Skírnir - 01.01.1893, Qupperneq 68
68
Ítalía.
lét Crispi til Ieiðast. Hann hefir verið æðsti ráðgjafi áður, eins og kunn-
ugt er, og gengið þá vel fram í því að halda við bandalaginu við Þýzka-
land og Austurríki.
Crispi hélt tölu mikla þegar hann kom fyrst á þingið og kvartaði
mjög yfir því, hve illa væri nú statt á Ítalíu. Einkum tðk hann fram ó-
eyrðirnar á Sikiley og fjárekluna, þvi ríkisskuldir færu vaxandi ár frá ári.
Hann kvaðst þð vona að mögulegt væri að kippa þessu í liðinn og skor-
aði á alla þingmenn að fylgja sér að þessu máli.
Eitt af því fyrsta sem Crispi tðk sér fyrir hendur, eptir að hann
varð æðsti ráðgjafi, var að senda her manna til Sikileyar, 60,000 manns
og veitti hann foringja liðsins nokkurskonar alræði yfir eynni, í bráð.
Jafnframt lagði hann fram ýms lagafrumvörp til þess að bæta hag eyjar-
skeggja, og lét sér í öllu hugað um Sikiteyinga. Crispi er sjálfur frá
Sikiley og eins Rudini, sem var æðsti ráðgjafi á undan honum, en Qio-
litti er frá Piemont.
Lögleysingjar hafa gert vart við sig víða á Ítalíu með sprengingum
og sprengingartilraunum; hafa sumir náðst og fengið makleg málagjöld.
Snemma í desember varð ófriður mikill milli ítala og Araba í Mass-
ana, vestanvert við hafið rauða. Arabar voru 10,000 saman, en ítalir
unnu á þeim sigur og féll foringi Araba meðal margra annara af félög-
um Binum.
England. Þar hefir meðferð frumvarpsins um sjálfsstjðrn íra „The
Home-Rule Bill“ þðtt einna mesti m tíðindum sæta og skal eg nú skýra
frá henni að nokkru.
Gladstone, stjórnarforseti Englendinga, hefir lengi fengizt við írsk
mál öðru fremur. Þegar hann varð æðsti ráðgjafi 1886 lagði hann fram
lög um hlutfallið milli Englauds og írlands, en þau náðu ekki að ganga
fram, því flestum þóttu þau gera írum of hátt undir höfði og féllu ýmsir
af hinurn helztu fylgismönnum Qladstone’s frá honum vegna þess. En
þegar Gladstone komst aptur til valda 1892 tðk hann til óspiltra mál-
anna og boðaði að hann mundi leggja fyrir þingið frumvarp um sjálfstjðrn
íra, þegar það kæmi saman 1893. Enginn fékk að vita hvernig frum-
varpið átti að vera, jafnvel ekki drottningin sjálf, og má því nærri geta
að þröng hafi verið á þingi fyrir forvitni sakir, þegar það var sett, 31.
janúar. En Gladstone lagði ekki fram frumvarp sitt þennan dag og ekki
fyr en 13. febrúar.