Skírnir - 01.01.1893, Side 17
Kirkjumál.
1?
áður. Þessum prestaköllum veitti landshöfðingi leyfi til þess að taka lán:
Skútustaðaprestakalli (600 kr.) til landkaupa (,20. sept.), Grenjaðarstaðar-
prestakalli (3000 kr.) til húsakaupa og húsabygginga (s. d.), Bergstaða-
prestakalli (300 kr.) til kirkjubyggingar (18. okt.), Hvammsprestakalli í
Laxárdal (1000 kr.) til húsabðta (29. nóv.). — Sú breyting var ger á
takmörkum prðfastsdæma, með konungsúrskurði 21: júlí, að Staðarsðkn
í Hrútafirði var lögð undir Strandaprðfastsdæmi og Garpsdalssókn til Dala-
prðfastsdæmis.
Bráðabirgðaruppbðtina handa fátækum prestaköllum fyrir fardagaárið
1893—94 (2700 kr.) fengu þessi prestaköll: Staður í Grindavík (300 kr.),
Staður í Aðalvík (600 kr.), Tjörn á Yatnsnesi (300 kr.), Miðgarðar í Gríms-
ey (400 kr.), Lundarbrekka (300 kr.), Skarðsþing (250 kr.), Sauðlauksdal-
ur (250 kr.), Stðruvellir (200 kr.), Stöð í Stöðvarfirði (100 kr.).
Auk lagafrumvarpa þeirra, snertandi kirkjumál, sem þegar hefir verið
minnst á, skal hér ennfremur getið tveggja, er nokkuð kvað að, er bæði
voru felld af alþingi. Annað var um rétt þeirra manna, er hafa þjðð-
kirkjutrú til að ganga í borgaralegt hjðnaband, en hitt um breyting á
lögum 19. febr. 1886 um ntanþjððkirkjumenn; var í því farið fram á gjald-
frelsi til prests og kirkju fyrir alla utánþjððkirkjumeun.
Biflíufélagið hélt ársfund sinn 5. júlí; átti það þá í sjðði 20,928 kr.
07 au. Stjórn félagsins var falið að semja fyrir næsta fund frumvarp til
endurskoðaðra laga fyrir félagið.
Sunnudagaskðli, í líkingu við það, er víða tíðkaBt í útlöndum, komst
á í Keykjavík veturinn 1892—93, fyrir forgöngu háskólakandídats Jóns
Helgasonar; er börnum þar veitt biblíufræðsla, samtengd stuttri prédikun
við hæfi barnanna. — Ávarp það, frá biskupi og ýmsum prestum um æfi-
bindindi andlegrar stéttarmanna, sem getur hefir verið áður í þessu riti
(sbr. Fr. 1892, blB. 6) hefir borið þann árangur, að við árslok 1893 höfðu
rúmir 50 andlegrar stéttarmenn ritað nöfn sín undir það og þar með
bundist því heiti að styðja bindindi i orði og verki.
Hér á við að minnast sæmdar þeirrar, er einn söfnuður sýndi sðkn-
arpresti sínum þetta ár. Hún var sú, að safnaðarmenn Garðaprestakalls
á Álptanesi færðu Dðrarni prófasti Böðvarssyni heiðursgjöf: gullúr með
gullfesti, til minningar um það, að á þessu ári hafði hann þjðnað því
prestakalli í 25 ár. Gjöf þessari fylgdi ávarp og kvæði.
Loks skal þess getið — raeð því lengi hafa ekki fundist dæmi til
sliks — að siðustu 3 mánuði ársins var ekkert prestakall laust til um-
2
Skfrnir 1893