Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 67

Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 6'.- ------------------------v UMRÆÐAN Sigur HlV-jákvæðra á fordóm- um og mannréttindabroti! ALÞJÓÐLEGUR baráttudagur gegn alnæmi er í dag, 1. desember. Nýlega var dæmt í máli manns sem á öðrum degi í starfi var rekinn fyr- irvaralaust vegna þess að hann greindi frá því að hann væri HIV- jákvæður. Hann var mjög hugrakk- ur, fór í mál og vann málið. Það var ekki nema von því ástæða brott- rekstursins voru fordómar eða kunnáttuleysi um HIV. Þessi dómur er kærkominn og mikill sigur á for- dómum og mannréttindabroti á HlV-jákvæðum hér á landi og okkur öllum. Réttur HIV-jákvæðra á vinnumarkaði Þessi dómur segir okkm' að réttur HlV-jákvæðra er sterkur og ótví- ræður. Þeir eiga rétt á að fá sér vinnu eins og annað fólk ef þeir telja sig hrausta og langar til þess. Eftir að nýju HlV-lyfin komu á markað- inn árið 1996 eru þó nokkrir sem finnst þeir vera í það góðu formi í dag að þá langar til þess að lifa sem eðlilegustu lífi, t.d. með því að fá sér starf. f dag vantar fólk til vinnu, svo HlV-jákvæðir ættu að geta gagnast atvinnumarkaðnum vel. Vinnustað- irnir þurfa bara að sýna skilning og jákvæðni í verki og opna sínar dyr. Smithætta er engin ef þekking er á smitleiðum Það er engin smithætta á ferðum við það að ráða HlV-jákvæðan ein- stakling til vinnu ef við þekkum smitleiðirnai' og sýnum ábyrga hegðun. Eins og þekkt er er langal- gengasta smitleið HIV óvarðar sam- farir. Varla er hætta á því að starfsfólk smit- ist á þann hátt á venju- legum vinnustað. Það er aftur á móti ein smitleið HIV sem vinnustaðir þurfa að kunna skil á, það er þegar slys á sé stað og um mikið blóðmagn er að ræða. Þá á hin al- menna hreinlætisvenja að ríkja á öllum vinnu- stöðum og á heimilum að nota ávallt hanska, t.d. einnota hanska, við að þrífa blóðið svo það komist ekki inn í blóð- rás annars manns. Þessari reglu þarf að framfylgja, ekki bara vegna hættu á HIV-smiti heldur líka vegna ýmissa annarra sýkinga sem geta verið í öllu blóði. Sé farið eftir þessari almennu hrein- lætisvenju er engin hætta á HIV- smiti. Það er ekki óalgengt að HIV- jákvæðir viti manna best sjálfir hvernig rétt er að umgangast blóð en það er ekki nægjanlegt. Allir í at- vinnulífinu eiga einnig að hafa slíka þekkingu. Mannréttindi að geta tjáð sig HIV-jákvæðir eiga að hafa sömu réttindi á vinnumarkaðnum og aðrir launþegar. Þeir ættu líka að hafa sömu mannréttindi og aðrir að geta tjáð sig um sinn sjúkdóm án þess að aðgerðir byggðar á fordómum verði svarið. HIV-jákvæðir eru bara venjulegt fólk eins og ég og þú sem okkur ber að virða eins og hvert annað fólk. HIV-jákvæðh' hafa lengi þurft að fara mjög dult með sinn sjúkdóm af hættu við fordóma frá öðrum. Þessu er öfugt farið hjá fólki með flesta aðra sjúkdóma. Þegar það tjáir sig um sinn sjúk- dóm mætir það oftast samúð og skilningi. Það er erfitt að skilja af hverju fólk með erfiða sjúkdóma mætir svona Sigurlaug mismunandi viðbrögð- Hauksdóttir um frá umhverfinu. Ættu ekki allir með al- varlega sjúkdóma að eiga rétt á skilningi og jákvæðum viðbrögðum, sama hver sjúkdómurinn er? Það er von mín að þessi nýfallni dómur geti orðið upplyfting fyrir aðra HIV-jákvæða á vinnustöðum að geta tjáð sig um smit sitt óski þeir þess, þar sem ég veit í mínu starfi sem félagsráðgjafi margra HlV-já- kvæðra að allt of margir fara mjög varlega með að gefa slíkar upplýs- ingar um sig. Þetta fólk annaðhvort veit um aðra einstaklinga sem hafa orðið fyrir beinum eða óbeinum for- dómum af þessum sökum á vinnu- stað sínum eða það sjálft hefur upp- lifað það. Það tekur ekki áhættuna á því að segja frá og geta þar með orð- ið fyrir höfnun, aðkasti eða jafnvel misst vinnuna eins og reyndin var með vélstjórann í umræddu dóms- máli. Hann er ekki sá fyrsti sem missir vinnuna af þessum sökum. Baráttudagur HIY-jákvæðir hafa lengi þurft að fara mjög dult með sinn sjúkdóm, segir Sigurlaug Hauks- dóttir, af hættu við for- dóma frá öðrum. Það er því mjög skiljanlegt að HIV- jákvæðir fari varlega með að gefa upplýsingar en það er ómannúðlegt að þurfa alltaf að lifa í þögn þegar fólk í reynd langar til að tjá sig. Að lifa í þögn er ómannúðlegt Það, að geta aldrei rætt um eitt- hvað sem skiptir miklu máli í lífi manns af því að það er fordæmt, er fyrir marga mjög erfitt. Það er eins og að þurfa að afneita ákveðnum mikilvægum hluta af sér sjálfum sem leiðir gjaman til vanlíðunar og verri sjálfsmyndar. Það er eins og að vera ávallt að leika í leikriti sem manni er þvingað til að leika í, þurfa oft að ljúga til um ástand sitt og að- stæður og vera alltaf að passa upp á að tala ekki af sér. Þetta getur smám saman orðið til þess að HIV- jákvæðir fara að einangra sig á vinnustaðnum, verða fyrir mikilli vanlíðan sem síðan getur leitt til erf- iðleika að halda út í vinnu. Þessi þögn hefur einnig þau áhrif að skiln- ingur og stuðningur, sem er svo nauðsynlegur þegar fólk er að fást við alvarlegan sjúkdóm, nær aldrei að verða til. Það er betra að komast inn um opnar en lokaðar dyr. Gerum því at- vinnumarkaðinn að atvinnumarkaði allra. Bjóðum HIV-jákvæða, seri? langar til að spreyta sig í vinnu, vel- komna til starfa þótt þeir séu ör- yrkjar og hafi ekki verið til vinnu í einhver ár. Einhvem tíma þurfa allir að öðlast ný tækifæri. Sýnum þeim virðingu í samstarfi og gefum þeim möguleika á að tala um sinn sjúk- dóm án þess að eiga hættu á for- dómum og/eða uppsögnum. Skiln- ingur og stuðningur frá umhverfinu geta skipt sköpun fyrir vellíðan hins jákvæða, framvindu sjúkdómsins og fyrir afköst og úthald þeirra á at- vinriumarkaðnum. _ Á skilningi og sveigjanleika græð- um við öll. Þessi réttindasigur er því sigur okkar allra! Höfundur er félagsráðgjafí Land- spítalanum, Fossvogi. SKARTGRIPA VERSLUN FYRST OG FREMST 03 U C E E 3 T3 s cn ___s --— «» Gullsmiðja Heigu Laugavegi 45 • Sfmí 561 6660 www.gullkunst.is Frumsýning á Kubota smágröfum í Reiðhöllinni - Víðidal í kvöld, föstudaginn 1. desember kl. 18.00 og á morgun, laugardaginn 2. desember kl. 12.00-17.00 ingvar Heigason hf. kynnir mest seldu smágröfur ? Evrópu! Einnig verða sýnd önnur tæki sem Ingvar Helgason hf. hefur umboð fyrir s.s. Fermec, Furukawa, Fendt, Linde, Massey Ferguson, sturtuvagnar. Einnig jeppar og pallbílar bæði frá Nissan og Isuzu. Á staðnum verða einnig notaðar vinnuvélar sem boðnar verða á sérstöku tilboðsverði á sýningunni. Munið sýninguna í kvöld þar sem sýndar verða nýjar smágröfur ásamt öðrum tækjum frá Ingvari Helgasyni hf. véladeild. Kubota KX-251 - 7 tonn Kubota K-008 - 800 kg Kubofo Kubota KC-100H Ingvar Helgason hf. Sævarhöfla 2 Sími 525 8070 Fax: 587 9577 www.ih.is Véladeild 4X

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.