Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 51

Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 51 . FJÖLMIÐLUN Sala Berlingske-blað- hússins gagnrýnd Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. KAUPUM Norðmanna á Beriingske Tidende hefur verið fremur fálega tekið í Danmörku og er greinilegt að margir blaða- og fjölmiðlamenn hafa af því áhyggjur að kaupin boði ekkert gott. „Dönsk blöð í norskri járn- greip,“ sagði á forsíðu Politiken dag- inn eftir kaupin og í ítarlegri umfjöll- un um málið svo og í Information var sett spumingarmerki við það loforð kaupandans, Orkla, að virða hina ríku hefð sem hið 252 ára gamla Berl- ingske Tidende er byggt á. Blaðhús Berlingske Officin var næststærsta fjölmiðlafyrirtæki Danmerkur, auk Berlingske Tidende gefur það út BT, Weekendavisen, Árhus Stiftstidende og um þrjátíu héraðsblöð. Leiðai-ahöfundur Politiken sér ástæðu til að minna yfirmenn Orkla á að sýna blaðinu virðingu. „Við viljum minna á að fyrirtækinu hefur verið falið elsta dagblað landsins. Berlings- ke frænka er fín gömul dama. Hún á skilið að vera meðhöndluð með virð- ingu,“ segir í leiðaranum. En hver eru helstu áhyggjuefni keppinauta Berlingske Tidende, sem nú rjúka blaðinu til vamar? Þau eru til dæmis yfirlýsing Orkla um að Berlingske eigi að skila meiri hagnaði en það gerir nú, eða allt að 15%, en hann er nú um 2%. Þá veldur forsaga sölunnar mörg- um áhyggjum en hún er í stuttu máli sú að íyrir réttu ári birti Berlingske Tidende stóran greinaflokk um vopnasölu fyrirtækis A.P. Mpller til Þjóðveija í stríðinu. Stjómendur fyr- irtækisins bmgðust ókvæða við og nokkm síðar seldi það hlut sinn í blað- húsinu. Carlsberg, Unibank og Den Danske Bank fylgdu í kjölfarið og þar með var meirihluti hlutabréfa í Berl- ingske Officin til sölu. Gagnrýni keppinautanna, einkum Politiken, var óvægin er ljóst var að Berlingske átti að seljast hæstbjóð- anda, og það útlendu fyrirtæki. Sú varð raunin er tilkynnt var að Orkla hefði keypt blaðhúsið en Norðmenn- h'nii' kepptu m.a. við Sanoma írá Finnlandi, hið norska Schibsted og hið sænska Bonnier, sem gefur m.a. út Dagens Nyheter og er stærsta fjölmiðlafyrirtæki Norðurlanda. Gagnrýnislaus uinfjöllun Danskir og norskir fjölmiðlamenn spyrja þess hvað Orkla ætli sér með danska blaðhúsið. Orkla á 27 héraðs- blöð í Noregi og Svíþjóð og 18 í Pól- landi og öðmm Austur-Evrópuríkj- um, auk þriggja sjónvarpsstöðva í Noregi. Þá er það umfangsmikið í matvælum og merkjavöm, fjárfest- ingum og efnaframleiðslu. Hörð valdabarátta hefin- staðið á milli hinna ýmsu deilda Orkla um skeið og því jafnvel spáð að fyrirtækið klofni. Átökin standa einkum um hver skuli vera framtíðarstefna Orkla en þau hafa einnig snúist upp í hatrömm persónuleg átök. Kaupin hafa komið mörgum á óvart, t.d. vegna þess að fyrir átti Orkla einungis héraðsblöð. Ymsir blaðamenn og fjölmiðlafræðingar saka fyrirtækið um að stjóma um- fjöllun eigin blaða og koma í veg fyrir gagnrýni á fyrirtækið. Blaðið Inform- ation fiillyrðir á forsíðu að blaðamenn Berlingske kunni að standa frammi fyrir nýjum áskomnum þegar að því komi að fjalla á óháðan og gagnrýninn hátt um viðskipti fyrirtækja er heyra undir Orkla. Sú sé að minnsta kosti raunin í Suðaustur-Noregi þar sem Orkla hef- ur ítök í mörgum héraðsblöðum og fyr- irtækjum á svæðinu. „Það er t.d. greinilegt hve lítið Fredrikstad Bkid skrifar um valdabaráttuna inna Orkla- samsteypunnar, segir Gunnar Bodahl- Johansen, sem starfar hjá Blaða- mannastofhuninni í Fredrikstad. Ástæðulaus ótti? Spumingin er hvort það sama verði uppi á teningnum í Danmörku, en ítök Orkla í dönsku viðskiptalífi em lítil samanborið við Noreg. Þá velta menn því einnig fyrir sér hverjir veljist til að ritstýra og stjóma blöðum Orkla. Samsteypan hefur ekki skipt um yfir- stjómendur þegar hún hefur tekið yf- ir blöð, en þegar þeir gömlu fara frá hafa í langflestum tilfellum orðið fyrir valinu menn sem hafa unnið sig upp innan annarra fyrirtækja Orkla, það sem Johann Roppen fjölmiðla- fræðingur kallar fyrirtækja-ritstjóra. Roppen vinnur að doktorsritgerð um eignasöfnun og áhrif hennar á blaðamennsku í Noregi og niðurstaða hans er í stuttu máli; Orkla-blöðin vinna ekki til neinna viðurkenninga fyrir rannsóknarblaðamennsku. Fjölmiðlafræðingurinn Anker Brink Lund við blaðamannaháskólann í Oðinsvéum telur að ekki hafi verið við öðm að búast en danskir blaðamenn brygðust ókvæða við hinu nýja, en slíkt viðhorf einkennist af þjóðrembu og sveitamennsku. Ekki megi aftur á móti gleyma þröngri stöðu á blaðamarkaðn- um með tilkomu Netsins og annarra fjölmiðla og að sú staðreynd að útlend- ingar hafa keypt Berlingske-blaðhúsið sé ekki af hinu illa. TZJIymFDÍa_ KRINGLUNNI 8-12, SÍMI 553 3600 Netverslun:www.olympia.is Margverðlaunaóar gæðavörur Lax & sfld Góógæti ájólaboróið ö- ÍSLENSK MATVÆLI Vönduð íslensk innimálning á einstöku tilboðsverði. Verð á 4 lítra dós 1.9S0kr í verslunum HÖRPU veita reyndir sérfræðingar þér góða þjónustu og fagiega ráðgjöf við val á hágæða málningarvörum. HARPA MÁLNIIMGARVERSLUN, BÆJARLIND 6, KÚPAVOGI. Sími 544 4411 HARPA MÁLNINGARVERSLUN, SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK. Sími 568 7878 HARPA MÁLNINGARVERSLUN, STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK. Sími 567 4400 HARPA MÁLNINGARVERSLUN, DROPANUM, KEFLAVÍK. Sími 421 4790 MÁU1IHG ARUERSLAHIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.