Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 52

Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 52
52 FÖSTUDÁGUR 1. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞORGERÐUR NANNA ELÍASDÓTTIR + Þorgerður Nanna Elíasdótt- ir fæddist í Bolung- arvík 23. maí 1923. Hún lést á heimili sínu Bústaðavegi 63 í Reylg'avík 22. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Jensdóttir sauma- kona, f. 1.2. 1881, d. 2.1. 1968, og Elías Þórarinn Magnús- son skipstjóri, f. 5.11. 1878, d. 7.11. 1923. Þetta var ann- að hjónaband þeirra beggja. Eldri dóttir þeirra sem upp komst er Guðmunda Elíasdóttir, söngkona, f. 23.1. 1920. Samtals áttu þau Sigríður og Elías sextán börn. Upp komust af börnum Elíasar og f.k.h. Jónínu Sveinbjarnardóttur þau Jón Árni, f. 26.7. 1901, drukknaði 24.7. 1925; Sveinbjörn, f. 25.4.1905. Drukknaði 8.2. 1925; Olga, f. 1906, d. 17.7.1997; Ágúst- ína, f. 1.8. 1912, d. 1.1. 1999; Jón- fna, f. 24.10. 1918. Af sex börnum Sigríðar og f.m.h. Guðmundar Jakobssonar komast upp Elfsabet, f. 13.8.1906, hún fórst í flugslysi í Búðardal 12.3.1947. Þorgerður Nanna giftist 7. mars 1944 Guðlaugi Magga Einarssyni lögfræðingi, f. 13. janúar 1921, d. 17.2. 1977. Þau skildu 1954. Þau eignuðust þrjú börn. 1) Guðrúnu Sigríði Guðlaugsdótt- ur, blaðamann og rit- höfund, f. 20.7. 1944. Eiginmaður hennar er Guðmundur Páll Arnarson blaðamað- ur. Börn Guðrúnar og Júnfusar Kristinsson- ar, sagnfræðings (lát- inn 7.1. 1983), eru: a) Ragnheiður, f. 23.9. 1962, gift Ævari Ágústssyni og eiga þau dæturnar Ulfhildi, Hrafnhildi og Gunnhildi. b) Ásgerður, f. 26.9. 1968, gift Sigurjóni B. Sigurðs- syni (Sjón) og eiga þau börnin Júnfu Líf og Flóka, c) Móeiður, f. 4.5. 1972, gift Eyþóri Arnalds, d) Kristinn, f. 7. 6. 1976, e) Guðlaug- ur, f. 7.6. 1976, kvæntur Perlu Torfadóttur og eiga þau telpuna Evu Lind Guðjónsdóttur. Dóttir Guðrúnar og Benedikts Jónsson- ar M.litt, (skildu 1994) er Sigríður Elísabet, f. 26.4. 1986.2) Einar El- fas Guðlaugsson, f. 22.2. 1946, flugstjóri hjá Flugleiðum, kvænt- ur Auði Egilsdóttur. Þau eiga fímm börn: a) Guðlaug Magga, f. 19.10. 1964, kvæntur Guðbjörgu Sævarsdóttur og eiga þau börnin Hörpu, Heru og Einar Elfas. b) El- ísabet Iðunn, f. 24.10. 1968, gift Georgi Þorkelssyni og eiga þau börnin Auði Rakel, Einar Þorra og Agnesi Rut. c) Ingunn Hrund, f. 27.8. 1970. Maður hennar er Benedikt Emilsson. Börn hennar og Vals Einarssonar (skilin) eru Sunna Björk og Einar Óli. d) Auð- ur Björk, f. 11.8. 1971. e) Erna Bryndís, f. 17.4. 1981. Maður hennar er Osvald Sigurðsson, dóttir þeirra er íris Hrund. 3) Kristján Loftsson Guðlaugsson, f. 4.1.1949, blaðamaður í Stavanger í Noregi. Kvæntur Marit Wilhelm- sen kennara og eiga þau soninn Kristján Mfmi, f. 17.8. 1986. Dæt- ur Kristjáns og fyrri konu hans Soffíu Snorradóttur, hjúkrunar- fræðings (skildu) eru: a) Ásta Sig- ríður Kristjánsdóttir, f. 27.4. 1972. Maður hennar er Siggeir Magnús Hafsteinsson og eiga þau dótturina Jasmfn Sofffu. b) Nanna Katrín, f. 20.1.1978. Hún á soninn Alexander Má Brynjarsson. Þorgerður Nanna var í nokkur ár gift Finnboga Kjartanssyni stórkaupmanni, en missti hann f jan. 1965. Fáum árum síðar giftist hún Ragnari Frímannssyni versl- unarmanni. Þau skildu. Eftirlif- andi maður Þorgerðar Nönnu er Valdimar Karlsson, fyrrverandi skipstjóri og stýrimaður, f. 8.2. 1929. Utför Þorgerðar Nönnu Elías- dóttur verður gerð frá Dómkirkj- unni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kveðja til móður minnar, Þor- gerðar Nönnu Elíasdóttur. Blessuð, elskulega mamma mín, með söknuði og sárri sorg í hjarta, 5S kveð ég þig við leiðarlokin þín, mitt ljósið skæra, fagra og bjarta. Mamma mín, mörg er orðin saga, margt er það sem aðeins vissum við og ég geymi alia ævidaga uns ég á ný er komin þér við hlið. Eitt er víst - ef ég þyrfti aftur ógetið fóstur um að hugsa mig því að mér sækti lífsins ofurkraftur - úr öllum mæðrum heims ég veldi þig. Þín dóttir Guðrún. „Var það sú sem var alltaf svo glöð?“ Svo mælti ungur drengur, lauslega kunnugur Þorgerði Nönnu Elíasdóttur, þegar hann heyrði á tali hinna fullorðnu að hún Nanna væri dáin. Börnin hafa næmt auga - sjá beint inn í sálina. Þegar ég lít til baka og rifja upp kynni okkar Þorgerðar Nönnu, tengdamóður minnar, blasir við að þetta var hennar stærsta lyndiseinkunn. Hún naut lífsins og lystisemda þess í svo margvíslegu formi. Henni var gefln lífsgleði og lífsnautn sem ekki einu sinni alvarleg veikindi eða mæða ellinnar náðu að útmá. Alltaf var eitthvað sem vakti einlæga gleði hennar, bæði í stóru og smáu, og veikindi sín bar hún af mikilli hug- prýði og æðruleysi. Ef maður spurði um heilsufar hennar, svaraði hún kannski: „Æ, ég er nú ósköp slöpp.“ Meira var það ekki. Ef til vill er æðruleysi á einhvern hátt ein af forsendum gleðinnar. Síðustu árin var maður hennar, Valdimar Karlsson, fyrrum skip- stjóri, hennar mesti gleðigjafi en þau áttu einstakt skap saman, mikla ást og vináttu. Börn sín og barnabörn dýrkaði hún og geislaði af gleði bara við að heyra nöfn þeirra nefnd. Sjálfa sólina átti hún að einkavin - hvenær sem sú glóandi kúla lét sjá sig á íslenskum sumarhimni var Nanna komin út í garð að heilsa henni með hörundi sínu og brosi. Og auðvitað Valdi líka, því eins og í svo mörgu öðru voru þau lík að þessu leyti, bæði sóldýrkendur. Ekki þurfti mikið til að gleðja Nönnu. Súkkulaðimoli og góður kaffísopi var nóg og því miður var reykurinn af Camel-sígarettunni stór þáttur lífsnautnar hennar og sá sem varð henni dýrkeyptur und- ir lokin, eftir að lungu hennar höfðu skemmst í kjölfar stórrar aðgerðar. Hún þjáðist af lungnaþembu og við- varandi súrefnisskorti sem henni fylgir. Oft á tíðum varð hún að dvelja á Vífilsstöðum til að byggja upp súrefnismagn blóðsins. Hún var þar í vor þegar dótturdóttir hennar, Ásgerður Júníusdóttir, hélt „debut“-tónleika í hinu nýja tónlistarhúsi Kópavogs. Nanna vildi endilega fara og fékk til þess leyfi en varð þá að hafa með sér súrefniskút í sérstakri tösku. Ekki lét hún það á sig fá né spilla gleði sinni. Það kom í minn hlut að sækja Nönnu og keyra hana á tónleikana. Tilhlökkunin var eins og hjá lítilli telpu sem getur ekki beðið eftir því að jólin komi: „Mikið óskaplega hlakka ég til,“ sagði hún andstutt þegar við stigum út úr bílnum. Hún var „elegant" eins og alltaf þegar hún fór út á meðal manna og jafnvel slönguendarnir í nasaholunum voru eins og skraut í stíl við eyrnalokk- ana og súrefniskúturinn eins og sérvalin handtaska með kjólnum. I sporum drengsins hefði ég líklega Æ"7' Sv Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan t sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja % UTFARARSTOFA KIRKJUCARÐANNA EHF. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. ■í M Sverrir Einarsson útfararstjóri, 6^ m Sverrir Olsen ö Baldur Frederiksen útfararstjóri, sími 896 8242 útfararstjðri. wR Ær sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is sagt: „Var það konan sem alltaf var svo vel til höfð og glæsileg." En mér er vorkunn - ég er fullorðinn og hef misst sálarsjónina. Þorgerður Nanna var annáluð fyrir fegurð sína á yngri árum. Sjálfur kynntist ég Nönnu á efri ár- um hennar þegar veikindin voru farin að gera vart við sig en fegurð hennar og glæsileiki gat ekki dulist neinum. Og um það vitnuðu gamlar myndir. Samt voru það aðrir eigin- leikar hennar sem meira heilluðu. Hún var mjög notaleg kona, við- felldin og skemmtileg. Við áttum oft löng samtöl í síma um allt milli himins og jarðar. Hún hafði lag á að losa um málbeinið á fólki. Sjálf hafði hún næmt innsæi og skilning á tilverunni, háþróaðan húmor og gat verið mjög orðheppin. Nanna naut sín afar vel í mannfögnuði þar sem hún sat brosmild í glæsileik sínum og leyfði öðrum að sóla sig, laus við hroka og gagnrýni. Hún hafði þann eiginleika að láta fólki líða vel í návist sinni - hún kunni að gleðjast með öðrum. Við fráfall Nönnu hefur öll fjöl- skyldan mikið misst, Valdimar þó mest. Hann hefur misst sálufélaga sinn og sorg hans er stór. Valdimar er athafnamaður og naut þess að búa þeim gott og fallegt heimili á Bústaðaveginum. Jólin voru Nönnu einkar hugleikin og Valdi var þegar kominn á skrið með jólaundirbún- inginn. Liður í því var að mála stof- una. Það var dagsverk fyrir vana menn og á meðan dvaldi Þorgerður á heimili okkar Guðrúnar. Nanna hafði varla orku til að halda sér uppi og lá fyrir mestan part dags- ins. Um miðjan dag kom hún fram í eldhús, greinilega veik og orkulítil. Þar var ég fyrir að hella upp á kaffi, sennilega nokkuð annars hugar. Hún horfði á mig stundarkorn og sagði svo: „Hvernig hefurðu það, Guðmundur minn?“ og það var ein- lægur umhyggjutónn í röddinni. „Fínt,“ svaraði ég hissa. Hvernig gat þessi dauðveika kona haft áhyggur af stálslegnum manninum sem var ekki einu sinni með kvef, hvað þá meira? En svona var Þor- gerður Nanna Elíasdóttir; hún bar umhyggju fyrir öðrum en sagði fátt um eigin vandkvæði. Kynni okkar Þorgerðar Nönnu voru hlý. Fyrir það er ég þakklátur, og þrátt fyrir dapurleik dauðans þá gleðst ég yfir þeim hamingjuárum sem ég varð vitni að í lífi Þorgerðar og Valdimars. En Þorgerður Nanna var einfaldlega búin með orku sína og kvaddi þetta jarðlíf á hljóðlátan hátt í sátt við guð og menn. Ég votta öllum aðstandendum Nönnu samúð mína; börnum henn- ar, systrum, barnabörnum, tengda- fólki og vinum og sér í lagi manni hennar, Valdimar Karlssyni. Við hann vil ég segja það sama og hún sagði svo oft: „Sestu nú niður, Valdi minn, og hvíldu þig svolítið." Guðmundur Páll Arnarson. í dag er til moldar borin amma okkar, Þorgerður Nanna Elíasdótt- ir. Það er erfitt að kveðja þá sem hafa haft stóru hlutverki að gegna í tilveru manns og umhverfi. Við systkinin sex og átta systkinabörn okkar vissum öll frá fyrstu tíð að amma var stolt af okkur og gladdist innilega þegar við komum í heiminn eitt af öðru á árunum 1962 til ársins 1986, er tvö yngstu barnabörnin fæddust. Við vissum líka hve ánægð hún var með börnin sín þrjú og hve gengi þeirra í lífinu var henni hug- leikið. Sjálf fékk hún snemma að reyna hve lífsbaráttan getur verið hörð. Hún missti föður sinn þegar hún var á fyrsta ári. Þá stóð móðir hennar uppi ekkja í annað sinn, rösklega fertug að aldri með tvær litlar dætur og hafði þá misst sex börn. Stjúpsynir hennar drukkn- uðu og stjúpdætur sínar gat hún minna gert fyrir en hún vildi. Lang- afi okkar Elías Magnússon skip- stjóri drukknaði í nóvember 1923, þegar amma var aðeins sex mánaða gömul svo hún mundi eðlilega ekk- ert eftir honum. Eigi að síður dreymdi hana föður sinn æ ofan í æ og þeir draumar voru henni mikils virði. Hún eignaðist aldrei fóstur- föður svo faðirinn sem hana dreymdi var sá eini faðir sem hún hafði af að segja á sinni ævi. Vegna dauða föðurins var móðir hennar það akkeri sem hún og Guðmunda systir hennar bundu sína tilveru við að mestu leyti fyrstu árin. Langamma okkar, Sig- ríður Jensdóttir var dugleg kona, falleg og hæfileikarík. Hún barðist eins og ljón fyrir sér og börnum sínum, saumaði dagana langa til að afla tekna, réð sig sem ráðskonu upp í afdali og saumaði enn meira - allt þar til Elísabet Guðmundsdótt- ir, eina eftirlifandi barn hennar af fyrra hjónabandi, kom frá Kaup- mannahöfn, þar sem hún hafði lært til hótelreksturs, og fór að aðstoða móður sína og systur í lífsbarátt- unni. Litlu systurnar voru stundum sendar til ættingja tíma og tíma og þannig liðu árin og amma óx upp og varð æ myndalegri eftir því sem tímar liðu fram. Þegar til Reykja- víkur kom settust þær mæðgur að á Smiðjustígnum, þar voru fyrir El- ísabet og Olga, hálfsystur ömmu. Olga bjó þar með fjölskyldu sinni og börn hennar urðu leikfélagar ömmu. Hún fór í Miðbæjarskólann, þar sem hún lærði meðal annars að skrifa svo vel að það dugði henni til að fá eftirsótt starf síðar meir. Hún lærði að synda hjá Vigni Andrés- syni og þá kunnáttu nýtti hún sér þegar hún var um fermingaraldur í Æðey á ísafjarðardjúpi hjá frænd- fólki sínu, þá synti hún iðulega í sjónum og þótt fólki til um vaskleik hennar. Hún var í Æðey hátt í þrjú ár og fermdist þaðan í kirkjunni í Unaðs- dal. Hún sagði okkur sjálf að mamma hennar hefði komið sigl- andi með Djúpbátnum með ferm- ingarkjólinn, sem var keyptur en ekki heimasaumaður. Það var fyrsti kjóllinn sem mamma hennar hafði ekki saumað á hana og henni fannst hann ævintýralega fallegur. í Æð- ey fannst ömmu gott að vera, þar lærði hún til ýmissa verka, svo sem að sauma út, sem hún gerði listavel. Sigríður í Æðey sagði henni til og áminnti hana um að það ætti vel að vanda sem lengi ætti að standa. Stór borðdúkur sem hún saumaði í Æðey er enn til og er notaður á há- tíðum fjölskyldunnar þegar mikið er við haft. Eftir fermingu fór amma aftur til Reykjavíkur og fór í gagnfræða- skóla. Henni gekk vel að læra en aðstæður buðu ekki upp á fram- haldsnám. Langamma var fátæk í efnalegu tilliti en rík af mörgu öðru, hún var listelsk manneskja og hafði mikla tónlistarhæfileika, söng enda í kirkjukórum í 30 ár og hafði fagra, hreina og mikla rödd. Hún söng við verkin sín, og dæturnar sofnuðu og vöknuðu við söng hennar og sauma- vélarniðinn. Tónlistin var þeim enda í blóð borin, Guðmunda varð þjóðfræg söngkona og söngkennari og amma lærði líka að syngja, hún varð síðar ein af stofnendum Kirkjukórs Bústaðasóknar og söng um árabil í Þjóðleikhúskórnum, auk þess sem hún söng einsöng við ýmis tækifæri. Hún hafði afar hljómfallega og glæsilega rödd og var mjög músíkölsk - en nú hlaup- um við nokkuð hratt yfir sögu. Áður en að þessu kom hafði hún unnið í hattabúð í miðbænum og hafði mikla ánægju af að hjálpa við- skiptavinum að finna viðeigandi höfuðföt. Sautján ára sótti hún um vinnu hjá Líkn, þar sem rekin var berklavarnastarfsemi. Hún fékk þetta starf vegna þess hve fallega rithönd hún hafði, það var eiginleiki sem var meira metin þá en nú. Þá var Guðmunda systir hennar farin til Kaupmannahafnar til söngnáms en þær mæðgur amma og lang- amma voru aftur sestar að á Smiðj- ustígnum, eftir að hafa leigt m.a. á Vesturgötunni og búið um tíma á Bergþórugötunni. Þegar amma fór að vinna í Líkn fékk hún 1.025 krónur á mánuði og þá fór hagur þeirra heldur en ekki að vænkast. Langamma gat hætt að ganga í hús og sauma í þeim mæli sem hún hafði áður gert og einskorðað sig meira við peysufatasaum sem hún hafði sérstaklega lært og var mikil
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.