32063 43031 56625 65715 76118 6867 13392 2201 1 32313 43192 57109 66428 76555 6972 13680 22063 32449 43538 57173 66536 77830 7248 14206 22221 32472 43645 57897 67098 78237 7317 14678 22240 32742 43697 58421 67336 79303 7335 14749 22258 33214 43986 58746 67409 79522 7357 15145 22483 33379 44263 59284 67809 79955 7423 15681 23445 33630 44996 59444 68059 7450 15817 23837 33773 45366 59855 68447 8022 16660 24226 33837 45874 59965 68458 8065 17169 24276 34038 45988 60010 68579 8408 17194 24680 34136 46263 60310 68957 8472 17307 25206 34470 46644 61186 69273 Næstu útdrættir fara fram 7.des, 14. des, 21.des. og 28. dcs. 2000 Heimasíða á Interncti: www.das.is Tölvuleikir og gömul leyndarmál ÉG STJÓRNA ekki leiknum heitir nýút- komin unglingasaga eftir Jón Iljartar- son. Sagan segir frá Geira, nemanda í tíunda bekk gi-unn- skóla, sem á sér einskis ills von þeg- ar honum er fyrir- varalaust svipt inn í þá atburðarás sem ekkert fær við ráðið og breytir högum hans mikið. Hann ákveður að heim- sækja ættfólk sitt sem býr í sjávar- þorpi fyrir vestan. Þar ætlar hann að ná áttum og búa sig undir frek- ara nám í skólanum. Eins og vænta má verður dvöl hans í þorpinu æv- intýrarík og þar kynnist hann ýms- um hliðum lífsins sem hann þekkti ekki áður. Nálægðin við náttúru- öflin, lífsbarátta fólksins og ýmsir kynlegir kvistir dýpka skynjun hans á lífínu. Þá leynast gömul ógnvekjandi leyndarmál hjá ætt- mennum Geira og hann dregst inn í háskalega atburðarás þar sem hann ræður ekki ferðinni. „Þetta er hugmynd sem ég er búinn að vera lengi með á bak við eyrað,“ segir Jón Hjartarson, höf- undur bókarinnar. „Sagan byggist í raun og veru á gamalli sögu sem ég heyrði eftir afa mínum, það er svo langt síðan, heill mannsaldur liggur við. Það er ákveðið atriði í bókinni sem er eiginlega bergmál úr fortíðinni en þetta gerist auð- vitað í nútímanum og ég ákvað strax að þetta yrði í nútímanum, ég vildi ekki vera að skrifa langt aftur í tímann. Þetta er unglingasaga og fjallar um strákinn Geira og hans félaga náttúrlega sem eru á þess- um yflrgangsaldri, nánar tiltekið í tíunda bekk. Strákurinn kemst í töluverðan háska í tvöföldum skiln- ingi, hann lendir annarsvegar í því að vera valdur að slysi sem leiðir hann úr skólanum. Ilann er rekinn þaðan og hrökklast út á land til þess að klára samræmdu prófín. Þar kemst hann í nýtt umhverfi og í grimmara samhengi við náttúr- una og þá fer þessi gamla saga að skjóta upp kollinum og blandast inn í frásögnina. Sagan byggist á dramatískum atburðum sem gerast í baráttu við náttúruöflin. Ég er að reyna þarna að tengja þessa tölvu- veröld sem krakkar á þessum aldri lifa dálítið mikið í sem gengur mikið út á hasar og Iæti og spennu- þrungin augnablik, reyna að tengja hana við raunverulega at- burði. Láta þessar tvær veraldir hljóma dálítið saman. Krakkar á þessu aldursskeiði eru mikið í leikjum sem ganga út á ofbeldi, og að keyra hratt og svona nokkuð, og að vinna einhver þrekvirki á þessum svið- um. Strákurinn lendir í ekki ósvipuðum aðstæð- um og í tölvuleikjunum nema bara í raunveruleikanum, þar sem hann verður að glíma við erfiða þraut í raun og sann.“ Og tekst honum vel upp? „Já, honum er nauðugur einn kostur að standa sig þar, það er nánast um líf og dauða að tefla.“ Heldur þú að krakkar í dag eigi erfitt með að greina skilin á milli sýndarheimsins svokallaða og hins raunverulega heims sem við lifum í dags daglega? „Ég held nú ekki! Ekki hjá heil- brigðum krökkum sem þau eru nú flest, Guði sé lof, þá held ég að sé nú ekki stór hætta á því. En þetta er auðvitað svolítið tvíeggjað ef þau gleyma sér alveg gjörsamlega í þessu. Ég held þó að þau séu aldrei í neinni hættu með það að fara yfirfæra þennan gerviheim yf- ir á raunveruleikann í raun og veru. Þau geta þó kannski fengið ranghugmyndir um raunveruleik- ann af þessum leikjum eins og til dæmis um ofbeldi, ég er dálítið hræddur um það. En auðvitað treystir maður á heilbrigða skyn- semi þessara einstaklinga eins og annarra manna. Að þau sjái í gegn- um þetta og ég held að þau geri það nú reyndar en það er alveg gíf- urlegur hraði í þessum leikjum og læti. Fyrir bragðið þjálfast þau í þvi að hugsa miklu miklu hraðar en maður gerði þegar maður var á þessum aldri, þannig að þetta er nú ekki alvont. En þau öðlast mikla tæknilega færni og sjálfsagt skerp- ir þetta sköpunargáfuna á vissan hátt. Ég hef meiri áhyggjur af tilfinningaþroskanum. Þetta hefur sem sagt sína kosti og galla. Borg- arbörn í dag Iifa dálítið mikið í þessum gerviheimi, það er hætt við að raunveruleikaskynið brenglist eilítið hjá þeim. Það fer talsverður tími hjá þeim í það að leika sér í tölvuleikjum og að horfa á vídeó, en það er svona minna um það að þau reyni eitthvað á sjálfum sér. Þau eru markhópur fyrir dýra framleiðslu á tölvum og tölvuleikj- um, og þetta er auðvitað fram- leiðsla sem er fyrst og fremst ætl- uð þessu unga fólki. Markaðurinn er ákaflega ýtinn og þau eru kannski auðveld bráð ef maður dæmir þannig.“ En það býr góður kjarni í krökk- um í dag? „Ég er í sjálfu sér ekki enginn sérfræðingur á þessu sviði, þó ég eigi nú reyndar sjálfur ungling á þessum aldri. Það er engin ástæða til að hafa stórar áhyggjur af því að heilbrigð skynsemi lifi ekki góðu lífi ennþá, en það er orðin dá- lítið mikil breyting á tómstundum krakka frá því maður sjálfur var að alast upp. Þau eyða óneitanlega miklum tíma í það sem mætti með sanni kalla gerviveröld.“ Geiri leit á þennan opin- mynnta, ólögulega slána, sem hengslaðist áfram, eins og hann væri að slitna í þrjá parta. Lappirnar á hon- um slettust áfram, búkurinn hólkað- ist með hlykkjóttum bylgjuhreyf- ingum en haus og herðar slöngraðu ofan á öllu saman. Hann skildi ekki þennan dreng. Hann var undarlegt sambland af fávita og snillingi. Hon- um tókst einhvern veginn að gapa með öllu andlitinu, munnurinn op- inn, augun eins og í hræddum hundi. Maður beið bara eftir því að hann færi að slefa. Benedikt var að öllu leyti undarlegur. Hann gat til dæm- is hlegið að tölum, stærðfræðidæm- um. Sat yfir bókum fullum af reikn- ingsrugli og hló, einn. Þetta var náttúralega langt frá því að vera eðlilegt. Geira hafði teldst að halda því leyndu í skólanum að þetta væri frændi hans. Hann hafði skipað Benna að steinhalda kjafti yfir því. Það fór ekki á milli mála að hann var stærðfræðiséni, en hann var líka hálfviti í öllu öðra, sérstaklega öllu verklegu. Það var stundum kostur að hafa hann með, til dæmis í leik- fimi. Óskar, íþróttanördinn sem kenndi hana, eyddi oft svo löngum tíma í að reka hann áfram, sparka í rassinn á honum, hrista hausinn yfir honum, hnussa og stynja, að aðrir gátu slappað af, gert það sem þeir vildu, tímunum saman. Úr Ég stjórna ekki leiknum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.