Skírnir - 01.01.1845, Síða 144
116
herskip hanns heim á leið, ef þau kjæmu í grend
við Suðurálfuna. Ilefur soldán í þessu, einsog
mörgu fleiru í ár, orðið að brjóta odd af ofiæti
sínu vib Frakka og enar aðrar voldugu þjóðirnar.
Frá Servíumönnum.
7
þótt Servi'a sb einn hluti af Tyrkjaríki, er
soldán þar, einsog víðar i ríkinu, lítils orkandi;
eð mesta, er hann þar ræður, er að hann, ásamt
voldugu þjóðunum, einkum Iliissum, ákveður hvör
vera skuli þar landshöfðúigi, og hve mikinn skatt
hann skuli gjalda ser á ári. En löggjöf og flestu
stjórnarskipulagi í landinu ræður landshöfðinginn
og landsmenn sjálfir; þó fara þeir í rnörgu að
ráðum eyrindisreka Rússa, er að undanförnti hafa
þeim vel gefist. Er og Serviumönnum í mörgum
greinum betur farið enn mörgum öðrum í ríki
Tyrkja; þó geta þeir engann veginn heitið ment-
aðir, þótt hagir þeirra hafi á ymsar lundir breytst
til batnaðar á seinni árum, sem þakka má því að
innanrikis óeyrðunum þar hefur að miklu leiti
slotað og laudshöfðingjarnir þar hafa verib all-
stjórnsamir, eiiikum Alexander Georgsson (Geor-
gievvitsch), er nú sitnr þar ab völdurn. Hefur og
flestum þar í ár gfeðjast vel að*stjórn hanns. þó
voru þeir mcnii nokkrir, er steypa vildu hönum
úr völdum, af því þeir aptur vildu taka Mikjál
fyrir höfbíngja yfir sig; voru margir af þeiin þeir
er haft höfðu embætti á hendi meðan Mikjáll sat
að völdum, en síðan liöfðu mist þan, þá er höfð-
ingjaskiptin urðu, og ásamt IMikjáli farið úr landi,
en scinna setst þar að, þá er þeir fengu uppgjöf