Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 36
36
Heilsufar og mannalát
fyrir því stórtjóni, að íbóðarhós hans, er voru rajög vönduð brunnu og
miklir fjármunir, allt óvátryggt. Hann var nokkuð þéttur í lund, og eigi
lét hann hlut sinn við hvern sem var að skipta. Á alþingi hlaut hann
mikla virðingu hjá tignum sem ótignum, og var jafnan góður rómur ger
að tillögum hans, enda þóttu þær allar vel hugsaðar og viturlegar. Yfir
höfuð mátti kveða svo að orði, að hann í flestu væri hin fegursta fyrir-
mynd íslenskra bænda, eins og þeir geta orðið bestir og göfugastir. Á
þjóðliátíðinni 1874 sæmdi konungur hann heiðursmerki dannebrogsmanna.
Heiðursgjöf úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX hlaut hann 1883.
Torfi Þorgrímsson prentari, andaðist í Eeykjavík 21. jan. (f. 24..
jan. 1828). Hann hafði stundað prentiðn nær hálfa öld; hann var „fyrir-
taks iðju- og eljumaður, fyrirhyggju og ráðdeildar11.
Sigurður Sigurðsson, óðalsbóndi á Breiðavaði í Fljótsdalshéraði, and-
aðist 16. febr., 66 ára. Honum búnaðist vel og stundaði smáskammta-
lækningar með góðri heppni og þótti vera valmenni.
Oísli Þormóðsson verslunarmaður, andaðist í Hafnarflrði 2. mars (f.
1829). Hann var sonur Þormóðs bónda Bergssonar í Hjálmholti og Mar-
grétar Sigurðardóttur frá Gegnishólum; hann hafði lengi búið á Lambastöð-
um i Hraungerðishverfi, en svo gerðist hann verslunarmaður við verslun
P. C. Knudtzons i Hafnarflrði. Hann var dugnaðarmaður og áreiðanlegur.
Ludvig Frcderik Popp stórkaupmaður, andaðist á Sauðárkróki 10.
mars (f. í Kaupmannahöfn 28. febr. 1831). Hann kom hingað til lands
22 ára gamall og stóð fyrir verslun á Eskifirði og Seyðisflrði og stofnaði
síðan sjálfur verslun á Akureyri. Síðast hafði hann verslun á Sauðár-
króki og Hofsós. Kona hans, er var dönsk, liflr hann með 3 uppkomnum
börnum. Hann var frumkvöðull að því, að brú var lögð á Grrafará í Skagafirði;
hann gaf og fé til brúargerðar á Hofsá og til kirkjubyggingarinnar á
Sauðárkróki. Hann gerði mjög gott snauðum mönnum. Fegurðartilfinn-
ing hans var viðbrugðið og í málaraíþrótt mun hann hafa átt fáa sína
líka hér á landi.
Jón Jóakimsson dannebrogsmnður á Þverá í Laxárdal í Dingeyjar-
sýslu andaðist 16. apríl (f. á Mýlaugsstöðum 26. jan. 1816). Hann var
sonur Jóakims bónda Ketilssonar og Aðalbjargar Pálsdóttur frá Héðins-
iiöfða Halldórssonar. Hann hafði lengi búið rausnarbúi á Þverá og hýst
þar prýðilega. Hann átti fyrst Herdísi Ásmundsdóttur frá Stóru-Yöllum í
Bárðardal og með honni 6 börn, ,er upp komust, en síðar Bergljótu Gutt-