Skírnir - 01.01.1893, Qupperneq 95
Öunur lönd í Vesturheimi.
95
Bandaríkjanna og þessara Norðurálfuríkja. En sá grunur rættist ekki,
og hefir stríð þetta verið látið hlutlaust af stjórnum annara landa, að
minnsta kosti að yfirborðinu.
Nokkur mannalát 1893. 19. febrúar dó von Bleichröder, banka-
eigandi þýzkur, 72 ára gamall. Hann lét eptir sig 90 miljónir króna og
hafði hann grætt allt þetta fé á 30 árnm. Svo stóð á, að áður en striðið
hófst við Frakka 1870 láuaði Bleichröder prússnesku st.jórninni of fjár,
40 miljónir „Thaler“, segja sumir, því hann var þess fullviss, að Bis-
marck og Prússar mundu veiða ofan á í ófriðnum. Þetta fór lika að
getu hans, eins og kunnugt er. Eptir stlúðið var Bleichröder fjárhirðir
Bismarcks og þýzka ríkisins, ef svo má segja, og græddi hann á því of
fjár. Enn sá Bismarck um að hann var herraður og voru þeir aldavinir
meðan þeir lifðu báðir. V. Bleichröder var gyðingur eins og svo margir
bankamenn.
5. marz dó einhver hinn helzti listfræðingur og sagnfræðingur, sem
befir verið uppi á þessari öld, Hippolyte Taine, frakkneskur maður. Hann
er fæddur 21. apríl 1828 og var langa hríð kennari við fagurfræðisskólann
í Parísarborg. Taine ritaði fjölda rita og er hvertöðru merkilegra. Hér má
nefna enska bókmenntasögu (1864), rit um ítölsk, niðurlenzk og grisk
listaverk (1866—69) og svo aðalrit hans um fæðiugu og þroska Frakk-
landB, eins og það er nú, ef svo má að orði kveða. (Les origiues de la
France contemporaine 1878—84). í riti þessu leitast Taine við að sanna,
að stjórnarbyltingin mikla hafi í raun réttri ekki haft neitt nýtt í för
með sér, heldur eigi allar breytingar, scm komust á við hana, rót sína að
rekja til eldri tíma. Taine var manna lesnastur og lærðastur og leitast
hér eins og annarsstaðar við að sanna mál sitt með óyggjandi skjölum og
skýrteinum, en þó hefir þetta rit hans vakið talsverða mótspyrnu. Aðal-
stefna Taine’s var að rannsaka andleg afreksverk mannkynsins (skáldskap,
lÍBtaverk o. s. frv.) á sama hátt og náttúrufræðingur rannsakar dýra- eða
jurtaríkið, Haun hélt því fram. að audlegt líf hverrar þjóðar, hvers tíma-
bils, væri lögbundin afleiðing af ýmsum eðlilegum orsökum, landslagi,
loptslagi, siðum o. s. frv., og hefir stefna þessi haft mjög mikil áhrif á
listfræði og sagnfræði seinni tíma.
17. marz dó stjórnmálamaðurinn Jules Ferry. Hann var fæddur 5.
april 1832 og var málafærslumaður og blaðamaður framan af æfi sinni.
Hann varð þingmaður 1869 og barðist þá eptir megni móti því, að Prúss-