Morgunblaðið - 01.12.2000, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 61
UMRÆÐAN
unum í norðri - hjálp sem byggist á
sjálfbærri tækni og tæknikunnáttu
er leiði til efnahagsávinnings til
langs tíma - aðferðir verði þróaðar
og tæki fundin upp sem tryggi að
þeir, sem menga meira en talist get-
ur sanngjarnt út frá jafnræðissjón-
armiði, sjái þeim þróunarlöndum
sem eru sérstaklega viðkvæm fyrir
áhrifum loftslagsbreytinganna fyrir
viðeigandi tækjum/aðferðum til að
takast á við veðurhamfarir, verjast
þeim og bregðast við afleiðingum
þeirra - svo að forðast megi önnur
umhverfis- og félagsleg vandamál
með þvi marka skýra stefnu um
sveigjanleikaákvæði Kýótó-bókun-
arinnar, sérstaklega þau er varða
verkefni á sviði endurnýjanlegra
orkugjafa og orkusparnaðar.
Við hvetjum því ríkisstjórnir
heimsins til að innleiða „Haag-sam-
komulagið" og draga úr losun gróð-
urhúsalofttegunda en jafnframt að
þær tryggi áframhaldandi samdrátt
eftir að fyrsta skuldbindingartíma-
bilinu lýkur 2012, með því að - los-
un verði innan þeirra marka að ekki
leiði til breytinga í lofthjúpi og
veðrakerfi jarðar. Slíkt útheimtir
samkomulag um takmörk losunar
gróðurhúsalofttegunda og tíma-
setta áætlun um samdrátt eftir 2012
- tryggja að eftir 2012 verði áfram
dregið úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda og þeirri skyldu verði dreift
jafnt á herðar aðila loftslagssamn-
ingsins svo að innan næstu tveggja
áratuga náist það takmark að losun
á heimsvísu verði í réttu hlutfalli við
höfðatölu þjóðanna.
Svona hljóðaði yfirlýsing frjálsu
félagasamtakanna sem kenna sig
við jörðina á einn eða annan máta.
En þau höfðu ekki erindi sem erfiði.
Leiðtogar landanna í umhverfismál-
um höfðu ekki heldur erindi sem
erfiði. Allur sá pappír sem dreift
var á ráðstefnunni, þar með talin
þessi yfirlýsing, er nú á leið í papp-
írstætarana og verður kominn inn í
pappírshringrás umhverfisvænnar
endurvinnslu áður en leiðtogamir
hittast aftur í vor í Bonn. Já, það
voru sannarlega mikil vonbrigði að
ekki skyldi nást samkomulag í
Haag - hvorki jörðinni né mann-
kyninu í hag.
Höfundar sitja í umhverfisnefnd
Alþingis.
(RoúenGœðavara
Gjafavara - malar-oi| kaffislell. Ho
Allir verðflokkar. t m,
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
Eru vandamál á toppnum?
Ofnæmi, flasa, exem, psoriasis, feitur eða þurr hársvörður?
Turta(}ull
UTSOLUSTAÐIR: HEILSUVORUVERSLANiR 0G AP0TEK UM ALLT LAND.
HARVÖRUR LEYSA VANDANN
OG ÞÚ BLÓMSTRAR.
Átt þú hlutabréf í Skýrr hf?
Innköllun vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa
Mánudaginn 11. desember 2000 verða hlutabréf Skýrr hf. tekin til
rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Þar af leiðandi
verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma
ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga
um rafræna eignarskráningu verðbréfa og skráningu réttinda yfir þeim hjá
Verðbréfaskráningu íslands hf. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Skýrr hf.
tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll í einum flokki, auðkennd
raðnúmerum 1-4010, og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudagsetningar er
getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja
nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá
Skýrr hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hluthafaskrár Skýrr
hf., Ármúla 2, 108 Reykjavík, eða í síma 569 5100. Komi í Ijós við slíka
könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur
á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda
reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða sparisjóð sem gert
hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir nefndan dag.
Athygli hluthafa er vakin á því að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða
ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er
vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga viðskipti með bréf sín í félaginu.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun, sem
gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf., umsjón með
eignarhlut sínum í félaginu. Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta
bréfleiðis.
Stjórn Skýrr hf.
O
OMEGA
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi
f
SKREYTUM FYRIR JðllN MED FAILEGU GðtFEFNI!
Glæsilegt gólfeínaúrval á frábæru verði. Jölatilboð
...oqaðsjálfsöqðu
teppi ogdúkar
íúrvali.
Suðurlandsbraut 26 s: S68 1960
«v- y