Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 78

Morgunblaðið - 01.12.2000, Síða 78
78 FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 ,SEM PERSÓtiULEGUk OG ÓHÁBUR FJÁRMALARÁUGJAFI, ÞA GEJ EG MÆLTMEÐ YMSUM MÖGULEIKUM TIL SPARNAÐAR - HLUTABPjEF I TRAUSTUM FYRIRTÆKJUM, HLUTABREFASJÓÐIR, SKULDABREF, , RÍKISVÍXLAR, ALLT GOOIR KOSTIR Ljóska Ferdinand I DONTCARE UJWATYOUR TlCKET 5AVS,KIP..5IT POUJN OVEK TMEREÍ VOUJOO' 5IT WHERE I TELL VOU, OK l'LL BREAK ALL YOUR ARM5.1 HERE, HAVE A PR06RAM!! TE5, MAAM..THIS 15 MY REPORTONTHE ‘‘TINV T0T5" CONCERT... I ENJOVEPTHIS CONCERT MORETHAN ANYOTHER BECAUSE I GOTTO Mér er sama hvað stendur á miðanum þínum. Þú átt að sitja þarna. Og þú líka! Sittu þar sem ég vísa til eða ég brýt á þér hendurnar. Hérna er efnisskrá. Já, kennari. Þetta er skýrslan mín um túnleikana. Ég hef ekki skemmt mér betur á nokkrum tónleikum af því að ég fékk að vera sætisvísa. Býsna furðuleg verðlaunaveiting Frá Guðmundi Guðmundarsyni: Menntamálaráðuneytið hefir beitt sér fyrir átaki til að auka veg móðurmáls- ins á allan hátt, ekki síst meðal skóla- bama. Vissulega ber að fagna slíku átaki í skólum landsins. Dagur ís- lenskrar tungu skal vera fæðing- ardagur Jónasar Hallgrímssonar 16/11 ár hvert. Sérstök „ráðgjaíá- nefnd“ var skipuð Guðmundur 0g ákvað að þessu Guðmundarson „■__■ „„ smm að veita skáldinu og söngvaranum MEGASI (Magnúsi Þór Jónssyni) verðlaun Jónasar Hallgrímssonar. í rökstuðningi nefndarinnar segir m.a. „að Megas hafi með skáldskap sínum auðgað íslenskt mál. Ljóðmál hans er frumlegt og nýtt og sækir líf sitt í hversdagsleika borgarinnar, feg- urð og ijótleik mannlífsins" o.s.frv. Is- lenska menningu og menningararf skoðar hann með gagnrýnum og hvössum hætti“. I tilefni dagsins vai- gefin út sérstök hljómplata með söng og ljóðum Mega- sar. 18 ljóð er því aðeins möguleiki á örfáum og smáum sýnishomum á víð og dreif úr nokkram þeirra, Löggulíf: Þegar allt er á bömmer og blús þá blómstrar ekkert í þinni krús og ódámar beija að utan þitt hús... Hjálmar guð veistu gerði á mig hjálm svo ég ætla að græja einn þennan hér sálm til gloríu og dýrðar umferðarráði það klessti á mig sjálfrennireið hvar ég sigldi áhjóli mína leið og ég sveif í boga og lendingu ómjúka háði guð mig sko gjörði af leir jú sjáðu svo gæti ég hógvær og meyr meikað velgjulítið að mæra rfldslögreglu- stjóra Það klessti á mig kókaínskeið hvar nema þar sem ég beið mannsins sem sá til þess að hóra hver fengi hangið í að tóra meðhjálpsinnabjóra ogóra „Verðlaunin hlýtur sá er hefir unnið gott starf í þágu íslenskrar tungu.“ Þetta eru kjörorð samkeppninnar! Mér er spum: Er hugsanlegt að lít- ilsvirða minningu Jónasar Hallgríms- sonar með ömurlegri hætti en gert er með þessari furðulegu verðlaunaveit- ingu? Rétt er að geta þess að meðal gesta var Þorgeir Þorgeirson rithöfundur. Hann gekk til ráðherra, tók í hönd hans og mælti: „Það er sjaldgæft að maður finni sig knúinn til að óska verðlaunaveitingum til hamingju.“ Virtist hann tala fyrir munn margra er staddir voru í Þjóðminjahúsinu til að fagna „Degi íslenskrar tungu“ og jafn- framt að hylla textasmiðinn Megas. Já, þetta var vissulega talinn sigur- dagur af gestum og nefndarmönnum sem eru: Kristján Arnason, Sigmund- ur Emir Rúnarsson og Guðrún Nor- dal. Menningarsjóður íslandsbanka- FBA iagði til verðlaunin, sem vom 500.000 kr. ásamt loforði um heildar- útgáfu á verkum Jónasar Hallgríms- sonar. Er sú útgáfa vissulega fagnað- arefni. Ekki er við bankann að sakast, þótt hin gagnmerka „ráðgjafanefnd“ virðist hafa misstigið sig með eftir- minnilegum hætti! Gefið ykkur tíma til að lesa ljóðagerðina. Læt þetta nægja að sinni. GUÐMUNDUR GUÐMUNDARSON, fyrrv. frkvstj. Opið bréf til sveitarstjórn ar Húnaþings vestra Frá hreppsnefndarmönnum í Vestur-Húnava tnssýsl u fyrir sameiningu: VEGNA ákvörðunar um byggingu íþróttahúss á Hvammstanga send- um við undirrituð, sem öll voram hreppsnefndarmenn í Vestur-Húna- vatnssýslu fyrir sameiningu, sveit- arstjórn Húnaþings vestra eftirfar- andi bréf: Við sameiningu sveitarfélaga hér í Vestur-Húnavatnssýslu, fyrir rúm- lega tveimur áram, var lögð til grandvallar hagkvæmni og nýting á þeim eignum sem til væru. Viljum við undirrituð skora á sveitarstjórn Húnaþings vestra að hætta við eða a.m.k. fresta um nokkur ár að byggja umrætt hús. Fyrst ber að finna öðram hvoram skólanum (þ.e. Laugarbakka og Hvammstanga) annað hlutverk áður en ráðist er í byggingu af þessu tagi. Sveitarfélagið á nú þegar mörg mannvirki sem brýnt er að halda við. Ef annað hlutverk finnst fyrir Laugarbakkaskóla, er komin þörf fyrir íþróttahús á Hvammstanga. Ef annað hlutverk finnst fyrir Hvammstangaskóla er íþróttahús við þann skóla baggi á sveitarfélag- inu. Við, þessir fáu íbúar í Húna- þingi vestra, verðum að einbeita okkur að samstöðu og uppbyggingu í atvinnumálum. Vöramst sundurlyndi. EGGERT PÁLSSON, Bjargshóli, fyrram Fremri-Torfustaðahreppi, ELÍSABET BJARNADÓTTIR, Hvammstanga, í fyrrum Hvammstangahreppi, HERDIS BRYNJÓLFSDÓTTIR, Laugarbakkaskóla, í fyrrum Ytri-Torfustaðahreppi KONRÁÐ JÓNSSON, Böðvarshólum, í fyrrum Þverárhreppi, LOFTUR GUÐJÓNSSON, Ásbjarnarstöðum í fyrram Kirkjuhvammshreppi, SIGURÐUR BJÖRNSSON, Kolugili í fyrram Þorkelshólshreppi, SVERRIR BJÖRNSSON, Brautarholti í fyrram Staðarhreppi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.