Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 74

Morgunblaðið - 01.12.2000, Page 74
MORGUNBLAÐIÐ 74 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 *---------------------------- FRÉTTIR Málþing Guðfræði- * > stofnunar HI GUÐFRÆÐISTOFNUN Háskóla Islands heldur málþing með yfir- skriftinni: Stef úr sögu guðfræðinn- ar á íslandi í 2000 ár, laugardaginn 2. desember nk. kl. 14—18 í Hátíðarsal Háskóla íslands. Málþinginu stýrir prófessor Páll Skúlason rektor. Á dagskrá eru eftirtaldir fyrir- lestrar sem kennarar guðfræðideild- ar flytja. Amfríður Guðmundsdóttir lektor: „Kristur var minn eini vinur“: Þjáningin og trúin í lífi Guðríðar Símonardóttur, Bjöm Bjömsson prófessor: Manngildiskenning Helmuts Thielicke, Einar Sigur- bjömsson prófessor: af stallinum Kristí:“ Jólakvæði í Vísnabók Guð- brands, Gunnlaugur A. Jónsson pró- fessor: „íslands þúsund ár“: Sálmur 90 í sögu og samtíð, Hjalti Hugason prófessor: Trúarhefð Norðurlanda í ljósi kirkjusögunnar, Jón Ma. Ás- geirsson prófessor: Díatessaron á Islandi, Kristján Búason dósent; Hlutdeild heiðingjans í hjálpræði Jesú Krists: Mt 15.21-28, Kristján Valur Ingólfsson, lektor: Krákustíg- ur eða kláfferja: Staða og hlutverk praktískrar guðfræði í samtímanum , séð út frá sögu guðsþjónustunnar á íslandi í þúsund ár og Pétur Péturs- son prófessor: Guðfræðin og aðferðir félagsvísinda. Að loknum fyrirlestrunum verða fyrirspumir og umræður. Allir era velkomnir og kaffiveitingar verða í boði. --------------- Markaður og laufa- brauðsgerð í Gjábakka LAUFAB RAUÐSDAGURINN í Gjábakka, Fannborg 8, verður á morgun, laugardaginn 2. desember, kl. 13. Öllum er velkomið að taka þátt í laufaskurðinum og er fólk sem á góð áhöld, skurðbretti og hníf, beð- ið að taka þau með sér. Kökurnar verða tilbúnar til út- skurðar í Gjábakka og verða síðan seldar á kostnaðarverði. Þeir sem taka þátt í útskurðinum ganga fyrir til að kaupa. Undanfarin ár hefur yngri kynslóðin notið þess að læra handtökin og tekið þátt í þessari fomu íþrótt. Sama daga verður jólahand- verksmarkaður í Gjábakka sem einnig verður opnaður kl. 13. Á þess- um markaði býður eldra fólk til sölu ýmsa nytja- og skrautmuni sem unn- ir hafa verið með hugviti og högum höndum. Um kl. 14.30 mætir Samkór Kópavogs í Gjábakka og syngur áheyrendur inn í aðventuna. Heitt súkkulaði og pipakökur til sölu í Gjábakka kl. 14.45. Unnið við glerblástur í glerblástursverkstæðinu á Kjalarnesi. Opið hús í glerblástursverkstæði Leikiðaf fíngrum fram HLJÓÐFÆRAVERSLUNIN Sam- spil-Nótan heldur tónleika laugar- daginn 2. desember kl. 16 í samvinnu við nemendafélag FÍH. Nemendur ásamt öðrum sýna listir sínar á ýmis hljóðfæri og verður leikið af fingrum fram. Meðal nemenda era meðlimir úr hljómsveitum eins og Funkmast- er 2000, Jagúar, Flís og Jazzandi. FIH skólinn hefur um árabil verið einn helsti vettvangur fyrir tónlist- arfólk á íslandi í framsækinni tónlist. Allir era velkomnir og era eldri nemendur skólans hvattir til að mæta með hljóðfæri og taka lagið. Veitingar á staðnum, segir í fréttatil- kynningu. -----♦-♦-♦---- Jólabasar og hlutavelta slysa- varnakvenna SLYSAVARNAKONUR verða með basar og hlutasölu í Sóltúni 20 á morgun, laugardag. Kökur og margt góðra muna verður til sölu. Slysa- varnafélagið Landsbjörg hefur gefið út bamabók og geisladisk um Núma og höfuðin sjö. Sagan er eftir Sjón og Halldór Baldursson sem jafnframt myndskreytti bókina, Ingunn Gylfa- dóttir syngur lögin á diskinum en þau era flest þekkt barnalög. Þá er sagan um Núma einnig lesin milli laga. Þessi pakki kostar 2.500 kr. og verður til sölu á basarnum og hjá Slysavamadeild kvenna í Reykjavík. -----♦-♦-♦---- Markaður í Mosfellsbæ OPIÐ hús verður í glerblásturs- verkstæðinu á Kjalarnesi helgina 2. og 3. desember frá kl. 10-17 laug- ardag og kl. 10-15 sunnudag. Þar verður unnt að fylgjast með glerblæstri/mótun, útsala verður á útlitsgölluðum glermunum og boðið upp á kaffi, piparkökur. Galleruð verður opið og veittur er afsláttur af allri vöru. Verkstæðið er milli Klébergs- skóla og Grundarhverfis (u.þ.b. 22 km frá Ártúnsbrekku). Allir vel- komnir. FÉLAG handverksfólks í Mosfells- bæ og nágrenni verður með hand- verksmarkað á torginu í Kjama í Mosfellsbæ föstudaginn 1. desember frá kl. 11 til 19 og laugardaginn 2. desember frá kl. 11 til 18. Ymsar uppákomur. Ný fótaaðgerðastofa opnuð á Selfossi Selfossi. Morgunblaðið. FÓTAAÐGE RÐARSTOFA Mar- grétar var nýlega opnuð á Austur- vegi 6, 3. hæð, í miðbæ Selfoss. Það er Margrét Guðmundsdóttir fótaað- gerðarfræðingur sem er eigandi og starfar á stofunni. Margrét lauk námi í fótaaðgerða- fræði frá Norsk Fotterapeutskole í Kristiansand í Noregi síðastliðið vor og hefur bæði norska og íslenska löggildingu. Margrét sagði stofuna hafa fengið góðar viðtökur. „Fólki finnst gott að hafa góðan aðgang að stofu sem þessari," sagði Margrét en hún greinir þarfir einstaklinga út frá líð- an þeirra í fótum svo sem varðandi heppilegan skófatnað og innlegg í skó. Hún veitir einnig ráðgjöf varð- andi heppilegan skófatnað en hún segir að 90% tilvika fótameina megi rekja til skófatnaðar. Hún kvaðst hafa fengið til sín fólk á öllum aldri, bæði karla og konur og það væra ekki síður karlarnir sem kæmu. Gott væri fyrir fólk að huga að fótum sínum á svona 4-6 vikna fresti. Það væri nefnilega staðreynd að það tæki öllu fram að h'ða vel í fót- unum. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Margrét Guðmundsdóttir fóta- aðgerðafræðingur og eigandi Fótaaðgerðastofu Margrétar á Selfossi. Ræða stöðu Islands í Evrdpumálum LAUGARDAGSKAFFI Kjördæma- félags Samfylkingarinnar í Reykja- vík verður haldið 2. desember kl. 11 á kaffihúsinu Vegamót við Vegamóta- stíg (gegnt Máli og menningu). Til umfjöllunar verður staða ís- lands í Evrópumálum; reynslan af EES-samningnum, staða hans, framtíðarhorfur Evrópumála og reynsla og viðhorf innan ASÍ og LIÚ. Stutt framsöguerindi flytja Þór- unn Sveinbjamardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, og Halldór Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ. Laugardagskaffið er öllum opið. Jólabasar Kvenfélags Kópavogs HINN árlegi jólabasar Kvenfélags Kópavogs verður haldinn sunnu- daginn 3. desember kl. 14 í húsnæði félagsins að Hamraborg 10,2. hæð. Þar verður margt góðra muna á boðstólum, handgerðir munir, heimabakaðar kökur og ýmislegt fleira. Allur ágóði jólabasarsins ferð til líknar- og menningarmála. Tekið verður á móti munum laugardag milli kl. 16 og 18 og sunnudagsmorgun frákl. 10. -----------•-+-*----- Jólahlutavelta Sjálfsbjargar HIN árlega jólahlutavelta, lukku- pakka- og kaffisala Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu verður helgina 2. og 3. desember í félagsheimilinu Hátúni 12. Húsið verður opið frá kl. 14 til 17 báða dagana. Margir góðir vinningar era í boði. Jólasveinar koma á svæðið og gefa krökkunum nammi. Allir vel- komnir. ------♦-♦-♦----- ■ LANDSSAMTÖKIN Heimili og skóli halda aðalfund samtakanna laugardaginn 9. desember kl. 18 á mannhæðinni, Laugavegi 7,3. hæð. igræm Jól,t -e<fa///tá ás^e/t//1 ás^ Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn eðaltré, íhæstagœðaflokki ogprýða þau nú wjr mörg hundruð íslensk heimili /-^6^^777 ► 10 ára abyrgð ► ► 12 stærðir, 90 - 500 cm ► ► Stálfóturjylgir ► ► Ekkert barr að ryksuga ► ► lYuflar ekki stQ/ublómin ► Eldtraust Þarfekki að vökva Islenskar leiðbeiningar lYaustur söluaðttt Skynsamlegjjárfesting ^Znú fa*rðu Bandalagftlanskraskáta Wfa/ FJARSTÝRÐUR PORSCHE 911 TURBO Magnað leikfang sem nær allt að 25 km hámarkshraða. Verð kr. 10.900 TAKMARKAÐ MAGNI Krin 9lunna •nnaf aða. | a - gjafavöruverslun bilaáhugafólks Vagnhöföa 23 8t Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is Uppboð til styrktar Mæðrastyrksnefnd UPPBOÐ á um 30 bílum í eigu bílaleigunnar AVIS verður haldið laugardaginn 2 og sunnudaginn 3. desember milli kl. 12 og 16. Um er að ræða bfla í mjög góðu ásigkomulagi og eru þeir af mis- munandi tegundum. Flestir bfl- anna era árgerð 1999. Að upp- boðinu standa bflaleigan AVIS og útvarpsstöðin Bylgjan. Andvirði einnar bifreiðar renn- ur óskipt til Mæðrastyrksnefnd- ar. Upphæðin getur verið á bilinu 450 þúsund til 800 þúsund krón- ur. Síðan fer ákveðið hlutfall af hverjum seldum bfl í sama pott og er markmiðið að ná 1 milljón króna til að afhenda Mæðra- styrksnefnd. Uppboðið fer fram á athafna- svæði AVIS að Dugguvogi 10 í Reykjavík. Á aðventu er opið alla virka daga hjá Mæðrastyrksnefnd frá kl. 14-18. Þangað getur fólk leit- að eftir aðstoð. Mæðrastyrksnefnd kaupir svokallaða matarmiða sem hún dreifir til sinna skjólstæðinga og einnig fær nefndin fot frá inn- flytjendum, framleiðendum og frá fólki sem býður nefndinni góðan lítið notaðan fatnað til dreifingar. Fjöldi fyrirtækja hefur lagt hönd á plóginn en þrátt fyrir auk- inn kaupmátt fólks hefur fjölgað í þeim hópi sem þarf aðstoðar Mæðrastyrksnefndar. Þannig vora afgreiddar 1.100 beiðnir á skrifstofu nefndarinnar að Sól- vallagötu 48 í desember í fyrra. Nefndin reiknar með aukningu fyrir þessi jól.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.